Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Page 6
6
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984.
Öll höfum við margoft lesið blaðafrá-
sagnir af hugvitssamiegum og blátt
áfram ótrúlegum brellum þeirra
vísindamanna sem fást við tiiraunir á
fóstrum manna og dýra og við höfum
líka flestöll veitt því athygii hve mjög
þeir færa sig upp á skaftið og verða sí-
fellt aögangsharðari við sköpunar-
verkið í sinni víðtæku tilraunastarf-
semi. Fyrir þremur áratugum eða svo
þótti það tíðindum sæta er nokkrir
menn fyrir vestan haf fóru að frysta
niður sæði úr mönnum og skepnum;
núna þykir slikt ekki lengur neitt
tiitökumál; núna eru visindamenn
farnir að íhuga frystingu fóstra og sölu
þcirra á opinberum markaði til þeirra
sem vilja.
En hvar er þá komið hhium náttúr-
lega gangi þessara mála? Og hvað um
allar þær fíngerðu tilfinningar sem
sérhver maður elur í brjósti gagnvart
samneyti kynjanna, getnaðinum,
meðgöngutímanum og fæöingunni?
Þaö er einfalt mál aö slá því föstu að
nú sé nóg komið, nú verði hinir betri
menn að taka saman höndum og
stöðva ósómann — en það er svo hætt
við því aö efndirnar yrðu minni um sig
en ásetningurinn.
Það er líka hægt um vik að trúa
engu, siá því fram að allar frásagnir
séu ýktar og þær framtíðarspár sem
grandvarir menn hafa sett fram séu
fals eitt og hégómi — en þeir sem
þannig mæla eru af því tæi manna sem
forðast vilja óþægilegar staðreyndir í
iengstu iög og lifa samkvæmt þeirri
lifsregiu að notaleg fáfræði sé fremri
BÖM
M* H.ÍVLT1.1-1 mW1
ARIMAR
beiskum sannleika — og milljón dæmi
sanna hvílikar hörmungar spretta iðu-
lega upp í gróðrarstíu þessháttar fá-
fræði og heimskunnar hroka.
Nýlega rakst ég á eftirtektarverða
grein í bresku timariti þar sem dregin
eru saman ýmis meginatriði þessa
viðkvæma máls og varpaði örlitlu ljósi
fram eftir þeim vegarsióöa sem
mannkynið hefur nú lagt inn á og ætlar
vist að feta á allra næstu áratugum.
Greinin er eftir konu nokkra að nafni
Sheila Kitzinger og birtist i janúarhefti
„Parents” og munum við hér víkja að
ýmsu því sem þar er um fjallaö þó aö
vitaskuld sé enginn kostur að gera
' neinskonar úttekt á stöðunni í þessum
efnum og þeirri þróun sem við biasir.
Má þó vera að síðar gefist tækifæri til
þess að leita álits fróðra manna
íslenskra og birta skoðanir þeirra á
síðum þessa dagblaðs, samkvæmt
þeirri ágætu grundvaliarreglu að
„sannleikurinn mun gera yður
frjálsa”.
-BH
Sjúkrahús nútímans hafa yfir að
iða tækjum og tólum til þess aö halda
'andi líkömum manna, sem lent hafa
slysum, þótt heili þeirra starfi ekki
ngur og teljist raunar dauður.
Frá því hefur veriö greint aö læknar
ífi þannig haldið gangandi skrokkum
ikkurra heiladauöra kvenna, vegna
:ss að þær voru vanfærar og ekki var
tja langt í burðinn. Þegar fóstrin
>ru oröin nægilega þroskuö voru þau
imin úr kviöi hinnar meövitundar-
usu móður meö skuröaögerð og
inunum síðan leyft aö deyja.
Harla ógeðfellt, kynni nú einhver aö
;gja — en hvað er í rauninni ógeðfellt
ö þaö að bjarga lífi barnanna smáu?
r ekki líklegt aö hinar ólánsömu
æður hefðu einmitt kosiö aö þessi
amgangsmáti yrði við haföur úr því
:m komiö var f yrir þeim?
Þaö sem valda kann einhverjum
ónotatilfinningu viö lestur slíkra frétta
er auðvitað sú staöreynd aö þarna voru
líkamir kvennanna notaöir nánast sem
einskonar sálarlaus buröarhylki eöa
fósturílát og síðan fleygt þegar þeirra
varekki þörf lengur.
En hvaö skal þá segja um alla þá
geysivíötæku tilraunastarfsemi sem
nú er stunduö víöa um heiminn á
eggjastokkum kvenna, legkökum
þeirra og sæði karla?
Sú starfsemi á sér langa sögu, mjög
langa. Á öldinni sem leiö varö banda-
rískur læknir til þess aö ríöa á vaðið
meö því aö frjóvga konu eina meö sæöi
úr námsmanni nokkrum og tókst þetta
bragö meö miklum ágætum en ekki
haföi eiginmanni hennar heppnast aö
gera henni barn þrátt fyrir góðan vilja
og margar atrennur.
Fyrir nokkurnveginn þremur ára-
tugum tóku menn upp á því að frysta
sæöi til geymslu og olli sú nýstárlega
tækni hreinni byltingu í nautgriparækt
og sauöfjárrækt, jafnt á Islandi sem
annars staöar í heiminum. Þá varð
nefnilega kleift aö dreifa erföalyklum
afburöagripa sem víðast þótt höfundur
þeirra væri löngu liðinn burt úr þess-
um heimi og má nærri geta hve mjög
þessi tækni varö til þess að bæta stofn
hinna ýmsu þarfadýra landbúnaöarins
víöa um löndin.
Sæðisbankar
og fósturbankar
Hin velþróaða frystingartækni
kemur einnig aö drjúgum notum viö
sæöingu kvenna. Erlendis hafa konur
sumstaöar aðgang aö sérstökum
sæðisbönkum þar sem þær geta aflað
sér þunga fyrir óbeina tilstilli hvers-
kyns andlegra afreksmanna, nóbels-
verölaunahafa og annarra sáösala sem
hafa getið sér orö fyrir afburða dugnaö
ogatorku.
Sæöisbankastjórarnir þykjast í
rauninni bjóöa betur en upphaflegu
sáösalarnir því aö þeir láta sáö-
frumurnar í sérstakar skilvindur og
greina þannig hiö góöa sæðiö frá hinu
gallaða.
Frystingartæknina má einnig nota
til þess aö varöveita fóstur langtímum
saman. Vísindamennirnir kunna á því
lagið aö pumpa hormónum í konur til
þess aö stórauka afköst eggjastokk-
anna; eggin eru síöan frjóvguö í
tilraunaglösum meö aðkeyptu sæöi og
fóstrin eöa fósturvísamir geymdir í
frysti uns þeim er fundinn staöur í
konukviði sem vitaskuld þarf að búa
undir hlutverk sitt meö viöhlítandi
hormónagjöfum.
Auk sæðisbankanna getum viö vænst
þess er stundir líöa aö fósturbankar
taki tii starfa og geti þar fólk í
uppeldishugleiöingum pantaö sér
fóstur meö þá eiginleika sem því hugn-
ast best þá stundina — bláeyg böm og
ljóshærö, grannvaxin og beinvaxin,
heilsteypt aö lundarfari og prýðilega
gefin.
Gert er ráð fyrir því aö mýmargar
konur, sem af einhverjum ástæðum
eiga bágt meö aö taka frjóvgun,
myndu nýta sér þessa þjónustu en
einnig er nú til umræöu aö hlífa konum
viö meögöngutíiiianum og ráða sér-
stakar konur til þeirra starfa — ef
störf skyldi kalla. Framgjarnar konur
og ómissandi í atvinnulífinu gætu þá
keypt af þessum kynsystrum aö ganga
með fóstur fyrir sig og afhenda þau í
fyllingu tímans og komist þannig sjálf-
ar hjá forföllum, ógleði og hinum
margvíslegu annmörkum meögöng-
unnar.
Mannsbarn í
spendýrskviði
Finnst einhverjum lesanda heldur
ósennilegt aö framtíðin muni þróast á
þann veg sem hér er lýst aö nokkru?
Þá er þess aö geta aö tilraunastarf-
semi í þessa veru er nú þegar í fullum
gangi og reynslan af síðustu áratugum
ætti aö sanna okkur áþreifaniega aö
ekkal veröur óhugsandi fyrir þá sök
eina að þaö er ókræsilegt — því að ekki
skal þaö véfengt aö ókræsilegar eru
margar þær aögeröir sem hér hefur
veriö drepiö á í stuttu máli.
Aö venju eru ítarlegar tilraunir
geröar á dýrum áöur en farið er
a® káklast viö konur og þaö er
"N^vert aö gefa því gaum hvaða
skref hafa veriö
Karlmenn hafa löngum þótt sleppa heldur billega við byrðar
meðgöngutimans en nú eru horfur 6 þvi að jafnrótti komist i i
þeim efnum sem öðrum því að uppi eru ráðagerðir um að
framieiða sérstakar legkökur iír plastí og öðrum efnum handa
körlum svo að þeir geti alið börn eins og konur.