Dagur - Tíminn - 05.12.1996, Síða 6
18 - Fimmtudagur 5. desember 1996
|Dagur-®mTOm
RADDIR FÓLKSINS
eiðis
Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri
Kæru sambúendur í íslensku samfélagi!
Eg er 24 ára og á 2 börn sem
eru 3 og 4 ára. Ástæðan fyr-
ir þvx að mér dettur í hug að
ávarpa ykkur er: Mér er farið
að blöskra „hræsnin" sem Utar
okkar þjóðfélag.
Við þykjumst vera svo mikið
velmegunarþjóðfélag og stönd-
um sko ekki öðrum löndum á
sporði. Mörgum tugum ef ekki
hundruðum milljóna er eytt á
ári hverju í að takast á við
vandamál af ýmsum toga, sem
út af fyrir sig er gott mál. En ég
tel að skynsamlegra væri að
taka á „rótunum". Sem sagt, ég
trúi því að gott þjóðfélag og
góður efnahagur byggist á fjöl-
skyldueiningunni, að hún sé
hornsteinn samfélagsins.
Hvepnig er hægt að ætlast til
að reisa glæsilegan „skýjakljúf'
ef grunninum er kippt undan
honum? Hann hlýtur að hrynja.
Mikið af vandamálunum sem
við vöðum í er hægt að rekja
beint til þess að fjölskyldan er
I !
llíOí! n r SJ J»1 FíllftiÍTÍRll
1 ~ B b s % 71 í JUui wFiÍ
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
Undir berum himni
eftir Steven Tesich
Frumsýning
á „Renniverkstæðinu"
(Strandgötu 49)
sunnudaginn 29. des. kl. 20.30.
2. sýning mán. 30. des. kl. 20.30.
3. sýning fös. 3. jan. kl. 20.30.
4. sýning lau. 4. jan. kl. 20.30.
5. sýning sun. 5. jan. kl. 20.30.
Athugið takmarkaðan
sýningarfjölda.
Leikhúsunnendur athugið! Leikfélag
Akureyrar opnar nýtt leiksvið á 80 ára
afmælisári sínu. I tilefni af þvi verður
þeim gestum sem koma á einhverja af
fyrstu fimm sýningunum boðið að fá
nöfn sín rituð á sérstaka árnaðaróska-
skrá í leikskránni. Til þess þurfa leik-
húsunnendur að tryggja sér miða fyrir
15. desember. Miðasalan er hafin.
Tryggið ykkur miða.
Dýrin í Hálsaskógi
eftir Thorbjorn Egner
Sýningar:
Laugard. 7. des. kl. 14.
Sunnud. 8. des. kl. 14.
Sunnud. 15. des. kl. 14.
Ath! Síðustu sýningar.
Miðasalan er opin alla virka daga
nema mánud. kl. 13.00-17.00
og fram að sýningu sýningardaga.
Símsvari allan sólarhringinn.
Simi í miðasölu: 462 1400.
S99SSS9SSSSSS999S3SSS
Í3agur-®tnmm
- besti tími dagsins!
ekki sem slík, þ.e. henni er ekki
leyft að starfa sem skyldi. Hvar
á nýja kynslóðin að læra eigin-
leika eins og samkennd og
hlýju, rökrétta hugsun? Þjóðfé-
lagið er svo aldursskipt í dag að
börn vita varla hvað gamalt
fólk er. Og þorri þeirra elst upp
á stofnunum 9 tíma á dag, ég
fæ að hitta mín í 3 klst. á dag,
meðan þau vaka.
Ég vil leyfa mér að halda því
fram að allavega íjórði hver fs-
lendingur sé með skuld upp á
500.000 kr. eða meira á bakinu
og mikill meirihluti þess fólks
tilheyrir hinum almenna verka-
manni. Mér persónulega finnst
verkamenn fá þau skilaboð frá
þjóðfélaginu að þeir séu bara
„vinnudýr" og að það nægi að
þeir rétt skrimti. Nú, ef þeir
hrökkva upp af þá er bara nýtt
vinnudýr tekið inn.
Sumum þeirra er það iífs-
spursmál að skattleysismörkin
verði hækkuð upp í 80.000 kr. á
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Stóra sviðið kl. 20
. ÞREK OG TÁR
eftir Olaf Hauk Simonarson
í kvöld, fimmtud. 5. des. Uppselt.
Siðasta sýning fyrir jól
KENNARAR ÓSKAST
eftir Ólaf Hauk Símonarson
4. sýn. á morgun, föstud. 6. des.
Nokkur sæti laus.
5. sýn. sunnud. 8. des. Nokkur sæti laus.
Síðustu sýningar fyrir jól.
NANNA SYSTiR
eftir Einar Kárason og
Kjartan Ragnarsson.
Laugard. 7. des. Nokkur sæti laus.
Siðasta sýning fyrir jól.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjorn Egner
Aukasýning sunnud. 8. des. kl. 14.
Allra síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið kl. 20.30
LEITT AÐ HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Á morgun, föstud. 6. des.
Sunnud. 8. des.
Síðustu sýningar fyrir jól.
Athygll skal vakin á að sýningin er ekkl við
hæfi barna. Ekk! er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning er hafin.
Litla sviðið kl. 20.30
í HVÍTþ MYRKRI
eftir Karl Agúst Úlfsson
(kvöld, fimmtud. 5. des.
Laugard. 7. des.
Siðustu sýningar fyrir jól.
Athuglð að ekki er hægt að hleypa gestum
inn í salinn eftir að sýning er hafin.
★ ★ ★
GJAFAKORT í
LEIKHÚS
- SÍGILD OG
SKEMMTILEG GJÖF
★ ★ ★
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.
13-18, miðvikudaga til sunnudaga kl. 13-20 og
til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tima. Einnig
er tekið á móti símapöntunum frá kl. 10 virka
daga. Sími 551 1200.
mánuði, að frídögum vegna
veikinda barna sé fjölgað. 7
dagar á ári, alveg sama hvort
börnin eru eitt eða tíu, er til há-
borinnar skammar. Launin
verða líka að vera í samræmi
við hvað það kostar að lifa. Eins
fyndist mér réttlætanlegt að
einstæðir foreldrar fái allavega
helming af þeim dögum sem
maki annars fengi. Ég tel það
sjálfsögð réttindi allra að menn
þurfi ekki að hafa áhyggjur af
því hvort börnin þeirra fái mat
á morgun eður ei. Því miður er
raunin sú að allt of margir eru í
þeirri stöðu að þurfa einmitt að
velta þessu fyrir sér. Mitt í
þessu „velmegunarþjóðfélagi"
fyrirfinnst fátækt af þessu tagi
sem ekki er hægt að loka aug-
unum fyrir lengur.
Hvernig stendur á slíkri
skuldabyrði að börnin verða að
mæta afgangi? Jú, í mörgum
tilvikum er það vegna þess að
fólk er að reyna að veita fjöl-
skyldu sinni öryggi, kaupa þak
yfir höfuðið. Ég persónulega
ætlaði að kaupa íbúð, þegar ég
gekk með fyrra barnið mitt, í
félagskerfinu, kerfi fyrir fólk
sem ekki á mikla peninga. Ég
fór inn í kerfið með 500.000 kr.
eign og var langtum ofmetin,
svo ég kom út úr kerfinu í bull-
andi skuld, sem hélt svo áfram
að veíja upp á sig. í dag er ég
alltof tekjulág til að geta keypt
á þeim kjörum að borga 10%
út, en of tekjuhá til að geta
fengið 100% lán. Þannig sit ég
uppi með að verða að leigja,
sem þýðir að til að eiga mögu-
leika á að eignast húsnæði verð
ég að vinna „þann stóra“ í lottó.
Hversu margir haldið þið að
eigi þann draum?
Að ekki sé nú minnst á óör-
yggið sem fylgir því að treysta á
leigumarkaðinn um fast hús-
næði. Ég er heppin að þurfa
einungis að borga 23.000 kr. á
mánuði fyrir tveggja herbergja
íbúð sem ég er í, plús leikskól-
ann, lánið mitt, alla almenna
reikninga, fæði og klæði á 4
manna fjölskyldu. Einhvern
veginn nær þetta oftast að
reddast, það eru allavega
margir sem hafa það verra en
ég, og það finnst mér grátlegt.
Það er ekki bara verið að dæma
okkur til að vera föst í neðstu
þrepum samfélagsins, heidur
líka börnin okkar.
Mér finnst þetta þjóðfélag
vera farið að líkjast full mikið
„ævintýrunum" sem maður les
fyrir börnin og þau hafa gaman
af en eru enn ekki farin að sjá
samlíkinguna. Á hæð einni
stendur glæsileg höll og stór-
fengleg borg í kringum hana og
þar búa hinir hátt settu. Og svo
fyrir utan „borgarmúrana“ lifir
alþýðan við örbirgð og skort, og
mænir vonaraugum til hallar-
innar. Ekki vil ég ganga svo
langt að ætlast til að allir fái að
búa í „höllinni" en allavega inn-
an „borgarmúranna". Minn
draumur er að börnin mín og
annarra fái að lifa í samfélagi
sem býður börnin þeirra vel-
komin. Samfélagi sem hlúir að
fjölskyldunni, samfélagi sem
samhugur og hjálpsemi þekkist
í, samfélagi sem metur þau og
veitir þeim tækifæri til að lifa
sómasamlegu lífi, að þau eigi
kost á því að vera meira en
„vinnudýr" sem enginn kippir
sér upp við, hvort sem það lifir
eða deyr, að þau geti stolt sagt:
Ég tilheyri verkamannastétt og
get séð fyrir fjölskyldu minni.
Því vil ég skora á alþýðuna
að hætta að mæna vonaraugum
til „hallarinnar“, standa upp og
láta í sér heyra, við erum til, við
skiptum máli, við viljum viður-
kenningu fyrir það sem við ger-
um. Kristrún Jakobsdóttir.
Kuba
heillar
Undirtektir íslendinga við
ferðatilboði Samvinnu-
ferða-Landsýnar til Kúbu á
dögunum voru mjög miklar
og heimsóttu alls um 1000
manns eyjuna í tveimur
ferðum. Flogið var með
Boeing-747 þotu flugfé-
lagsins Atlanta, en félagið
hefúr yfir að ráða mun
meira af sætaframboði í
sínum flugvélakosti en
sjálfar Flugleiðir.
Af viðbrögðum ferða-
langa að dæma heillaði
Kúba marga mörlanda upp
úr skónum og sérstaklega
þá sem reyndu að upplifa
þjóðlíf eyjarinnar á for-
sendum heimamanna. Hin-
ir sem horfðu á þjóðlífið út
frá gildismati hins vest-
ræna þjóðfélags urðu hins-
vegar fyrir einhverjum
vonbrigðum vegna þess að
á Kúbu er þjóðlífið með allt
öðrum hætti en íbúar Vest-
urlanda eiga að venjast.
Enda ekki nema von í landi
sem er staðsett nokkru
sunnar en Floridaskaginn,
í viðskiptaherkví Banda-
ríkjanna og hefur lotið ein-
ræðisstjórn Kastrós svo
lengi sem næst, næst elstu
menn muna.
Hvað sem því líður ein-
kennist mannlífið af mikilli
lífsgleði, matur virtist vera
nægur, ólæsi hefur verið
útrýmt og heilbrigðisþjón-
usta á háu stigi. í þeim efn-
um er vert að benda á að
tannlæknaþjónusta er
ókeypis, öndvert við
nægtasamfélög Vestur-
landa. Drykkjarvatnið þótti
hinsvegar ódrekkandi
vegna klórblöndunar. Aftur
á móti fór það ekki framhjá
upplýstum landanum að
eyjaskeggjar eiga í miklum
efnahagsþrengingum
vegna viðskiptabanns
Bandaríkjanna og falls
Sovétríkjanna.
Sámi
ögrað
Kúba kom því mörgum í
opna skjöldu og þá sér-
staklega þeim sem aldrei
hafa véfengt bandarískar
og aðrar vestrænar fréttir
af þessu eylandi. Enda var
það svo að obbinn af ís-
lensku ferðalöngunum
vildu ólmir og uppvægir fá
kúbanska stimpla í vega-
bréfm sín þótt það kunni
að valda þeim erfiðleikum
síðar meir þegar þeir
heimsækja Bandaríkin. En
samkvæmt nýsamþykktum
lögum þar vestra er hægt
að refsa þeim sem ferðast
til Kúbu eða eiga viðskipti
við landið á einn eða ann-
an máta.
Umsjón: Guðmundur R.
Heiðarsson
f-
&
Þegar meinhornsritari fór í sjoppu um daginn
og keypti sér súkkulaði og skilaði því vegna elli-
bragðs sagði Leiðarljóssísk afgreiðslustúlkan:
„Ertu bara ekki með vont bragð upp í þér????“
Ilalló hver elur af sér slík börn, kurteisi og
kúnnafræði eru sumum gleymd og grafin.
Já svo langar kvenkyns meinhornsritara að
leggja sitt í púkkið í umræðuna um óréttlæti
kynjanna. Haldiði ekki að kyrrsetu karlmaður
brenni jafnmörgum kaloríum á klukkustund og
kona sem er á nokkuð góðri siglingu, svona
stússandi í vinnu eða á heimili. Ég
þetta hægt?
ig meina - er