Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Side 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 05.07.1997, Side 8
\ -X*?9V jVhV •j\jv>nVcjnnnnA Laugardagur 5. júlí 1997 - VIII MINNINGARGREINAR rntrmlID'-fjinnQí íDagur-ÍEtmxrax ANDLÁT Aðalgeir Sigurgeirsson bifreiðarstjóri, Skólagerði 2, Húsavík, lést á Sjúkrahúsi Þingey- inga þriðjudaginn 24. júní. Arni Margeirsson Miðgarði la, Egilsstöðuni, lést á gjörgæsludeild Landspítalans 25. júní. Ástríður Helga Sigurjónsdóttir áður til heimilis að Grænumörk 3, Selfossi, lést í hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, miðviku- daginn 25. júní. Björn Ragnar Egilsson bifreiðarstjóri, Stórholti 32, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. júní. Dagmar Guðný Björg Stefánsdóttir Mánagötu 12, Reyðarfirði, lést á Sjúkrahúsi Neskaupstaðar, fostu- daginn 27. júní. Ebbi Jens Guðnason Kópavogsbraut 1A, lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur að morgni sunnudagsins 29. júní. Guðmundur Jónsson Hrafnistu, lést að morgni mið- vikudagsins 25. júní. Gunnar Páil Jóakimsson fiskifræðingur í Kiel, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju- daginn 1. júlí. Inga Hafdís Hannesdóttir Aragerði 7, Vogum, lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur laugardaginn 28. júní. Ingibjörg Björnsdóttir (Stella) Sólvaliagötu 45, Iést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 29. júní. Ingibjörg Sturludóttir Hansen lést í New Jersey föstudaginn 6. júní sl. Útförin hefur farið fram. Ingvar Linfeld lést í Seattle miðvikudaginn 25. júní. Karl Kr. Jónsson iést á Eliiheimilinu Grund 28. júní. Kristín Björnsdóttir Dvalarheimilinu Víðihlíð, Grinda- vík, áður Norðurbrún 1, Reykja- vík, lést að kvöldi 17. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Lýður Pálsson frá Hlíð lést á Vífilsstaðaspíatala að kvöldi fimmtudagsins 26. júní. Magnús Björnsson Ási, Hveragerði, áður Blesugróf 23, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 12. júní. Jarðarfor- in hefur farið fram. Magnús Guðmundson bóndi, Blesastöum, Skeiðum, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann 29. júní. Ólafía Bergþóra Guðnadóttir Miðtúni 6, Keflavík, lést á Land- spítalanum aðfaranótt fimmtu- dags Ólafur E. Þorsteinsson verkstjóri, Sólheimum 23, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. júm. Ragnar Björgvin Nygaard lést á Gimli í Manitoba föstudag- inn 13. júní. Ragnhciður Gestsdóttir Ásólfsstöðum, Þjórsárdal, er látin. Sigríður Guðmundsdóttir frá Karlsskála lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, föstudaginn 27. júní. Sigurbjörg Davíðsdóttir Aðalgötu 14, Keflavík, lést að morgni mánudagsins 30. júní. Sigurður Hannes Jóhannesson brunavörður, Hamarsbraut 14. Hafnarfirði, lést á Landspítalan- um laugardaginn 28. júm. Sigurveig Björnsdóttir frá Völlum, Hvassaleiti 6, lést á sunnudaginn 29. júní. Snorri Ólafsson fyrrv. yfirlæknir, lést á dvalar- heimilinu Hlíð þriðjudaginn 1. júlí. Aðalgeir Sigurgeirsson Egill Aðalgeir Sigurgeirs- son, en svo hét hann fullu nafni, fæddist á Banga- stöðum á Tjörnesi hinn 1. októ- ber 1920. Hann lést á Sjúkra- húsi Þingeyinga á Húsavík hinn 24. júní sl. Foreldrar hans voru hjónin Björg Jónsdóttir, fædd 31. janúar 1890 að Vallakoti í Reykjadal, dáin 18. september 1978, og Sigurgeir Pétursson, fæddur 18. apríl 1874 að Víði- seli í Reykjadal, dáinn 9. apríl 1950. Björn Bjargar og Sigurgeirs voru aUs 10: 1) Óskírður (1910, dáinn sama ár), 2) Regína (1911-), 3) Ragnheiður Guðný (1913-), 4) Pétur Óskar (1915- 1944), 5) Hera (1916-), 6) Egill Aðalgeir (1920-1997), 7) Sigrún (1922-1936), 8) Olgeir (1924-), 9) Valdemar Tryggvi (1927-dá- inn sama ár), 10) Sigríður (1930-1935). Aðalgeir kvæntist 25. desem- ber 1942 eftirlifandi konu sinni Friðbjörgu Bergþóru Bjarna- dóttur frá Norðfirði, fædd 10. júlí 1924. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Friðbjörns- dóttir frá Þingmúla í Skriðdal, fædd 11. maí 1893, dáin 9. júní 1989 og Bjarni Sveinsson frá Viðfirði, bátasmiður á Norðfirði, fæddur 5. ágúst 1894, dáinn 24. febrúar 1978. Börn Aðalgeirs og Bergþóru eru: 1) Óskírð, fd. 21. ágúst 1942, dáin sama dag. 2) Bjarni, fd. 25. nóvember 1943, kv. Þór- höllu Sigurðardóttur (1947-) og eiga þau þrjá syni og sjö barna- börn. 3) Sigurður, f. 19. desem- ber 1945, kv. Sigurhönnu Jónu Salómonsdóttur (1946-) og eiga þau fimm börn og sjö barna- barnabörn. 4) Sigrún, f. 14. september 1948, g. Baldri Bald- vinssyni (1948-) og eiga þau þrjú börn og sjö barnabörn. 5) Guðrún Björg Zeller, f. 3. des- ember 1949, fv. maki Kurt Zeler (1951-) og eiga þau tvö börn. 6) Sigurgeir, f. 10. september 1953, kv. Erlu Kristínu Bjarna- dóttur (1953-). Sigurgeir var áður kv. Margréti Sveinbjörns- dóttur (1956-) og eiga þau tvö börn og eitt barnabarn. 7) Sig- ríður, f. 22. aprfl 1958, g. Héðni Helgasyni (1957-) og eiga þau tvö börn og eitt barnabarn. 8) Sveinn Viðfjörð, f. 6. desember 1964, kv. Mörthu Dís Brandt (1969-) og eiga þau einn son. Aíkomendur Aðalgeirs og Berg- þóru eru því orðnir 49. Aðalgeir ólst upp í foreldra- húsum til 6 ára aldurs að hann fór að Fagranesi í Aðaldal, þar sem hann var samfellt til 16 ára aldurs hjá Kristínu Sigurðar- dóttur og fjölskyldu hennar, eft- ir það er hann aftur í foreldra- húsum, þar til hann og Berg- þóra stofna heimili árið 1942 og hafa þau búið á Húsavík síðan að undanskildu einu ári, sem þau bjuggu á Norðfirði. Árið 1960 festu þau kaup á húseign- inni að Skólagarði 2 á Húsavík, þar sem þau hafa búið síðan. Aðalgeir stundaði sjó- mennsku og ýmiss önnur störf til ársins 1949, en það ár gerð- ist hann vörubflstjóri og stund- aði vörubflaakstur á Húsavík til ársins 1956. Árið 1956 hóf Aðalgeir reglu- bundna vöruflutninga milli Húsavíkur og Reykjavíkur og starfaði við það meðan starfs- kraftar hans entust í byrjun þessa árs, síðustu árin vann hann á vöruafgreiðslu sinni á Húsavík. Aðalgeir lét ýmis réttinda- og baráttumál í vöruflutninga- starfseminni sig miklu skipta, hann var m.a. einn af stofnend- um Vöruflutningamiðstöðvar- innar hf. í Reykjavík og sat þar í stjórn um árabil, þá var hann einn af stofnendum Landvara og fyrsti formaður þess félags. Útför Aðalgeirs var gerð frá Húsavíkurkirkju í gær, föstu- dag. Kveðja frá börnum þínum Elsku pabbi Okkur langar með nokkrum orðum að þakka þér fyrir sam- ferðina, þakka þér fyrir allt það góða sem þú hefur gert fyrir okkur. Þú varst ástríkur faðir og sagðir alltaf að það dýrmætasta sem þið mamma ættuð væru börnin ykkar. Þetta voru ekki bara orð, þetta sýndir þú okkur í öllu þínu viðmóti og umhyggju fyrir velferð okkar. Þú innprent- aðir okkur samviskusemi, heið- arleika og virðingu fyrir skoðun- um annarra. Líf þitt var ekki alltaf dans á rósum, fyrsta barnið ykkar fæddist andvana og bæði áttuð þið mamma við veikindi að stríða, sem því betur þið yfir- unnuð með tilstyrk Guðs og góðra manna. Gleðistundirnar voru því bet- ur miklu ileiri, þú naust þín vel í góðra vina hópi, þar sem þú varst hrókur alls fagnaðar. Eins og svo algengt var á árum áður, þá var lífsbarátta ykkar mömmu hörð, en með samstillta strengi, dugnaði og áræðni yfirunnuð þið erfiðleik- ana. Það þurfti mikið áræði til, þegar þú hófst vöruílutningana milli Húsavikur og Reykjavíkur um miðjan sjötta áratuginn. Þar kom fljótt í ljós óbilandi kjarkur þinn og eljusemi. Þú naust þín lfka vel í samvinnu við félaga þína í vöruflutningunum, þú varst einn af frumherjunum í mótun og þróun vöruflutninga á landi, þið börðust saman fyrir málstaðinn, þið lögðuð ykkar lóð á vogarskálina til endurbóta í vegamálum, þið stofnuðuð Vöru- fiutningamiðstöðina hf. í Reykja- vík og síðar Landvara, þið lögð- uð grunninn að hinni öflugu vöruflutningastarfsemi á landi sem í dag þykir svo sjálfsögð. Þið unnuð langan vinnudag og náttstaður var ekki alltaf fyrir- fram ákveðinn, þar réð meira veður og færð. Þið áttuð líka ykkar gleðistundir saman og við vitum að þær voru því betur margar - því hvað gefur lífinu meira gildi en atorka og fram- sýni og að gleðjast saman á góðri stund. Það er líka margs að minnast úr heimilislífinu. Okkur líður seint úr minni allar sögurnar þína frá uppvaxtarárum þínum í Fagranesi, um Sigurð fóstra þinn, sem þú nefndir ætíð svo, og annað heimilisfólk, sem allt var þér svo gott. Það hvflir ákveðin hugljómun yfir minn- ingum þínum um Fagranesárin þín. Hver man ekki gamlárskvöld- in á Björkinni, þegar saman var komin öll fjölskyldan og þið 01- geir bróðir þinn hélduð uppi söng þar til nýtt ár var gengið í garð, þar þurfti engar söngbæk- ur, því minni ykkar bræðra á lög og texta var slíkt að aldrei var rekið í vörðurnar, þá voru einnig ófá lögin, sem þú og Baldur tengdasonur þinn sunguð saman á þessum eftirminnilegu gamlárskvöldum. Eitt var það lag sem þú lést ætíð syngja á þessum kvöldum, en það var hið fallega lag “Vel er mætt til vina- funda.” Við viljum sérstaklega þakka þér fyrir hlýjuna og ástúðina í garð afabarnanna og Iangafa- barnanna þinna. Þau eru orðin mörg börnin sem minnast Alla afa. Heimili ykkar mömmu er þeim öllum svo kært, barnssálin er svo opin fyrir hlýjunni og um- hyggjunni sem þið ætíð veittuð þeim. Þá viljum við ekki síður þakka þér fyrir vináttuna og umhyggjuna fyrir tengdabörnum þínum, þau hafa hvert af öðru komið inn í íjölskylduna og notið ástúðar og hlýju þinnar. Elsku mamma, þinn missir er mestur, en við vitum að hinar ljúfu minningar þínar um góðan eiginmann munu gefa þér styrk um ókomin ár. Elsku pabbi, það er svo margs að minnast á þessari kveðjustund - minningin um ást- ríkan föður, tengdaföður, afa og langafa mun lifa í hugum okkar allra. Vertu sæll elsku vinur. Börnin þín GAMLA MYNDIN Hver kannast vlð fólkið? Ef lesendur Dags-Tímans þekkja einhverja á þeim myndum sem hér birtast eru þeir vinsamlega beðnir að snúa sér til Minjasafnsins á Akureyri, annað hvort með því að senda bróf í pósthólf 341, 602 Akureyri aða hringja í síma 462 4162 eða 461 2562 (símsvari).

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.