Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.05.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.05.1997, Page 7
Bjöm Gestsson Jón Geir Lúthersson fæddist að Vatnsleysu í Fnjóskadal 8. júlí 1914. Hann Iést á heimili sínu 7. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lúther 01- geirsson, f. 17. ág. 1889, d. 14. maí 1922, og Þórunn Pálsdóttir, f. 24. apr. 1892, d. 6. jan. 1978. Jón Geir var elstur barna Lúth- ers og Þórunnar en næstur hon- um kom Olgeir, Vatnsleysu, f. 26. okt. 1915, d. 22. jún. 1996; þá Margrét, Akureyri, f. 3. des. 1917 og Lúlley Esther, Akureyri, f. 24. feb. 1922. Hálibróðir Jóns, sonur Þórunnar og seinni manns hennar Ingimars Kristjánssonar, er Ingi Þór Ingimarsson á Neðri- Dálksstöðum, f. 23. des. 1925. Fyrri kona Jóns var Bergljót Indriðadóttir frá Skógiun, f. 9. feb. 1920, d. 9. júlí 1943. Þeim varð ekki barna auðið. 17. júní 1945 kvæntist Jón Ásdísi Stefánsdóttur frá Hall- gilsstöðum, f. 28. ág. 1923). Þau stofnuðu nýbýlið Sólvang úr landi Hallgilsstaða árið 1946. Börn Jóns og Ásdísar eru: 1) Bergsveinn, Sólvangi, f. 7. okt. 1945,. 2) Ingvar, Sólvangi, f. 3. nóv. 1946. 3) Þórdís Hólmfríður, Akureyri, f. 9. maí 1949, maður hennar Birgir Jónasson, dætur þeirra Ásdís og Björg, barn Ás- dísar Arna Baldvinsdóttir. 4) Ingunn, Kópavogi, f. 30. des. 1950, maður hennar Magnús Skúlason, synir þeirra Hlynur og Skúli. 5) Sigrún, Akureyri, f. 27. okt. 1953, maður hennar Ólafur Haukur Baldvinsson, dætur þeirra Sólrún María, Hafdís og Dagný. 6) Aðalheiður Erla, Ak- ureyri, f. 17. maí 1957, maður hennar Óskar Helgi Albertsson, börn þeirra Kári Páll, Björk og Ásdís Helga. 7) Þórunn, Sól- vangi, f. 1. nóv. 1961, maður hennar Rúnar Jóakimsson, börn þeirra Arnar Geir, Hrönn, Silja og Líney. 8) Sólveig, Grenivík, f. 25. mars 1964, maður hennar Friðbjörn Axel Pétursson, börn þeirra Erla, Jón Geir og Berg- sveinn Ingvar. 9) Steinunn Harpa, Akureyri, f. 24. apr. 1969. Það er svo margt. Heilt mynda- albúm í huganum. Situr við end- ann á eldhúsborðinu með pípuna. Ilmur af Half and Half. Hann kall- ar á okkur og við fáum að blása á eldspýtuna. Bíltúr á Volgunni með rauða flauelsáklæðinu á heitum sumardegi. Með nikkuna inni í Okkar herbergi. Við stóra þunga skrifborðið að færa inn í ærbókina. Segir okkur fréttir af kindunum okkar. Að segja sögur. Hlæjandi. Hreinskilinn og á stundum óvæginn í orðum. Hjartahlýr. Afi er stór maður í minning- unni, þótt ekki hafl hann verið hár í loftinu, og við dáðum hann. Einhvern pata höfðum við af því að hann hefði eitthvað unnið við vegagerð á yngri árum og þar með þótti okkur það ljóst að hann hlyti að hafa gert veginn yfir Vaðlaheiði, svo til einn og óstudd- ur, en það var leiðin sem við þurftum að aka til að komast í sveitina í þá tíð. Ekki nóg með það, heldur var tilfinningin hka sú að hann hlyti að hafa smíðað bogabrúna við Vaglaskóg (þar sem myndin framan á einni af hljómpfötu Karlakórsins Goða er tekin, afi er fyrir miðju í ljósbrún- um fötum). Það hefði hins vegar orðið að teljast hið merkilegasta afrek, þar sem brúin er smíðuð árið 1907, sjö árum áður en hann fæddist. En sú vitneskja barst okkur til eyrna í seinni tíma og er í rauninni algjört aukaatriði. Björn Gestsson fæddist 2. maí, 1918 að Vermundar- stöðum í Ólafsfirði. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 6. maí síðastliðinn. Þegar hann var mánaðargam- all fluttu foreldrar hans Sigrún Júlíusdóttir og Gestur Vilhjálms- son að Bakkagerði í Svarfaðardal, þar sem þau bjuggu allan sinn bú- skap. Björn var næst elstur fimm systkina, þau eru; Hlíf í Reykja- vík, Ríkarður í Bakkagerði, nú látinn, Jóhanna María á Seltjarn- arnesi og Kristín á Dalvík. Björn kvæntist 27. nóvember 1943 eftir- lifandi eiginkonu sinni Sigríði Magnúsdóttur, fædd 14. mars 1923 á Björgum í Hörgárdal. Þau eignuðust fimm börn, 1) Magnús, fæddur 16. aprfl 1944, k.h. Fann- ey Margrét Þórðardóttir, 2) Gest- ur, fæddur 3. desember 1945, k.h. Ingibjörg Kjartansdóttir, 3) Sig- rún, fædd 1. mars 1952, dáin 8. janúar 1953, 4) Sigrún Lára, fædd 23. júlí, 1954, m.h. Jón Aðal- steinsson, 5) Kristín, fædd 8. júní 1964. Barnabörnin eru ellefu og barnabarnabörnin eru orðin sex. Björn var bóndi á Björgum frá 1947 til 1984, en þau hjónin fluttu þaðan til Akureyrar 1988. Útför hans fór fram frá Akur- eyrarkirkju föstudaginn 16. maí. Það er víðsýnt af hlaðinu á Bakkagerði í Svarfaðardal. Byggð- in á Austurkjálkanum blasir við augum, alft frá Ytra-Hvarfi að Skáldalæk út undir sjó. Skíðadafur- inn opnast til suðurs og Stóllinn, fjallpíramídinn mikli fyrir miðjum dal, sem ætti að vera í skjaldar- merki Svarfdælinga, hefur álíka seiðmagn og Snæfellsjökull. Árið 1919 hófu ung hjón, Gestur Vilhjálmsson frá Bakka og Sigrún Júlíusdóttir frá Syðra-Garðshorni, búskap í Bakkagerði og þar áttu þau eftir að búa farsælu búi í tæp sextíu ár. Þau eignuðust fimm börn: Hlíf, Björn, Ríkharð, Jó- hönnu Maríu og Kristínu. Aðal Bakkagerðisfjölskyldunnar var eindrægni og iðjusemi og hlutu systkinin þann arf í heimanmund. Sigrún í Bakkagerði var frænka okkar systkinanna f Syðra-Garðs- horni og samgangur mikifl á milli fjölskyldnanna á bæjunum. Systk- inahóparnir á þeim voru jafnstórir og nokkuð jafnaldra. Björn hlaut skólagöngu sína í Grundarskóla hjá Þórarni k'ennara á Tjörn, síðan hjá Pétri Finnboga- syni frá Hítardal og Stefáni Bjarm- an í Unglingaskóla Svarfdæla, sem þá var hafdinn á Bakka. Hann stundaði nám í Hólaskóla og varð búfræðingur þaðan árið 1941. Björn var félagslyndur og vinsæll og tók virkan þátt í félagsskap unga fólksins í sveitinni. Krossmessumorguninn 1939 kom ég út á hlað heima og sá þar kominn Björn frænda, sem nú var ráðinn kaupamaður hjá okkur um sumarið. Hugsaði ég gott til þeirra samvista og varð heldur ekki fyrir vonbrigðum. Björn var ljúflyndur og skemmtilegur, talaði vandað mál og seinmæltur nokkuð; fum- laus og vandvirkur. Honum var gefinn sá eiginleiki að kunna að sjá hina spaugilegu fleti á tilverunni gleggra en margur annar og veitti oft samferðamönnunum hfut í þeirri náðargáfu, því hann sagði vel frá. Guðmundur ráðunautur Steindórsson hefur sagt mér að þegar hann var kaupamaður eitt sumar hjá Birni og Sigríði frænku sinni, þá búandi hjónum á Björg- um í Hörgárdal, hafi Björn tíðum sagt kímilegar sögur yfir hádegis- verðinum, helst utan úr Svarfaðar- dal og að það hafi verið svo vart og skart að hann hafi nokkurn tímann sagt sömu söguna tvisvar liðlangt sumarið. Björn var vel giftur. Eftirlifandi kona hans, Sigríður Magnúsdóttir, er frá Björgum í Ilörgárdaf, dóttir hjónanna Magnúsar Sigurðssonar, lengi bónda þar og vegaverkstjóra og Láru húsfreyju Guðmundsdótt- ur. Þau Björn og Sigríður fóru að búa á Björgum árið 1947 og reistu sér vandað og fallegt einbýfishús. Þau ráku þar stórt og arðsamt bú, aðallega kúabú, til ársins 1987 er þau fluttu til Akureyrar. Allmörg fyrstu árin bjuggu þau í tvíbýli við eldri hjónin. Alltaf var gott og nota- legt að koma í Björg, þar var mikil gestrisni. Bjargarbændur fylgdust vel með nýjungum í búskap. Á sjötta áratugnum reistu þeir t.d. eitt fyrsta hjarðljós (lausagöngu- fjós) á landinu, og þótti viðburður á sínum tíma. Björn veiktist af berkfum á miðjum aldri og afleiðingar þess háðu honum afla tíð síðan þó að hann stundaði búskapinn eflir sem áður af alúð og skyldurækni. Birni og Sigríði var fjögurra barna auð- ið. Þau eru: Magnús, Gestur, Sig- rún og Kristín. Síðustu æviárin var Björn mjög þrotinn að heilsu. Ég kveð þennan ágæta frænda minn með þökk fyrir samfylgdina. Við Þuríður vottum Sigríði og öðrum ástvinum hans innilega samúð. Minningin um hann lifir og vermir. Júlíus J. Daníelsson Nú hefur hann elskulegur afi minn kvatt þetta jarðlíf og sálin hans loksins fengið frelsi á ný. Mikið er gott að vita til þess að nú getur þú farið að glettast á ný og segja sög- ur. En á sama tíma er sorgin og söknuðurinn mikill, því við höfum misst svo mikið. Minningarnar um þig eru marg- ar og allar svo yndislegar, það sem þú gast alftaf verið þolinmóður og góður við okkur barnabörnin, alltaf fengum við að skottast með þér, í fjósinu, ljárhúsunum, við girðingavinnu, heyskap og svo auðvitað smölun. Þær voru ótal sögurnar sem þú sagðir okkur af alls konar fólki, og öll ævintýrin eins og um hana Búkollu, og bræð- urna nafna þína Einbjörn, Tví- björn, Þríbjörn, þar var aðal gam- anið fólgið í því að sjá hvort þér tækist að fara með síðustu rulluna án þess að fipast, svo hlóstu þínum dillandi hfátri í fokin. Ósjaldan sungum við saman lög eins og Ég fer líka í sveit eða Rúgbrauð með rjóma á . Já, alltaf virtist þú líka hafa tíma til að hlusta á það sem lá manni á hjarta og þó þú værir orð- inn veikur síðustu árin, þá lagðir þú alltaf mikið kapp á að fylgjast með því sem við vorum að gera. Þegar ég hafði verið heilt ár í Bandaríkjunum, þá veit ég að þú fylgdist með mér allan tímann því þegar ég hitti þig eftir að ég kom heim þá varstu alveg með það á hreinu hvar ég hafði verið og hafð- ir ýmsar spurningar um þetta fjar- læga land. Elsku afi við munum öll geyma minninguna um þig í hjarta okkar. Elsku amma þinn missir er mik- iU, megi góður Guð styrkja okkur öll. Hin langa þraut er liðin nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grœtt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði erfrá. V. Briem Þín Hanna Berglind. Nú þegar Björn á Björgum er lát- inn, fljúga ýmsar minningar í gegnum hugann. Hann var ein- staklega bfíður og góður maður, en alltaf stutt í grín og glens hjá hon- um. Það var ekki ósjaldan sem sagt var heima: eigum við ekki að skreppa í Björg og haldið var af stað og tóku þau Sigga móðursyst- ir mín og Björn á móti okkur eins og höfðingjum. Oft fékk óg að gista og man ég að þegar ég byrjaði í skóla, þá þótti mér það verst hvað það var bind- andi, því þá gat ég ekki farið í Björg eða austur í Reyki, þar sem hin móðursystir mín bjó og gist þegar mig lysti. Það var alltaf fjölmennt við eld- húsborðið á Björgum og allir áttu sín sæti og Björn við endann á borðinu. Alltaf var gaman að hlusta og heyra sögurnar hans og létta stríðni með tilheyrandi orð- sprokum. Það fór ekki fram hjá neinum hvað hann unni fjölskyfdu sinni. Það er mér minnisstætt að hann sagði alltaf: Sigríður mín, með sér- stakri áherslu og blíðu. Ég man að ég hugsaði sem barn: Birni þykir rosalega vænt um Siggu . Elsku Sigga, Krístín, Sigrún, Gestur og Magnús og fjölskyldur. Þið eigið minningu um góðan fjöl- skylduföður sem unni ykkur öllum og öllum leið vel í návist. Blessuð sé minning Björns. Svandís. Mágur minn, Björn Gestsson frá Björgum, andaðist þann 6. maí síð- astliðinn eftir langt og erfitt veik- indastrfð. Þegar sólin er komin hátt á loft, jörðin að lifna og fyrstu sprotar trjánna að byrja að þrútna þá hlýtur að vera líkn fyrir gamlan mann, sem þrotinn er að kröftum að loka augunum í hinsta sinn og komast í ljósið og birtuna hinum megin. Björn var mikill mannkosta- maður. Hann hafði tamið sér óend- anlegt langlundargeð, sást sjaldan skipta skapi og reyndi ávalft að miðla málum ef svo bar undir. Hann var barngóður. Er óhætt að segja að hann vildi láta öllum líða vel, sem hann hafði í sinni umsjá, bæði mönnum og málleysingjum. Hann var mikill ljölskyldufaðir og alltaf var stutt í glaðværðina og glettin og skemmtileg tilsvör. Það er gaman að láta hugann reika til áranna þegar við systur vorum enn í föðurhúsum. Pabbi hafði ráðið tfl sín kaupamann, ung- an búfræðing, Björn Gestsson frá Bakkagerði í Svarfaðardal. Hann varð strax hvers manns hugljúfi. Um haustið var hann heitbundinn Sigríði systur minni og þau giftu sig 27.11. 1943 og eignuðust 5 börn. Síðan hafa þau búið í ástríku hjónabandi og stutt hvort annað í gegnum súrt og sætt. Björn varð strax einn af fjöl- skyldunni. Hann reyndist okkur systrum sem besti bróðir og for- eldrum okkar var hann afar góður, enda bjuggu þau félagsbúi á með- an foreldrar okkar voru við bú- skap. Oft var glatt á hjalla þegar fjölskyldurnar komu saman hjá Siggu og Birni. Mikil gestrisni ríkti hjá þeim hjónum og átti hann þar stóran hlut að máli. Sjúkdómssaga hans er búin að vera ströng og þjáningamikil. Hann barðist við tvo iflvíga sjúk- dóma. Berklana sem ungur maður og síðan Parkisonsveikina á efri árum. Þessi fátæklegu orð eru þakkar- orð mín og fjölskyldu minnar til þessa góða manns, fyrir alla hans hlýju og vináttu í gegnum árin. Við biðjum guð að blessa fjölskyldu hans. Far þú ífriði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt Pálína. Hinsta kveðja. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðar kraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson). Elsku Björn mágur! Loksins er kallið komið. Nú líð- ur þér vonandi vel. Ég vil þakka þér öll þín gæði, frá því fyrsta að ég kynntist þér. Þegar ég var um tíu ára aldur komstu að vinna hjá pabba og mömmu á Björgum. Seinna giftust þið Sigga systir. Allir tóku þér heils hugar í fjölskyld- unni, enda varst þú mörgum mannkostum búinn. Lundbetri mann var vart hægt að finna, og kom það sér oft vel í um 30 ára fé- lagsbúskap á Björgum. Þótt þú gengir í gegn um allskyns erfiðleika, heilsuleysi á unga aldri og ýmsar raunir, þá gastu alltaf verið með spaug og létt gaman til að lífga upp á sálina hjá þeim sem þú umgekkst. Fyrir um það bif áratug greind- ist þú með parkinssonssjúkdóm. Þá brá manni heldur í brún að sjá þig missa ört þína fyrri hæfileika. Þeg- ar þú hefur losnað úr sjúkdóms- ijötrunum verður þér vonandi létt um sporin í nýjum heimkynnum. Ég votta þór Sigga mín og fjöl- skyldunni allri, innilega samúð, en vona að þið getið ornað ykkur við minningarnar um frábæran fjöl- skylduföður. Far þú í friði vinur, hjartans þakkir fyrir mig og mína fjöl- skyldu. Magga mágkona.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.