Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.08.1997, Page 11

Dagur - Tíminn Reykjavík - 16.08.1997, Page 11
JDagur-®tmmn Laugardagur 16. ágúst 1997 -11 PJÓÐMÁL Á sumum sviðum þjónustu við fjölskyldur og börn eru íslendingar nærri hálfri öld aftar á merinni en grannþjóð- irnar, segir Arnar Sverrisson í grein sinni. Honum þykir öfgqlull kvenfrelsissjónarmið einnig ráða full miklu í jafn- réttisumræðunni hér á landi. ' Myn&.Gs hvöt samtakanna til að bjarga konum undan körlum. í sömu fræðum eru konur verndarar barna, sem feður sækjast einnig eftir að kúga. Því skal bjarga mæðrunum og börnum þeirra. Um aðferðina gildir: Konum skal alltaf trúa. Á þessum grundveUi er konum gefnar leiðbeiningar um það, hvernig þær geti betur hagað b'íi sínu og sumum vísað til atvinnumanna. Hópsefjun Mér er ánægjuefni að geta skýrt frá því, að á mínar fjörur hafa rekið konur eftir ábendingu frá Kvennathvarfinu, sem lært hafa af þeirri viðkynningu. En því miður er hið gagnstæða algeng- ara frá mínum sjónarhóli séð. (Eftir því sem ég best veit hefur ekki komið fyrir almennings sjónir fræðileg úttekt á gagn- semi Kvennaathvarfsins.) Illu heilli er mér kunnugt um feður, sem beygðir og brotnir sjá á eftir mæðrunum með börn sín á vit Kvennaathvarfs. Stundum er engu líkara en um hópsefjun sé að ræða, þegar mæður taka sig upp í hópum og stefna suður um heiðar. Sé tilgangur Kvennaathvarfs einangraður við það eitt að skapa lúbörðum konum skjól, væri í sjálfu sér ekkert við það að athuga, nema ef vera skyldi sanngirni þess að mismuna kynjunum. Því gnægð er af lú- börðum körlum (ef að líkum lætur), sem þora ekki út úr skápnum. En öðru máh gegnir um þá yfirlýstu stefnu Kvennaathvarfs að hamla feðrum samneyti við börn sín. Hafi ég skilið íslenska löggjöf rétt, er það einvörðungu í valdi þar til bærra yfirvalda og þarf býsna þungir sakir til. Mér er ekki kunnungt um lagalegt umboð Kvennaathvarfs til að dæma í meintri sök fóður um oíbeldi í garð barna eða barns- mæðra með áðurgreindum við- urlögum. Aukin heldur er rétt- ur feðra og barna til samvista skýlaus að lögum og alþjóða- samningum. Ég vil trúa því, að stofnað lllu heilli er mér kunnugt um feður, sem beygðir og brotnir sjá á eftir mæðrunum með börn sín á vit Kvennaathvarfs. Stundum er engu líkara en um hóp- sefjun sé að ræða, þegar mæður taka sig upp í hópum og stefna suður um heiðar. hafi verið til Kvennaathvarfs af þeirri göfugu hugsjón að draga úr ofbeldi fólks í hvors annars garð. En eins og greinarkornið ber með sér, velkist ég í rök- studdum vafa rnn gildi aðferð- arinnar og lögmæti starfsem- innar. Upplognar sakir Að leiðarlokum þakka ég þau hlýlegu orð, sem látin voru falla í grein framkvæmdastjóra Kvennathvarfsins nýlega í Degi- Tímanum. Þau eru hér með endurgoldin. Jafnframt leyfi ég mér að beina tveim spurning- um til Kvennaathvarfs, sem ég veit að brenna á vörum margra feðra jafnt sem fagmanna: Hef- ur Kvennaathvarfið tölu á þeim skjólstæðingum sínum, sem í forsjárdeilum bera barnsfeður sína upplognum sökum um allra handa misþyrmingar? (Rannsóknir og reynsla hafa endurtekið gefið skýrar vís- bendingar um þennan hóp kvenna.) Hefur Kvennaathvarf- ið vitneskju um og yfirlit yfir skjólstæðinga, sem grunaðir eru imi kynferðisleg afbrot gegn börnum sínum? HAFIVASAIVILAEÍ Útboð Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í smíði á hafnarhúsi ásamt frágangi á lóð og undir- stöðum undir hafnarvog á lóð sinni við Fiskitanga á Akureyri. Stærð hússins er 430 fm. á tveimur hæðum, lóð er 2670 fm. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hafnasam- lags Norðurlands, Oddeyrarskála við Strandgötu, frá kl. 13 miðvikudaginn 20. ágúst, og eru seld á kr. 10.000,- Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn 8. september kl. 11. Hafnastjórinn. Einstakt tækifæri - ferð til Bandaríkjanna Reykjavíkurlistinn býður stuðningsfólki sínu upp á 7 daga ferð til Bandaríkjanna. Flogið er til Baltimore 27. september til sunnudagsins 5. október næstkomandi. Gist verður á glæsihótelinu Hotel Sheraton Baltimore North. Farið verður í skoðunarférðir til Washington, í Hvíta húsið og ýmsar stjórnsýslustofnanir Bandaríkjanna heimsóttar. Hótelið er staðsett við eina stærstu verslunarmiðstöð á austurströnd Bandaríkjanna, Towson Town Mall. Verð á mann í tvíbýli í sjö nætur er kr. 44.000 ásamt flug- vallarskatti. Fyrir þá sem vilja framlengja ferðina um viku og njóta sólarinnar í Florida er boðið upp á vikuferð til Fort Lau- derdale með gistingu á ferðamannahótelinu Bahia Cabana Resort. Viðbótarverð vegna þessa er kr. 27.000 á mann í tví- býli. Fararstjóri verður Guðlaugur Tryggvi Karlsson sem veitir nánari upplýsingar. ---------------------------------------------------------------------'Á Utboö Óskað er eftir tilboðum í eftirtalin tæki í eigu Bæj- arsjóðs Akureyrar. Jeppabifreið Mitsubishi Pajero árgerð 1983. Jarðýta Caterpillar D3 62 hö. árgerð 1978. Sorpbifreið Ford B 1411 árgerð 1979. Tæki þessi eru til sýnis við Áhaldahús Akureyrar- bæjar, Tryggvabraut 9, og eru þar veittar upplýs- ingar um ofangreind tæki. Tilþoðum skal skila á skrifstofu bæjarverkfræðings fyrir kl. 11 þriðjudaginn 26. ágúst 1997 og þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim aðilum sem þess óska. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Bæjarverkfræðingur. J THE BODY SHOP Skin & H a i r C a r e Products Verslunarstjóri á Akureyri The Body Shop á íslandi óskar eftir að ráða verslunarstjóra, ekki yngri en 25 ára, í verslun okkar, sem við munum opna á Akureyri um mánaðamótin sept./okt. ’97. Um framtíðarstarf er að ræða. Við leitum að einstaklingi sem hefur: • Áhuga á umhverfis- og velferðarmálum. • Þekkingu og áhuga á snyrtivörum. • Þjónustulund og reynslu af sölustörfum. • Frumkvæði og getur starfað sjálfstætt. • Enskukunnáttu. • Skipulögð vinnubrögð. • Er jákvæður og getur komið í starfsþjálfun í Reykjavík, lágmark 2-3 vikur, fyrir opnun verslunarinnar. Auk þess óskum við eftir: Starfsmanni til afgreiðslustarfa f hlutastarf e.h., ca. 50%-60%. Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem hefur: • Reynslu af sölustörfum og þjónustulund. • Frumkvæði og getur starfað sjálfstætt. • Áhuga á umhverfis- og velferðarmálum. • Áhuga á snyrtivörum. Umsóknir eru trúnaðarmál og þeim verður öllum svarað. Vinsamleg- ast sendið ítarlegar skriflegar umsóknir, ásamt mynd og meðmæl- um fyrir 23. ágúst nk. til: The Body Shop á íslandi, Laugavegi 51, pósthólf 1742, Rvk.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.