Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1983, Side 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 30. MARS1983.
7
Mannlíf að norðan
9 norðan
BREIÐHOLTI
SÍMI 76225
Fersk blóm daglega
MIKLATORGI
SÍMI 22822
Smáaug/ýsingadei/d
verður opin um páskana
sem hér segir:
30. mars k/. 9—18.
Skírdag tU páskadags — lokað.
Mánudaginn 4. apríl kl. 18—22
og birtist þá auglýsingin í fyrsta blaði eftir
páska þriðjudaginn 5. apríl.
Ánægjulega
páskahelgi
Sími 27022
var meö fádæmum. (Flosi lagði
áherslu á síöasta orðið, en sagði síðan
á lægri nótunum:) Þetta er náttúrlega
voöalegt grobb, en satt samt. Þú tekur
eftir að ég segi „með fádæmum”. Það
merkir það, að fá dæmi séu um sýn-
ingar með meiri aðsókn, en þær séu þó
örfáartil.
3. þáttur —
Egó-flipp
Sama svið og áður. Leikendur hafa
sigið niður í sætum sínum.
Blaðamaður: Hvernig leikhús-
gestir eru Akureyringar?
Flosi: (Horfir hugsi á blaöamann-
inn. Virðist óttast að hann sé að fiska
eftir einhverju misjöfnu um Akureyr-
inga. Loks hefur Flosi upp raust sína
og svarar í kross að hætti stjórnmála-
manna. Setur upp alþingismanna-
svip). Ég hef það á tilfinningunni, að
leikhúsaðsókn á Akureyri hafi hrakað
til muna á síðari árum. Síðasta sýning
Leikfélags Akureyrar fékk til að
mynda dræma aðsókn, þó allir sem
hana sáu væru sammála um að hér
væri afburða góð sýning á ferðinni. En
ef til vill léttist brúnin á Norðlend-
ingum með hækkandi sól. Þaö gerir
lífið bjartara og umfram allt skemmti-
legra að sjá léttan ærslaleik. Allavega
er stundum sagt að hláturinn lengi
lifiö.
Blaðamaður: En þú hefur ekki
svarað spurningu minni.
Flosi: Fyrirgeföu, um hvað varst þú
aöspyrja?
Blaðamaður: Um Akureyringa í
leikhúsi. Eru Akureyringar verri eöa
betri leikhúsgestir heldur en Reykvík-
ingar, svo ég kveði fastar að en áðan?
Flosi: Hvernig á ég nú að svara
þessu? (Löng þögn) Eg held að Akur-
eyringar séu enn á því stigi — og lái
þeim hver sem vill — aö þeim finnist
skemmtilegra að fara í leikhús þegar
þeim finnst gaman — heldur en þegar
þeim leiðist.
Blaðamaður: Farsi — gamanleikur
— leikform af óæðri enda leiklist-
arinnar, segja sumir.
Flosi: (Snöggur til svars) Nei, það er
della. Farsinn er erfiðara leikform,
flóknara og krefst meiri hæfni og kunn-
áttu en flest annað þaö sem fengist er
við á fjölunum. Það er miklu minni
vandi að leika Skugga-Svein, Hamlet,
Fjalla-Eyvind og Ofelíu heldur en
Flóvent koppasala í Spékoppum Leik-
félags Akureyrar.
Þetta eru stór orð. (Hlær rosalega).
Nú veröa þeir lika vitlausir fyrir
sunnan. Það er best að hamra á þessu
ögn betur.
I försum af þessari gerö þarf allt að
vera á sínum stað — á réttu augnabliki
— ekki bara hlutir og persónur, heldur
líka orð og æði. Og guð hjálpi þeirri
setningu í farsa, sem ekki fellur á hár-
réttu sekúndubroti og hefur rétt tíma-
mörk. Hins vegar er hægt að fara með
eintal Hamlets, um það að vera eða
vera ekki, á tveim sólarhringum, án
þess að nokkur taki eftir því.
Blaðamaður: Flosi, hvers vegna ert
þú frekar oröaður við gaman en
alvöru?
Flosi: Eg býst við að fólk hafi fljótt
séð að mér þykir allur skollinn
skemmtilegur, jafnvel það sem öðrum
var heilagt, eins og til að mynda karla-
kórssöngur og einleikur á langspil.
Ef ég á að segja þér alveg eins og er,
þá finnst mér það skemmtilegra sem
mér finnst skemmtilegt, heldur en það
sem mér finnst leiðinlegt. Og ef mig
langar til að hlæja að einhverju, þá
geri ég það bara, þó engum finnist það
sniðugt nema mér.
Ég hef fengist talsvert við skriftir, já
oftast í léttum dúr, en þrátt fyrir það
liggur mér alltaf eitthvaö alvarlegt á
hjarta. Eg vil helst hafa einhvern’
brodd í því sem ég skrifa, en ég hef
aldrei hugsað um hvort öðrum finnst
það skemmtilegt. Það hefur nægt mér
að geta hlegiö að því sjálfur. Þetta
heitir víst að vera á ævilöngu egó-
flippi. (Hlátur, sem deyr út um leið og
tjaldiö fellur).
JL-PORTIÐ • NYR INNGANGUR
Fjöldi nýrra bilastœða í JL-portinu.
Opið til kl. 22 í kvöld í öllum
deildum JIS
Jón Loftsson hf.
OPIÐ LAUGARDAG
FYRIR PÁSKA KL.9-12
HRINGBRAUT121 - SÍIVI110600
Wm
Margir halda að
Luxo /ampar séu bara allir
arm/ampar með gormum — svo er nú bara
alls ekki — Vekjum athygli á því.
ÞEIR EINU SÚNNU BERA
MERKIÐ:
Wm
VANDIÐ VALIÐ - VARIST
EFTIRLÍKINGAR
i
Við drögum ekkert úr því að þeir einu
sönnu Luxo eru aðeins dýrari enda — norsk
gæðavara — ending — varahlutir —
þjónusta.
MEÐ FORYSTU í 15 ÁR
PÓSTSENDUM UM ALLT LAND
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488