Dagur - Tíminn - 23.11.1996, Blaðsíða 4
4 - Laugardagur 23. nóvember 1996
4Dagur-©útttrax
Tilboð
á innimálningu
gljástig 10
Verb:
F R É T T I R
Málblóm á alþingi
1 lítri 499
4 lítrar 1996
10 lítrar 4990
Þúsundir lita í bobi
KAUPLAND
KAU RAM GI
Sími 462 3565 ■ Fax 461 1829
Au Pair
i Noregi
Au Pair óskast frá jan. ’97
til ísl. fjölskyldu meö
4 börn, 6 mán.-8. ára.
Þarf að vera barngóö,
reyklaus og hafa bflpróf.
Nánari upplýsingar fást í
síma 551 2068 eöa
0047 32847084.
Ef þú hefur áhuga,
skrifaðu okkur þá bréf
fyrir 5. des. nk. til:
Ragnhildar Magnúsdóttur,
Bergfladtvegen 86, 3400
Lier, Norge.
Netfang:
ragnhildur@internet.no
f
KVIKMYNDA-
KLÚBBUR
AKUREYRAR
sýnir í Borgarbíói
sunnudagínn
24. nóv. kl. 17.00
JESÚSALEM
eftir Bille August
Allir velkomnír
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 25. nóvember 1996
kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Jakob Björnsson og Valgerður
Hrólfsdóttir til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2.
hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem að-
stæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Forseti Alþingis
telur koma til
greina að gefa út á
bók ýmis skondin
og skemmtileg
ummæli, sem
fallið hafa í þing-
sölum og haldið
hefur verið til haga
í gegnum árin.
Allt sem þingmenn segja í
ræðustól á Alþingi er
tekið upp og síðar birt í
þingtíðindum, þó ekki alltaf
orðrétt. Þingmenn lesa yfir
ræður sínar, áður en þær eru
settar á prent og geta þá leið-
rétt mismæli og ambögur, sem
þeim hafa orðið á í hita leiks-
ins. Samkvæmt heimildum
Dags-Tímans hefur verið hald-
ið til haga ýmsum skondnum
ummælum, sem fallið hafa í
þingsölum og nær það safn
nokkur ár aftur í tímann. Blað-
ið hefur jafnframt heimildir fyr-
ir því að Ólafur G. Einarsson,
forseti alþingis hafi í sumar
skemmt fyrrverandi alþingis-
mönnum með því að lesa fyrir
þá úr þessu safni. „Já, ég get
ekki neitað því að þetta er til.
Það hefur verið haldið saman
ýmsum smellnum setningum,
sem reyndar kunna sumar
hverjar að hafa farið í þingtíð-
indin, en aðrar ekki,“ sagði Ól-
afur þegar blaðið bar þetta
undir hann. Árið 1992 gaf
danska þingið út litla bók með
safni af ýmsum óborganlegum
ummælum danskra þingmanna
og seldist hún geysilega vel.
Bókin heitir „En Kabe af
sproglig elastik,“ var seld á 50
kr. danskar og rann ágóðinn til
bágstaddra í Sómalíu. Ólafur
var spurður hvort hann hefði
hugleitt að feta í fótspor starfs-
bræðra sinna í Danmörku. „Ja,
ég hef aðeins velt því fyrir mér.
Danir eru svo léttlyndir og hafa
góðan húmor. Ég veit ekki hvort
við þolum þetta eins og þeir.
En ég teldi það vel koma til
greina, að við gerðum svolítið
grín að sjálfum okkur. En það
yrði þá án þess að nokkur nöfn
væru nefnd, enda koma þau
ekki fram í þessu. Ég veit ekki
hver hefur sagt hvað og reyni
ekki að forvitnast um það,“ seg-
ir forseti Alþingis. Honum þyk-
ir líklegt að bók af þessu tagi,
gæti orðið jafnvinsæl hér á
landi og í Danmörku. „ Já, ætli
það ekki. Ég gæti vel trúað því
að fólki þætti hvalreki að fá
Mynd: Pjetur
svona og geta gert svolítið grín
að okkur.“
Málblóm þingmanna
Dagur-Tíminn komst yfir nokk-
ur málblóm þingmanna og vís-
ast myndu margir skemmta sér
betur yfir slíkri útgáfu fyrir jól-
in, en mörgu öðru sem þingið
sendir frá sér. „Mér dettur í hug
Vatnsdalurinn, þegar ég sé
háttvirtan þingmann Pál Pét-
ursson, sem er ákaflega fögur
sveit," var eitt sinn sagt og skal
ekki á móti mælt, að núverandi
félagsmálaráðherra sé fögur
sveit, að minnsta kosti heyra
sveitastjórnarmál undir hann.
Þingkona ein komst að því að
það er ekki hægt að vera alls-
staðar og sagði: „Ég var ekki
viðstödd vegna fjarveru. “ Og
betur að allir væru jafn meðvit-
aður og þingmaðurinn sem
sagði: „Mér er það Ijóst að ég
heflokið máli mínu. “
Þingmenn reyna eins og
aðrir að vera stuttorðir og
gagnorðir en tekst misvel upp,
eins og sjá má á eftirfarandi
tilvitnun: „Ég man ekki ná-
kvœmlega hvernig ég orðaði
það, en ef mig misminnir ekki,
þá minnir mig að það hafi verið
orðað af minni hálfu á þann
veg ....“ Og ekki er heldur gott
að átta sig á hvað hann átti við
þingmaður, sem sagði: „Nú er
það svo með mig að það er álið-
ið kvölds." Það var líka orðið
áliðið, þegar einum þingmann-
inum varð fótaskortur á ís-
lensku orðtaki og sagði í
hneykslan sinni: „Þá tók nú
tappann úr. “
Það er mjög mikilvægt að
hugtök séu skýr í lagatexta og
einn þingmaður skellti þessari
skilgreiningu fram: „Krókabát-
ar eru skip sem eru fœranleg. “
Annar hélt sig við landbúnað-
inn og sagði: „Svo ég tali nú
bara íslensku eins og hún kem-
ur fyrir af kúnni. “ Eftirfarandi
tvö gullkorn úr landbúnað-
arumræðunni eru eflaust mörg-
um enn í fersku minni, enda
ekki langt síðan þau voru sögð:
„Með samþykkt þessa frum-
varps er eytt þeirri óvissu, sem
er um innflutning landbúnaðar-
ráðherra." „Það er búið að
gera samning um slátrun 30
þúsund fjár og hefur hún þegar
farið fram, með fyrirvara um
samþykkt alþingis." í umræð-
um um stóriðju og virkjanir var
þessi speki flutt: „Hér rennur
rafmagnið ónotað til sjávar“,
og er þarna vísast komin skýr-
ingin á því að sumar ár eru
kallaðar straumfljót. -vj
Ástkær bróðir minn og fósturfaðir okkar,
ENGILBERT GUÐMUNDSSON
frá Hallsstöðum,
sem lést 15. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 26. nóvember kl. 15.
Ólafía Guðmundsdóttir,
Reynir Snædal Magnússon, Eygló Ásmundsdóttir,
Gylfi Guðjónsson, Elva Guðmundsdóttir,
Rafn Vigfússon, Karen Gestsdóttir.
sem lést 18. nóvember, verður gerð frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 26. nóvember kl. 13.30.
Reynir Jónsson, Rósa Andersen,
Sigurður Heiðar Jónsson,
Aðalbjörg Jónsdóttir, Tryggvi Pálsson,
og fjölskyldur.
Kaupmenn athugíð!
Alla fimmtudaga fram að jólum birtir
Dagur-Tíminn sérstakan blaðauka sem
helgaður verður verslun í heimabyggð.
Athugið sérstakt tilboð og hagkvæma
þjónustu okkar.
Nær þín auglýsing upp á eldhúsborðið
eða lendir hún í hrúgunni með
ruslpóstinum?
Dagur-Tíminn styður verslun í
heimabyggð.
Sítni auglýsingadeildar
á Akureyri er 460 6100