Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.08.1997, Qupperneq 5
Laugardagur 16. ágúst 1997 - 5
F R É T T I R
Lífeyrsréttindi
Sveitarfélögm stefna
á séreignarsjóði
Sveitarfélögin undir-
búa breytt lífeyris-
sjóðakerfi.
lífeyrisnefnd Sambands
sveitarfélaga er til umræðu
að sveitarfélög stofni eigin
Karl Björnsson
bæjarstjórí
„ Við viljum alveg eins
sjá nýjan lífeyrissjóð
sem rúmar alla starfs-
menn sveitarfélag-
anna“
lífeyrissjóð, þar sem lífeyrisrétt-
indi yrðu sniðin eftir grunn-
reglugerð SAL-sjóðanna. Ið-
gjöld yrðu samtals 10% af
heildarlaunum (6% + 4%) og
sveitarfélögin greiddu síðan
5,5% til viðbótar í séreignadeild
LS, eða tryggðu séreignafyrir-
komulag þessa hluta lífeyris-
sparnaðarins með einhverjum
öðrum hætti. Einnig er inni í
myndinni að sveitarfélög semji
við SAL-sjóði í viðkomandi
landshlutum um áþekkt fyrir-
komulag.
Að sögn Karls Björnssonar,
bæjarstjóra á Selfossi og for-
manns nefndarinnar, er nú
unnið að því að út-
færa jafnvel enn
frekari valmögu-
leika. Auk starfs-
manna í opinber-
um stéttarfélögum
hafa sveitarfélögin
þúsundir ASÍ-fé-
laga í þjónustu
sinni. „Við vildum
alveg eins geta séð
lífeyrissjóð sem
rúmaði alla þessa
einstaklinga,"
sagði Karl.
Af níu stórum sveitarfélögum
sem rekið hafa sérstaka lífeyr-
issjóði er Reykjavíkurborg það
eina sem gæti haldið áfram að
reka sinn sjóð, með stofnun A-
deildar. Hjá hinum átta eru
starfsmenn of fáir fyrir sérstaka
Sveitarstjórnarmenn eru farnir að ræða um verulegar breytingar á lífeyrissjóðum
starfsmanna sveitarfélaganna. Myndin var tekin af Jakobi Björnssyni, bæjarstjóra á
Akureyri og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir, borgarstjóra, á ráðstefnu á Akureyri
nýlega.
Sveitarfélög sem nú eiga að-
ild að Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins gætu hins vegar áfram
átt aðild að sjóðnum. hau gætu
einnig samið um að hafa fram-
vegis annan hátt þar á sínum
lífeyrismálum. Viðbótariðgjaldi
(5,5%) verður ekki ráðstafað án
samþykkis viðkomandi launa-
manns. - HEI
sjóði, samkvæmt fyrirliggjandi
frumvarpi um starfsemi lífeyr-
issjóða, þar sem gert er ráð fyr-
ir a.m.k. 800 starfandi sjóðfé-
lögum í hverjum sjóði. Þessi
átta sveitarfélög verða því að
semja við starfsmenn sína um
breytingar, aðild að starfandi
sjóði, nýjum lífeyrissjóði eða á
annan hátt.
Ríkisreikningur
Lögbrot dýrari
en landbúnaður
Dómgæsla og löggæsla
kostuðu ríkissjóð held-
ur meira en búvöru-
framleiðslan í fyrra.
Dómgæsla og löggæsla kost-
uðu ríkissjóð samtals um
5,7 milljarða króna á síðasta
ári, samkvæmt ríkisreikningi,
eða 4,2% ríkisútgjaldanna (um
21.200 kr., á hvern íslending).
Með löghlýðni gætu landsmenn
því líklega sparað sér hátt í þá
upphæð sem ríkissjóður greiddi
í fyrra vegna búvörufram-
leiðslu, um 5,4 milljarða króna
- kostnað sem af mörgum hefur
verið talinn einn helsti þrándur
í götu bættra lífskjara í landinu.
Meira en 1.000 milljóna
kostnaður Lögreglustjórans í
Reykjavík er stærsti einstaki
kostnaðarliðurinn. Rannsókn-
arlögreglan kostaði rúmlega
200 milljónir. Landhelgisgæslan
750 milljónir. Útgjöld sýslu-
mannsembættanna voru sam-
tals 2,2 milljarðar króna. Hátt í
900 milljónir fóru út vegna Rík-
issaksóknara og dómsstólanna.
Og fangelsin kostuðu lands-
menn kringum hálfan milljarð.
HEI
Eldsvoðar
Utanríkisráðuneyti
Halldór selur Ginseng
og hugbúnað
Stórtjón varð þegar kviknaði i þessu húsi í Breiðholti í Reykjavík i vikunni, en brunar
út frá heimilistækjum hafa verið tíðir undanfarið.
Heimilistækin
varasöm
Rafmagnstæki eru
varasöm og full
ástæða til að
umgangast þau með
varúð.
Fimm sinnum hefur kviknað
í út frá sjónvarpstækjum
það sem af er þessu ári og
rafmagnstæki í eldhúsi hafa
jafnoft valdið íkveikju á árinu. Á
síðasta ári kviknaði 14 sinnum í
út frá þvottavélum og 2 út frá ís-
skáp eða frystikistu. Að sögn
Guðmundar Gunnarssonar yfir-
verkfræðings hjá Brunamála-
stofnun kviknar jafnt í útfrá dýr-
um og vönduðum tækjum og
þeim ódýrari. í seinni tíð sé
óhætt að segja að eingöngu
kvikni í sjónvarpstækjum sem
slökkt hefur verið á með fjar-
stýringu, en ekki rofa. Vilji
menn hins vegar auka öryggið
enn meira er rétt að rjúfa
straum inn á tæki, einnig er
mikilvægt að láta hreinsa tækin.
Guðmundur segir að það geti
kviknað í útfrá öllum rafmagns-
tækjum allt frá ljósaperu upp í
þvottavélar og þurrkara. Það er
því full ástæða fyrir fólk að taka
tækin úr sambandi þegar þau
eru yfírgefm og sinna öðrum
brunavörnum heimilisins. HH
Fyrirtæki sem farið
hafa í ferðir sambæri-
legar þeirri sem utan-
ríkisráðherra er í
núna verða vör við
mikinn árangur í
kjölfarið.
Góður árangur mun vera
af viðskiptaferðum utan-
ríkisráðuneytisins með
sendinefndir en um þessar
mundir er Halldór Ásgrímsson
á ferð um Argentínu og Chile
með 27 manna sendinefnd frá
íslandi með í för. Á síðasta ári
fór utanríkisráðherra ásamt
fríðu föruneyti til S-Kóreu og
segja þeir sem fóru í þá ferð og
Dagur-Tíminn ræddi við að hún
hafi skilað góðum árangri.
Þannig segir Sigurður Þórðar-
son hjá Eðalvörum hf. að hann
hafi fengið umboð fyrir alla
Skandínavíu fyrir rautt Ginseng
sem hann hafi verið búin að
selja á íslandi í nokkur ár. „Ég
varð mér að vísu ekki út um
sambönd enda hafði ég skipt
við Kóreu í nokkur ár þegar ég
fór í þessa ferð með Halldóri en
það hefur auðvitað þyngri vigt
að koma með utanríkisráðherr-
anum.“ Sigurður segist vera að
afgreiða fyrstu pöntun til Dan-
Umboðsmaður Ginseng hér á landi lastur afar vel af viðskiptaferðum með
utanríkisráðherra til útlanda. Hann hefur t.d. náð sér í umboð annars
staðar á Norðurlöndum og þakkar það m.a ráðherranum.
merkur eftir hálfan mánuð og
til Svíþjóðar eftir 3 vikur. „Ferð-
in ein og sér skilar engu en er
mjög góð með öðru. Maður fer
ekki upp í flugvél með utanrík-
isráðherranum og er búin að
gera feitan bissnes sama dag.
Þetta gerist á mjög löngum
tíma. Það er líka mjög gott að
fara með embættismönnum
sem geta upplýst um viðskipta-
reglur í landinu."
Sigrún Þorleifsdóttir, mark-
aðsstjóri hjá Netverki, tekur í
sama streng en tveir fulltrúar
frá þeim voru í sendinefnd Hall-
dórs á síðasta ári.
Netverk selur samskiptahug-
búnað. „Það hefur heilmikið
komið út úr ferðinni hjá okkur
og að það hefur orðið aukning í
sölu á þetta svæði.“ Hún segir
að menn hafi þó verið byrjaðir
að beina augum sínum að
þessu svæði áður en til ferðar-
innar kom en hún þó greinilega
hjálpað til. rm