Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Síða 3
©agur-CEtmúut Þriðjudagur 10. júní 1997 - 3 Hólasandur m RARIK Ahyggjur af lúpímmni íslenskt hug- vitívíkmg Nú eru Rafmagnsveiturnar á því stigi að geta flutt út þekkingu til annarra þjóða, far- ið með íslenskt hugvit í víking,“ sagði Kristján Jónsson, raf- magnsveitustjóri RARIK, á árs- fundi fyrirtækisins í gær. Þarna er einkum um að ræða útflutning verkefna við hönnun á ijargæslu-, fjarmæli- og afl- gæslukerfum. I samstarfi við fyrirtæki á Norðurlöndum, Bret- landi og Hollandi hefur RARIK leitað hófanna í nokkrum lönd- um þar sem talið er að hugvits- og verkþekking þess eigi sér vænleg sóknarfæri. -grh Sjávarútvegsmá! Leyfilegur heildarkvóti Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið leyfilegan heildar- afla fyrir einstakar fisktegundir á næsta fiskveiðiári. Ekki liggur þó enn fyrir ákvörðim um heild- arafla loðnu. Ákvörðun ráðherra fylgir til- lögu Hafrannsóknastofnunar að öðru leyti en því að leyfilegur heildarafli á ýsu og úthafsrækju er 5.000 lestum hærri en Haf- rannsóknastofnun lagði til. Leyfður heildarafli af þorski hækkar frá yfirstandandi fisk- veiðiári um 32.000 lestir og út- hafsrækjuaflinn hækkar um 15.000 lestir. AI Kuldakastið þjarmar að flóru landsins. Kartöflubændur verða fyrir sifjum - trjágróður skemmist. Því er ekki að neita að menn hafa áhyggjur af hvernig lúpínunni á Hóla- sandi reiðir af eftir kuldakastið. Lúpínan hér á Húsavík er illa farin en spurningin er hvort gróðurinn hefur verið kominn styttra af stað á sandinum. í versta falli erum við að tala um að hún blómstri ekkert í sumar, og þá eru tugir milljóna sáð- manna í formi lúpínunnar ekki til staðar," segir Sigurjón Bene- diktsson, tannlæknir á Húsavík og einn af frumkvöðlum áhuga- manna um uppgræðslu á Hóla- sandi. Til stóð að fara á Hólasand í gærkvöld og kanna ástandið en litlar líkur eru taldar á að rót lúpínunnar hafi drepist. „Við vonum það besta en þetta gæti samt þýtt að heilt ár færi í vask- inn. Veðrið var bölvaður við- bjóður," sagði Sigurjón. Búið er að sá lúpínu í um 30 ferkíló- metra lands á Hólasandi þannig að um mikla hagsmuni er að ræða. Og það var ekki bara á Norð- urlandi sem frost og fannfergi í sjálfu sér getur verið gaman að snjókörlum. En þeir þykja þó iítt fýsilegir í júní! Myndin var tekin fyrir utan Amts- bókasafnið á Akureyri um helgina. Myn&.mar hafði áhrif á gang náttúrunnar. Mesta tjónið varð hjá kartöflu- bændum í Þykkvabæ en þar er sendinn jarðvegur sem fauk upp úr görðunum í rokinu. Mik- ill uppblástur var í rofabörðum og úr árfarvegum á Suðurlandi og segir Borgþór Magnússon, plöntuvistfræðingur hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, að trjágróður hafi látið á sjá og blöð asparinnar t.d. sortnað og drepist. Borgþór staðfesti að lúpínan þyldi illa frost og sagði líklegt að kuldinn myndi hafa áhrif á fræmyndun og blómgun hennar. Hann taldi birkið hafa sloppið að mestu og sama mætti segja um kornræktun og grassprettu. En það hægir á öll- um vexti og þetta hret styttir sumarið. Það er alveg ljóst,“ sagði Borgþór. Fræðingar töldu óhTdegt að fugla- og dýrah'f hefði orðið fyr- ir miklum skakkaföllum í kuld- unum. Landsmenn önduðu létt- ar í gær þegar kvikasilfrið steig í hitamælunum á ný, með sólar- glennum víða um land. BÞ Lífið í landinu „Raðkvænl hefst hér þegar stórfjölskyldan líður undir lok og atvinnu- vegirnir fara að krefjast færaniegri eininga, þ.e. með tilkomu togar- anna,“ segir Jóhann Loftsson, sálfræðingur. Sjá bls. 18. Mynd:E.ói. Selfoss Brimahaiii engu breytt Vestfirðir Básafell hf. hættir í bolfiskvinnslu Stórtjón í eldsvoða á Selfossi. Slökkviliðs- stjóri segir að bruna- hani hefði engu breytt í stöðunni. ■?'....... sjálfu sér hefði engu breytt þótt brunahani hefði verið alveg við húsvegginn. Húsið var nánast brunnið til grunna þegar við komum á staðinn. Þá dældum við á húsið öllu því vatni sem við höfðum tiltækt, alls 16.000 lítrum og eins kom- umst við í brunahana sem stóð við Fjölbrautaskólann, í um 350 metra íjarlægð - en það breytti litlu í stöðunni," sagði Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri. Stórtjón varð í eldsvoða á Selfossi aðfaranótt laugardags þegar til grunna brann miðju- hús í þriggja íbúða raðhús- lengju við Fífutjörn, sem er í nýjasta hverfi bæjarins. Öllum tókst að bjarga sér út, en síðan fór húsráðandi við annan mann inn í húsið og sótti unnustu sína sem ekki hafði tekist að bjarga sér út. Ilún fékk reykeitrun og snert af taugaáfalli, og var flutt á sjúkrahús. Á sunnudag varð svo stórtjón í eldi á Eyrarbakka þegar íbúð- arhúsið Merkisteinn brann til kaldra kola. -sbs. 50 starfsmenn hafa starfað í bolfiskfram- leiðslunni sem flutt verður á Flateyri en rækjuvinnslan aukin á ísafirði. Básafell á ísafirði hefur ákveðið að hætta rekstri bolfiskvinnslu félagsins á ísafirði um óákveðinn tíma. í fréttatilkynningu sem Básafell sendi út um miðjan dag í gær segir að lokunin sé liður í end- urskipulagningu á rekstri Bása- fells. Rekstur Kambs á Flateyri var sameinaður Básafelli hf. 1. maí síðastliðinn og mun bolfisk- vinnsla fara fram á Flateyri á Sjálfsbjörg er að fara af stað með átak fyrir hreyfíhaml- aða unglinga á aldrinum 13 til 15 ára. Átakið er unnið í samstarfi við íþróttasamband fatlaðra og næstunni. 50 starfsmenn hafa unnið við bolfiskvinnsluna. Pét- ur Sigurðsson, forseti Alþýðu- sambands Vestijarða, fór í sum- arfrí í gær en Karitas Pálsdóttir hjá Alþýðusambandi Vestijarða segir þau hafa vitað að þetta stæði til í einhvern tíma og að þessi breyting sé alls ótengd nýleystri verkfallsdeilu. „Þessa ákvörðun var búið að taka fyrir verkfall. Það veit ég 100 prósent," segir Karítas Pálsdóttir. Þegar Dagur-Tíminn hafði samband við Karítas var hún nýkomin af fundi með Arnari Kristinssyni, framkvæmdastjóra Básafells. Á þeim fundi var henni skýrt frá því að búið væri að ræða við starfsfólk í þeim deildum sem um ræðir. „Fólki var boðin vinna við þær deildir þar sem hægt er að bæta við en á þessari stundu er ekki vitað hvað það eru margir sem fá ungliðahreyfingu Sjálfsbjargar. Haldinn verður kynningarfund- ur fyrir unglingana fimmtu- dagskvöldið 19. júní nk. kl. 20.00 í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Markmiðið er að vinnu. En auðvitað hefur það vofað yfir að landvinnslan er ekki samkeppnisfær við sjóvinnsluna og að menn gætu flutt þennan kvóta hvert sem er,“ sagði Karítas. Arnar Kristinsson, fram- kvæmdastjóri, segir fyrirhugað að efla rækjuvinnslu félagsins og að einhverjir munu fá við það vinnu. Hann segir það ekki liggja ljóst fyrir ennþá hversu margir verði endurráðnir en að það muni koma í ljós í lok þess- arar viku. „Það verður hvergi fjölgað nema í rækjunni. Á Flat- eyri eru margir útlendingar í vinnu og ef einhverjir hér vilja vinna í fiski á Flateyri þá verð- ur þeim keyrt á milli. Þá verða ekki ráðnir útlendingar í stað þeirra sem fara heim eftir að starfstíma lýkur. Ljóst er þó að einhverjum hér á ísafirði verð- ur sagt upp,“segir Arnar Krist- insson. rm leggja drög að starfinu í sumar sem getur falið í sér að hittast reglulega og ræða málin, elda saman, fara í bíó, fara í ferða- lög eða fá kynningu á einhverju fróðlegu. GG Sjálfsbjörg Átak fyrir hreyfihamlaða unglinga

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.