Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Page 14

Dagur - Tíminn Reykjavík - 20.06.1997, Page 14
- ‘ 2&--^FÖStudagur 20. Júrrí 1997 —•|0á^n>'2RiCTbm LÍF FJÖR Haldið til fjalla Á miðnætti í annað kvöld ætla skátar á Akureyri og aðrir þátttakendur að vera á sem flestum fjallstoppum er sjást frá Akureyri. Það munu þeir setja niður tresúlu í tilefni 80 ára skátastarfs á Akureyri og kveikja á reykblysum. Allar frekari upplýsingar um Jóns- messumót Klakks er hægt að fá á skrifstofu skátafélagsins sem er opin á virkum dög- um frá klukkan 13:00-16:00, sími: 461 2266. '“‘■"-'íssg: Gróandi Sigurjóns Opnuð hefur verið sumarsýning á 27 völdum verkum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Verkin eru öll úr fórum safnsins og tengjast minni eða stef úr náttúrunni. Heiti sýningar- innar er Gróandi og spanna verkin rúmlega 40 ára tímabil. Sum verkanna hafa ekki komið fýrir almennings sjónir í langan tíma. Á sýningunni eru einnig þrjár þekktar portrettmyndir í brons. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga milli 14 og 17. Stórtónleikar á Selfossi Stórtónleikar með hljómsveitunum Sóldögg, Á móti sól, Sálin hans Jóns míns, Skítamóral, Landi og sonum, og Sanasól verða í miðbæ Selfoss i kvöld, laugardagskvöld, og hefjast kl. 19:00. Verð aðgöngumiða eru 1.900 kr. og aldurstakmark er 16 ár. Sætaferðir á tónleikana verða frá Selfossi frá BSÍ kl. 17 í dag og til baka kl. 03:30. Það eru Ferðaskrifstofan Grænn ís og frjálsíþróttadeild UMF. Selfoss sem standa að þessum tón- leikum í tilefni af 50 ára afmæli Selfossbæjar. Mannakorn á Ráðhúskaffi í kvöld verður hin fæga sveit Mannakorn á Ráðhúskaffinu, loksins á Akureyri. Eins og allir vita eru það þeir Pálmi Gunnarsson, Magnús Eiríksson, Sigfús Óttarsson og Þórir Úlfarsson sem eru Mannakorn. Mætum öll og syngjum með. HELGIN FRAMUNDAN mælir með... ...iðrum Sjallans annað kvöld þar sem opnar nýr staður með því dúndurnafn- inu Disko Dátinn og reynd- ar verður ein samfelld skemmtan á Sjallanum því þar ætlar gleðigrúppan Greifarnir að syngja inní tjaldi, útí skógi, vonandi skemmtið þið ykkur vel... o.s.frv. á kommbakkinu sfnu stanslausa sem hefur staðið yfir í rösklega ár. ...miðnæturmóti ÍR sem verður á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 22:30. Keppt verður í 100 m, 400 m, 1500 m, 4x10 m boðhlaupi, langstökki, hástökki, stang- arstökki, spjótkasti og kringlukasti. Þeir sem geta lítið í þessu geta þá bara tekið þátt í grillveislunni... ..að menn njóti sumars, séu úti á kvöldin til að lengja tilfinninguna fyrir þessari dásemd. ...að menn krókni úr kulda, í kofa við... Þið miklu eilífu andar.. ókei. Hljóm- sveitinni Mannakorni á Ráðhúskaffi á Akureyri í kvöld. ...að menn sjái hið heimsfræga lið Hamburger SV (Sportveræn) leika á móti Leiftri sem keppir á heimavelli í Ólafsfirði. Vá maður! H V A

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.