Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Blaðsíða 1
DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983.
19
Sjónvarp
Sjónvarp
Laugardagur
19. nóvember
15.30 íþróttir. NBA bandaríska
meistarakeppnin. Los Angeles
Lakers og Philadelphia leika í
þriöja sinn til úrslita.
16.15 Fólk á förnum vegi. Nýir skór.
Enskunámskeið í 26 þáttum.
16.30 íþróttir. Los Angeles og Phila-
delphia. Síðari hálfleikur. Urslit
dagsins / HM í fimleikum
karla/Handknattleikur.
18.30 Innsiglað með ástarkossi.
Þriöji þáttur. Breskur unglinga-
myndaflokkur í sex þáttum. Þýð-
andi Ragna Ragnars.
18.55 Enska knattspyrnan. Um-
sjónarmaður Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáíi.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingarogdagskrá.
20.40 Ættarsetrið. Þriðji þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.10 Söngvaseiður. Við opnun út-
varps- og sjónvarpssýningar í
Berlín nýlega voru haldnir tónleik-
ar til minningar um frönsku söng-
konuna Edith Piaf sem lést fyrir
réttum 20 árum. Á tónleikunum
komu fram Milva, Georges
Moustaki, Ingrid Caven, Herman
van Veen og hljómsveit, Charles
Dumont, Michael Heltau og
Fílharmóníusveitin í Berlín og
fluttu lög sem Edith Piaf gerði
kunn. Kynnir er Michael Heltau.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
22.50 Sybil — síðari hluti. Bandarísk
sjónvarpsmynd frá 1976. Aðalhlut-
verk: Joanne Woodward og Sally
Field. Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
00.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
20. nóvember
16.00 Suunudagshugvekja. Baldur
Kristjánsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni. Aftur í skóla.
— Siðari hluti. Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi Osk-
ar Ingimarsson.
17.00 Frumbyggjar Norður-Amer-
íku. 3. Orð og efndir. 4. Endurreisn
í Nýju-Mexíkó. Breskur mynda-
flokkur um indíána í Bandaríkjún-
um. Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
18.00 Stundin okkar. Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Elín Þóra Friöfinnsdóttir.
18.50 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Augiýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Um-
sjónarmaður: Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
20.55 Taiwan. Bandarísk heimildar-
mynd um eyríkið Taiwan, íbúa
þess og sambandið við Kína fyrr
og nú. Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
21.55 Wagner. Níundi þáttur. Fram-
haldsmyndaflokkur í tíu þáttum
um tónskáldið Richard Wagner.
Efni 8. þáttar: Wagner hrökklast
frá Miinchen og sest að í Sviss
ásamt Cosimu og börnum hennar.
Lúðvík konungur kemur þangaö
dulbúinn. Hann vill segja af sér og
setjast að hjá vini sínum en Wagn-
er fær hann ofan af því. Mikil tíð-
indi gerast: Prússar ráðast á Bæj-
ara, „Meistarasöngvararnir” eru
frumsýndir í Miinchen við mikinn
fögnuð og langþráður sonur Wagn-
ers kemur í heiminn. Þýðandi Osk-
ar Ingimarsson.
22.55 Dagskrárlok.
Mánudagur
21. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Tommi og Jenni.
Sjónvarpsmyndin i mánudaginn hettir Wafter. Segir þar fré þroskaheftum
manni, sem settur er i geðveikrarhæiiþegar móðir hans deyr.
mynd. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision — Norska sjón-
varpið).
18.30 Smávinir fagrir. 3. Smádýr í
f jörunni. Sænskur myndaflokkur í
fimm þáttum. Þýðandi Oskar Ingi-
marsson. Þulur Karítas Gunnars-
dóttir. (Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
18.45 Fólk á förnum vegi. Endur-
sýning — 3. Nýir skór.
Enskunámskeið í 26. þáttum.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Nýjasta tækni og vísindi. Um-
sjónarmaður Sigurður H. Richter.
21.20 Dallas. Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi
Kristmann Eiösson.
22.10 McCoy Tyner. Bandariskur
djassþáttur með píanóleikaranum
McCoy Tyner og hljómsveit.
22.50 Dagskráriok.
Við fáum örugglega að sjá hana
Pamelu (Victoriu Principal) i Dallas-
þœttinum á miðvikudaginn.
Sjónvarp kl 21.10 á laugardagskvöldið:
Söngvaseiður
Glæsisýning til minningar um
söngkonuna Edith Piaf
„petta er meinhattar synmg og
mikill glæsileiki yfir þessu öllu,” sagði
Þrándur Thoroddsen sem er þýðandi í
sjónvarpsþættinum mikla „Söngva-
seiður” sem verður í sjónvarpinu á
laugardagskvöldið. Þetta er liðlega
eins og hálfs klukkutíma þáttur, þar
sem ýmsir þekktir söngvarar koma
fram. Þáttur þessi er haldin til minn-
ingar um frönsku söngkonuna Edith
Piaf sem lést fyrir réttum 20 árum.
Edith Piaf var átrúnaðargoð Frakka
og hún átti milljónir aðdáenda úti um
allan heim þegar hún lést. Gerðar hafa
Edith Piaf — eituriyfjasjúkiingurinn
og götudrósin sem heillaði miiijónir
með sinni fögru rödd. Það verður
heill þáttur um hana i sjónvarpinu á
iaugardagskvöidið.
verið kvikmyndir og skrifaðar margar
sögur um ævi hennar sem var vægt
sagtátakanleg.
Hún var eiturlyfjasjúklingur og
götudrós, sem þrátt fyrir frægð og
frama eftir að hún var að mestu búin
að ná sér upp úr svaðinu fann hvergi
hamingjuna.
Rödd hennar var alltaf jafnfalleg og
lögin og textarnir höfðuðu til allra.
Mörg lög hennar urðu heimsfræg, og
það eru þessi lög og mörg fleiri sem við
fáum að heyra í þættinum á sunnu-
dagskvöldið sem hefst kl. 21.10.
„Það er fólk frá mörgum löndum
sem syngur í þessum þætti, en mest
eru það þó Þjóðverjar,” sagði Þránd-
ur. Gamlar upptökur af henni sjást
þama einnig og undirleikarar hennar
og textahöfundar koma þarna fram.
Hennar lög eru sungin svo og lög um
hana og lög sem eru tileinkuð henni.
Þetta er mikill þáttur og langur, og ég
er viss um aö margir hafa gaman af að
horfa á hann,” sagði Þrándur að
lokum.
-klp-
20.50 iþróttir. Umsjónarmaður
Ingólfur Hannesson.
21.30 Allt á heljarþröm. Nýr
flokkur. — 1. þáttur. Breskur grín-
myndaflokkur í sex þáttum, sem
sýnir heimsmálin og þjóðar-
leiötogana í spéspegli. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
22.00 Walter. Ný, bresk
sjónvarpsmynd sem gerð er eftir
samnefndri bók eftir David Cook.
Leikstjóri Stephen Frears. Aðal-
hlutverk Ian McKellen ásamt Bar-
bara Jefford og Arthur Whybrow.
Walter er saga þroskahefts manns
sem gerist um og eftir 1960. Hann
elst upp hjá skilningsríkum for-
eldrum og móðir hans verður
helsta skjól hans í miskunnarlaus-
um heimi. Við lát hennar verður
Walter einstæðingur og er komið
til dvalar á geðveikrahæli.
Þýöandi Rannveig Tryggvadóttir.
23.15 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
22. nóvember
19.45 Fréttaágrip á tákmnáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Snúlli snigill og AUi álfur.
Teiknimynd ætluö börnum. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögu-
maður Tinna Gunnlaugsdóttir.
20.45 Tölvumar. Lokaþáttur.
Breskur fræðslumyndaflokkur
um örtölvur, notkun þeirra og
áhrif. Þýðandi Bcgi Arnar
Finnbogason.
21.25 Derrick. 3. Maðurinn frá
Portofino. Þýskur sakamála-
myndaflokkur. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
22.25 Hrun þorskstofnins — Hvað er
tii ráða? Umræðuþáttur um þann
vanda, sem við blasir vegna sam-
dráttar í þorskveiðum, og hvernig
bregðast skuli við honum.
Umsjónarmaöur Guðjón Einars-
son.
23.20 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
23. nóvember
18.00 Söguhoraið. Kaninuaugað.
Sögumaöur Grétar Snær Hjart-
arson. Umsjónarmaður Hrafn-
hildur Hreinsdóttir.
18.10 Fyrsta ástin. Norsk sjónvarps-
Föstudagur
25. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Á döfinni. Umsjónarmaður
Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
21.05 Kastljós. Þáttur um innlend og
erlend málefni. Umsjónarmenn:
Ingvi Hrafn Jónsson og Ögmundur
Jónasson.
22.15 Svindlararair. (Les tricheurs)
Frönsk bíómynd frá 1958. Leik-
stjóri Marcel Carné. Aðalhlut-
verk: Pascaie Petit, Andrea
Parisy, Jacques Charrier og Laur-
ent Terzieff. Myndin lýsir lífi ung-
menna í París, sem hafna smá-
borgaralegri lífsstefnu og hræsni,
og leit þeirra að lífshamingju.
Þýðandi Olöf Pétursdóttir.
00.20 Dagskrárlok.
Laugardagur
26. nóvember
14.30 Enska knattspyrnan. Leikur í
1. deild — Bein útsending.
17.15 Fólk á förmun vegi. 4. í at-
vinnuleit. Enskunámskeið í 26
þáttum.
17.30 iþróttir. Umsjónarmaður
Ingólfur Hannesson.
18.30 Innsiglað með ástarkossi.
Fjórði þáttur. Breskur unglinga-
myndaflokkur í sex þáttum.
Þýðandi Ragna Ragnars.
18.55 iþróttir — framhald.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Áuglýsingar og dagskrá.
20.40 Ættarsetrið. Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum. Þýöandi Guöni Kol-
beinsson.
21.10 Glæður. Um dægurtónlist síð-
ustu áratuga. 3. Árni Elfar. Árni
Elfar, píanóleikari og básúnuleik-
ari, leikur djasstónlist og segir frá
ferli sínum á sviði tónlistar og
myndlistar. Umsjónarmaöur
Hrafn Pálsson. Stjórn upptöku
Andrés Indriðason.
22.05 Reyfaramir. (The Reivers).
Bandarísk bíómynd frá 1970 gerö
eftir síðustu skáldsögu William
Faulkners. Leikstjóri Mark
Rydell. Aðalhlutverk: Steve
McQueen, Sharon Farrell, WiU
Maðurinn fri Portofino heitír myrtdin f þýska sakaméiam yndaflokknum,
Derrick, sem verður isjónvarpinu i miðvlkudagskvöldið.