Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 5
DV. MIÐVIKUDAGUR11. MAl 1983
5
Meiri karfi
íaflanumfár
Þó svo aö þorskveiðarnar hafi
alveg brugðist á vertíðinni í vetur
er ekki alveg sömu sögu að segja
um veiðar á öörum f isktegundum.
I skýrslu Fiskifélagsins, sem
kom fyrir helgina, um veiðamar
fyrstu fjóra mánuði ársins kemur
t.d. fram að togaramir hafa veitt
mun meira af karfa nú í vetur en á
sama tíma í fyrra. Hafa þeir komið
með að landi 27 þúsund lestir á
tímabiiinu janúar—apríl en á sama
tíma í fyrra veiddu þeir 19 þúsund
lestir af karfa.
Þá hafa sölur báta og togara
erlendis verið mun fleiri í vetur en
í fyrravetur. Seldu þeir þá samtals
5310 lestir en í ár hefur sala is-
lenskra skipa í erlendum höfnum
verið 11634 lestir. Af þessum afla í
ár eru 1020 lestir kolmunni. -klp
Erfiðleikar hjá kartöf luverksmiðjunni í Þykkvabæ:
ÁHUGIGRÆNMETISVERSL-
UNAR Á EIGNARAÐILD?
„Það er aDtaf gott að tala saman.
Jú, við höfum rætt við þá hjá Græn-
metisversluninni og Framleiðsluráð-
inu en ekkert komið út úr þeim við-
ræðum ennþá,” sagði Guðlaugur
Ámason, bóndi að Eyrartúni í
Þykkvabænum, er DV hafði sam-
band viö hann fyrir skömmu. Heyrst
hefur aö umræður væru í gangi
vegna aðildar ofangreindra f}rir-
tækja að kartöfluverksmiðju kart-
öflubænda í Þykkvabænum. Einnig
aö umræður hafi veriö í gangi við
norðanmenn varðandi kartöfluverk-
smiðjuna á Svalbarðseyri.
„Máliö hefur snúist um þaö hvort
viö eigum að borga verksmiöjuna
einir eða fá lán, það vilja margir
lána okkurpeninga.Eignaraðild hef-
ur líka komið til greina. Á þessu stigi
hef ég engar upplýsingar, talaðu viö
mig eftir mánuð,” sagði Guölaugur
bóndi og formaöur verksmiðju-
stjómar í Þykkvabænum. „Þaö er
allt úr sögunni, held ég,” svaraöi
Sævar Hallgrímsson sömu spum-
ingu. Sævar er framleiðslustjóri
verksmiðjunnar á Svalbarðseyri.
„Við viljum vera sjálfstæðir. En þeir
hafa óskaö eftir því hjá Framleiöslu-
ráði að eignast hlut í verksmiðjunni.
Það gengur mjög vel hjá okkur, við
framleiðum franskar kartöflur úr
fjórum tonnumaf nýjum kartöflumá
dag.”
„Fyrst búiö er að reisa verksmiðj-
urnar tel ég aö þær eigi aö lifa
áfram,” svaraði Ingi Tryggvason,
formaður Stéttarsambands bænda,
er máliö var lagt fyrir hann. „Rætt
hefur veriö um okkar þátttöku til að
tryggja áframhaldandi rekstur. Við
höfum viljaö aðstoöa, sérstaklega
verksmiðjuna í Þykkvabænum.
Þetta er algjörlega óákveöiö ennþá.
Það er enginn þrýstingur frá okkur í
þessu máli.”
-ÞG
Til almannaheilla
ífjorutiuar
Á 40 ára afmælinu sendum viö öllum viöskiptavinum okkar árnaöaróskir. Jafnframt leyfum viö
okkur aö vona aðfélagið hafi náð því markmiði sínu aðauka öryggi þeirra, og milda þau áföll sem
sumir hafa oröið fyrir. Viö vitum aö vöxtur og viðgangur tryggingafélags er m.a. háður
góöri afspurn - viðhorfum og umsögnum þeirra sem hafa orðið fyrir tjóni
og sækja síðan bætur í hendur tryggingarélags síns.
Starfsemiokkarhefuraukistjafntog þéttáundanförnum40árum. Núerustarfsmenninrnir55
og sjálfstæðar skrifstofur á Akureyri, Akranesi, Selfossi og í Hafnafirði.
Aðalskrifstofan er í hinum nýju og rúmgóðu húsakynnum í Síðumúla 59.
Umboðsmenn eru um allt land.
Starfsemi okkar spannar öll svið trygginga - smá og stór.
Á seinni árum höfum við annast stærri verkefni en nokkru sinni fyrr - trvggingar fyrir íslenska
verktaka íorku- og stóriðjuframkvæmdum.
Um leið og við þökkum viðskiptin á liðnum árum viljum við nota tækifaerið til að minna enn á
nauðsyn fyrirhyggju ...
. það tryggir enginn eftirá.