Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Qupperneq 10
SEAN
Sean Connery segir aö það hafi verið
Roguebrune, kona hans, sem hvatti
hann til að snúa aftur til upprunalega'
James Bond hlutverksins. Hún taldi að
þaö gæti verið athyglisvert og
skemmtilegt fyrir hann aö leika aftur
007 í Never Say Never Again.
En Connery, sem er 52 ára, segist
aldrei munu segja já aftur jafnvel þó
að þessi mynd slái í gegn.
„Þetta veröur allt og sumt, segir'
hann, klæddur hertygjum til að leika í
miðaldaleikriti sem heitir Sword of the
Valiant.
„Hérsetégmörkin.. .”
Never say never again er endurgerð
á Thunderball. I þeirri mynd lék
Connery Bond fyrir 18 árum.
Kevin McClory, framleiðandinn, átti
réttinn á sögunni og hann afsalaði
honum upphaflega til Cubby Broccoli
sem á réttinn á næstum öllu ööru efni
frálanFleming.
Eftir tíu ár voru endurgeröarréttind-
in hvers sem vildi og McClory samdi
við framleiðandann, Schwartzman,
sem fékk Connery til að leika í mynd-
inni. Þá voru liðin 13 ár frá því að
Connery lék Bond. Síðasta mynd hans
hafði verið Diamonds are forever.
Thunderball hefur veriö ástæða
deilna í næstum tuttugu ár. Jafnvel
eftir að endurgerðin var fullunnin var
reynt að stöðva útkomu hennar af
erfingjum Ian Fleming. Dómstólar í
London höfnuöu þeirri kröfu.
McClory byrjaöi að nauða í Connery
fyrir tveimur árum að leika í kvik-
myndinni og fékk brátt hjálp frá
Schwartzman. Micheline lagði þá loka-
hönd á verkið.
„Hún sagði að það gæti verið gaman
að reyna þetta,” segir Connery. Hún
sagöi að ég skyldi prófa. Því meira
sem ég velti málinu fyrir mér þeim
mun skemmtilegra taldi ég að það gæti
verið.
From Russia
with love uppáhaldið
Hann tók hlutverkinu þegar fram-
leiðendumir voru búnir að sannfæra
hann um að allar lagalegar flækjur
væru greiddar og ábyrgðust það að
hann yrði aö minnsta kosti ekki á neinn
hátt gerður ábyrgur.
„Viö settumst allir niður með höf-
undi og stjórnanda og enduðum eftir
þá vinnu með það sem ég tel vera gott
handrit,” segir Connery.
, ,Fyrir mér erBond 13 árum eldri en
hann passar nokkum veginn enn í
gömlufötin sín.”
Connery segist alltaf hafa verið
ánægður með Thunderball í aðalatrið-
um. Hann nefnir samt From Russia
with love sem uppáhaldsmynd sína.
Það er á hreinu aö Micheline setti
Connery aftur í hlutverkið sem Bond
en þaö er þins vegar ekki eins ljóst
hvers vegna hann hætti upphaflega að
leika Bond eins geysilega vinsæll og
hann var.
Aldrei aftur aldrei
A tríöi ur Never say never again.
Frá mínum bæjardyrum séð er Bond 13 árum e/drí en fötinpassa ennþá nokkum veginn.
DV. LAUGARDAGUR 7. JANÚAR1984.