Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 27.05.1997, Blaðsíða 7
_criTÍTMt JlL'm rrif' ii Jllagur-CEtiiTOtn tOPV inm V'í nmnh»ti‘' i'1 Þriðjudagur 27. maí 1997 - 19 MENNING OG LISTIR m >• j 50 félagar Karlakórs Akureyrar-Geysis Laugardaginn 24. maí efndi Karlakór Akureyrar-Geysir til árlegra vortón- leika sinna undir heitinu Vorkliður. Auk kórsins komu fram einsöngvar- arnir ÓlöfKolhrún Harðardóttir, sópr- an, og Þorgeir Andrésson, tenór. Haukur Ágústsson skrifar Einnig lék kammersveit undir með öðrum flytj- endum auk píanóleikar- ans Richard Simm. Stjórnandi tónleikanna var Roar Kvam. Tónleikarnir voru haldnir í íþróttaskemmunni á Akureyri. Karlakór Akureyrar-Geysir gerði víða vel í flutningi sínum á tónleikunum. Nefna má til dæmis góðan flutning á fyrsta laginu á efnisskrá tónleikanna, en það var lagið Vorkliður eftir Christian Sinding við ljóð eftir Erling Sigurðarson frá Græna- vatni. Einnig gerði kórinn lög- um í valsasyrpunni Ballsíren- urnar úr Kátu ekkjunni veru- lega góð skil. Þar var flutningur hans ánægjulega þéttur og lif- andi. Þá má geta lagsins Tritsch-Tratsch Polka eftir Jó- hann Strauss við ljóð eftir Pál H. Jónsson, sem var létt og fjör- lega flutt. Ekki síður má nefna ánægjulegan hlut kórsins í flutningi Kvennagöngulags, sem einnig er úr Kátu ekkjunni, þar kom hann fram með kómískum og jafnframt markvissum hætti. Fyrir kom, því miður, að ekki tókst sem skyldi. Svo var til dæmis í laginu Músík, músík, músík eftir Jóhann Schrammell við ljóð eftir Gísla Konráðsson, þar sem nokkuð mikils óróa gætti í flutningi. Svo var einnig í nokkrum tilfellum öðrum. Hljómsveitin hávær Ólöf Kolbrún Harðardóttir söng einsöng í Viljuljóði úr Kátu ekkjunni eftir Franz Lehár við ljóð eftir Þorstein Gylfason, II bacio eftir Luigi L’Arditi við Ijóð eftir ókunnan höfund. Hláturs- aríunni úr Leðurblöklunni eftir Jóhann Strauss við ljóð Böðvars Guðmundssonar, og Gimstein- aríunni úr Faust eftir Charles Gounod. Ólöf Kolbrún var í mjög góðu formi og naut sín vel í þessum lögum, en þó einna síst í Gimsteinaaríunni. Þorgeir Andrésson söng einsöng í lög- unum Wien, du Stadt meine Tráume eftir Rudolf Sieczynski, Skál, skál úr Stúdentaprinsin- um eftir Sigmund Romberg við ljóð Hjartar Þráinssonar, Dein ist mein ganzes Herz úr Bros- andi land eftir Franz Lehár og Upphafssöng Barinskys úr Sí- gaunbaróninum eftir Jóhann Strauss við ljóð eftir Egil Bjarnason. Rödd Þorsteins er veruleg og túlkunargeta hans ánægjuleg. Röddin liggur þó nokkuð aftarlega og verkar fyr- ir vikið þung og alldimm. Best tókst honum flutningur Upp- hafssöngs Barinskys, þar sem leikrænir túlkunarhæfileikar hans nutu sín vel. Einsöngvararnir tveir fluttu dúetta í lögunum Brindísi, drykkjusöng úr La Traviata, og Kvennagöngulaginu. Flutningur var í góðu lagi í báðum þessum verkum, en leið nokkuð fyrir heldur háværan undirleik hljómsveitarinnar í því síðara. Ánægjulegur vorkliður Hljómsveitin gerði tíðast vel og náði almennt vel að styðja við flutning. Nokkur galli var, að iðulega fylgdi hún ekki sem skyldi styrkbreytingum annarra flytjenda, svo sem kórsins í lag- inu Músík, músík, músík og ein- söngvara í Kvennagöngulaginu. Richard Simm lék einn undir flutning í laginu Vorklið. Hann fór á kostum og má fyllilega kalla leik hans einleiksígildi í þessu verki. Stjórn Roars Kvams á flutn- ingi var vel af hendi leyst. Hann virtist hafa alla þræði í hendi sér, þó að betur hefði mátt gæta hlutfalla í styrk á nokkrum stöðum. Tónleikarnir Vorkliður voru ánægjulegir og skemmtilega fjölbreyttir. Vefarinn mikli frá Kasmír I fjkmii ríur AíUwu ikiftku !,#«»'*» LKIKFELAC AKl’KHYRAR Sýningar: Vegna góðrar aðsóknar um helgina verður aukasýning á „Vefaranum": Laugardaginn 31. maí kl. 20.30. Allra síðasta sýning Það ætla allir að sjó Vefarann! Leikstjórn: Halldór E. Laxness Sýningin er ekki við hæfi barna Ekki er hægt að hleypa gesfum inn í salinn eftir að sýningin hefst. Sýnt er ó Renniverk- stæðinu, Strandgötu 49. Miðasalan er opin alla virka daga nema mónudaga fró kl. 13-17. Miðasalan er í Sam- komuhúsinu, Hafnarstræti 57 Sími í miðasölu er 462 1400. IDagur-'CEmram - besti tími dagsins! ÞJÓÐLEIKHÚSID Stóra sviðið kl. 20.00 KÖTTUR Á HEITU BLIKKÞAKI eftir Tennessee Wiliams 16. sýn. fimmtud. 29. maí. Næstsíðasta sýning. 17. sýn. fimmtud. 5. júní. Sfðasta sýning. FIÐLARINN Á ÞAKINU eftir Boch/Stein/Harnick 12. sýn. föstud. 30. maí. Uppselt. 13. sýn. laugard. 31. maí. Uppselt. 14. sýn. sunnud. 1. júní. Uppselt. 15. sýn. miðvikud. 4. júní. Uppselt. 16. sýn. föstud. 6. júní. Uppselt. 17. sýn. laugard. 7. júní. Uppselt. 18. sýn. föstud. 13. júní. Örfá sæti laus. 19. sýn. laugard. 14. júní. Örfá sæti laus. 19. sýn. sunnud. 15. júní. 20. sýn. fimmtud. 19. júní. Tungskinseyjuhópurinn í samvinnu við Þjóðleikhúsið Óperan TUNGLSKINSEYJAN 4. sýn. I kvöld, þriöjud. 27. maí. Sfðasta sýning. Litla sviðið kl. 20.30 LISTAVERKIÐ eftir Yazmina Reza Föstud. 30. maí. Uppselt Laugard. 31. maí. Uppselt. Sunnud. 1. júní. Uppselt. Föstud. 6. júní. Uppselt. Laugard. 7. júní. Uppselt. Föstud. 13. júní. Uppselt. Laugard. 14. júní. Uppselt. Sunnud. 15. júní. Nokkur sæti laus. Fimmtud. 19. júní. Föstud. 20. júní. Laugard. 21. júní. Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka daga.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.