Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Side 2
2 - Þriðjudagur 10. júní 1997
Jktgur-ÍEmtmn
F R É T T I R
Torfi Magnússon prófastur segir að af hagkvæmnissjónarmiðum telji hann ekki rétt að Bíldudalssókn sé að reka
kirkju í Selárdal fyrir ferðamenn. „Við erum ekki í ferðamannabransanum. Við erum trúfélag."
Selárdalskirkja lögð niður?
Heiti Potturinn
Mikið var spjallað um fótbolta
I pottinum um helgina.
Kreppa KR-inga og slakt gengi A-
landsliðsins var á allra vörum og
flestir höfðu lausnir á takteinun-
um. Sú besta var þessi: Logi
verður rekinn frá landsliðinu í vik-
unni og Guöjón Þórðarson mun
taka við. Þar með losna KR-ingar
við að láta Harald Haraldsson,
sem leikmenn hafa hafnað, stýra
meistaraflokknum og ráða þess í
stað Loga Ólafsson til að taka við
starfi Lúkasar Kostic, sem leik-
menn vilja gjarnan fá aftur.
Ummæli Björgólfs Guðmunds-
sonar, formanns knattspyrnu-
deildar KR, um leikmenn félags-
ins, í Sunnudagsmogganum, féllu
í grýttan jarðveg, ekki bara hjá
leikmönnum KR heldur hjá öllum
knattspyrnumönnum og stjórnar-
mönnum stærri klúbbanna. Þykir
mönnum sem Björgóifur hafi með
ummælum sínum um „atvinnu-
knattspyrnumennina", í KR og
annars staðar, verið að siga skatt-
inum beinustu leið til íþróttafélag-
anna aftur. Ekki er langt síðan
skattmann og hans sendisveinar
riðu húsum í íþróttahreyfingunni
og þar kæra menn sig ekki um
heimsókn hans aftur í bráð.
Enn á ný er talað um vandamál
biskupsins í pottunum. Nú
stendur séra Ólafur frammi fyrir
nýjum vanda, nefnilega brostnum
vonum og sviknum loforðum.
Sagt er að biskupinn hafi verið
búinn að lofa séra Guðrúnu Eddu,
Þingeyrarpresti, fræðslustjóra-
embætti þjóðkirkjunnar, sem séra
Örn Bárður Jónsson hefur gegnt,
þegar hann yrði sóknarprestur á
stór- Garðabæjarsvæðinu. Þetta
gekk ekki eftir óskum biskupsins,
Hans Markús var kosinn prestur,
Örn Bárður mun væntanlega
halda sinni stöðu innan kirkjunnar
og Guðrún Edda verður að
þrauka vestra enn um sinn. Eftir
stendur, að séra Ólafur Skúlason
hefur sennilega lofað upp í ermina
ásér...
Hræðileg tilhugsun,
segir sóknarprestur,
ef höfuðból trúarinn-
ar verður kirkjulaust.
En engar aðrar leiðir
færar í stöðunni.
Rætt er nú um á Bíldudal
að taka ofan Selárdals-
kirkju en í Selárdal hefur
verið þjóðkunnt kirkjuból frá
um 1200 að talið er. Sóknar-
nefnd Bíldudalssóknar hefur
samþykkt að leita viðhorfa ein-
staklinga, félagasamtaka, fyrir-
tækja og stofnana um framtíð
kirkjunnar og koma þrír val-
kostir til greina að mati Torfa
Magnússonar, prófasts og sókn-
arprests á Bíldudal.
Kirkjan er illa farin og hefur
Hjörleifur Stefánsson arkitekt
unnið skýrslu um úrbætur. Þar
segir að ef kirkjan verði reist í
upphaflegri mynd kosti það 16
millj. kr. í öðru lagi kosti um
sex milljónir kr. ef gera eigi
kirkjuna brúklega og snyrti-
lega, en færa ekki til fyrra horfs
að neinu leyti. Þriðji valkostur-
inn sé að taka hana ofan og
halda til haga því sem er upp-
haflegt í henni. Sú framkvæmd
kosti um eina milljón króna.
„Eins og málum er háttað í
dag finnst mér að taka ætti
kirkjuna ofan. Einfaldlega
vegna þess hvernig við erum
stödd íjárhagslega og höfum lít-
il tengsl þarna út eftir. Af hag-
kvæmnis sjónarmiðum tel ég
ekki rétt að Bíldudalssókn sé að
reka kirkju í Selárdal fyrir
ferðamenn. Við erum ekki í
ferðamannabransanum. Við er-
um trúfélag,“ segir séra Torfi
Ólafsson.
Síðast var messað í Selár-
dalskirkju árið 1988 en í Bíldu-
dal stendur stórt og vandað
kirkjuhús frá 1906. Það krefst
mikils viðhalds og til viðbótar
er sóknin með safnaðaraðstöðu
í gömlu skólahúsi. „Við erum
ekki nema 277 í sókninni þann-
ig að þetta er þungur róður.
Auðvitað laðar Selárdalskirkja
að sér ferðamenn og mér finnst
hræðileg tilhugsun ef verður
kirkjulaust á þessu höfuðbóli
trúarinnar, en sá vandi blasir
við hér og jafnvel annars stað-
ar, að sóknir ráða ekki við sinn
húsakost. í þessu tilviki er þetta
úreltur eða ónýttur kostur sem
sókninni ber skylda að halda
við. Enginn vill missa hana en
það hefur enginn heldur viljað
aðstoða eða taka þátt í málinu.
Við erum því að auglýsa eftir
vilja fólks,“ sagði sr. Torfi.
BÞ
Ýdalir
Foreldra-
vakt á balli
Fjölmenni var á dansleik í
Ýdölum á laugardagskvöld
þrátt fyrir leiðinlegt veður. Ekki
varð þó af fyrirhugaðri rútuferð
væntanlegra útskriftarnema úr
MA á dansleikinn.
Frá Húsavík komu ekki að-
eins unglingar heldur einnig
nokkrir foreldrar sem voru með
foreldravakt á staðnum. Sveinn
Hreinsson, tómstundafulltrúi
Húsavíkurbæjar, sagði foreldra-
vaktina hafa tekist vel en þetta
er í fyrsta sinn sem slikt er
reynt á sumardansleik í Ýdöl-
um. „Þarna var þónokkur ölvun
en hinsvegar var sáralítið af
yngra fólki,“ segir Sveinn en
aldurstakmark á ballið var 16
ár. „Bæði lögregla og dyraverðir
stóðu sig með aíhrigðum vel,“
bætir hann við. Reiknað er með
að 5-6 dansleikir í viðbót verði
haldnir að Ýdölum í sumar og
segist Sveinn vonast til að fram-
hald verði á foreldravaktinni.
Þeir Akureyringar sem ætl-
uðu sér á ball í Ýdölum, en sátu
heima vegna veðurs, hafa þó
hugsanlega verið fegnir þegar
þeir heyrðu fréttir næsta dag
því alls fóru sex bflar út af veg-
inum í Köldukinn og í Ljósa-
vatnsskarði. í einhverjum
þeirra voru ungmenni á leið
heim frá dansleiknum í Ýdöl-
um. Átta voru fluttir á slysa-
varðstofu til skoðunar en eng-
inn þeirra reyndist alvarlega
slasaður. AI
Egilsstaðir
Rætt um
umhverfið
Ráðstefna um umhverfismál í
sveitarfélögum stendur nú
yfir á Egilsstöðum og lýkur í
kvöld. Tilgangurinn er að meta
hvar íslensk sveitarfélög séu
stödd og hvert þau stefna. í
kvöld verður fundur á Egils-
stöðum þar sem bæjarstjórn
leggur fram tillögur að mark-
miðum í umhverfismálum. BÞ
FRÉTTAVIÐTALIÐ
A ystu nöf í f járútlátum
Ellert B. Schram
formaður Ólympíunefndar íslands
Fyrstu Sníáþjóðaleikunum
sem haldnir eru á íslandi er
lokið. Nokkur gagnrýni kom
fram á undirhúningstíman-
um um hve mikið yrði
í leikana lagt.
- Hvernig heppnaðist framkvœmd
leikanna?
„Vonum framar."
- Varð misbrestur á einhverju?
„Við sáum fyrir okkur ýmis Ijón á
veginum sem varð að yfirstíga, sér-
staklega er vörðuðu fjárhag, aðstæður
og mannskap. En allt gekk upp.“
- Sumir sögðu nauðsynlegt að
auka við mannvirkjagerð vegna leik-
anna. T.d. byggja yfir sundlaug.
Höfðu þeir þá rangt fyrir sér?
„Nei. krafan um 50 metra innilaug
er einfaldlega samkvæmt alþjóðlegum
reglum í sundinu og útlendingar frá
suðrænum löndum eru óvanir að
keppa í útilaugum. Það má minna á
loforð ýmissa stjórmálamanna í þessu
efni en við verðum að lifa við það sem í
boði var og Reykjavíkurborg stóð sig
afar vel í frágangi með tjöldum og öðr-
um búnaði þannig að fyrirkomulagið
varð mjög viðunandi. Það hjálpaði líka
að við vorum heppin með veður þegar
sundið fór fram. En það breytir því
ekki að vonandi fáum við í framtíðinni
50 metra innilaug til að geta haldið al-
þjóðlega keppni á öllum árstímum."
- Settu erlendu gestirnir út á ein-
hver sérstök atriði?
„Eitt og annað smávægilegt já, sér-
staklega í byrjun. Þar má nefna flutn-
inga milli staða og aðbúnaðinn á hótel-
um og mótsstöðum. En það var leyst
úr því og þegar upp var staðið var bor-
ið lof á framkvæmdina og gestirnir
virtust ánægðir þegar þeir fóru.“
- Menntamálaráðherra fundaði
með íþróttaráðherrum í síðustu viku
og komust menn þá að þeirri niður-
stöðu að umfang leikanna vœri orðið
fullmikið.
„Já, þetta eru skilaboð sem ég flulti
inn á þennan tiltekna fund. Við í
íþróttahreyfingunni teljum að ekki
megi bæta frekar við keppendum, við
erum á ystu mörkum hvað varðar fjár-
útlát. Mínar ályktanir að loknu þessu
verkefni eru að brýnt sé að draga úr
yfirbyggingunni og minnka kröfur um
hótel og þjónustu.“
- Ilafa leikarnir kynningarlegt
gildi fyrir ísland?
„Ekkert út fyrir það sem snýr að
keppendum og þjóðlöndum þeirra.
Þetta eru litlar þjóðir en hér kom mik-
ill fjöldi gesta sem kynnast landi og
þjóð. Þannig hefur þetta almennt gildi
sem og þá þýðingu fyrir íþróttirnar að
sýna að hægt sé að skipuleggja svona
keppni hérlendis."
- Þú vandaðir í eina tíð José Sam-
aranch ekki kveðjurnar í leiðara DV.
Hvernig voru samskipti ykkar nú?
(Hlær). „Samskiptin voru algjörlega
hnökralaus og á persónulegum nótum.
Ég kann afar vel við manninn, hann er
greindur og tilgerðarlaus. í þessum
leiðara var ég að vara við því að til-
stand og skrum mætti ekki bera innri
þátt leikanna ofurliði og mér sýnist að
hann hafi alveg sömu skoðun og ég í
þeim efnum. Hann var t.d. mjög
ánægður með hve einföld opnunarhá-
tíðin var hjá okkur.“ BÞ