Dagur - Tíminn - 03.09.1996, Blaðsíða 10
10 -Þriðjudagur 3. september 1996
®agur-®mmm
ÚRSLIT
ENSKA KNATTSPYRNAN • 1. deildin
íslendingaliðin á toppnum
Paul Gasgoigne skoraði eitt þriggja marka Englendinga gegn Moldavíu.
England byrjar vel
Enska landsliðið lék í fyrsta
sinn undir stjórn Glenn
Hoddle á sunnudag þeg-
ar liðið heimsótti Moldavíu.
Englendingar unnu örugglega,
3:0, og héldu heim með þrjú
mikilvæg stig í pokahorninu.
Leikur enska liðsins var þó ekki
eins góður og vonast var til
enda lið Moldavíu ekki mjög
sterkt. Enska liðið átti í vand-
ræðum framan af leik en tvö
mörk á tveimur mínútum frá
Nicky Barmby og Paul Gasco-
igne um miðjan fyrri hálíleik
komu enska liðinu í þægilega
stöðu. Nýi fyrirliðinn, Alan
Shearer, innsiglaði síðan sigur-
inn í síðari hálfleik. Testimitanu
brenndi af vítaspyrnu fyrir
Moldava í lokin.
í 4. riðli gerðirn Austurríki og
Skotland 0:0 jafnteíli, í 7. riðli
sigraði Wales lið San Marino
6:0 með mörkum frá Mark
Hughes (2), Andy Melville, John
Robinson og Dean Saunders. f
riðli okkar íslendinga, 8. riðli,
sigraði írland lið Liechtenstein
á útivelli, 5:0. Niall Quinn (2),
Ian Harte, Keith O Neill og
Andy Townsend skoruðu mörk-
in.
Ekkert var leikið í ensku úr-
valsdeildinni um helgina
vegna landsleikja bresku
liðanna. Liðin í 1. deild voru
hinsvegar í eldlínunni og þar
eru íslendingaliðin Stoke og
Bolton að berjast um toppsætið.
Á laugardag fóru Lárus Orri
Sigurðsson og félagar hans í
Stoke í toppsætið með jafntefli
við Reading, 2:2, á útivelli en á
sunnudag sigraði Bolton lið QPR
2:1 og komst upp fyrir Stoke
með betra markahlutfall. Guðni
Bergsson lék ekki með Bolton
vegna meiðsla.
Stoke hafði sigrað í þremur
fyrstu leikjum liðsins á tímabil-
inu. Trevor Morley kom Read-
ing ylir úr vítaspyrnu á 7. mín-
útu en Mike Sheron jafnaði um
miðjan fyrri hálíleik. Richard
Forsyth kom Stoke yfir á 76.
mínútu en aðeins þremur mín-
útum síðar jafnaði Paul Hosgro-
ve, 2:2. Barnsley, sem var í
toppsætinu, spilaði ekki og Stoke
fór því í toppsætið.
Stoke stoppaði ekki lengi á
toppnum því á sunnudag lék
Paul Gascoigne er enn við
sama heygarðshornið.
Þegar ensku landsliðs-
mennirnir voru á leikvangnum í
Moldavíu á laugardaginn að
fylgjast með U21 árs viðureign
þjóðanna tók Gazza niður um
félaga sinn Paul Ince, fyrir
framan áhorfendur og ljós-
Bolton við QPR og með sigur-
marki á síðustu mínútunni
tryggði Bolton sér toppsætið.
Það var Alan Thompson sem
skoraði með glæsilegu skoti eftir
að hefðbundnum leiktíma lauk
og lokastaðan 2:1.
Þorvaldur Örlygsson og félag-
ar hans í Oldham nældu í fyrsta
stigið sitt með jafntefli gegn Ips-
wich. Paul Rickers skoraði
fyrsta markið fyrir Oldham eftir
aðeins 15 sekúndur og í hönd
fóru 90 mínútum af spennandi
knattspyrnu. Alex Mathie jafn-
aði og Mike Stockwell kom
Ispiwch yfir. Steve Redmond
svaraði fyrir Oldham og Nicky
Banger kom liðinu yfir á 70.
mín. en þeim tókst ekki að
halda út og Mathie jafnaði fyrir
Ipswich áður en yfir lauk.
Önnur úrslit í deildinni voru:
Bradford-Tranmere 1:0
Grimsby-Portsmouth 0:1
Huddersfield-Crystal Palace 1:1
Norwich-Wolves 1:0
Port Vale-Oxford 2:0
Southend-Swindon 1:3
myndara. Gazza hló dátt en
Ince var ekki alveg jafn ánægð-
ur. Ilann var að príla upp í
stúku þegar Gazza kiptti í bux-
ur Ince og ljósmyndarar voru
vel á verði og festu atvikið á
filmu. Ber bossinn á Ince birtist
því á baksíðu flestra bresku
blaðanna á sunnudag.
Prakkarastrik hjá Gazza
i
E
Ualsstúlkum tókstekkiað
stöðva Kópavogshraðlestina
VandaSig.
^ ekkí áfram
Eg held að það sé tímabært
að hætta. Ég er búinn að
þjálfa meistaraflokkinn í
þrjú ár. Ég veit ekki hvað tekur
við, en vil ljúka þessu tímabili
áður en ég fer að hugsa um
það,“ sagði Vanda Sigurgeirs-
dóttir.
réð algjörlega miðjusvæðinu
eftir leikhlé og fékk nokkur gal-
opin færi. Valsstúlkur björguðu
þrívegis á línu, en Erla var sem
fyrr sú eina sem fann leiðina í
markið. Mörkin komu á 60. og
75. mínútu.
Margrét Ólafsdóttir, sem lék
sinn síðasta leik fyrir Breiða-
blik, í bili að minnsta kosti, og
Inga Dóra Magnúsdóttir voru
drottningar á miðssvæðinu,
báðar góðar í návígum og með
gott auga fyrir samspili. Það
verður samt ekki á móti því
mælt að þessi leikur flokkast í
sögubækurnar sem leikur Erlu
Hendriksdóttir, því það var fyrst
og fremst hennar framlag sem
réði úrslitum. Vörnin var sterk,
en það var helst að hún opnað-
ist hægra megin, þar sem varn-
armenn Blika áttu erfitt með að
hemja Erlu Sigurgeirsdóttur.
Erla var einna best Vals-
stúlkna, hún var með góða yfir-
ferð og skapaði hættu á vinstri
kantinum. Ragna Lóa Stefáns-
dóttir var sterk og Helga Rut
Jónsdóttir náði að halda Ást-
hildi Helgadóttur, hinum sterka
miðjuleikmanni Blika niðri. -fe
Breiðablik.
Mynd: BG
Þrótturá toppi 2. deildar
Heiðar Sigurjónsson og félagar í Þrótti héldu sigurgöngu sinni áfram
um helgina. Liðið lagði KA að velli 0:2 á Akureyri og heldur því topp-
sæti deildarinnar, að minnsta kosti til kvölds, því kl. 19 eigast við
Fram og Skallagrímur á aðalleikvanginum í Laugardal. Mynd: Jón Hrói
1. deild karla:
Sunnudagur
ÍBV-Breiðablik 4:2
Steingrímur Jóhannesson 2, Tryggvi
Guðmundsson, sjálfsmark - Arnar
Grétarsson, Ivar Sigurjónsson.
Úrslit leikja í 2. deild karla:
Föstudagskvöld
KA-Próttur 0:2
- Árni Pálsson, Heiðar Sigurjónsson.
Fram-Völsungur 6:0
Ágúst Ólafsson 2, Ásgeir Halldórsson,
Porbjörn A. Sveinsson, Hólmsteinn
Jónasson, Sævar Guðjónsson.
Skallagrímur-FH 2:1
Hilmar Hákonarson, Sindri i>. Grét-
arsson - Davíð Ólafsson.
ÍR-Leiknir 3:2
Wil! Davies, Ian Ashby, Guðjón Þor-
varðarson - Hreiðar Ómarsson, Ró-
bert Arnþórsson.
Laugardagur
Vikingur-Þór 3:2
Þrándur Sigurðsson 3 - Davíð Garð-
arsson, Hreinn Hringsson.
Staðan er nú þessi:
Þróttur R. 15 9 5
Frarn 14 9 4
Skallagrímur 14 9 3
15 6 3
15 6 3
15 6 3
15 5 1
15 4 3
15 4 3
33:17 32
46:14 31
27:10 30
24:20 21
30:28 21
22:26 21
17:34 16
19:29 15
20:32 15
15 12 12 17:45 5
FII
KA
Þór
ÍR
Víkingur R.
Völsungur
Leiknir R.
3. deild karla:
Föstudagskvöld
Reynir-Ægir
Jónas Gestur Jónasson.
Grótta-Víðir 1:6
Ragnar Egilsson - Hlynur Jóhannes-
son 3, Atli Vilhelmsson 2, Ólafur í.
Jónsson.
Laugardagur
Þróttur N-Dalvík 2:2
Marteinn Hilmarsson 2 - Jón Þórir
Jónsson, Grétar Steindórsson.
Fjölnir-Höttur 1:1
Ólafur Sigurjónsson - Sigurður Valur
Árnason
Staðan er nú þessi:
Víðir
Reynir S.
Dalvík
Þróttur N.
HK
Selfoss
Fjölnir
Höttur
Ægir
Grótta
4. deild karla:
Bolungarvík-KVA
Léttir-Sindri
Sfðari Ieikir liðanna
unum fara fram í kvöld, á heima
völlum KVA og Létlis.
16 10 2 4 40:25 32
16 9 4 3 41:24 31
4 3 42:30 31
5 4 35:26 26
2 6 37:33 26
6 5 37:42 21
3 9 26:37 15
5 8 24:41 14
4 9 28:32 13
5 9 27:47 11
0:3
0:2
4-liða úrslit-
16
16
16
16
16
16
16
16
Breiðablik tryggði sér Bik-
armeistaratitilinn í
kvennaflokki í fimmta
sinn á laugardaginn með sann-
færandi sigri á Val, 3:0 og eru
því tvöfaldir meistarar í sumar,
- í deild og bikar. Erla Hend-
riksdóttir skoraði öll þrjú mörk-
in, sem voru óneitanlega keim-
lík. Hún fékk knöttinn vinstra
megin í víteignum og skaut
vinstri fótarskotum í íjærhornið
niðri. Það voru reyndar einu
færi hennar í leiknum. Leikur-
inn var þokkalega vel leikinn,
miðað við bágbornar aðstæður
þar sem hvasst var rigning öðru
hvoru.
Fyrsta markið kom á 18.
mínútu þegar vörn Vals hafði
opnaðist illa. Margrét Ólafsdótt-
ir renndi knettinum innfyrir
vörn Vals, á Erlu sem skoraði
með föstu skoti. Valsliðið fékk
sín bestu tækifæri í fyrri hálf-
leiknum. Skot Rögnu Lóu Stef-
ánsdóttir fór yfir frá vítateig og
Jón Sigurjónsson, hefði átt að
dæma vítaspyrnu, þegar Krist-
björg Ingadóttir var brugðið
innan teigs af Sigrúnu Óttars-
dóttir. En Blikarnir sluppu með
skrekkinn og miðað við gang
fyrri hálfleiksins hefði ekki ver-
ið annað sanngjarnt, en að
Blikarnir hefðu forystuna því
liðið var heldur sterkari aðilinn.
Breiðablik, sem lék undan
vindinum í síðari hálfleiknum,
KNATTSPYRNA • Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins