Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Síða 8
Texti: Erling Æspelund
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984.
JONEE JONEE
ÍNEWYORK
Jonee Jonee er aö hasla sér völl í
New York. Þeldökkur bassaleikari,
Reggi Aiain, hefur gengið til liös viö
sveitina og er tónlist hennar orðin öliu
„svartari” fyrir vikið. Hljómsveitin
hélt tónleika í hinum góökunna Limbo
Lounge 15. þ.m. og fleiri uppákomur
eru ráðgeröar á næstunni. Hugsanlega
veröur gefin út plata í vor en í sumar
mun Jonee Jonee gera víöreist um
fósturjöröina með Reggi í broddi
fylkingar — þann blakka ástarguö.
Eg hitti Jonee Jonee á knæpu inn
daginn, neðarlega á sjöundu tröö, og
spjallaði viö hana um hljómsveitina,
bransann og borgina stóru, New York.
Eftir að hafa komið okkur fyrir viö
endann á löngum bar, pantaö bjór og
kveikt í vindlum, byrjuöu félagar
hennar að segja mér frá tónleikaferö
sem þeir fóru í um Italíu í september.
Til Ítalíu með
tveggja daga fyrirvara
Þaö bar helst til tíöinda eitt miöviku-
dagskvöld aö Einar í Gramminu
hringdi í Þorvar og sagði honum aö
Steini Þeysari heföi fengiö flensu. Þaö
vantaði því hljómsveit til aö vera full-
trúi Islands á alþjóölegri tónlistarhátíö
á Italiu, sem hæfist eftir tvo daga.
Hann sagöi þetta bara sí-svona, eins og
ekkert væri sjálfsagöara.
„Eg hélt aö maðurinn væri orðinn
eitthvaö skrýtinn,” segir Þorvar, „en
varö svo náttúrlega aö trúa honum
fyrirrest.”
Þetta var tilboö sem hann gat ekki
hafnað og hann vissi það. Gallinn var
bara sá að Jonee Jonee haföi ekki æft í
marga mánuöi og það sem verra var:
þaö vantaði bassaleikara. Þorvar átti
aö gefa Einari svar innan tveggja
klukkustunda og nú voru góö ráð dýr.
En þegar neyðin er stærst er hjálpin
næst eins og þar stendur, og ber er
hver aö baki nema sér bróöur eigi,
(svo aö við höldum aðeins áfram í
þessum dúr). I sama bili og Þorvar
er að gefa upp alla von,. hver kemur
þá blaðskellandi annar en Hringur
bróöir og meö honum frændi þeirra,
Bergsteinn, en sá hefur veriö potturinn
og pannan í Jonee Jonee ásamt Þor-
vari allt frá stofnun hljómsveitarinnar
fyrir þremur árum. Þeir ákveöa í
snatri aö kenna Hring á bassa og taka
hann meö, (Hringur minnist þess ekki
að hafa nokkum tímann snert á þessu
hljóöfæri fyrr), hringja íEinar, æfa sig
í sex tíma, pakka, kveðja og fljúga svo
út á föstudagsmorgni.
Óvæntar viðtökur
Þremenningarnir héldu tónleika í
Róm, Mílanó, Flórens, Bólognu og
Capri; tóku upp plötuna „Blár-
Azzurro”; og komu því til leiðar aö
Jonee Jonee veröur boöiö á sams-
konar tónlistarhátíð á Spáni á næsta
ári. Þeirslóguígegn.
„Viðtökumar áttu stóran þátt í því
aö viö ákváöum aö reyna fyrir okkur í
New York,” segir Bergsteinn. „Þær
vom vægast sagt ótrúlegar. Italirnir
trylltust. Ég hef aldrei séö aöra eins á-
heyrendur. Þeir höföu heldur aldrei
heyrt aöra eins músík. Viö vorum
greinilega eitthvaö alveg nýtt fyrir
þeim. En Italir em fyrst núna aö
uppgötva nýbylgjuna þannig aö þaö er •
e.t.v. ekki að furða þótt Jonee Jonee
hafi komiö þeim á óvart. ”
Tónleikaferöin stóö í hálfan mánuö.
Síðan héldu þeir félagarnir til New
York eftir þriggja daga viökomu á
Islandi.
„Fyrirtækið"
Þorvar og Hringur komu í fyrsta
sinn til New York fyrir tveimur árum.
Þá heimsóttu þeir eldri bróöur sinn,
Jón Oskar, sem hér er viö myndlistar-
nám. Þorvari leist þaö vel á aöstæður
aö hann skellti sér í hljóöupptökutækni
um síöustu áramót í „Institute of
Audio Researce” sem er angi af þeim
ágæta skóla New York University.
Hringur sigldi í kjölfariö í haust og er
að læra kvikmyndun viö The New York
School. Bergsteinn hefur aldrei komið
hingað áöur. Hann er einnig aö læra
hljóðupptökutækni viö Institute of
Audio Research og Reggi reyndar líka.
„Þetta er eiginlega upphafiö á fyrir-
tæki,” segir Hringur glottandi. „Þeir
sjá um að taka upp og gefa út
plötumar á meöan ég geri video-
myndirnar.”
Aö baki þessum oröum kann þó
aö leynast einhver alvara. Þótt
drengirnir hafi ekki haldið nema eina
tónleika til þessa hafa þeir verið iönir
viö aö koma sér upp samböndum.
Framtíöin lofar góöu. Líkur eru á aö
þeir spili í hinni velþekktu búllu CBGB
á næstunni svo og í Dansateríu, A7 og
jafnvelá Ritz.
Platan þeirra ,,Svonatorrek” hefur
heyrst nokkuö reglulega hjá þremur
„underground”-útvarpsstöðvum í New
Jersey og er þá kynnt sem þaö nýjasta
ííslenskri nýbylgju.
Skólafélagi Bergsteins, John, hefur
séö til þess aö Jonee Jonee mun
prufukeyra nýtt og fullkomið digital-
stúdíó, sem tekið veröur í notkun í
janúar.
Þetta mun vera næststærsta stúdíó
sinnar tegundar í New York. Eigendur
vantar hljómsveit til aö aðstoöa sig viö
aö kanna hljómburö og fyrir vikið fær
Jonee Jonee 30 tíma ókeypis.
Afraksturinn gæti oröið plata.
Þá hefur Jonee Jonee komist í
samband viö kunnan umboösmann,
Giorgio að nafni, sem er þó einna
þekktastur fyrir viötöl sín á MTV.
Hann hefur þegar útvegaö
drengjunum æfingahúsnæði og mun nú
vera meö einhverjar þreifingar í
gangi.
„John taldi aö ef viö kæmumst undir
vemdarvæng þessa náunga mundi
hann gera okkur fræga á einni nóttu,”
segir Bergsteinn.
Þá er bara aö bíða og sjá.
„Hún er svört og hvít
og reikar stræti um nætur"
Jonee Jonee hóf æfingar að nýju
fyrir mánuði. Hefur tónlist hennar
breyst frá þvi sem áður var?
„Músíkin hefur breyst þónokkuö,”
segir Bergsteinn. „Hringur bætist viö
og leikur nú á hljómborð og gítar.
Siðan erum viö komnir meö nýjan
bassaleikara sem hefur, eins og gefur
aö skilja, þau áhrif að þetta fer meira
út í svarta tónlist. Gömlu taktarnir
heyrast samt áfram.”
Hringur lýsir því yfir aö hljóm-
sveitin æth ekki aö laga sig aö
aöstæöum, heldur bjóöa upp á eitthvaö
nýtt. „Þaö er áberandi hvað hljóm-
sveitir hérna spila mikiö af dans-
músík. Viö ætlum að gera eitthvaö
annað.”
Eins og hvaö?
„Viö ætlum aö leika íslenska ný-
bylgju blandaða eþíópískri reggae-
tónlist,” segir Reggi og tónar síöar
eftirfarandi stöku, viö mikinn fögnuö
þeirra sem til heyra — einkum þó
vertsins:
She’ s black and white
And walks the street at night.. .
— She’ s Jonee Jonee in New York!
Abessiníumaðurinn Reggi
En hver er þessi Reggi — hinn nýi
blakki bassaleikari Jonee Jonee?
Reggi Alain er fæddur og uppalinn í
Eþíópíu. Faöir hans er Abessiníu-
maður en móöir hans bandarísk. Þau
hjónin voru lítiö hrifin af mennta-
kerfinu í Eþíópíu og sendu son sinn í
einkaskóla til Ameríku þegar hann var
sex ára. Þar undi Reggi glaður viö sitt
fram til fjórtán ára aldurs en þá fór
hann til Spánar, þar sem hann dvaldi í
sex ár. Hingað kom hann fyrir rúmu
ári og lítur nú á sig sem Abessiníu-
mann frekar en Kana. „Eg vil sem
minnst eiga saman viö þá að sælda,”
segir hann.
Og hvemig lenti hann í slagtogi meö
JoneeJonee?
„Eg bjó meö tveim Islendingum í
Barselóna, þegar ég var þar í há-
skóla, þeim Agh Mássyni og Þorra,”
segir Reggi. ,,Smám saman lærði ég aö
þekkja þessa takta sem Islendingar
hafa og fannst jafnvel á köflum eins og
ég væri aö breytast í „landa”. (Hann
segist hafa talaö íslensku upp úr
svefni, lygnir aftur augunum og gefur
sýnishorn: „þrrótzunndikunndípúlandi
. . . Neeiiiii!)
Nú, fljótlega eftir aö ég byrjaöi í
Institute of Audi Reserace varö ég var
viö náunga sem ég vissi aö hlaut aö
vera íslenskur. Eg fylgdist meö honum
dágóöa stund, læddist síöan aftan aö
honum og hrópaði (á ástkæra ylhýra
málinu aö sjálfsögðu): „Islendingur! ”
Þorvar fraus! Eg hef aldrei séð
nokkrum manni bregða jafnrosalega.
Þetta var frábært! (Þorvar horfir
lúpulegur niöur í bjórinn sinn.)
Islendingar eru nokkuö auöþekkjan-
legir. Þeir skera sig úr.
Viö urðum síöan hinir mestu mátar,
lékum saman í nokkrum samkvæmum
í vor og ákváöum aö stofna hljómsveit
í haust þegar Hringur og Bergsteinn
komu. Eg vissi bara ekki aö þessir
drengir væru svona afkáralegir útlits
— sérstaklega Bergsteinn. Þú ættir aö
sjá hann í svörtu sokkabuxunum!
Getur maöur látiö sjá sig á sviði meö
þessu?”