Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.07.1997, Blaðsíða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.07.1997, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 17. júlí 1997 - 5 Jbrgur-'QItnmm I F R É T T I R Alþingi Þingmenn töluðu í samtals 635 klukkustundir. Þar af töluðu þingmenn Al- þýðubandalags í rúmlega 120 klst. Tungufossar og timguhöft Tungufoss Alþingis er Steingrímur J. Sigfússon samkvæmt tölfræðilegri úttekt þingsins. Hann talaði í rúmlega 27 klukkustundir á síðasta þingi, en kom aðeins 231 sinni í ræðustól til þess. Fé- lagi hans Svavar Gestsson átti stólmetið, 384 sinnum sá hann sig knúinn til að rétta kúrs þjóðmálanna. Til samanburðar má geta þess að Össur Skarp- héðinsson, sem ekki er þekktur fyrir að láta sinn hlut liggja óbættan hjá garði á málfund- um, kom aðeins 184 sinnum í ræðustól á þingi; honum hefur því óvenju oft verið orðs vant miðað við Svavar. Þingmenn Al- þýðubandalagsins taka slaginn mun oftar en hinir, Hjörleifur kom 226 sinnum í ræðustól, Ágúst Einarsson Þjóðvaka held- ur oftar, eða 258 sinnum, en helsta valkyrja Kvennalistans (í þessu efni) var Kristín Ástgeirs- dóttir sem sté í pontu 195 sinn- um. Rannveig Guðmundsdóttir var sjónarmun á eftir með 176 skipti. Ragnar Arnalds átti fáa spretti, 22, og Árni Johnsen álíka þaulsætinn, kom 26 sinn- um í pontu. Engin talaði sjaldn- ar og skemur en Arndís Sveins- dóttir, 16 sinnum og talaði í heild í 59 mínútur. Ef Stein- grímur er tungufossinn er hún tunguhaftið. Lesendur Dags- Tímans geta spreytt sig á því að meta meðaltal magns og gæða með því að skoða töfluna hér til hliðar. Akureyri Eðlflegt en óheppflegt „En mér finnst afgreiðslan ekki óeðlileg. Hún er ekki heppileg." S bæjarráði sitja ílmm manns og sátu þrír hjá við af- greiðslu málsins. Jakob Björnsson, formaður bæjarráðs, kynnti málið sem munnlegt er- indi, en hann hefur ekki at- kvæðisrétt. Samkvæmt heimild- um blaðsins voru það Sigurður J. Sigurðsson og Gísli Rragi Hjartarson sem greiddu tillögunni at- kvæði sín. Jakob og Gísli Bragi eru óbeint tengdir handboltalið- inu þar sem synir beggja voru í liðinu í vetur, annar sem leik- maður og hinn sem þjálfari. Dagur-Tíminn hafði samband við Valgarð Baldvinsson, bæjarritara, til að kanna hvaða reglur væru í gildi um leyfi bæjarráðs til að af- greiða mál sem ekki næst full sátt um. „Bæjarstjórn hefur fahð bæjarráði að fullnaðarafgreiða nauðsynleg mál í júlí og ágúst á meðan bæjarstjórn er í sum- arleyfi," segir Valgarður. Hann vísar í þessu samhengi til 57. greinar sveitarstjórnarlaga þar sem kveðið er á um að byggð- arráð, sem í þessu tilfelli sé bæjarráð, sé heimil fullnaðar- ákvörðun í málum sem eigi varði veru- lega fjái'hag sveitar- sjóðs og eigi sé ágreiningur um innan ráðsins. í viðbót við þessi lög hefur lög- fræðileg túlkun verið á þann veg að hafi byggðarráði verið fal- ið verksvið sveitar- stjórnar í sumarleyfi gildi ákvörðun ráðs- ins sem fullnaðar- ákvörðun, jafnvel þótt ágreiningur sé um niðurstöðu. Guðmundur Stef- ánsson var einn þeirra sem sátu hjá í bæjarráði. Hann seg- ist hafa samúð með málstað KA-manna og ekki vera á móti því að þeir fái styrk en hinsvegar hafi hann ekki treyst sér til að samþykkja mál- ið. „En mér finnst afgreiðslan ekki óeðlileg. Hún er ekki heppileg en svona eru leikregl- urnar.“ AI Atkvæði tveggja full- trúa í bæjar- ráði nægðu til að veita handknatt- leiksdeild KA milljón króna styrk. í kjöl- farið vakna upp spurn- ingar hver sé eðlileg af- greiðsla á málum sem þessum. YfírKt yfír ræðutíma þing- manna á 121. löggjafarþingi Nafn ræðumanns Fjöldi skipta Heildartími í í ræðustól ræðustól-klst.:mín. Arnbjörg Sveinsdóttir 16 0:59 Ágúst Einarsson 258 18:57 Árni R. Árnason 32 2:50 Árni Johnsen 26 1:21 Árni M. Mathiesen 68 3:08 Ásta R. Jóhannesdóttir 142 7:17 Björn Bjarnason 128 6:58 Bryndís Hlöðversdóttir 78 6:55 Davíð Oddsson 84 4:45 Egill Jónsson 32 3:07 Einar K. Guðfinnsson 97 6:08 Einar Oddur Kristjánsson 81 5:12 Finnur Ingólfsson 182 11:40 Friðrik Sophusson 188 13:35 Geir H. Haarde 40 2:23 Gísli S. Einarsson 90 8:48 Guðjón Guðmundsson 14 1:02 Guðmundur Bjarnason 139 11:00 Guðmundur Hallvarðsson 73 4:04 Guðmundur Árni Stefánsson 122 11:14 Guðni Ágústsson 69 3:27 Guðný Guðbjörnsdóttir 138 11:26 Gunnlaugur M. Sigmundsson 25 1:59 Halldór Ásgrímsson 87 6:23 Halldór Blöndal 103 4:44 Hjálmar Árnason 60 4:23 Hjálmar Jónsson 64 3:28 Hjörleifur Guttormsson 226 22:54 Ingibjörg Pálmadóttir 105 4:53 ísólfur Gylfi Pálmason 33 1:28 Jóhanna Sigurðardóttir 190 15:45 Jón Baldvin Hannibalsson 72 6:59 Jón Kristjánsson 76 7:23 Kristinn H. Gunnarsson 167 13:22 Kristín Ástgeirsdóttir 195 16:14 Kristín Halldórsdóttir 92 8:20 Kristján Pálsson 102 6:21 Lára Margrét Ragnarsdóttir 22 2:13 Lúðvík Bergvinsson 78 4:22 Magnús Stefánsson 26 1:09 Margrét Frímannsdóttir 83 7:53 Ólafur G. Einarsson 19 1:42 Ólafur Örn Haraldsson 43 3:22 Páll Pétursson 167 9:30 Pétur H. Blöndal 169 9:29 Ragnar Arnalds 22 2:18 Rannveig Guðmundsdóttir 176 15:36 Sighvatur Björgvinsson 93 7:48 Sigríður Jóhannesdóttir 77 4:27 Sigríður A. Þórðardóttir 28 1:15 Siv Friðleifsdóttir 71 3:40 Sólveig Pétursdóttir 74 3:17 Stefán Guðmundsson 55 3:17 Steingrímur J. Sigfússon 231 27:04 Sturla Böðvarsson 90 7:27 Svanfríður Jónasdóttir 111 8:22 Svavar Gestsson 384 26:09 Tómas Ingi Olrich 50 3:31 Valgerður Sverrisdóttir 45 1:52 Vilhjálmur Egilsson 79 2:50 Þorsteinn Pálsson 179 9:38 Ögmundur Jónasson 87 9:10 Össur Skarphéðinsson 184 14:00

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.