Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Blaðsíða 1
OAGBLAÐIÐ — VÍSIR 106. TBL. —73. og 9. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR ll.MAÍ 1983.
f
íbúðarsölumálið í Kaupmannahöfn:
ff
Umboðið er falsað
—segir eigandi íbúðarínnar,
sem kærirmálið til dönsku lögreglunnar í dag
Ibúðarsölumálið í Kaupmannahöfn
verður kært til dönsku lögreglunnar í
dag. Eins og DV greindi frá fyrir
skömmu var íbúð og innbú, sem
íslensk kona á i Kaupmannahöfn,
tekið og selt án hennar vitundar.
Konan hafði gefið dönskum
kunningja sínum umboð til að selja
íbúðina. Það gerði hann, en án
nokkurs samráös við eiganda hennar
sem ekki hefur séð eyri af sölu-
verðinu ennþá, enda þótt drjúgur
timi sé liðinn frá því aö salan átti sér
staö.
,,Ég fullyrði að umboðið, sem
hann hefur handa á milli, er faisaö
og málið verður kært til dönsku lög-
reglunnar í dag,” sagði konan sem
nú er stödd í Kaupmannahöfn til aö
reyna að ná fram leiðréttingu sinna
mála.
„Það umboð sem ég skrifaði undir
nær einungis til sölu á ibúðinni.
Umboðið, sem þessi maöur notar, er
svokallað „general fullmagt”, sem
heimilar honum að ráðskast með
allar mínar eigur, taka út af banka-
reikningi mínum o.s.frv.
Ibúðin var metin á 550.000 d. kr. en
seld fyrir aðeins 369.000. Að auki ber
þeim pappírum sem „umboðs-
maðurinn” og fasteignasalinn leggja
fram um sölu á íbúðinni alls ekki
saman því þar munar d.kr. 40.000 á
söluverði íbúðarinnar.
„Umboðsmaðurinn” seldi megnið
af innbúi mínu á kr. 5000, en kveðst
nú alls ekki muna hverjum hann
seldiþað.”
Konan kvaðst hafa farið á þing-
lýsingarskrifstofuna í Kaupmanna-
höfn í gær og séð þar að íbúöin væri
enn á sínu nafni. Hún væri því
vongóð um að geta fengið sölunni
rift. -JSS.
StofnarPálmi
íHagkaupum
feröaskrífstofu?
— sjá Sandkorn
á bls. 31
Framarar
Reykja-
víkur-
meistarar
— sjá íþróttir
ábls.20 og21
V
DV efnir til annarrar utanlandsferðar:
Vikudvöl i Vínarborg
sjábis.2
Norölensk
krúttá
kútmagakvöldi
•— sjá Sviðsljósið
ábls. 37 og38
Þjóöhátföar-
sjóöurúthlutar
styrkjum
-sjábls.35
Fjögurra hreyfla þota af gerð-
inni British Aerospace 146 kom
til Egilsstaða i gær til lendingar-
tilrauna. Egilsstaðaflugvöllur —
þótti heppilegur til að reyna þot-
una á malarbrautum. Þessi nýja
þota, sem reyndar er ekki enn
komin á almennan markað, er
sú langstærsta sem lent hefur á
Austfjörðum, getur flutt 90 far-
þega. Þotan hefur áður komið
til íslands en þá var verið að
reyna hana við flug í ísingu.
DV-mynd ERH, Egiisstöðum.