Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Page 2
2
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984.
Lækurinn i Nauthóisvík hefur löngum verið vinsæll. Þóttust sumir fá bót meina
sinna við að baða sig þar þótt yfirvöld væru ekki á sama máli og lótu loka honum
vegna óþrifnaðar. Það kemur þó fyrir að vatni sé veitt í lækinn og eru þá oftast
margir til að notfæra sér það eins og þessir ungu borgarar sem ijósmyndari DVhittí
þar á dögunum.
tv
MATIONAL ENQUIREB
KeimHogers
Kenny Rogers, kántrísöngvarinn vinsæli og vellauðugur að
auki, hefur keypt Rolls Royce handa syni sínum. Þetta er
fallega gert en nokkuð óvenjulegt þegar það er haft í huga að
Christopher sonur hans er nýorðinn tveggja ára. Bílnum verð-
ur pakkað inn og hann geymdur og þegar Christopher verður
16 ára fær hann ökuskírteini og flunkunýjan bíl sem verður þá
15 ára gamall.
Þyngdfet
felenska
hió&in um
720
smálestir
iffír jólin?
Islendingar eru ógurlegir mat-
gæöingar í augum annarra þjóða enda
hafa margir útlendingar orö á því
hversu þrifleg þjóöin sé og bústin
utan um sig og þaö á tímum þegar
vestrænum þjóöum þykir flott aö vera
grannur og spengilegur.
En viö hér á Léttsíðunni erum ekkert
ginnkeyptir fyrir skrumi hinna grann-
iiolda og þess vegna hljóp okkur kapp i
kinn þegar tölfróður lesandi DV kom
að máli viö okkur strax eftir jólin og lét
okkur ókeypis í té mjög svo eftirtektar-
verðar upplýsingar um mataræöi
Islendinga um jólaleytið.
„Þaö er staöreynd,” sagöi hinn töl-
fróöi lesandi, „aö hver Islendingur
þyngist aö meðaltali um nokkum veg-
inn þrjú kíló yfir jólin og er þá reiknað
frá klukkan sex á aöfangadagskvöldi
fram á hádegi á nýársdag.”
En nú eru Islendingar hvorki meira
né minna en nærfellt 240.000 talsins,
sem er aö sjálfsögöu gífurlegur fjöldi
hjá jafnfámennri þjóð, og samanlagt
þyngist því íslenska þjóðin um 720
smálestir á þessum tíma og þaö er ekk-
ert smáræöi.
— En hvar hefurðu eiginlega komist
á snoðir um þetta? spuröum viö á Létt-
síðunni hrifnir og gæddum okkur
ósleitilega á bragögóöa marsipan-
brauöinu sem hinn töívisi lesandi dró
upp úr fellingum fatanna og bauð okk-
urmeösér.
„Eg hef veriö aö framkvæma þess-
ar rannsóknir mest upp á eigin spýt-
ur,” sagði hann. „Eg fer þannig aö aö
ég viröi fólk vandlega fyrir mér úr
ákveðinni fjarlægö fyrir jólin og síöan
á eftir. Þannig get ég slegið á
rúmmálsaukninguna og meö því aö
margfalda hana meö eðlisþyngd fit-
unnar fer ég ótrúlega nærri hinu rétta.
En mér finnst aö þiö ættuð aö birta
þetta á Léttsíöunni,” sagöi hann svo,
„því aö fjölmiölar eru alltaf aö fjalla
um ónýta rollukjötiö hjá Sambandinu
en enginn talar um allt þetta hand-
ónýta kjöt sem þjóöin er einlægt aö
rogast með utan á sér og þaö er sko
ekkert minna mál aö mínum dómi. ”
HvaÖ sky/du þesst
hafa þyngst mikiö yl
jó/in?