Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.05.1997, Blaðsíða 15
jDctgraÆmmm
Fimmtudagur 22. maí 1997 - 27
UPPÁHALDS ÚTVARPS- OG SJONVARPSEFNIÐ
UTVARP • SJONVARP
AHUGAVERT
Sjónvarpið
kl. 20.55:
Síbería -
þíðaí
sífreranum
Sakha-Jakútía er
eitt átta þjóðríkja
sem nyrst liggja í
heiminum og hafa
nú myndað nýtt ráð
heimskautalanda
sem ísland er líka
aðili að. Sakha og
þjóðin sem landið
byggir eiga sér
langa sögu og það-
an hóf Genghis
Khan herleiðangra
sína til vesturs á
miðöldum en á
seinni tímum hefur
sagan mótast mjög
af sambýlinu við
Rússland - og Sov-
étríkin. Lýðveldið
hefur nú fengið
aukið sjálfstæði í
kjölfar upplausnar
Sovétríkjasam-
bandsins. í þessari
nýju heimildarmynd
Ara Alexanders
Magnússonar og
Jóns Proppé er
skyggnst inn í líf
fólks sem nú er að
skipa sér á bekk
með sjálfstæðum
þjóðum. Það or ekki
átakalaust að
byggja upp heilt
samfélag nú þegar
miðstjórnarveldi
Moskvu er að líða
undir lok og í þætt-
inum er leitað til
stjórnmálamanna,
vísindamanna og til
unga fólksins sem á
eftir að erfa þetta
auöuga en harðbýla
land.
Birna E.
Gunnarsóttir
SKRIFSTOFUKONA
Svart/hvítu
myndirnar í
uppáhaldi
Hún Birna E. Gunnarsdóttir er ein þeirra mörgu ís-
lendinga sem hafa mikið gam-
an af breskum sakamála-
myndum og eru þær hennar uppá-
haldssjónvarpsefni. Hún tilheyrir
hins vegar ekki þeim hópi sem hlust-
ar á endurteknar fréttir á hálftíma
fresti allan liðlangan daginn. Birna
horfir á einn fréttatíma á dag, yfir-
leitt á Stöð 2. Af hverju? Jú, hann er
á undan!
Að öðru leyti er ekkert sérstakt
sem bindur Birnu við sjónvarpið þó
hún sitji alltaf einhverja stund á
hverju kvöldi fyrir framan tækið.
Hún nefnir t.d. Bráðavaktina en er
greinilega ekki æstur aðdáandi. Fjöl-
skyldan er með gervihnattadisk og það er ekki fyrr en
hún minnist á sjónvarpsstöðina TNT, sem sýnir iðulega
gamlar bíómyndir á kvöldin, sem augun glampa því
hennar uppáhald eru gamlar svart-hvítar myndir,
myndir með brýnum og stjörnum á borð við Cary Grant
og Ritu Hayworth.
Það ætti því ekki að koma á óvart að notaleg og mjúk
tónlist lætur best í eyrum Birnu sem stillir útvarpið á Sí-
gilt FM þegar þannig liggur á henni.
FJOLMIÐLARYNI
Allt eða ekkert
Allt, tímaritið hennar Ólafar Rúnar Skúladóttur,
fyrrverandi sjónvarpsfréttamanns hjá ríkinu, er
komið út og veldur óneitanlega svolitlum von-
brigðum þó að fæstir hafi kannski búist við að þar yrði
brotið blað í fjölmiðlasögu fslands. Tímaritið er ágætt og
ekkert meira en það, hvorki í efnisvali, efnistökum né
útliti.
Eitt er þó það viðtal sem getur vakið áhuga og er það
við stórkratann Maríönnu Friðjónsdóttur í Danmörku.
Hún er vön dönsku þjóðfélagi þar sem fólk ræðir hisp-
urslaust málin og notar tækifærið til að hella úr skálum
reiði sinnar vegna hjónaskilnaðar og framhjáhalds eig-
inmannsins. Þetta viðtal er athyglisvert. Hví skyldi mað-
ur ekki ræða hlutina opinskátt ef maður svo vill.
Islenskir ijölmiðlar hafa alltaf verið pempíulegir þeg-
ar persónuhagi fólks bera á góma. Það þykir hallæris-
legt og fullmikil léttúð. Vinsældir Séð og heyrt sýna þó
að þetta er það sem fólkið vill og þess vegna má merkja
þróun í þessa átt hjá mörgum fjölmiðlum. Fjölmiðlar
þurfa að lifa og seljast og það er greinilegt að það er tal-
ið vænlegt að færa sig nær Séð og heyrt-stílnum. Þung
og tormelt viðtöl, hversu mikilvæg sem þau nú eru,
þykja ekki selja og allir vilja jú fá bita af kökunni.
J O N V A R P I Ð
05.55
08.30
16.00
17.50
18.00
18.02
18.45
19.00
19.20
19.50
20.00
20.30
20.55
HIVI í handknattleik. Island-Júgóslavía.
Bein útsending frá Kumamoto 1 Japan.
Hlé.
HM í handknattleik. Endursýndur leikur
íslendinga og Júgóslava frá því um
morguninn.
Táknmálstréttir.
Fréttir.
Leiöarljós
Auglýsingatími - Sjónvarpskringlan.
Tumi
Feröaleiöir. Um víöa veröld - Tyrkland.
Feröaþáttaröö. Þýöandi og þulur: Gylfi
Pálsson.
Veöur.
Fréttir.
Frasier (10:24).
Síbería - þíöa í sífreranum. Sjá kynn-
ingu.
21.50 Lögregiuhundurinn Rex (4:15)
(Kommissar Rex). Austurrískur saka-
málaflokkur. Moser lögregluforingi fæst
viö aö leysa fjölbreytt sakamál og nýtur
við þaö dyggrar aðstoðar hundsins Rex.
22.40 Nafnlausi hermaöurinn (The Unnamed
Soldier). Stuttmynd frá 1995 um her-
mann sem snýr særður heim úr stríði.
Hann jafnar sig smám saman með
hjálp konu sinnar en striðið hvílir á hon-
um eins og mara. Leikstjóri er Andy
Stickland og framleiðandi Anna Dís
Ólafsdóttir.
23.00 Ellefufréttir.
23.15 Fótboltakvöld. Sýndar verða svipmyndir
úr leikjum í annarri umferð.
23.45 Dagskrárlok.
S T O Ð 2
09.00 Línurnar í lag.
09.15 Sjónvarpsmarkaöurinn.
13.00 Matglaöi spæjarinn (2:10) (e) (Pie in
the Sky).
13.50 Lög og regla (5:22) (e) (Law and
Order).
14.45 Sjónvarpsmarkaöurinn.
15.15 Oprah Winfrey.
16.00 Maríanna fyrsta.
16.25 Steinþursar.
16.50 Meö afa.
17.40 Línurnar í lag .
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaöurinn.
19.00 19-20.
20.00 Doctor Quinn (6:25).
20.50 Gyöjurnar (Divas). Ný bandarisk sjón-
varpsmynd.
22.30 Kvöldfréttir.
22.50 Lög og regla (6:22) (Law and Order).
23.35 Samstaöa (e) (Running Cool). Mótor-
hjólagengið ferðast saman hvert á land
sem er og I hópnum ríkir mikil sam-
staöa. Þúsundir kílómetra skipta engu
máli þegar foringi hópsins, Bone, fréttir
aö I smábæ í Suður-Karólínu sé einn af
vinum hans beittur verulegu misrétti.
Aðalhlutverk: Andrew Divoff, Dedee
Pfeiffer og Paul Gleason. 1993. Bönn-
uö börnum.
01.20 Dagskrárlok.
17.05 Spítalalíf (1/25) (MASH).
17.30 íþróttaviöburöir í Asíu (20/52) (Asian
Sport Show). íþróttaþáttur þar sem
sýnt er frá fjölmörgum íþróttagreinum.
18.00 Körfubolti um víöa veröld (19/20)
(Fiba Slam 2).
18.30 Taumlaus tónlist.
19.15 ítalskl boltinn.
21.00 Engin miskunn (Expect No Mercy). Ai-
ríkislögregluna grunar að á bak við
samtök nokkur sé í raun verið að þjálfa
upp fullkominn einkaher. Löggan Justin
Vanel fær þaö verkefni að ganga til liös
við samtökin í þeirri von að unnt verði
að fletta ofan af starfsemi þeirra. Meö-
limum samtakanna er boðin fullkomin
aöstaða til æfinga en Vanel sýnist til-
gangurinn vera sá einn að þjálfa upp
nýja kynslóð af fullkomnum morðingj-
um. Innan samtakanna er önnur lögga
að störfum og nú verða hann og Vanel
að taka höndum saman. Aðalhlutverkin
leika Billy Blanks, Jalal Merhi, Wolf
Larson og Laurie Holden en Zale Ðalen
leikstýrir. 1995. Stranglega bönnuö
börnum.
22.30 Rugludallarnir II (e) (Three Crazy Jerks
II).
24.00 Spítalalíf (1/25) (e)(MASH).
00.25 Dagskrárlok.
©
RÍKISUTVARPIÐ
09.00 Fréttir. 15.35
09.03 Laufskálinn. 15.53
09.38 Segöu mér sögu. 16.00
09.50 Morgunleikfimi. 16.05
10.00 Fréttir. 17.00
10.03 Veöurfregnir. 17.03
10.15 Árdegistónar. 18.00
11.00 Fréttir. 18.30
11.03 Samfélagiö í nærmynd. 18.45
12.01 Daglegt mál. 18.48
12.20 Hádegisfréttir. 19.00
12.45 Veöurfregnir. 19.30
12.50 Auölind. 19.40
12.57 Dánarfregnir og auglýsingar. 19.57
13.05 Bókmenntaþátturinn Skálaglamm. 22.00
14.00 Fréttir. 22.10
14.03 Útvarpssagan 22.15
14.30 Miödegistónar. 22.20
15.00 Fréttir. 23.10
15.03 Útvarpsleikhúsiö. 24.00
Y L G J A N
09.05 Górillan. Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu Stöövar 2
og Bylgjunnar.
12.10 Gullmolar Bylgjunnar í hádeginu.
13.00 íþróttafréttir.
13.10 Gulli Helga - hress aö vanda. Fréttir kl.
14.00, 15.00 og 16.00.
16.00 Þjóöbrautin. Fréttir kl. 17.00 og 18.00.
18.03 Viðskiptavaktin.
18.30 Gullmolar.
19.00 19 20. Samtengdar fréttir Stöövar 2 og
Bylgjunnar.
20.00 Islenski iistinn.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Aö lokinni
dagskrá Stöövar 2 samtengjast rásir
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
A S 2
09.03 Lísuhóll.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Hvítir máfar.
14.03 Brot úr degi.
16.00 Fréttlr.
16.05 Dagskrá: Dægurmálaútvarp og fréttir.
17.00 Fréttir. Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóöarsálin Síminn er 568 60 90.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Milli steins og sleggju.
20.00 Knattspyrnurásin.
22.00 Fréttir.
22.10 Rokkþáttur.
24.00 Fréttir.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2 - 8.10-8.30 og
18.35-19.00. Útvarp Noröurlands. 18.35-
19.00 Útvarp Austurlands. 18.35-19.00
Svæöisútvarp Vestfjaröa.