Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.10.1997, Page 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.10.1997, Page 6
18 - Miðvikudagur 1. október 1997 jDagur-©minn LISTALIFIÐ I LANDINU Stórhugur og skáld- legt jrelsi Fiskibátur frá 1958. Sjávarmyndirnar eru tjáningarríkar og nákvæmar. Gunnlaugur Schev- ing arfleiddi Lista- safn íslands að verkum sínum og sýning á þeim verð- ur opnuð nœstkom- andi laugardag í Listasafni íslands. ' Þær fela í sér margt hið fegursta úr íslenskri arf- leifð, stutt lærdómum ^ heimslistarinnar, túlkað af stór- hug og skáldlegu frelsi nýrra tíma. Þannig mtmu þær geym- ast og varpa ljóma sínum yfir mikið svið í íslenskri sögu,“ sagði Björn Th. Björnsson hst- fræðingur í bókinni íslensk myndlist og var þar að fjalla um mikilfenglegar myndir Gunn- laugs Schevings. Gunnlaugur Scheving var einn expressjónistanna í nor- rænni hst og einn ástsælasti myndhstarmaður íslendinga á þessari öld, þótt hann hafi á fimmta áratugnum fengið þá umsögn í blaði, ásamt Þorvaldi Skúlasyni, að vera „í fremstu röð klessumálara hér á landi“. Gunnlaugur fæddist árið 1904 og ólst upp á Austurlandi, en sautján ára fór hann til Reykja- víkur að læra teikningu í einka- skóla Guðmundar Thorsteins- sonar hstamálara (Muggs) og hjá Einari Jónssyni myndhöggv- ara. „Blýanturinn var mitt upp- áhald og mín ástríða - hann var fyrsta verkfærið sem ég þekkti,“ sagði Gunnlaugur. Hann stund- aði nám í teikniskóla Viggos Brandts í Ríkislistasafninu í Kaupmannahöfn og síðar í Kon- unglegu akademíunni, en flutt- ist heim að námi loknu. Björn Th. Björnsson listfræð- , ingur hefur sagt að myndþróun , Gunnlaugs Schevings hafi verið r furðanlega hliðstæð þjóðarsög- r unni á sama tímabili. „Hún hófst með litlum og þröngum myndum kreppuáranna, lá til opinna og athafnamikilla á uppgangsárunum í stríðslok og þar eftir, og loks hinna stór- sniðnu og huglægu verka síð- ustu ára, þegar opinber stór- hýsi eru orðin sjálfsagður vett- vangur myndhsta." samskilnings, og telpan litla með skýluklútinn heldur ævin- lega upp blóminu sínu, líkt og Kristsbarnið hendi sinni á forn- um Maríumyndum," segir Björn Th. Björnsson í bók sinni ís- lensk myndlist. Hann segir einnig: „Myndefni þetta verður samt varla til viðhlítar skilið nema höfð sé í huga sú veröld sem íslenskt alþýðufólk bjó sér til í þrengingum sínum, þjóð- sagnaheimurinn, þar sem sól er uppi öllum nóttum, þar sem gróður bregst ekki né grös sölna." Hið myndræna líf „Ég hef haft áhuga á því að ná einhverju mónúmental, ein- hverju stóru í myndirnar. Srnnir áh'ta þetta kannski galla, en ég get einhvern veginn ekki án þess verið,“ sagði Gunnlaugur eitt sinn. Hann sagði einnig: „Ýmsir munu ef til vill vera þannig gerðir að þeim finnst það vera mikil vöntun, að myndlistin hafi ekki annað að bjóða áhorfendum en hið myndræna líf. Við nánari kynni mun fólk sjá að hið myndræna er ákaflega fjölþætt, svo fjöl- þætt, að maður óskar þess vart, að þessi listgrein hafi annað að bjóða en hið myndræna." kb „Efni þeirra, stærð og skipan orka á menn sem ein heild, þrungin al- vöru og innri spennu undir hljóð- látu yfirborðinu," segir Júlíana Gottskálksdóttir um sjávarmyndir Gunnlaugs endanær neina tilraun til útlistunar. Það er hið dul- arfulla andrúm, stærð mannanna í þessari þröngu veröld bátsins andstætt víðernum hafs og himins, sem eitt fyrir honum vakir. Og í því koma hinar miklu and- stæður litanna til sögu.“ Hin heilaga kýr Gunnlaugur bar virðingu fyrir alþýðutrú og alþýðu- speki og þjóðsagnar- kenndur blær einkenndi gjarnan sveitah'fsmyndir hans, eins og til dæmis Sumarnótt. „Kýrin er þar heilagt dýr, alspök; milh hennar og konunnar Uggur hljóð- ur strengur þúsund ára Sumarnótt frá 1959. Sveitamyndir listmálarans eru hlýlegar og draumkenndar. Einstæðar sjávar- myndir Eitt helsta viðfangsefni Gunnlaugs var lífið til sjávar og sveita og mann- eskjan var þungamiðjan í verkum hans. „Mér mundi aldrei detta í hug að mála mynd af fólki við heyskap í rign- ingu eða þcku. En sUkt veðurfar á vel við í sjávar- myndum. Dumbungur og þoka er veiðilegt veður,“ sagði Gunnlaugur og þetta viðhorf hans endur- speglaðist mætavel í myndum hans þar sem sveita- og landslagsverkin eru ólíkt litskrúðugri en sj ávarmyndirnar. Sjávarmyndir hans eru stórar og byggja á skáflöt- um sem hallað er sitt á hvað. Þessar myndir eru taldar ein- stæðar í íslenskri myndlist og þeim hefur verið líkt við freskur frá endurreisnartímanum. „Efni þeirra, stærð og skipan orka á menn sem ein heild, þrungin al- vöru og innri spennu undir hljóðlátu yfirborðinu," segir Júlíana Gottskálksdóttir. Þegar Gunnlaugur sýndi þessar myndir erlendis, seint á sjötta áratugnum, skrifaði sænskur gagnrýnandi að sór kæmi ekkert í hug til saman- burðar úr evrópskri list. „Með því að minnka fjöllin en hækka sjóndeildarhringinn og láta bát- ana rísa á öldufaldinum urðu Fólk í smiðju, kona með geislabaug. sjómennirnir að hálfgerð- um risum sem báru ægis- hjálm yfir umhverfið. Þetta var með ráðum gert og lýsti vel afstöðu lista- mannsins til þeirra manna sem sóttu sjóinn og hann taldi sannkallaðar hetjur. En hann hóf þá aldrei upp á draumkennt ævin- týraplanið eins og menn og málleysingja í sveita- myndunum," segir Halldór B. Runólfsson listfræðing- ur. Um myndina Fiskibátur segir Björn Th. Björnsson í listasögu sinni: „Scheving gerir hér ekki fremur en t

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.