Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Side 11
ÍOctgur-ÍEmTOm
Þriðjudagur 10. júní 1997 -11
Makedónía hafði
sigur á heimaveiii
Islenska A-landsliðið sótti
ekki gull í greipar í Make-
dóna í leik liðanna á laugar-
daginn. Gjorghi Hristov sá til
þess að heimamenn hirtu öll
þrjú stigin með laglegu marki á
53. mínútu. Leikmenn íslenska
liðsins, sem verið höfðu fullvar-
kárir framan af, sóttu í sig
veðrið það sem eftir lifði leiks
og náðu þá ágætum tökum á
miðjunni, en Makedónar beittu
hættulegum skyndisóknum.
Þrátt fyrir ágæt færi á báða
bóga það sem eftir lifði, tókst
hvorugu liðinu að bæta við
marki.
Lið fslands: Kristján Finnboga-
son - Arnar Grótarsson, Guðni
Bergsson, Sigurður Jónsson,
Lárus Orri Sigurðsson - Brynjar
Gunnarsson (Arnar Gunnlaugs-
son 72.), Sigursteinn Gíslason
(Ríkharður Daðason 83.), Arnór
Guðjohnsen (Helgi Sigurðsson
80.), Eyjólfur Sverrisson - Pórð-
ur Guðjónsson, Bjarki Gunn-
laugsson.
SIGLINGAR
Siglingasambandið og fþrótta-
samband Fatlaðra standa
fyrir siglingadegi hreyfihamlað-
ara miðvikudaginn ll. júní nk.
Siglt verður frá Austurbugt við
Ingólfsgarð í Reykjavíkurhöfn.
Þetta er kynningardagur fyrir
íþróttina hjá hreyfihömluðum,
en þetta var sýningaratriði á
Ólympíumóti fatlaðra í Atlanta
1996. ÍF vonast til að kynningin
veki áhuga siglingaklúbba og
hreyfihamlaðra um land allt til
þess að snúa sér að þeirri
skemmtilegu íþróttagrein sem
siglingar eru. gþö
Staðan í Evrópuriðli átta fyrir
HM er nú þessi:
Rúmerna 6 6 0 0 20: 0 18
Makedónía 7 4 12 19:10 13
Irland 6 3 12 15: 4 10
Litháen 5 3 0 2 6: 5 9
ísland 5 0 2 3 1: 8 2
Liechtenstein 7 0 0 7 2:36 0
Jöfnunarmark í lokin
Jóhann Guðmundsson náði for-
ystunni fyrir íslenska ung-
mennalandsliðið á 65. mínútu, í
viðureigninni við jafnaldra frá
Makedóníu á föstudaginn. Það
dugði ekki til sigurs, heima-
rnenn náðu að jafna metin
þremur mínútum fyrir leikslok
með marki Stankovski og næla
sér þar með í sitt fyrsta stig í
riðlinum.
Staðan er nú þannig:
Rúmenía 5 5 0 0 9: 4 15
ísland 53119:410
írland 4 2 0 2 8: 2 6
Makedónía 50141:12 1
Litháen 3 0 0 3 2:7 0
Leikmenn KR byrjaðir að æfa að nýju!
Leikmenn meistaraflokks KR mættu á æfingu að nýju í gærkvöld á svæði sínu við Frostaskjól. Þetta er
jafnframt fyrsta æfing félagsins undir stjórn nýs þjálfara, Haralds Haraldssonar, sem er fremstur á mynd-
Mynd: Hilmar
KNATTSPYRNA s KNATTSPYRNA 1 KNATTSPYRNA
Markaregn í
bikamum
Leikið var í Bikarkeppni
KSÍ og Coca-Cola um helg-
ina og mörkin létu ekki á
sér standa í flestum leikjanna.
Um var að ræða 16-liða úrslitin
í forkeppninni.
Úrslit urðu þessi:
Fjölnir-Bolungarvík 5:3
Völsungur-Hvöt 1:0
HK-Selfoss 3:1
Nökkvi-Dalvík 0:1
KR 23-Haukar 3:0
Leiknir-Valur 23 5:2
Reynir-Ægir 4:1
Stjarnan 23-Víðir 1:2
ÍA 23-Grótta 6:0
Víkingur-KSÁÁ 8:2
Sindri-Höttur 2:1
KVA-Þróttur N 2:3
Magni-KS 0:2
UBK 23-Keflavík 23 0:3
UMFA-Framherjar 3:0
Léttir-ÍR 1:4
Enskur sigur
íhöfní
Frakklandi
Enska knattspyrnulands-
liðið hefur tryggt sér sig-
urinn á íjögurra þjóða móti í
Frakklandi, þrátt fyrir að
aðeins tveimur umferðum sé
lokið af þremur. Englending-
ar lögðu gesgjafana Frakka
1:0 um helgina með marki
Alan Shearer á lokamínút-
unni. Enska liðið hefur hlot-
ið sex stig og á að leika við
Brasilíu í kvöld. Brasilía hef-
ur tvö stig og Frakkland og
Ítalía eitt, en síðasttöldu lið-
in leika annað kvöld.
Tveir \e\k\r
við Litháa
á morgun
s
Islensku landsliðin í knatt-
spyrnu verða í eldlínunni á
morgun þegar leikið verður
gegn Litháen í undankeppni
HM.
Ungmennalið þjóðanna mæt-
ast í Kaplakrika og hefst viður-
eignin klukkan 14. A-lið íslands
og Litháa mætast síðan og er
það fyrsti leikurinn á nýendur-
bættum Laugardalsvelli. Völlur-
inn hýsir nú sjö þúsund áhorf-
endur, alla í sæti, en forsala
miða er þegar hafin á bensín-
stöðvum Essó.
KNATTSPYRNA • Undankeppni HM
Utah jafnar
Leikur 4:
Utah-Chicago 78-73
Utha Jazz hefur jafnað metin í
orrahríðinni við Chicago Bulls í
úrslitum NBA deildarinnar.
Chicago, sem vann tvo fyrstu
leikina á heimavelli sínum, hef-
ur nú mátt þola tvo ósigra í röð
fyrir Utah. Nokkuð sem Jordan
og félagar eru ekki vanir.
Leikur liðanna var jafn nán-
ast allan tímann þó meistararn-
ir væru alltaf skrefinu á undan.
Þegar tvær mínútur lifðu af
leiknum leiddi Chicago, 73-69.
Síðustu níu stigin skoruðu svo
leikmenn Utah og náðu að
knýja fram sigur og jafna ein-
vígið.
Síðustu sekúndurnar voru
spennandi. Michael Jordan,
sem átti frekar dapran dag, allt
fram í 4. leikhluta, reyndi
þriggja stiga skot sem fór for-
görðum og í stað þess að jafna
leikinn náðu heimamenn að
innsigla sigur sinn með víta-
skotum frá Karl Malone.
„Það eina sem ég hugsaði
um var að 650 milljónir væru
að horfa á mig. Ég ætla ekki að
ljúga að ykkur, þetta var það
eina sem ég hugsaði um þegar
ég tók vítaskotin," sagði Karl
Malone harla ánægður í leiks-
lok.
Jerry Sloan, þjálfari Utah,
var ekki síður kátur: „John
Stockton var frábær í leiknum.
Sumar sendingar hans voru
þannig að maður gleymir þeim
aldrei. Ég veit ekki hvernig
hann fór að þessu, gabba Jord-
an og koma boltanum í öruggar
hendur Karls Malone.
„Látið mig fá boltann, ég hef
fundið taktinn,“ sagði Jordan
loks þegar hann fór í gang í 4.
leikhluta. Phil Jackson, sem
reyndar var ekki ánægður með
sína menn, sagði að þetta hefði
gengið þangað til
hann klúðraði síð-
asta þriggja stiga
skotinu. „Mér
fannst þetta erfitt
skot og enginn
hefði reynt það
nema Jordan. Það
fór í körfuna en
skrúfaðist til baka
og við því er ekkert
að gera,“ sagði
Jackson eftir leik-
inn.
Karl Malone
skoraði 23 stig fyr-
ir Utah og Jordan
22 fyrir Chicago.
John Stockton fór
á kostum og skor-
aði 17 stig fyrir
Utah auk þess sem hann átti 12
stoðsendingar, þar af sex á síð-
ustu mínútunum þegar Jazz
innbyrti sigurinn.
Karl Malone skoraði 23 stig fyrir Utah.
Næsti leikur verður á mið-
vikudaginn í Delta center, þar
sem Utah hefur unnið 48 leiki í
vetur og aðeins tapað 3. gþö
Guðni setti met
Guðni Bergsson, fyrirliði ís-
lenska A-landsliðsins, setti nýtt
leikjamet í Makedóníu þegar
hann lék 73. leik sinn fyrir ís-
lands hönd. Ólafur Þórðarson
átti fyrra metið, 72 leiki.
Hamar
félagsheimili Þórs:
Salir til leigu
Tilvaldir til hvers
konar íþrótta- og tóm-
stundaiðkana.
Gufa - Pottur -
Búningsaðstaða
Hamar
sími 461 2080