Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1982, Blaðsíða 7
DV. MÁNUDAGUR1. NOVEMBER1982. Enska knattspyrnan Fallbyssuskot John Wark sökktu Albion — hann skoraði fjögur mörk þegar leikmenn Ipswich sýndu snilldarleik og unnu stórsigur 6:1 á WBA Skotinn John Wark var heldur betur á skotskónum þegar Ipswich sýndi snilldarleik gegn W.B.A. á Portman Road, þar sem félagið vann stórsigur, 6—1. Wark skoraði f jögur mörk í leiknum og var hreint óstöðv- andi, Ipswich fékk óskabyrjun — Mark Grew, markvörður Albion, mátti hirða knöttinn tvisvar sinnum úr netinu hjá sér þegar aðeins tíu min. voru búnar af leiknum. Eric Gates opnaði markareikning Ipswich og síðan bætti Hollendingur- inn Frans Thijssen öðru marki við eftir góðan undirbúning Alan Brazil. Þá var komiö að þætti John Wark, sem bætti tveimur mörkum við fyrir leikhlé. Hann skoraöi fyrst eftir að Erik Gates haföi leikið vörn Albion grátt og 4—0 skoraöi hann með þrumufleyg eftir sendingu frá Alan Brazil. Wark var þó ekki búinn að segja sitt síðasta orð því að hann kom hungraður sem úlfur til leiks í seinni hálfleik og skoraði sitt þriðja mark eftir að hann haföi leikið skemmtilega á Derek Statham, bak- vörö Albion. Fjóröa mark hans kom með sannkölluðum þrumufleyg, sem Gre w átti ekki möguleika á aö ver ja. Þrátt fyrir þennan stórsigur Ipswich léku leikmenn Albion á fullu allan timann en náöu ekki aö skapa sér nema eitt marktækifæri, sem blökkumaöurinn Cyrille Regis nýtti. Loksins skoraði Dalglis Liverpool vann góðan sigur, 3—1, yfir Brighton á Anfield Road. Það voru leikmenn Brighton sem voru á undan til að skora — Gary Ryan á 9. mín. Mark Lawrenson jafnaði, 1—1. Hann skoraði hjá sínu gömlu félögum eftir sendingu frá Ian Rush. Kenny Dalglish skoraöi síðan, 2—1, fyrir Liverpool — hans fyrsta mark á keppnistímabilinu og síðan skoraði hann aftur. Sammy Lee átti þá góöa sendingu til Dalglish, sem lék skemmtilega á fjóra varnarleik- menn Brighton og sendi knöttinn síðan örugglega fram hjá Graham Moseley markverði. Dæmigert mark Dalglish. Tottenham fékkskell Mikil meiðsli eru í herbúðum Tottenham og gat Lundúnahðið ekki teflt fram sínum bestu leik- mönnum gegn Aston Villa. Leikur liðanna var góður og léku þau yfir- vegað þannig aö allt stefndi í marka- laust jafntefli. Aston Villa fékk víta- spymu i byrjun seinni hálfleiks — Gary Mabbutt feldi Peter Withe inni í vítateig. Gordon Cowans skoraði ömgglega úr vítaspyrnunni. Rétt á eftir átti Mabbutt þmmúskot í slána á marki Aston Villa. Þegar 10 mín. vom til leiksloka gáfust leik- menn Tottenham upp. Cowans lék þá skemmtilega á Ray Clemence mark- vörð og skoraöi 2—0 og síðan bættu þeir Tony Morley og Gary Shaw við mörkum og tryggöu AstonVilla stór- sigur —4—0. Kveðjuleikur Alan Ball Alan Ball lék sinn síðasta leik í Englandi þegar Southampton vann Everton, 3—2, á Goodison Park. Ball misnotaði vítaspymu, en það kom ekki að sök. Keit Cassells og Steve Moran skoruðu fyrir Southampton, Moran úr vítaspymu sem Ball fiskaði. Billy Wright og Andy King jöfnuðu fyrir Everton, 2—2, áöur en nýliðinn David Wallace skoraði sigurmark Dýrlinganna — hans þriðja mark í þremur leikjum. Nottingham Forest vann góðan sigur, 2—0, yfir Luton í Hattaborg- inni frægu. Ian Wallace og Brynley Gunn skomðu mörk Forest. Gunn skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir félagið. Asa Hartford tryggði Manchester City sigur, 2—1, yfir Swansea. Gamla kempan Dennis Tueart skoraöi fyrst fyrir City, en Bob Latchford jafnaði 1—1 fyrir Swansea. Stoke náði að tryggja sér jafntefli, 2—2, gegn Sunderland á Roker Park. Það var Paul Maquire sem skoraði fyrst fyrir Stoke, þeir Nicholas Pickering og Gary Rowell svöruðu fyrir Sunderland með góðum mörkum. Blökkumaðurinn Mark Chamberlain skoraði svo jöfnunarmark Stoke — 2—2. Allison vill fá Beattie til liðs við Middlesbrough Malcolm Allison, framkvæmda- stjóri Middlesbrough, hefur mikinn áhuga á að fá Kevin Beattie, fyrr- um leikmann Ipswich og cnska landsliðsins, til liðs við „Boro”. Beattie, sem leikur nú með Colchester, hætti að leika með Ipswich vegna þrálátra meiðsla. Hann var skorinn fimm sinnum upp við meiðslum á hné á aðeins þremur árum. Allison hafði aðeins verið fjóra daga hjá „Boro” þegar hann var búinn að hafa samband við Beattie. — Ég sagðl við Beattie að ég vildi fá hann hingað. Þetta er áhætta, en ég held að ég geri rétt. Þó að Beattie hafi verið meiddur og gcng- ur ekki heill til skógar þá er hann stórgóður leikmaöur og reynsla Kevin Beattle. hans mun koma að notum hér hjá Middelsbrough, sagði AUison. Beattie sagði að hann væri mjög ánægður með tUboð „Boro”. Þetta er mjög freystandi tUboð, sem ég mun kanna nánar. -SOS John Wark—skoraði fjögur mörk. Óskabyrjun Watford dugði ekki Leikmenn Watford fengu óska- byrjun gegn Notts County á County Ground í Nottingham — komust í 2— 0 meö mörkum f rá blökkumönnunum Luther Blissett og John Barnes, sem skoruöu með tveggja mín. millibili. Nrian Kilcline minnkaði muninn í 1— 2 fyrir leikhlé og síðan tryggðu þeir Ian McCuUoch og Paul Hools Notts County sigur, 3—2. Mark Hateley og Gary Thompson skoruðu mörk Coventry — 2—0 gegn Norwich, undir lok leiksins. Skrílslæti á Elland Road MikU skrílslæti brutust út á EUand Road í Leeds þegar Leeds fékk New- castle í heimsókn og þurfti aö stöðva leikinn í sex mín. John Anderson skoraði fyrst fyrir Newcastle, en Frank Worthington jafnaði 1—1 meö glæsilegu marki. Hann kastaöi sér fram og skaUaði sendingu Frankie Gray í netið. Þeir Kenny Bums og Aidan Butterworth skoruðu síðan fyrir Leeds. Simon Stainrod tryggði Q.P.R. sigur, 1—0, yfir Bolton meö góðu marki. Geoff Palmer og Andy Gray skoruðu mörk Ulfanna (2—1) gegn Derby, en Kevin Wilson skoraði fyrir Derby. Sean O’Driscoll skoraöi fyrir Fulham, en Vinch HUlaire jafnaði, 1—1, fyrir Crystal Palace. Mark vörður fékk reisupassann Enn einn markvörðurinn var rek- inn af leikvelU í Englandi á laugar- daginn. Nú fékk Terry Gennoe hjá Blackburn að kæla sig í leik gegn Charlton. Steve White skoraði tvö mörk fyrir Charlton, sem vann 3—0. Joey Jones hjá Chelsea var rekinn út af í sínum fyrsta leik fyrir LundúnaUðið, sem tapaði 1—2 í Carlisle. Alan Shoulder og Micky Droy, sem varð fjrir því óhappi að senda knöttinn í eigið mark, skoruðu fyrirCarUsle. Sheffield Wednesday er komið á toppinn í 2. deild. Mirocevic og Gary Shelton skoruöu mörkin. Hollendingurinn Heine Otto skoraöi mark „Boro” með þrumu- skoti af 25 m færi, en Ronnoe Moore náði að jafna, 1—1, fyrir Ritherham þegar 4 mín. voru til leiksloka. „Boro” var heppiö aö tapa ekki því að Emlyn Hughes átti sláarskot og nokkrum sinnum björguðu leUtmenn „Boro” á markUnu hjá sér. Kevin DrinkeU tryggði Grimsby sigur, 1—0, yfir Cambridge. -SOS. /nnréttingar Smíðum # eldhúsinnréttingar # klæðaskápa # baðinnréttingar Smíðum eftir yðar hugmyndum. Höfum einnig teikniþjónustu. Getum afgreitt með stuttum fyrirvara. Sýnishorn á staðnum. Trésmíðaverkstæði Þorvaldar Björnssonar Súðarvogi 7 — sími 86940. Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar sem skemmst hafa í um- ferðaróhöppum. arg. ’74 ’77 ’82 ’73 ’77 ’76 Volvo B88, vörubifreiö m/krana Opel Manta Daihatsu Charmant 1600 Datsun 1200 Ford Cortina Mini Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmuvegi 26, mánudaginn 1/11 kl. 12—17. Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga G.T. fyrir kl. 17 þriðjudaginn 2/11 ’82. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 SÍMI81411 róttir íþrótt íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.