Dagur - Tíminn - 05.11.1996, Blaðsíða 10
22 - Þriðjudagur 5. nóvember 1996
íDitgur-Œtmuut
R A E> D I R FOIKS
Bréfleiðis...
Heimilisfangið er: Dagur-Timinn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602Akureyri
Er hin íslenska þjóðkirkja
kristinn eða heiðinn
trúarsöfnuður?
Nils
Gíslason
skrifar
Orðið heiðni er ekki á
nokkurn hátt neikvætt
eða niðrandi í þessu
sambandi, heldur lýsing á trú-
arlegri stöðu, það að vera heið-
inn er að vera ekki kristinn.
Það að vera kristinn trúar-
söfnuður byggist á því að gera
þann trúarboðskap, kenningu
og safnaðarform sem Kristur
Jesús setur fram í Biblíunni,
sem grundvöll fyrir öllu því sem
boðað er og ástundað.
Þegar kenningar og starf-
semi þjóðkirkjunnar er skoðuð í
þessu tilliti verður sú spurning
áleitin hvort hún fari eftir þeim
kenningum og boðskap sem
Jesús kennir í Nýja Testament-
inu. Mjög sjaldgæft er að tals-
menn hennar, biskup eða prest-
ar, vitni í Biblíuna þegar svara
þarf spurningum, eða taka af-
stöðu í einhverjum málum. Ég
vil þó upplýsa, að í Biblíunni
má finna svör og leiðbeiningar í
flestum ef ekki öllum mannleg-
um samskiptum, enda er hún
gefln okkur af höfundi lífsins, til
leiðsagnar.
Þar sem ég veit að meðlimir
þjókirkjunnar standa í þeirri
meiningu að þeir séu meðlimir í
Kristinni kirkju, fer ég hér með
fram á að þjóðkirkjan lýsi því
yfir hver kenning hennar og
staða er. Það má ekki vera svo
að safnaðarmeðlimir viti ekki
nákvæmlega hvaða trúarboð-
skap og kenningu sú kirkja hef-
ur sem þeir voru skírðir til
meðan þeir voru enn ómálga
börn og gátu ekkert tekið per-
sónulega afstöðu til málsins.
Þau atriði sem fram þurfa að
koma eru til dæmis eftirfarandi:
1. Á einum stað segir: „Því
að baráttan sem vér eigum í er
ekki við menn af holdi og blóði,
heldur við tignirnar og völdin,
við heimsdrottna þessa myrk-
urs, við andaverur vonskunnar
í himingeimnum." Hver er
kenning þjóðkirkjunnar varð-
andi illa anda?
2. Kristin kirkja (söfnuður)
samanstendur af þeim sem trúa
á boðskap og kenningu Jesú
Krists, og breyta eftir þeim boð-
skap og kenningum. Hvernig
getur þjóðkirkjan látið sér
lynda að í söfnuði hannar séu
meðlimir sem dýrka satan,
stunda alskonar kukl, kyn-
greina Guð sem konu og yfir-
lýsa kynvillu sem eðlilegt sam-
búðarform.
3. í tilefni af umræðu um
málefni kynvilltra sem hæstvirt
Alþingi hefur nýlega fjallað um,
er nauðsynlegt að þjóðkirkjan
upplýsi þjóðina um það hvernig
Bibh'an lýsir þetta athæfi sem
synd. Þeir sem finna hjá sér
þessar annarlegu hvatir eiga
hinsvegar rétt á að þjóðfélagið
bjóði þeim meðferð til að losna
frá þessari ónáttúru. Ég hef
ekki heyrt minnst á þá lausn
mála og kalla hér með eftir
henni.
Þjóðkirkja! Ef þetta lýsir van-
þekkingu minni á Kristinni trú
og boðskap, þá eru örugglega
yfir hundrað þúsund mans hér
á landi sem vita jafn fítið og ég.
Þetta ætti því að vera kærkomið
tilefni til að auka þekkingu
safnaðrmeðlima til að enginn
þurfi að vera í vafa um stöðu
sína gagnvart Guði. Hvort hann
sé staddur á mjóa eða breiða
veginum, hvort hann stefni til
glötunar eða eilífs lífs. Hvaða
hluta af boðskap Jesú þjóð-
kirkjan telur vera í gildi og
hvaða orð hans eru fallin úr
gildi.
Það sem öllu máli skiptir er
að þjóðin leitist eftir því að gera
Guðs vilja. Það er ógerlegt
nema að vita hver sá vilji er.
Jesús Kristur birtir okkur þenn-
an vilja og segir frá því í Nýja
Testamentinu. Þegar þú ferð
héðan og stendur frami fyrir
skapara þínum spyr hann ekki í
hvaða trúfélag þú varst skráður
hér á jörðunni. Leitaðu sjálfur
uppi þær spurningar sem þú
munt þurfa að svara og gakktu
úr skugga að þú hafir réttu
Guð blessi þig.
A lveg er það óþofandi þegar bakarar
munda glassúrtúpuna meðan snúðarnir
-L JL og vínarbrauðin eru enn volg. Glassúrinn
' bráðnar þá eilítið ofan í sykurbrauðsmassann
og verður nánast ósýnilegur. Að vísu er meinhornið alls ekki
mótfallið dísætu sykurósa yfirborði snúða. EN það er ekki
nóg með að sætabrauðin skorti þannig rúsínuna í pylsuend-
ann, svona sjónrænt séð, heldur eru þeir farnir að skera
glassúrinn svo við nögl að maður verður hreinlega að fara
að snúa sér að einhverju öðru til að seðja sykurþörfina.
I rauðbyltingin er gengin yfir. íslenskir bak-
arar baka frábær brauð og við vitum það.
7^ U En þegar meinhornið mismunar sér á
sunnudagsmorgnum yfir Hringbrautina til að ná
sér í gúmmulaði í mallann verður hann alltaf jafn súr yfir
því að bakarinn skuli ekki hafa farið á námskeið í vikunni,
eða í námsferð til útlanda, eða bara lesið Bakery Today og
The Pastry Telegraph. Hvernig stendur á því að stétt sem
stóð sig svo undravel í baráttunni við heilkornin, hýðis-
grjónin og h'fræna gerið er blankó þegar kemur að nýjung-
um í bakkelsi...
vo líður meinhorni bölvanlega fyrir hönd
^^Blönduósbúa, ef rétt er sem fleygt hefur
verið, að bakarinn hafi tapað sinni þjón-
ustulund og sé hættur að senda volg og lunga-
mjúk brauð í Vísi og Kaupfélagið á laugardagsmorgnum.
Eftirlit á eftirlitið
Eftirlitsiðnaður landsmanna
er að verða sá stærsti - og
líka sá langblómlegasti. Áð-
ur en langt um líður verða
eftirlitsmenn fjölmennasta
stéttin í símaskránni. Eftirlit
verður án efa háskólafag
framtíðarinnar og eftirlits-
fræðingar eftirsóttir til
starfa. Við fslendingar erum
eftirlitsglöð þjóð, og hjá
okkur kemur eftirlit á eftir-
lit ofan. Kannski er þörf á
eftirliti með eftirfitinu?
Mér dettur þetta svona í
hug vegna nýjasta eftirlits-
ins, eftirliti með húseignum
manna. Eitt fallegt og frið-
sælt kvöldið fyrir skemmstu
hringdi síminn. í símanum
var nágranni, og honum lá
mikið á hjarta:
Eignaskipta
hvað..?
„Nú verðum við að ganga
frá eignaskiptayfirlýsing-
unni...“
Ha, eignaskipta..
hvað..?
„Nú, eignaskiptayfirlýs-
ingunni maður. Heíúr
blaðamaðurinn ekki heyrt
um hana? Við erum búnir
að fá tilboð fyrir alla götuna
frá leyfishafa, lærðum eftir-
litsmanni.“
Nei, blaðamaðurinn hafði
ekki heyrt þetta langa orð.
Ekki heldur nágrannarnir
sem hann talaði við í kjöl-
farið. Allir komu af fjöllum,
en sáu þúsundkallana
streyma úr vösum sínum.
„Góð aðgerð“, en
til hvers?
f ljós kom að hin víðáttu-
fræga Húsnæðisstofnun rík-
isins (lögfræðideild) hafði
hálfvegis láðst að kynna
eignaskiptayfirlýsingamálið.
Einhvers staðar fannst
þurrlega orðuð, lítt skiljan-
leg „kynning" á blaði frá
þessari stofnun.
Þessar yfirlýsingar á að
gera um allt land þar sem
fólk býr í því sem Kerfið
kallar því hallærislega nafni
„fjöleignarhús". Fundir hafa
verið haldnir í hverfinu
mínu æ ofan í æ um eigna-
skipayfirlýsingar. Enginn
fær botn í málið. Hver er til-
gangurinn? spyrja menn.
Én menn eiga ekki að spyrja
Kerfið, menn eiga að hlýða
boði ráðherra.
Hjá sýslumanninum,
fasteignamatinu, bygginga-
fulltrúa og fleiri aðilum er
sagt að þessi lítt kunna að-
gerð hins opinbera sé ágæt,
komi í veg fyrir deilur um
kjallaraskonsur í fjöleignar-
húsum. Ha!?
Besta skýringin til þessa,
og birt án ábyrgðar, er frá
Guðmundi G. Þórarinssyni,
fyrrum alþingismanni. Hann
er sagður hafa orðað það
svona:
„Við Framsóknarmenn
lofuðum 12 þúsund nýjum
störfum fyrir aldamót. Þetta
er liður í því að skapa ný
störf.“ Gamansamur maður,
Guðmundur!
Umsjón
Jón Birgir Pétursson