Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.10.1997, Síða 3

Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.10.1997, Síða 3
íDagur-tEínrám Miðvikudagur 1. október 1997 -15 LIFIÐ I LANDINU Tóbakssala er siðlaus og ó verj andi Nei, það eru ekki sígaretturnar sem menn vildu banna sökum krabba- meinshœttu, heldur rauða lakið. Dauðsföll af völdum reyk- inga eru a.m.k. tuttugu sinnum tíðari en af nokkru öðru sem koma má í veg fyrir, að áfengi einu undan- skyldu. „Það er siðlaust og óverjandi að flytja inn og selja tóbak, og enginn á að gera sig sekan um það, hvorki ríki né einstakling- ar. Raunar illskást að hafa þetta hjá ríkinu", sagði Þor- steinn Blöndal, lungnasérfræð- ingur og stjórnarmaður í ÁTVR. Eftir ítekað bann á sölu á MM-kúlum, pistasíuhnetum frá íran og síðast en ekki síst inn- flutningsbann á rauðum fKEA- lökum, sökum krabbameins- valdandi efna, þótti biaðinu ástæða að leita áhts Þorsteins á tóbakssöiu, sem ekki hefur heyrst að neinn haf! fagt til að banna innflutning á. Gildi forvarna Þorsteinn segir löngu vitað um fjölmargar orsakir krabba- meina sem hægt væri að hindra með forvörnum. Reykingar or- saki 19-20% þessara dauðs- falla, alkóhólið sé í öðru sæti með 5-6%, en alit annað valdi hvert um sig minna en 1% svo- kallaðra hindranlegu dauðs- falla. Má því Ijóst vera að reyk- ingar eru a.m.k. 20 sinnum hættulegri en rauð lök - auk þess sem lökin eru einungis hættuleg þeim sem þau nota, öfugt við tóbakið. Ríkið stærsti eiturlyfjasalinn Um 30% Islendinga á aldrinum átján ára til sjötugs reykja dag- fega segir Þorsteinn. Meðan svo er treystu stjórnmáfamenn sér tæpast til að leggja til innflutn- Þorsteinn Blóndal lungnasérfrœðing- ur: Ríkið er stcersti eiturlyfjasalinn af þeim öllum. ingsbann. Væri þetta hlutfall komið niður í 20% færi slíkt kannski að verða póhtískt fram- kvæmanlegt. Ríkið, sem Þorsteinn segir stærsta eiturlyfjasalann af þeim öllum, mætti að hans mati sýna meiri fit í reykingavörnum. Það heyrist t.d. ekki múkk í einum né neinum vegna nýlegrar verðhækkana á sígarettum. Síð- an væri eftir að sjá, í sölutölum ÁTVR, hvort þetta muni hafa einhver áhrif th að draga úr reykingum, eins og meiningin var. Spjótin beinast að tóbaksinnflytjendum „Það sem er nýtt í umræðunni er, að það er í meira og meira mæli verið að kafla tóbaksfram- leiðslufyrirtækin og þá sem dreifa og selja tóbak til ábyrgð- ar, sem mér flnnst ágætis þró- un“, segir Þorsteinn. Hann seg- ist t.d. hafa orðið þess var, m.a. á nýlegri ráðstefnu í Peking, að menn beini spjótum sínum í vaxandi mæfi gegn tóbaksinn- flytjendum og seljendum í stað þess að amast við reykinga- mönnunum, eins og tilhneiging hafi verið th, eins og vandinn væri þeim að kenna. - HEI Lúsin í skólanum! Aðeins nokkrar vik- ur eru liðnarfrá því kennsla hófst í skól- um landsins og hef- ur lús þegar fundist í tveimur grunn- skólum á höfuð- borgarsvœðinu. Einnig hefur orðið vart við hana á Akureyri. Lúsin, lítið og vængjalaust gulgrátt kvikindi, er martröð íjölskyldunnar í dag svo furðulegt sem það kann að virðast. Lúsin eignast börn og buru Margir tengja lúsina við fátækt, óþrifnað og gamla tíma en það er mesti misskilningur. Lús- in unir sér vel í mannshári og lætur vatn og venjulega hár- sápu ekkert á sig fá. Lúsin er 2- 3 millimetrar að stærð, grípur í hárið og heldur sér fastri með klónum. Ilún sýgur blóð úr hár- sverðinum, verpir eggjum og eignast börn og buru. Hún „smitast" hratt og labbar á milli, frá húfu til húfu í skólan- um. Lús á hverju hausti Kristjana Ólafsdóttir, hjúkrun- arfræðingur í Síðuskóla, segir að lús greinist á hverju hausti í grunnskólum og það þyki ekk- ert tiltök umál þó að vissulega verði Lúsin getur lifað í stuttan tíma utan líkamans en hún lifir í hár- sverðinum og sýgur þar blóð. Hún lætur vatn og venjulega hársápu ekkert á sig fá, mikill þrifnaður getur jafnvel haldið niðri einkenn- unum. Hún getur lifað góðu lífi í hárinu ef ekkert er að gert og „smitast" hratt, labbað frá húfu til húfu í skólanum. Ekkert tiltökumál Hárlús hefur komið upp í að minnsta kosti tveimur grunn- skólum á höfuðborgarsvæðinu nú þegar aðeins nokkrar vikur eru liðnar frá því skólinn hófst og einnig hefur orðið vart við hana á Akureyri. Þetta er þó engin sérstök tíðindi því að lús greinist venjulega í skólum á haustin. Strax fóru í gang að- gerðir í skólunum, börnin voru send heim með miða og upplýsingar um hvernig skyldi bregðast við og for- eldrar drógu fram lúsa- kamba til að kemba börn sín - allt er þetta gert til að koma í veg fyrir far- aldur. ina ekki strax og því eru for- eldrar beðnir um að halda börnunum heima í sólarhring," segir hún. Hvað á að gera? Ef lús greinist í íjölskyldunni þarf að draga fram þvottaefni og þvo klæðnað, til dæmis húf- ur, trefla, peysur með háum kraga og rúmföt allra í íjöl- skyldunni svo nokkuðs é nefnt. Einnig er gott að kemba dag- lega hárið, sem lúsin finnst í, og jafnvel að þvo aftur með lúsasjampói eftir viku eða hálf- an mánuð. Ekki er víst að öll nitin drepist við fyrstu með- ferð. Lúsin labbar á milli Kristjana segir að lús berist við snertingu eða þegar krakkar skiptast á fötum í skólanum. „Börnin skiptast á húfum og lána burstana sína eftir íþróttir,“ segir hún. Þá eru snagar barnanna í flestum tilfellum ansi þétt og því auðvell fyrir lúsina að labba á milli. Hún getur nefnilega lifað í smátíma utan líkamans. -GHS stundum vart við gamla for- dóma. Foreldrum og börnum sé haldið vel upplýstum og gefnar séu út leiðbeiningar, til dæmis í fréttabréfum skólanna. Foreldr- ar sóu hvattir til að vera á varð- bergi, skoða hár barna sinna ef þau kvarti undan kláða og láti skólann strax vita ef lús finnist til að hægt sé að grípa til viðeigandi ráðstafana. „Ef lús finnst er ráðlagt að fara í lúsameðferð, þvo hár allra í fjölskyldunni með lúsasjampói og kemba hárið. Kamburinn er th að ná lúsinni en sjampóið drepur nit-

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.