Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Side 7
rin 1 K> 7
Þriöjúdagu'r W. ýúní 1997 - 7
ERLENDAR FRETTIR
Þýskaland
Flugræn-
ingjar yfír-
bugaðir
Tveir menn rændu í gær Bo-
eing 737 flugvól frá Möltu
og neyddu flugstjórann til þess
að lenda flugvélinni í Köln í
Þýskalandi, en flugvélin var á
leið frá Valletta til Istanbúl í
Tyrklandi með 83 farþega inn-
anborðs. Sérsveitir þýsku lög-
reglunnar réðust til inngöngu í
vélina og yfirbuguðu flugræn-
ingjana án blóðsúthellinga, en á
myndinni sést þegar þeir eru
leiddir frá borði með hendur
Upp í loft. MyndiAFP
Bosnía
í leit að sjálfsmynd
Istærstu bókabúðinni í
Sarajevó, höfuðborg Bosrn'u,
er bókum um íslömsk trúar-
brögð stillt upp í röðum við af-
greiðslukassana. Þetta eru mest-
anpart leiðbeiningarrit um efni á
borð við hjónaband, klæðnað,
kynb'f, matargerð og hvernig
umgangast skuli vantrúaða.
„Fólk spyr eftir þessum bók-
um,“ segir framkvæmdastjóri
Svjetlost bókabúðarinnar.
„Upplýsingar af þessu tagi voru
áður ekki fáanlegar hér.“
Bækur um trúarbrögðin eru
eitt vinsælasta lestrarefni lands-
manna um þessar mundir, þótt
Sarajevó hafi aldrei verið sú há-
borg íslamskrar bókstafstrúar
sem Serbar hafa reynt að láta
bta út fyrir og notað að hluta
sem réttlætingu fyrir stríðsátök-
unum. Eftir stríðið hefur áhugi
Bosníubúa á íslamskri trú hins
vegar aukist til muna og sífellt
fleiri eru farnir að fylgja siða-
reglum trúarinnar út í æsar.
Konum sem klæðast kuflum og
höfuðklútum fjölgar og slátrar-
ar eru farnir að auglýsa búðir
sínar sem „halal" - þar sé ekki
selt annað kjöt en það sem sam-
ræmist trúarforskriftinni.
Margir bta á þessa þróun
sem eðlilega tilraun til þess að
finna og vernda menningarlega
sjálfsmynd þjóðarinnar sem er í
molum eftir stríðið sem klauf
hana eftir trúarbrögðum. Aðrir
sjá í þessu fyrirboða um hættu-
lega sókn bókstafstrúarmanna
með fran og Saudi-Arabíu að
fyrirmynd. Umburðarlyndi
gagnvart öðrum siðum, sem
margir töldu aðalsmerki Bosm'u
áður fyrr, sé á undanhaldi og
nú sé áherslan lögð á það að
bola burt öllum sem ekki líta á
sig sem músbma.
Annað merki um breytingar í
menningarlífi Sarajevóborgar
má sjá á því hve mikil sala er í
nýrri orðabók og kennslubók í
stafsetningu fyrir „tungumál
Bosm'u". Fyrir stríðið töluðu
íbúar Bosm'u nokkurn veginn
sama tungumáUð, serbó-króa-
tísku, þótt nokkur mállýsku-
munur hafi verið merkjanlegur.
Nú eru stjórnvöld í hinum
þremur hlutum Bosníu í óða
önn að bæta við nýjum orðum
og gera breytingar á stafsetn-
ingu og framburði til þess að
greina skýrar á milli óbkra af-
brigða þessa tungumáls.
Höfundur orðabókarinnar
segir að henni sé ætlað að
hjálpa Bosníubúum með þær
breytingar sem eru að verða á
tungumáUnu. Hvorki meira né
minna en 650 reglur hafi verið
fundnar í þessu skyni, en eina
breytingin sem virðist skipta
einhverju máli er sú að bók-
stafnum „h“ er bætt við mörg
algeng orð.
- Los Angeles Tímes
Pólland
Páfinn leitar heim
Jóhannes PáU páfi hefur
verið á ferð um Pólland í
rúma viku, en ferðinni lýk-
ur á morgun. Sjálfur er hann
Pólverji að uppruna og hefur
notað þessa ferð óspart tU að
heimsækja fornar slóðir og riQa
upp minningar, sem ekki eru
allar jafn ljúfar. í gær heimsótti
hann grafir foreldra sinna og
bróður sem létu öll lífið áður en
hann náði 22 ára aldri. Og að-
faranótt sunnudags svaf hann í
erkibiskupshöllinni í Kraká, þar
sem hann bjó í 14 ár.
Áður en hann kom tU Krakár
seint á laugardag dvaldist hann
þrjá daga á vinsælum ferða-
mannastað í Tatrafjöllum
skammt frá Kraká, en þangað
hefur hann komið reglulega allt
frá æskuárum til þess að fara í
gönguferðir og renna sér á
skíðum. Að þessu sinni lét hann
sér nægja að njóta útsýnisins úr
þyrlu og svifvagni.
í Kraká dvaldist hann í erki-
biskupshöUinni, sem var byggð
á 17. öld. Þar er hann heima-
vanur, því hann bjó einmitt í
höUinni í ein 14 ár, en svaf þó
ekki í gamla svefnherberginu
sínu því þar hefði hann ekki
haft svefnfrið fyrir mannfjöldan-
um sem fagnaði komu hans
næturlangt á götunni fyrir utan.
Eftir útimessu, sem hann
hélt á sunnudag fyrir meira en
milljón manns, hélt hann til
gamla skólans síns þar sem
minnst var 600 ára afmælis
guðfræðideUdarinnar. Á stríðs-
árunum, þegar núverandi páfi
stundaði þar nám, þurfti guð-
fræðideUdin að starfa neðan-
jarðar til þess að fá frið fyrir
nasistum. í ræðu sinni vék páfi
frá skrifuðum texta hennar og
minntist þess dags árið 1939
þegar þýskir hermenn hand-
tóku 144 af kennurum skólans
og fluttu í einangrunarbúðir,
sem var liður í því áformi
þeirra að leggja menningarlíf
landsins í rúst. „Þann dag var
ég að ræða við suma þeirra,“
sagði hann. „Þeir komu aldrei
heim, þeir sneru I aldrei
aftur ..."
- Los Angeles Hmes
Sannkölluð fjölskyldu-
og íþróttahátíð
Boigamcs 3.- 6. júlí
ÚTBOÐ
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í endurnýjun
á ofnum og ofnlögnum í hluta Barnaskóla Akur-
eyrar, einnig gerð stokka utan um pípur og
málningu á stokkum og pípum. Um er að ræða
stál- og eirlagnir. Verklok eru 1. ágúst 1997.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Norður-
lands ehf., Hofsbót 4, Akureyri, frá mánudegi 9. júní
97.
Tilboð verða opnuð á Byggingadeiid Akureyrarbæj-
ar, Geislagötu 9, Akureyri, föstudaginn 13. júnf 97
kl. 11.00.
I J