Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Side 12

Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.06.1997, Side 12
I EVRÓPULEIKAR SMÁÞJÓÐA KARFA KNATTSPYRNA • Dregiö í Bikarkeppni KSÍ og Coca-cola Góð uppskera hjá íslendingum íslenska keppnisfólkið á Smáþjóðaleikunum gat vel unað við uppskeru liðsins á mótinu. Leikunum var slitið sl. laugardagskvöld en þá höfðu 96 verðlaun fallið íslandi í skaut. ísland hreppti gullverðlaun í 33 greinum af 106, silfurverðlaun í 32 greinum og bronsverðiaun í 31 grein. Kýpur hreppti verðlaun í 68 greinum og Luxemborg í 66 greinum en þessar þrjár þjóðir voru í nokkrum sérflokki á leikunum. Á mynd- inni hér að ofan sést íslenska karlasveitin fagna sigri í 100 metra boðhlaupi. Frá vinstri: Jón Arnar Magn- ússon, Ólafur Guðmundsson, Bjarni Traustason og Jóhannes Már Marteinsson. Mynd: mimar | Gunnar tekurvið Þórsliðinu Allar lík- ur eru á því að Gunnar Sverrisson verði næsti þjálfari Úr- valsdeildar- liðs Þórs í körfuknatt- leik og lík- FredWilliams. legt er að gengið verði frá ráðningu hans í vikunni. Hins vegar er Ijóst að Bandaríkjamaðurinn Fred Williams, fráfarandi þjálfari og besti leikmaður liðsins síðustu tvö árin, leikur ekki með liðinu í vetur. Williams fékk þrjú til- boð frá íslenskum liðum, en hann ákvað að breyta til og mun líklega leika á meginlandi Evrópu í vetur. Gunnar Sverrisson þekkir vel til hjá Þór, en hann var aðstoð- arþjálfari liðsins í fyrra, en hann á einnig að baki tvö ár sem aðstoðarþjálfari meistara- ílokks ÍR. Þórsliðið mun tefla fram svipuðum mannskap næsta vetur og í fyrra, en farið verður í að finna eftirmann Williams á næstu dögum. Jason fer tíl UMFA Landsliðsmaðurinn Jason Ól- afsson, sem lék með þýska 2. deildarliðinu Leutershausen á sl. keppnistímabili, hefur ákveðið að ganga í raðir Aftur- eldingar. Jason átti eitt ár eftir af samningi sínum við þýska liðið, en lítill vilji hefur verið hjá styrktaraðilum þess að halda starfseminni áfram. Jason hef- ur átt í viðræðum við lið frá Spáni en lokalendingin verður í Mosfellsbænum, þar sem hann var leikmaður um tveggja ára skeið. kæli- og frystiskápar Fékk fyrirmæli um að draga KR úr potfínum etta voru þeir mótherjar sem við óskuðum okkur, okkar ágæti þjálfari er KR-ingur og við höfðum rætt um það, að gaman væri að fá KR-inga í bikarnum. Það má því segja að við höfum verið stálheppnir, - þetta var óska- dráttur fyrir okkur,“ sagði Freyr Sverrisson, formaður 3. deildarliðs KS sem tekur á móti KR-ingum í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar næsta sunnu- dag. Dregið var á Ingólfstorgi í gær og Freyr sagði að Iförður Bjarnason, sem tók þátt í drætt- inum fyrir Siglfirðinga hefði fengið þau fyrirmæli að draga KR upp úr pottinum og það gekk eftir. Hins vegar bendir flest til þess að Reykjavíkur- stórveldið þurfi að sætta sig við að spila á malarvelli, því völlur- inn á Siglufirði hefur komið illa undan vetri og hret um helgina hjálpaði ekki upp á sakirnar. Freyr sagði að ef ekki kæmi til stuðningur æðri máttarvalda, þá yrði grasvöllurinn ekki tilbú- inn í tæka tíð fyrir leikinn sem verður sá stærsti á Siglufirði í sumar, - að því gefnu að heima- menn falli úr keppninni. Sextán lið komu inn í mótið í þessari umferð og fengu þau öll útileiki þar sem þau voru dreg- in á eftir. Bikar- og íslands- meistarar ÍA þurfa þó ekki að fara langt, því liðið dróst á móti U23-ára liði Akraness. Annars leit drátturinn svona út, leikirn- ir fara fram um næstu helgi, á laugardag og sunnudag. Leikir sein fram fara næsta laugardag: Dalvík-Fylkir, KR 23-Fram, ÍA 23-ÍA, Leiknir R.-ÍBV, Víðir- Grindavík, ÍR-Keflavík, Þróttur Nes.-Þróttur R. og Afturelding- Þór. Leikir sem fram fara næsta sunnudag: HK-Leiftur, KS-KR, Sindri- Breiðablik, Keflavík 23-Valur, Völsungur-Fylkir, Fjölnir-KA, Víkingur-Skallagrímur og Reyn- ir Sandgerði-Stjarnan. Verð frá kr. 34.100 KAUPLAND KAU RANG ■ Sfmi 462 3565 • Fax 461 1829 Reykjavík Stykkishólmur Bolungarvík Blönduós Akureyri Egilsstaðir Kirkjubæjarklaustur °c Mlð Fim Fös Lau mm /\ /N; Stórhöfði HANDBOLTI Hagnr-®mTÍmt Veðrið í dag Þriðjudagur lO.júní 1997 Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyr- ir neðan. Breytileg átt, gola eða kaldi og víða rigning eða skúrir. Hiti 6-12 stig.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.