Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Qupperneq 20
íþróttir
íþróttir
fþróttir
íþróttir
íþrótt
Einar Vilhjálmsson á æfingu í Texas
Getraunaleikur DV og JAPIS:
„Blikamir verða
ekki fljótastir
til að skora”
— segir Ögmundur Kristinsson, markvörður Víkings, sem
spáir þvf að Heimir Karlsson tryggi sér SONY-tækið
— Ég vil ekki segja aö þaö veröi
leikmaður úr Breiðabliki sem verði
fljótastur til að skora mark í 1. deildar-
keppninni. sagði Ögmundur Kristins-
son, landsliðsmarkvörður úr Víkingi
þegar við báðum hann að spá um það
hvaða leikmaður verði fljótastur til að
skora mark í X. deildarkeppninni. Það
er vel skiljanlegt því að Víkingar mæta
þeim í fyrstu umferöinni,
—Ég held að Heimir Karlsson, mið-
herji okkar Víkinga, verði fljótastur til
að skora mark. Ég spái því að hann
verði búinn aö senda knöttinn í netið
hjá Blikunum eftir þetta 9 mínútur,
sagði ögmundur.
— skemmtilegt viðtal við Einar Vilhjálmsson í dagblaði
í Austin í Bandaríkjunum
„Einar Vilhjálmsson er einn greindasti
iþróttamaöur, sem ég hef kynnst. Það er
ánægjulegt að hafa slíkan pilt i návist
sinni,” segir Tim Hamflton, frjáLsíþrótta-
þjálfari í Austin í Texas i Bandaríkjunum, i
dagblaðinu þar í borg nýiega í skemmtilegu
viðtali blaðsins við Einar Vilhjálmsson,
íslandsmethafa í spjótkasti. „Hann er rauð-
hærður og freknóttur og er eins og íslensk út-
gáfa af Stikilsberja-Finni. Undir stjórn
Hamilton er hann orðinn grimmur — en
greindur—keppnismaður,” segir blaöið.
Fyrir tæpum tveimur mánuðum kastaöi
Einar Vilhjálmsson spjóti lengra en áður
hafði skeð á vesturströnd Bandaríkjanna.
En hann á þó langt í land með að nálgast af-
rek föður síns. Á ólympíuleikunum í Mel-
bourne 1956 hlaut Vilhjálmur Einarsson
silfurverðlaunin í þrístökki. Enginn hafði í
sögu íslands unnið ólympísk verðlaun áöur.
Enginn hefur síöan gert það.
„Það er gömul sögn á tslandi að maður
verði að vera betri en faðirinn,” segir Vil-
hjálmsson „svo ég verð að vinna til verð-
launa á ólympíuleikunum 1984 í Los
Angeles”.
En byrjum á byrjuninni. Á UCLA-mótinu
20. mars kastaöi Einar spjótinu 85,12 metra.
Bætti tslandsmet sitt um 3,90 metra og besta
árangur á vesturströndinni um tæp 15 fet
eða um fjóra og hálfan metra. Hann átti þá
annað kast um 20 sm styttra „en ég var
ánægðari með það því það sannaði að met-
kastið var ekki nein tilviljun, heppniskast.”
En til að Einar Vilhjálmsson uppfylli
gömlu, íslensku sögnina þarf hann að kasta
spjótinu yfir 90 metra til þess aö hafa mögu-
leika á ólympískum verðlaunum 1984. Ef
hann gerir það ekki þá veit hann að þaö
skiptir föður hans litlu, en hann er nú skóla-
meistari menntaskóla á íslandi.
„Hann hélt mér aldrei aö íþróttum. Hjá
honum var menntunin og skólinn alltaf í
Fjórir hafa kastað
yf ir 90 metra í ár
— Suður-Af ríkumaður bestur með
91,24 m. Oldfield með besta
heimsárangurinn í kúluvarpi
Fjórir spjótkastarar hafa kastaö
spjótinu yfir 90 metra í ár. Suður-Afríku-
maöurmn Koos van der Merwe er með
besta árangurinn. Hann hefur kastað
91,24 metra. Mike O’Rourke, Nýja-
Sjálandi, kemur skammt á eftir með
90,58 metra og örstutt er í tvo Banda-
ríkjamenn. Tom Petranoff hefur kastað
90,54 metra og Mike Bamett 90,35 metra.
Barnett náði þessum árangri fyrir
nokkrum dögum í Walnut í Kaliforníu.
Bætti þar með vesturstrandarmet
Einars Vilhjálmssonar.
í kúluvarpi er gamla brýnið, Brian
Oldfield, Bandarikjunum, með besta
heimsárangurinn. Hann er nú 38 ára og
varpaði nýlega 21,01 metra utanhúss.
Sem atvinnumaður varpaði Oldfield kúl-
unni 22,86 metra árið 1975. Sá árangur
var ekki staðfestur sem heimsmet vegna
atvinnumennsku kappans. Heimsmetið
22,15 en sérfræðingar spá því að um
aldamótin verði heimsmetið komið í um
30 metra með „snúningsaðferðinni í
hringnum”.
-hsím.
fyrsta sæti. Iþróttirnar góð tómstundaiðja,”
segir Vilhjálmsson, sem er með 3,2 stig yfir
meðaleinkunn í dýrafræði en hyggur á nám í
læknaskóla.
„Faðir minn vissi að annaö fólk bjóst viö
að ég næði góðum árangri í íþróttum aðeins
vegna þess aö ég er sonur hans. Hann vék
því til hliðar. Ræddi aldrei um íþróttir. ’ ’
Þá segir blaðiö aö lokum að ekki hafi mun-
að miklu að Tim Hamilton heföi misst af
Einari. Hann hefði verið að hugsa um að
stunda nám í skóla í Clemson, þarsemspjót-
kastsérfræðingurinn Sam Colson, sem á að-
eins betri árangur en Einar, er þjálfari. Það
var hins vegar Oskar Jakobsson, kúluvarp-
arinn kunni, sem fékk hann til að skipta um
skoðun. Auk þess heimsótti Hamilton hann
og vinstúlka hans, Dóra, sagði „já” þegar
Einar baö hana að giftast sér. „Ég efast um
að ég hefði komið hingað til Austin ef hún
hefði ekki komiö með mér,” segir Einar og
TheLonghorns, félag háskólans, stendur í
þ'akkarskuld við hana, eru lokaorðin.
hsím
Kveðjuleikur
Ólaf s gegn
Bandaríkja-
mönnum
Ölafur Jónsson úr Víkingi, fyrrum fyrirliði
landsliðsins í handknattleik, sem hefur
ákveðið aö leggja skóna á hilluna og hætta.
að leika handknattleik, mun leika kveðjuleik!
sinn með íslenska landsliðinu gegn Banda-
ríkjamönnum um næstu helgi. HSÍ hefur
ákveðið að þeir leikmenn sem léku í B-.
keppninni í Hollandi leiki gegn Bandaríkja-
mönnum og er Ölafur einn af þeim.
Ólafur sagði í viðtali við DV eftir síðasta
landsleik íslands í B-keppninni að hann væri
búinn aö leika sinn síðasta leik með landslið-
inu. — Ég trúi ekki öðru en Ólafur ljúki verk-
efni sinu með landsliðinu, ásamt strákunum
sem léku í B-keppninni, sagði Jón Erlends-
son, varaformaður HSÍ, í viðtali við DV.-SOS
Ögmundur Kristinsson.
ögmundur sagði að það yrði skorað
mikið af mörkum í 1. deildarkeppninni
í sumar og að hann hefði trú á því að
keppnin verði skemmtilegri heldur en
oft áður.
Hverjir vinna sér
inn útvarpstækin
frá Japis?
Eins og hefur komiö f ram í DV veitir
DV og JAPIS þeim leikmanni sem
verður fyrstur til að skora í leikjum
fyrstu umferðarinnar í 1, deild vegleg
verðlaun og einnig þeim lesanda
blaðsins sem spáir rétt um hver skorar
fyrst. Verðlaunin eru tvö glæsileg
SONY útvarps- og kassettutæki í
stereo. Tækiö er með tveimur míkra-
fónum, tveimur öflugum hátölurum,
lagaleitara og tónstilli. Bylgjurnar eru
þrjár - FM Stereo, M og L. Það gengur
bæði fyrir rafhlöðum og rafmagni og
er mjög hentugt ferðatæki, Verðið á
tækinuer kr. 7.300.
Fimm leikir
Fimm leikir verða leiknir í fyrstu
umferð 1. deildar, Víkingur -
Breiðablik. Þróttur - KR. Keflavík -
Valur, Vestmannaeyjar - Isafjörður og
Þór Ak, - Akranes. Allir leikmenn
þessara félaga eiga jafna möguleika til
að skora þvi að tími veröur tekinn á
öllum fimm leikjunum til að finna út
hver verður fyrstur til að skora, -SOS
Þórirsigraði
íflaggkeppninni
Kylfingar GR flögguðu öllu sem þeir áttu,
þegar þeir kepptu í flaggkeppninni um si.
þessi:
1. Þðrir Kjartansson á flöt á 21. hoiu.
2. Karl Ömar Karlsson á braut á 21. holu.
3. Brynjar Viðarsson á teigi á 21. hoiu.
GETRAUNASEÐILL
skora mark í 1. deildarkeppninni:
D..................................................:.........
2).....................:............;.....................
3)..........................................................
Mínúta:...........................................
Nafn:........................................*..............
Heimilisfang:...............................................
, Simi: .;....................................................
Sendið atkvædaseðilinn til DV Síðumúla 12—14 merktan Knatt-
spymugetraun. SeWinum verður að skila fyrir 18. maí. Þeir
Ölafur Jónsson, fyrirliði landsliðsins í handknattleik
iþróttir
Íþróttir
iþróttir
íþróttir
eykjavíkurmeistarar Fram í knattspyrnu 1983. Jón Pétursson fyririiöi meö bikarinn.
DV-mynd Fnöþjóiu
Fram náði í aukastigið gegn Víkingi og varð
REYKJ AVIKURMQSTARI
Tveimur mínútum fyrir leikslok í úr-
slitaleik Fram og Víkings á Reykja-
vikurmótinu á Melavelli í gærkvöld
var dæmd vítaspyrna á Víking. Hafþór
Sveinjónsson tók spyrnuna en
Ögmundur Kristinsson, markvörður
og fyrirliði Vikings, gerði sér lítiö fyrir
og varði. Hann hélt þó ekki knettinum
sem barst aftur til Hafþórs sem renndi
honum framhjá ögmundi í Víkings-
markið. Það var þriðja mark Fram í
leiknum og Fram sigraði 3—2. Hlaut
því aukastigið þýðingarmikla og
Reykjavikurmeistaratitilinn í
meistaraflokki 1983. Vel af sér vikið
hjá ungu strákunum í Fram. Þeir
verðskulduðu sigur í leiknum.
Eftir leikinn afhenti Ulfar
Þórðarson, formaður IBR, þeim sigur-
laun sín og áhorfendur, sem voru
Middlesbro og
Burnleysigruðu
Burnley og Middlesbrough tryggðu
sér þýðingarmikil stig í fallbaráttunni
í 2. deild á Englandi í gær þegar þau
sigruðu í leikjum sínum. Burnley vann
efsta liðið í 2. deild, QPR, 2—1 á leik-
veili sinum og Middlesbrough vann
einnig á heimavelli, Crystal Palace 2—
0.
Orslit í öðrum leikjum í gær urðu
þessi: l.deild
WestHam—Arsenal 1—3
3. deild
Portsmouth-Walsall 1—0
Huddersfield-Wigan 1—1
4. deild
Halifax-Wimbledon 1—1
-Petrovic, Whyte og McDermott
skoruöu mörk Arsenal gegn West
Ham. -hsim.
allmargir, hylltu þá.
Hávaðarok var þegar leikurinn fór
fram og kalt. Það var því ekki mikil
knattspyrna sem sást en oft mikil
barátta. Fram lék undan norðan-garr-
anum í fyrri hálfleik. Guðmundur
Torfason skoraði fyrsta markið fyrir
Fram, en Omar Torfason jafnaði úr
vítaspymu fyrir Víking, 1—1 í hálfleik,
og Víkingar virtust standa með
pálmann í höndunum með vindinn með
sér í síðari hálf leiknum.
En það fór á aðra leið. Gísli Hjálm-
týsson náði forustu fyrir Fram á 58
Sovéska landsliðsfólkið í sundi
sigraði í fimm síðustu greinunum í
þriggja landa keppni í Leeds á Eng-
landi og tryggði sér þar með sigur í
mjög skemmtilegri kcppui. Hlaut 247
stig, Bretland 236 og Kanada 149 stig.
Keppt var í 50 metra laug og árangur
allgóður svo snemma sumar.
Mesti sundmaður heims, Vladimir
Salnikov, Sovétríkjunum, var mest í
sviðsljósinu. Á laugardag sigraði hann
í 400 m skriðsundi á 3:54.29 mín. en
hinn snjalli sundmaður Breta, Andrew
mín., 2—1 og um miöjan hálfleikinn
rak dómarinn miðvörðinn sterka hjá
Víking, Stefán Halldórsson, af velli.
Víkingar voru því einum færri síðustu
23 minútumar. Gunnari Gunnarssyni
tókst þó aö jafna í 2—2 þegar fimm
mínútur voru til leiksloka, 2—2. En það
nægöi Víkingum ekki. Vítaspyrnan í
lokin eins og áður er lýst.
Markahæstu leikmenn mótsins
urðu:
Einar Björnsson, Fram 4
GuðmundurTorf ason,Fram 4
Jóhann Þorvaröarson, Víking 3
Astbury, varð annar, nokkuð frá sínu
besta á 3:58.12 mín enda þreyttur eftir
langt flug frá háskóla sínum í Banda-
ríkjunum. Hins vegar sigraði Astbury í
200 m skriðsundi á 1:54.02 mín. og þar
hlutu Bretar tvöfaldan sigur. Paul
Easter varð annar á 1:54.42 mín.
Á sunnudag sigraði Salnikov í 1500
m skriðsundi á 15:27.41 mín. og þar var
tvöfaldur sovéskur sigur. Sviatoslav
Semenov annar á 15:38.70 mín. og
Astbury þriðji ál6:02.70mín.
Af einstökum árangri fyrri daginn
Hörður Guðj ónsson, Fy lki 3
ÞorsteinnSigurðsson, Val 3
-hsím.
Lokastaðan
Lokastaðan á Rcykjavíkurmótinu var
þaunig:
Fram 6 4 11 12—5 12
Víkingur 6 5 0 1 12—4 11
Valur 6 4 0 2 9-4 9
KR 6 3 1 2 7-7 7
Fylkir 6 2 0 4 9—11 5
Þróttur 6 114 3—9 3
Armaun 6 0 1 5 3—16 1
Vladimir Salnikov
má nefna að Sergei Krasiuk, Sovét,
sigraði í 100 m skriðsundi á 51.56 sek.
David Lowe, Bretlandi, annar á 52.53
sek. June Croft, Bretlandi, sigraði í 200
m skriðsundi kvenna á 2:02.10 mín.
Þar var um tvöfaldan sigur hjá Bret-
um að ræða. Jackie Willmott önnur á
2:05.57 mín. Bretar höfðu forustu eftir
fyrri daginn. Sigrar Kanada voru fáir.
Tom Ponting sigraði þó í 100 m flug-
sundi á 56.32 mín. eftir harða keppni
við Alexei Markovsky, Sovét, 56.56
sek. og Philip Hubble, Bretlandi, 57.08
sek.Þá sigraði Anne Ottenbrite,
Kanada,í200mbringusundikvenna á
2:36.28 mín. Síðar komu Gaynor Stan-
ley, Bretlandi, á 2:37.38 og Aishkute
Buzelite, Sovét, 2:37.39 mín. Adrian
Moorhouse, Bretlandi, sigraði í 100 m
bringusundi á 1:05.97 mín en Dmitri
Volkov, Sovét, varö annar á 1:06.01
mín.
Síðari dáginn, sunnudag, sigraði
Philip Hubble í 200 m flugsundi á
2:04.05 mínen Sergei Fesenko, Sovét,
varð annar á 2:04.61 mín. Alexander
Sidorensko, Sovét, sigraði í 200 m fjór-
sundi á 2:09.90 mín. og Jeff Sheehan,
Kanada, varð annar á 2:09.99 mín.
June Croft, Bretlandi, sigraöi í 100 m
skriðsundi kvenna á 58.11 sek. en
Maureen New, Kanada, varð önnur á
59.15 sek. Sergei Zabolotnov, Sovétríkj-
unum, haföi mikla yfirburöi í 100 m
baksundi karla. Sigraði á 57.72 sek. og
sovéska sundfólkið sigraði í öllum bak-
sundsgreinunum. 14 x 200 m skriðsundi
kvenna sigraði breska sveitin og setti
nýtt breskt met — 8:23.89 mín. Sovéska
sveitin önnur á 8:28.00 mín.
Bann á bandaríska
körfuknattleiksmenn?
Forráðamenn körff uknattleiksins ræða um það á ársþingi
KKÍum næstuhelgi
Verður sett rautt Ijós á banda-
riska körfuknattleiksmenn? Svar við
þessari spurningu fæst um næstu
helgi, þegar ársþing KKÍ verður að
Hótel Heklu. DV hefur frétt að nokkr-
ir forráðamenn körfuknattleiks-
félaga ætli að bera fram tillögu um
að bann verði sett á bandaríska
körfuknattleiksmenn næsta vetur, I
þannig að enginn erlendur leikmaður
megi leika í úrvalsdeildinni.
Það eru mjög skiptar skoðanir um
hvort leyfa eigi Bandaríkjamenn hér
eða ekki. Margir halda því fram að
ef Bandaríkjamennirnir fari þá
minnki áhuginn fyrir körfuknatt-
leiknum verulega hjá áhorfendum.
— „Það er skerf aftur á bak að setja
bann á Bandaríkjamennina. Eg tel
að frekar eigi að leyfa tveimur
bandarískum leikmönnum aö leika
með hverju liöi. Það myndi verða
mikil lyftistöng fyrir körfuknattleik-
inn og áhorfendur myndi fjölmenna
á leiki úrvalsdeildarinnar,” sagði
einn af forráðamönnum úrvals-
deildarliðs í spjalli við DV.
Þing körfuknattleiksmanna hefst
að Ilótel Heklu á föstudagskvöldið kl.
20 og verður síðan fram haldið á
laugardaginn.
-SOS
Sovéskur sigur í landskeppni í sundi:
Sá besti mest
i sviðsljosinu
— Vladimir Salnikov sigraði í400 og
1500mskriðsundi
FH-sigur
íöllum
flokkum
Úrslit liggja nú fyrir í stigakeppni í
víðavangshiaupum. FH-ingar sigruðu í
öllum flokkum og sýnir það vei þá
grðsku, sem er i hlaupum í Hafnarfirði.
Þau Sigurður P. Sigmundsson og
Ragnheiður Ölafsdóttir sigruðu í öilum
þeim hlaupum, sem þau tóku þátt í.
Úrslit stigakcppninnar.
KARLAR
1. Siguröur P. Sigmundsson, FH
2. Sighv. D. Guðmson, HVÍ/ÍR
3. Hafsteinn Öskarsson, IR
4. Stefán Friðgeirsson, ÍR,
5. Einar Sigurðsson, UBK
6. Gunnar P. Jóakimsson, ÍR
7. Gunnar Birgisson, ÍR
8. Ingvar Garðarsson, HSK
9. Steinar Friðgeirsson, ÍR
10. Magnús Haraldsson, FH
150
12
106
94
93
85
78
70
67
57
Alls hlupu 105 í öllnm víðavangs-
hlaupum í karlaflokki.
KONUR
1. RagnheiðurÓlafsd., FH 120
2. Hrönn Guðmundsd., UBK/ÍR 114
3. Rakel Gylfad., FH 108
4. Fríða Bjamad., UBK 49
5. Guðbjörg Haraidsd., KR 30
6. Björg Kristjánsd. 35
7.-8. Linda B. Loftsd., FH 24
7.-8. Marta Leósd., ÍR 24
9. Kristín Eggertsd., USVH 21
10. Sigríóur Sigurjónsd., iR 20
Alls hlupu 45 konur í hlaupum
vetrarins.
DRENGIR
1. ÖmarHólm.FH 111
2. Viggó Þ. Þórisson, FH 64
3. Helgi F. Kristinsson, FH 53
4. Garóar Sigurösson, IR 47
5. Lýður Skarphéðinsson, FH 44
6. Arnþór Sigurðsson, UBK 29
AUs hlupu 40 drengir í hlaupum
vetrarins.
Bikarinn í
Frakklandi
Nantes, Paris Saint Germain,
Lille og Tours tryggðu sér rétt í
undanúrslit frönsku bikarkeppn-
innar í gærkvöld. Þá voru síðari
leikirnir í 8-liða úrslitum háðir.
Ursliturðu þessi:
Nantes-Racing Paris 1—0
Nantes vann samanlagt 3*2
Paris SG—Brest 2—0
Parísarliðið vann samanlagt 3—2
Rouen—Lille 1—0
Lille vann samanlagt 2—1
Tours-Guingamp 3—1
Tours vann samanlagt 3—1
Amar sigur-
vegari í
Finlux-Open
Amar M. Olafsson úr Golf-
klúbbnum Keili varð sigurvegari
í opna FINLUX-golfmótinu sem
fór fram á Hvaleyrarvellinum í
Hafnarfirði um sl. helgi. Þetta
var punktamót með forgjöf og
fékk Amar 69 punkta. Sigurjón
R. Gíslason úrGK ■ arð í öðm sæti
meö 67 punkta og Höröur
Mortens GK varð í þriðja sæti
með 64 punkta. Ulfar Jónsson úr
GK varð í fjóröa sæti með 64
punkta.
Enginn með
12 rétta
135. leikviku kom enginn seöill
fram með öllum réttum en 15
seðlar með 11 réttum og var
vinningur fyrir röðina kr. 15.785.-
Þá reyndust 218 raðir með 10 rétt-
um og var vinningur fyrir hverja
röðkr. 465.00.
Meistarahlaup
á Hvolsvelli
Meistaramót Islands í 25 km
götuhlaupi fer fram á Hvolsvelli
laugardaginn 14. maí. Hefst það
kl. 14. Þátttaka tilkynnist til Sig-
urðar Haraldssonar fyrir
fimmtudaginn 12. maí, sími
52403. Þátttökugjald kr. 30.00.
hsim