Dagur - Tíminn - 07.12.1996, Qupperneq 12
Laugardagur 7. desember 1996 - XII
MINNINGARGREINAR
Jlagur-'ðSntírai
ANDLÁT
Arinbjörn Sigurðsson.
Snorrabraut 56, Reykjavík, lést
á Hrafnistu, hjúkrunardeild, að-
faranótt sunnudagsins 1. des-
ernber.
Arnfrfður Mathiesen,
Austurgötu 30, Hafnarfirði,
andaðist 29. nóvember.
Baldur Jónasson,
Afiagranda 40, Reykjavík, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánu-
daginn 2. desember.
Björg Eyjólfsdóttir,
Austurströnd 4, Seltjarnarnesi,
er látin.
Bogi Nikuiásarson,
Sunnuvegi 18, Selfossi, lést á
dvalarheimilinu Lundi, Hellu,
sunnudaginn 1. desember.
Eiríkur Guðberg Þorvaidsson,
Dvergaborgum 3, lést á Land-
spítalanum sunnudaginn 1.
desember.
Emilía Brynhildur M.
Jóhannesdóttir
frá ísafirði, Hrafnistu, llafnar-
firði, lést á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 17. nóvember. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Emilía Snorrason.
Hrafnistu, Hafnarfirði, lóst
mánudaginn 25. nóvember.
Jarðarfórin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Georg Á.H. Kulp,
tónlistarmaður og kennari, lést
í Malente, Þýskalandi, 11. nóv.
Guðbjörg (Lilla) Björnsdóttir
Elsoff,
síðast búsett í Bandaríkjunum,
er látin.
Guðmundur Magnússon
frá Traðarbakka, Akranesi, síð-
ar Bláhömrum 2, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum 20.
nóvember sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Hákon Þorkelsson,
Arahólum 4, Reykjavík, lést á
hjúkrunarheimilinu Eir 29. nóv.
Helga Ágústsdóttir,
Hamragerði 12, Akureyri, lést
fimmtudaginn 28. nóvember.
Hulda Samúelsdóttir
er látin.
Jóhanna G. Freysteinsdóttir,
Blönduhlíð 8, lést á heimili sínu
að morgni 18. nóv.
Jón Jóhannsson
frá Kirkjubóli, Brekkuhvammi
1, Hafnarfirði, lést á heimili
sínu 1. desember.
Karl Jónsson,
Skaftahlíð 25, andaðist á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu-
daginn 28. nóv.
María Sigurðardóttir,
Starengi 48, Reykjavík, er látin.
Jarðarfórin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Pálína Lilja Guðnadóttir,
til heimilis í Austurbergi 36,
lést á Landspítalanum 30. nóv-
ember.
Ragnhildur Guðjónsdóttir,
Rauðafelli, Austur-Eyjaíjöllum,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljós-
heimum, Selfossi, föstudaginn
29. nóvember.
Sigríður Kristjana
Sigurðardóttir,
Grettisgötu 56b, lést á Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur 24.
nóv. sl.
Sigurður Sigurðsson
listmálari lést þann 1. desem-
ber.
Skúli Bachmann,
Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík, lést
á Landspítalanum 28. nóv.
Steinunn Guðmundsdóttir
frá Firði andaðist 16. nóvem-
ber. Útfórin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Svanlaug Finnbogadóttir
frá Galtalæk á Landi, Víðimel
21, Reykjavík, andaðist sunnu-
daginn 1. desember.
Sæmundur Sigurðsson
málarameistari lést sunnudag-
inn 1. desember.
Þórunn Woods,
Blikabraut 3, Keflavík, lést
þriðjudaginn 26. nóvember.
Höskuldur Ágústsson
Höskuldur Ágústsson fædd-
ist á ísafírði 7. nóvember
árið 1905. Hann lést á
Reykjalundi 24. nóvember síðast-
liðinn. Foreldrar hans voru Ingi-
gerður Sigurðardóttir, f. 24.7.
1885, d. 19.11. 1918, húsmóðir á
fsafirði og í Reykjavík, og Einar
Ágúst Guðmundsson, f. 7.8. 1882,
d. 16.3. 1965, fiskmatsmaður og
verkamaður á ísafirði og í
Reykjavík eftir 1913. Eignuðust
þau sjö börn. Seinni kona Ágústs
var Katrín Hreinsdóttir, f. 30.11.
1895, d. 6.5. 1994. Þau eignuðust
tvær dætur.
Systkini Höskuldar eru: Þóra,
f. 1Ó.3. 1907, d. 28.5. 1977, hús-
móðir í Reykjavík; Margrét Sig-
ríður, f. 15.3. 1909, d. 24.7. 1992,
húsmóðir í Reykjavík; Steinunn
Sveinsdóttir (ættieidd), f. 1.2.
1911, húsmóðir í Reykjavík;
Nanna Helga, f. 2.6. 1912, hús-
móðir í Reykjavík; Ágústa, f. 8.10.
1914, húsmóðir í Reykjavík; Guð-
mundur, f. 8.11. 1916, d. 17.10.
1983, bakarameistari í Reykjavík.
Hálfsystkini Höskuldar, sam-
feðra; BoUi, f. 30.8. 1920, fyrrv.
sundlaugarvörður í Reykjavík;
Ingigerður, f. 30.9. 1923, fóstra í
Reykjavík; og Unnur, f. 11.7.
1927, kennari í Reykjavík.
Hinn 12. september 1931
kvæntist Höskuldur Áslaugu Ás-
geirsdóttur, f. 24.6. 1910, hús-
móður. Hún er dóttir Ásgeirs
Torfasonar frá Ólafsdal, efna-
fræðings í Reykjavík, og Önnu
Louise Ásmundsdóttur, kvenhatt-
ara og kaupkonu. Áslaug dvelst
nú á Reykjalundi. Börn Höskuld-
ar og Áslaugar eru: 1) Ásgeir, f.
16.12. 1932, d. af slysförum 25.4.
1977, rafmagnstæknifræðingur,
var kvæntur Albínu Thordarson
arkitekt. Börn þeirra eru þrjú.
Albína er gift Ólafi Sigurðssyni
fréttamanni. 2) Ásgerður, f. 9.11.
1937, innanhússarkitekt, gift Ó-
lafi Haraldssyni framkvæmda-
stjóra. Börn þeirra eru fimm. 3)
Anna Margrét, f. 10.5. 1941,
kennari, gift Gunnari Kristjáns-
syni sóknarpresti. Þau eiga eitt
barn. 4) Hclga Ragnheiður, f.
20.4. 1947, ljósmóðir, gift Guð-
mundi Sigurðssyni deUdarstjóra.
Börn þeirra eru þrjú. 5) Áslaug
Sigríður, f. 8.10. 1952, leirlista-
kona, var gift Jóni Steinari Árna-
syni stýrimanni. Þau skildu. Börn
þeirra eru þrjú.
Höskuldur ólst upp á ísafirði
til átta ára aldurs, en þá fluttust
foreldrar hans tU Roykjavíkur.
Hann lauk sveinsprófi í vélsmíði
frá vélsmiðju J.H. Jessen á ísa-
firði árið 1924, lauk prófum frá
Vélskóla íslands 1927 og frá raf-
magnsdeild sama skóla 1936.
Hann var vélstjóri á togurum
1925-27 og á skipum Eimskipafé-
lags íslands 1927-33; var á veg-
um félagsins hjá Burmeister og
Wain í Kaupmannahöfn 1930.
Höskuldur veiktist af berklum
1933, hætti sjómennsku eftir það,
var frá störfum í tæp tvö ár. Hann
var fyrsti vélstjóri við nýja sQdar-
verksmiðju hjá Djúpavík hf. við
Reykjarljörð sumarið 1935,
starfsmaður hjá Rafmagnsveitu
ReykjavUcur frá 1936, fyrst við
Elliðaárstöð í eitt og hálft ár, síð-
an við rafstöðina við Ljósafoss í
Grímsnesi, en var ráðinn yfirvél-
stjóri Hitaveitu Reykjavíkur 1943
með búsetu við Dælustöðina á
Reykjum í Mosfellssveit. Því starfi
gegndi hann tii 1975, er hann lét
af störfum fyrir aldurs sakir. Eftir
að Höskuldur lét af störfum hjá
Hitaveitunni tók hann að sér ráð-
gjafarstörf við niðursetningu á
djúpdælum og öðrum búnaði við
hitaveituframkvæmdir víða um
land. Þá stundaði hann afieysing-
ar til sjós sem vélstjóri í sumar-
leyfum sínum. Höskuldur sat í
hreppsnefnd MosfeUshrepps
1960-66, í stjórn vinnuheimilisins
á Reykjalundi 1946-75. Hann var
gerður að heiðursfélaga SÍBS og
sæmdur gullmerki sambandsins
1975.
Höskuldur Ágústsson var einn
úr hópi vaskra manna ungra sem
veiktust af berklum á ijórða ára-
tug þessarar aldar, þá 27 ára gam-
all. Höskuldi vegnaði vel í þeirri
baráttu, því að hann náði bata,
læknaðist af sínum berklum og
varð heill heilsu á ný. Því miður
var það síður en svo hlutskipti
allra á þeim árum. Höskuldur
sagði undirrituðum eitt sinn löngu
síðar að það hefði skipt sköpum í
hans tilviki að hann tók þá ófrá-
víkjanlegu ákvörðun, þegar hann
vissi um veikindin, að fara í einu
og öllu nákvæmlega eftir því sem
honum var sagt til um af læknum
og hjúkrunarliði varðandi
lífsmáta, fæði og klæði. En það var
einmitt nákvæmnin sem alla tíð
einkenndi Höskuld, bæði í starfi og
almennum lífsstíl. Hjá honum átti
allt sinn tíma og sinn stað, allt
skyldi standa heima og vera eins
og um var talað. Berklaveikinda-
kaflinn í lífi Höskuldar tók yfir um
það bil tvö ár, sem vissulega er
langur tími í lífi ungs manns, en
þó tiltölulega skammur miðað við
öll atvik í berklamálum á þeim
tímum.
SÍBS var stofnað á Vífilsstöðum
í októbermánuði 1938 og var
Höskuldur virkur félagi í SÍBS frá
upphafi og þar til yfir lauk. Ilösk-
uldur varð yfirvélstjóri Hitaveitu
Reykjavíkur árið 1943, fyrstur
manna í því starfi, og átti búsetu
við Dælustöðina á Reykjum í Mos-
feUssveit. Árið eftir að Höskuldur
tók við þessu ábyrgðarmikla starfi
gerðist það að SÍBS keypti land-
spildu í MosfeUssveit, aðliggjandi
landi Hitaveitunnar. Ekki réð því
tUviljun ein saman að SÍBS keypti
land þar sem rísa skyldi Reykja-
lundur, það var „útspekúlerað"
eins og sagt er í dag. Þótt ekki hafi
ég heimildir fyrir þvf, tel ég víst að
þar hafi m.a. komið til góð ráð frá
Höskuldi. Starfsemin á Reykja-
lundi hófst 1. febrúar og má segja
að upp frá því hafi legið saman
leiðir Höskuldar og Ijölskyldu hans
annars vegar og Reykjalundar
hins vegar. Eða með öðrum orð-
um: rúmlega fimmtíu ára sam-
staða og samvinna.
Höskuldur tók sæti í fyrstu
stjórn Reykjalundar árið 1945 og
sat þar óslitið allt til ársins 1974.
Uppbygging og þróun Reykjalund-
ar í tímans rás hefur grundvallast
á stuðningi og hollráðum góðra
manna. Höskuldur var í þeim hópi
öll sín ár.
Svo hagaði til á landi Reykja-
lundar að þar hafði nýlega verið
byggður herskálakampur, þegar
SÍBS festi kaup á því, og hafði am-
eríski herinn borað þar eftir heitu
vatni og sett upp litla dælustöð.
Þessa borholu og dælustöðina fékk
Reykjalundur til afnota. Reykjavík-
urborg átti, og á, hins vegar rétt-
inn á mestöllu heitu vatni sem úr
iðrum jarðar kemur í Mosfells-
sveit. Þáverandi borgarstjórn gaf
SÍBS, og þar með Reykjalundi, um-
rædda borholu og dælustöð og
dugði hvort tveggja vel fram eftir
árum. Síðan gerðist það snemma á
áttunda áratugnum, þegar Hita-
veita Reykjavíkur boraði nýjar hol-
ur víðs vegar í Mosfellssveit, þar á
meðal í landi Reykjalundar, að
fyrrnefnd borhola þornaði, tæmd-
ist. Þetta var að sjálfsögðu mjög
slæmt mál og stefndi í verra.
Höskuldur bjargaði þessu þó við,
nánast samdægurs, með því' að
láta leggja í skyndi leiðslu úr hita-
veitustokk sem liggur um þvert
land Reykjalundar. Seinna beitti
hann sér fyrir því ásamt með öðr-
um að leggja sérstaka leiðslu frá
Dælustöðinni til Reykjalundar.
Ég vil leyfa mér að nefna annað
dæmi um stuðning Höskuldar og
hjálpsemi til handa Reykjalundi. Á
upphafsárum Reykjalundar, og
raunar einnig Hitaveitu Reykjavík-
ur, var framleiðsla og miðlun á
rafmagni ekki í jafn öruggum far-
vegi og nú er. Rafmagn fór gjarnan
af nokkrum sinnum að vetrinum.
Þess vegna var settur upp stór og
mikill rafall í Dælustöðinni í Mos-
fellssveit, knúinn ohu, sem settur
var í gang þegar rafveitan brást.
Fljótlega eftir að starfsemin hófst
bauðst Reykjalundi að tengjast
þessari rafaflsstöð, þannig að ljós-
in kviknuðu fljótt aftur á Reykja-
lundi ef rafmagnið datt út, sem gat
varað í nokkra klukkutíma ef því
var að skipta. Var þetta að sjálf-
sögðu hið mesta hagsmunamál
fyrir Reykjalund.
I’að væri hægt að rekja hér
ýmis önnur dæmi um stuðning og
góðvild Höskuldar og konu hans,
Áslaugar, við Reykjalund, en hér
verður staðar numið í bili. Eftir að
Höskuldur lét af störfum yfirvél-
stjóra bjuggu þau hjón áfram um
hríð í húsi sínu skammt frá Dælu-
stöðinni, þar tU þau fluttu í íbúðar-
húsnæði aldraðra í Mosfellsbæ.
Þegar aldur færðist yfir máttu þau
sæta ýmsum heilsufarslegum áföll-
um, eins og oft vill verða hjá þeim
sem ná háum aldri. Þeim hjónum
tókst engu að síður að halda reisn
sinni og bar Höskuldur, þessi há-
vaxni og sterkbyggði maður, höf-
uðið hátt allt til dauðadags.
SÍBS og Reykjalundur eiga Hös-
kuldi Ágústssyni margt að þakka
og íjölskyldu hans eftir hálfrar
aldar sambýli og samstarf. Ás-
laugu eru sendar samúðarkveðjur
frá stjórnum SÍBS og Reykjalundar
og starfsmönnum, og einnig börn-
um þeirra hjóna, tengdabörnum
og afkomendum öllum.
Haukur Þórðarson.