Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Page 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Page 9
 Föstudagm £Q> Jún(Jl 987,.^ 21 LÍFIÐ í LANDINU Esjuganga Ferðafélag íslands hefur á að skipa sérstakri Esju- nefnd og er formaður hennar Páll Steinþórsson. Hann hefur verið formaður síðan 1994 en verið í Ferðafélaginu síðan 1966. Páll er mikill ferðamaður og á sér ýmis önnur áhugamál að auki. Hann var í Flugbjörgun- arsveitinni í yfir 20 ár, er félagi í Lionshreyfingunni og hefur gaman af veiðum. Aðspurður segir hann að siík áhugamál sé ekki hægt að stunda nema ijöi- skyldan sé með og þau hjón fari alltaf saman í ferðir. Esjunefndin hefur það m.a. á verkefnaskrá að hirða um gestabókina, sjá um göngu- stígagerð í samvinnu við skóg- ræktina og hafa umsjón með Esjuferðum Ferðafélagsins. Á hverju ári ganga þúsundir manna á Esjuna sér til ánægju og yndisauka. Hægt er að fara langar og stuttar ferðir og fólk á öllum aldri getur gengið eða látið bera sig upp. Páll segir yngsta göngumanninn sem hann hefur hitt vera 7 mánaða, reyndar var sá borinn á baki föðurs síns og þann elsta rúm- lega 80 ára, en sá gekk á eigin fótum. 1994 var sett upp ný útsýnis- skífa á Esjuna að tilhlutan Höskuldar Jónssonar, þáver- andi forseta FÍ, sem vildi með þvx heiðra minningu Jóns G. Viðars, landmælingamanns. Jón hafði til skamms tíma teiknað allar skífur fyrir FÍ. Steinninn, sem vóg 800 kg., var tekinn sunnan við Hafnaríjörð og flutt- Horft yfir Mógilsá á haustdegi. ur með þyrlu upp á Esju. Áður höfðu verið steyptar undirstöð- ur fyrir hann. Jakob Hálfdánar- son, ættingi Jóns, gerði skífuna og það þurfti að bíða lags í margar vikur áður en hægt var að flytja hana upp. Gestabók FÍ er í stöplinum, vel varin. Á hverju ári stendur FÍ fyrir svokallaðri sólstöðugöngu á Esjuna og er hún farin á sumarsólstöðum, 21. júní. Þá er lagt af stað um kl. 20.00 og tek- ur gangan um 4 klst., þannig að komið er niður um miðnætti. Mjög margir taka þátt í þessum göngum, sem hafa verið farnar síðustu 30 árin a.m.k. Fyrsta skráða Esjuganga FÍ var hins vegar 1929, þá fóru 18 manns og hefur gestabókin verið færð síðan. Hún var kölluð Tindabók til að byrja með. Páll segist vonast til þess að verði af sameiningu Kjalarness og Reykjavíkur, beri Rvk. gæfa til þess að fela ferðafélögunum umsjón Esjunnar, líkt og íþróttafélögin sinna Laugar- dalnum nú. Þau sinni nú þegar veigamiklu starfi í umsjón íjallsins og það kosti sitt, en mörg þessara starfa eru unnin í sjálfboðavinnu nú. vs Aðstæður við Mógilsá hafa verið stórbættar upp á síðkastið, góð bíla- stæði, bekkir og kort. Brosmildir ferðalangar í Esjuhlíðum á 17. júní. Nýja útsýnisskífan í Esjunni stendur á fallegum útsýnisstað, Útsýnið yfir Reykjavík er alveg stórkostlegt á fallegum degi. Gangvissir, öruggir og endingargóðir Yamaha utanborðsmótorar 2ja ára ábyrgð | HRÍSALUNDUR - fyrir þig! 77Iboð: Rauðvínslegnar lærissneiðar kr. 1 .094,- kg Rauðvínslegnar framhryggjarsneiðar KEA 3ja kornabrauð kr. 129 stk. Lambalærissneiðar 1. fl. kr. Lambalærissneiðar 2. fl. kr. 698, 498 kg Svínakótilettur kr. 798 »- kg Vínber blá kr. 379 ,- kg Vínber græn kr. Vínber rauð kr. 379, 379 ,- kg Hrísalundur - ódýrari en þig grunar

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.