Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Qupperneq 8
20 •* Föstudagur 20 -júní><lfj97^'\
HagjmSÍÍMtiiiijtiiÍc
LIFIÐ I LANDINU
Kanarnir vilja
norðiirskautsveður
Á nyrsta 18 holu
golfvelli hnattarins
koma tugir ferða-
manna til að spila
golfí miðnœtursól-
inni...
au þurfa ekki að trekkja
til sín fólkið í Golfklúbbi
Akureyrar. Þangað mætir
fólk eftir vinnu með golfglýjuna
í augunum og þegar Lífið í
landinu skrapp uppeftir
skömmu fyrir kvöldmat í vik-
unni var þar Jjöldi manna að
reyna sig við hvítu kúlurnar.
Tekið var slembiúrtak úr þess-
um íjölda og tókst að klófesta
tvo menn, þá Birgi Haraldsson,
19 ára, og Davíð Barnwell.
Hola í höggi í mið-
nætursól
Tíðindamenn blaðsins máttu
sælir með feng sinn því þarna
voru engir aukvisar í íþróttinni
á ferð. Birgir var í 3. sæti á
Arctic Open í fyrra, íslands-
meistari unglinga árið 1996 og
Davíð er golfkennari. Að öllum
líkindum taka þeir báðir þátt í
hinni árlegu miðnæturgolf-
keppni Arctic Open sem hefst í
næstu viku. Davíð ætlar þó að
sjá til, „ég er aðeins að drepast
íbakinu".
Erlendum þátttakendum í
Arctic Open hefur fjölgað síð-
ustu árin og nú hafa 70 útlend-
ingar tilkynnt þátttöku en Golf-
klúbburinn stefnir á að fá
mirrnst 100 útlendinga á mótið
árið 2000. Líklegt er að það
takist því að sögn Davíðs kemur
fullt af ferðamönnum til Akur-
eyrar, sérstaklega til að spila
golf.
Mótið í ár verður sett næst-
komandi miðvikudag með kokt-
eilboði en keppnin sjálf hefst
um kl. 20 á fimmtudagskvöldið
og verður svo spilað nóttina á
enda (eða allt að því). Einnig
verður spilað á föstudagsnótt-
ina. Þegar menn eru síðan bún-
ir að sofa úr sér keppnisþreyt-
una á laugardag geta þeir farið
í sitt fínasta púss og mætt til
gala-kvöldverðar upp í Golf-
skála og, hafi þeim gengið vel,
tekið við verðlaunum.
En hvað er það við Arctic
Open sem þykir svo heillandi?
„Utlendingunum finnst merki-
legt að geta spilað golf á nótt-
unni. í Englandi t.d. er orðið
mjög dimmt um 9 eða 10 á
kvöldin," segir Birgir. „Það er
svolítið skrýtið að slá kúlu beint
ofan í holu á 160 metra færi um
hálftvö að nóttu undir miðnæt-
ursólinni,“ segir Davíð „- og
vinna bíl fyrir það!“
Uggvekjandi skuggar
Sólarupprásin sést mjög vel frá
golfvellinum og segir Davíð að
erlendu þátttakendunum þyki
skuggarnir sem standa langt
aftur af kylfingunum um hánótt
í meira lagi skrýtnir, nánast
uggvekjandi. Miðnætursólin er
ótvíræður kostur og geta ís-
lenskir golfarar tekið undir það
en ísland er að öðru leyti ekk-
ert kostaland fyrir golfíþróttina
því vellirnir verða sjaldan nógu
góðir, segir Birgir. Þeir ná ein-
faldlega ekki að gróa eftir vet-
urinn enda hefur grasið bara
um 4 mánuði til að vaxa. En út-
lendingarnir setja rokið og
kuldann lítið fyrir sig segir Dav-
íð. „Útlendingar, og sérstaklega
ameríkanar, vilja fá norðiu--
skautsveður. Þeir reikna með
ÍS-landi og kulda.“ lóa
Davíð og Birgir ætla líklega báðir að taka þátt í Arctic Open ásamt um 140 keppendum, íslenskum sem erlend'
Um. Mynd.
Bjóðum nú GSM síma á verði sem ekki hefur þekkst
hingað til... i
250 gr-
-i/2 kls*:
taltírrn
TiO k'^:
biðtírfH
klst:
dtím1
i k\st.
ðtít^1
klst.fl
,lt»«r»‘ 1
k\St;
ðtítTD
wicssoN
pHlllPS
jyngd
170 gt-
2 klst.
taltírn'
}3 klst.
biðtím*
Einng úrval fylgihluta fyrir GSM síma
VERIÐ VELKOMIN í VERSLUN OKKAR
stærsta heimiiis-og raftækjaversiunarkeöja i Evrópu heimsencfinga/tDjónusta þjónusta viögeróarþjónusta
RflFTfEKGflPERZLUN ÍSLflHDS If
- A N N O 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776