Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Qupperneq 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Qupperneq 5
Jljigur-tDmrhtn Þriðjudagur 10. júní 1997 - 5 F R E T T I R Sameiningarmál Boltinn hjá DaMkingum Kjörsókn á Dalvík var fremur dræm. Aðeins liðlega helmingur þeirra sem eru á kjörskrá mættu á kjörstað og var sameiningin samþykkt með mjög litlum meirihluta. Hér stingur Halldór Jóhannesson atkvæðaseðli sínum í kjörkassann. Hríseyingar sögðu nei. Daivíkingar, Svarfdælingar og íbúar Árskógshrepps sögðu já. Verður kosið aftur? Ekki verður af sameiningu sveitarfélaga við utanverð- an Eyjaljörð að sinni. Úr- slit í kosningunum á laugardag voru þau að Dalvíkingar, Svarf- dælingar og íbúar Árskógshrepps voru samþykkir sameiningu en Hríseyingar felldu. Á Dalvík voru úrslit reyndar tvísýn því aðeins 49,8% sögðu já, 48% neituðu en 2.2% skiluðu auðu eða ógOdu. Á Árskógsströnd sögðu 61,3% já, 34,7% sögðu nei og 4% skiluðu auðu eða ógildu. Svarfdælingar voru jákvæðastir gagnvart sam- einingu því þar sögðu 74,2% já, 25% sögðu nei og 0.8% skiluðu auðu eða ógildu. í Hrísey var hinsvegar tillagan felld, þar sögðu 42.6% já, 55,7% nei og 1.6% skilaði auðu eða ógildu. Kjörsókn var dræm á Dalvík þar sem aðeins liðlega helming- ur þeirra sem er á kjörskrá mætti á kjörstað. Á Árskógs- strönd mættu tæplega 60% á kjörstað, rúm 70% í Svarfaðar- dal en hlutfallslega flestir í Hrís- ey, eða um 75%. Kosið aftur? „Ég h't svo á að boltinn sé hjá Dalvíkingunum því þeir fengu þannig úrsht að þeir þurfa sjálf- sagt að hugsa sinn gang,“ segir Ath Friðbjörnsson í Svarfaðar- dalshreppi. AtU telur að Svarf- dæUngar hafi sent ótvíræð skila- boð þar sem tæp 75% vildu sam- einingu og á ekki von á öðru en að þeir samþykki að aftur verði kosið um sameiningu þeirra þriggja sveitarfélaga sem sam- þykktu tiUöguna. Kristján Ólafsson, formaður sameiningarnefndar, lýsti því yfir strax og úrsUt voru ljós að per- sónulega teldi hann eðUlegast að kosið yrði aftur í sveitarfélögun- um þremur. í samtali við Dag- Tímann sagði hann úrslitin á Dalvík ekki hafa komið sér á óvart en h'til kjörsókn hafi valdið honum vonbrigðum. Hinsvegar kom honum á óvart að tUlagan var felld í Hrísey. - Ef svo fer að Dalvík, Ár- skógshreppur og Svarfaðardals- hreppur halda áfram sameining- arviðræðum eru einhverjar líkur á að aftur verði leitað til Ólafs- firðinga? „Nei. Það er alveg klárt. Þeir eru búnir að gefa algjört afsvar og þó þessi staða sé uppi núna kemur það ekki tU greina." Mynd: Al Hríseyingar einir á báti „Fólk hefur greinUega verið á móti sameiiúngu en ég veit ekki alveg hver skýringin er,“ segir Þórunn Arnórsdóttir, oddviti í Hrísey. Þórunn segir að mjög erfitt hafi verið að átta sig á því fyrir- fram hvernig kosningarnar myndu fara. Nú sé hinsvegar orðið ljóst að Hríseyingar muni standa einir og hefur hún af því nokkrar áhyggjur að það geti reynst erfitt, einkum þegar kem- ur að því að færa verkefni frá rUdnu yfir tU sveitarfélaga. Neitun Hríseyinga kemur ekki síst á óvart í ljósi þess að í kosn- ingunum um sameinað sveitarfé- lag í Eyjafirði voru Hríseyjar- hreppur, Árskógshreppur og Ak- ureyri einu sveitarfélögin sem samþykktu. Sumir þeirra sem voru á móti sameiningunni nú hafa því samþykkt stærri sam- eininguna á sínum tíma þó af henni hafi ekki orðið og telur Þórunn að sú afstaða hafi ekki breyst. Stærri sameining yrði trúlega samþykkt ef um hana væri kosið. En af hverju ekki sameining við Dalvík, Árskógs- strönd og Svarfaðardal? „Auðvitað spilar hrepparígur eitthvert lUutverk en ég held líka að mörgum finnist að þetta sé ekki nógu stór sameining. Ávinn- ingurinn með því að sameina svo lítið verði ekki nógur.“ AI 10. bekkur Ein skaldsaga lesin til prófs „Englar alheimsins kennd í fyrsta skipti fyrir sam- ræmd próf. > Akveðið hefur verið í menntamálaráðu- neytinu að aðeins ein íslensk nútímasaga verði kennd í íslensku 10. bekkjar næsta vetur. Það er bókin Englar alheimsins, eftir Ein- ar Má Guðmundsson en sl. vetur var val um þrjár nú- tímasögur, Brekkukotsannál eftir Laxness, Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson og Riddara hringstigans eft- ir Einar Má. Þetta er í fyrsta skipti sem Englar alheimsins verður kennd til prófs í 10. bekk og segir Guðni Olgeirs- son, deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu, að tillag- an um verkið sé komin frá Samtökum móðurmálskenn- ara og ráðherra hafi stað- fest þá ósk. Móðurmáls- kennarar telji bókina hæfa vel nemendum á þessu námsstigi, hún sé líkleg til að vekja áhuga á bók- menntum auk þess sem gott sé að prófa úr henni. Bók- menntakennsla hefur verið með breytilegum hætti frá ári til árs í íslensku í 10. bekk. Stundum hefur ein fornsaga verið skylda en næsta vetur verður val um Grettis sögu og Gísla sögu Súrssonar. „Rannsókna- stofnun uppeldismála óskaði eftir einfaldara kerfi enda er flókið að hafa mikið val við samningu sam- ræmdu prófanna. Þetta er lausn sem segja má að allir aðilar hafi sætt sig við,“ sagði Guðni Olgeirsson. BÞ Alþýðuflokkurinn Kratar hugsa um orlofið og garðiim agabreytingar ekki mögulegar á flokksþingi Alþýðuflokksins vegna lélegrar mætingar en fjórar ályktanir samþykktar. Miðstjórnarfundur Alþýðu- bandalagsins, sem haldinn var í síðasta mánuði, reynd- ist ekki ályktunarhæfur vegna fámennis. Þegar kom að afgreiðslu laga- breytingatillagna á flokksþingi Alþýðu- ilokksins nú um helg- ina var vandamálið það sama. Er grasrót A- flokkanna hætt að nenna á fundi? Sighvatur Björgvins- son, formaður Alþýðu- flokksins: „Það er engin ágreiningur í Alþýðu- flokknum um sam- starfsmál jafnaðar- manna og sjávarút- vegsmál sem voru aðal- málefni þessa þings. Þegar engin ágreiningsmál eru til afgreiðslu og þing haldið í sumarbyrjun þegar fólk er farið að hugsa um orlofið og garðinn sinn þá er mætingin minni. Engu að síður var þetta prýðis- gott þing.“ Til þess að hægt sé að sam- þykkja lagabreytingar þarf í vissum tilfellum 2/3 atkvæða eða aukinn meirihluta en þá hefðu þingfulltrúar þurft að vera um 300. „Við vorum hins vegar um 100 á þinginu, sem er ágætis mæting út af fyrir sig,“ segir Sighvatur. Á flokksþingi Alþýðuflokks- ins var ályktað til stuðnings verkafólki á Vestíjörðum og lýsti flokksþingið yfir stuðningi við baráttu þess. Jafnframt var því Iýst yfir að harkan í verk- fallinu væri til komin vegna þess að fólk væri í auknum mæli að gera sér grein fyrir þeirri misskiptingu sem er á arðinum af hinni sameiginlegu auðlind. Þá var og ályktað um ný- gerða úthlutun sjávarútvegs- ráðherra á 32 þúsund tonnum til viðbótar og tekið fram að verið væri að úthluta nokkrum einstaklingum og félögum í at- vinnugreininni verðmæti sem meta mætti á 18-20 milljarða. Á þinginu voru lagðar fram hugmyndir um breytingar á nú- verandi stýrikerfi fiskveiða. Þær breytingar fela m.a. í sér að aflaheimildir verði boðnar út á markaði. Skipuð var sérstök fimm-mannanefnd til að setja þessar hugmyndir í frumvarps- búning. Þá voru sameiningar- mál tekin til umræðu og lýst yf- ir mikilli ánægju með gang mála auk þess sem Alþýðu- flokkurinn fagnaði þeirri um- ræðu sem nú á sér stað innan Alþýðubandalagsins um sjávar- útvegsmál og Evrópumál. Sig- hvatur Björgvinsson segir þá umræðu merki þess að ekki eigi að vera nein málefnaleg atriði sem valdi því að sameiginlegt framboð til Alþingis geti ekki gengið. rm Frá Flokksþingi krata á Akranesi um helgina.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.