Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Side 11
"tr '
DV. LÁÚGARDAÖUR 7. JÁnÚÁR 1984.
11
t’OWERY
Næstum óþokkjanlegur Connery
eins og hann kemur fram i Sword
OfThe Valiant.
Sumir segja að hann hafi verið
óánægður með það sem hann fékk í
sinn hlut. Að hann hafi talið sig undir-
borgaðan þrátt fyrir þá staðreynd að
hann var orðinn milljónamæringur af
leiknum.
Aðrir segja að Connery hafi ekki
ráöiö við þessa persónu — James
Bond. Að hann hafi átt i erfiöleikum
með að greina sjálfan sig frá þessari
byssuglöðu og kvensömu ímynd.
Úr brúnum skóm
í svarta
Hann var sannarlega ekki fæddur í
þetta hlutverk, sonur vörubílstjóra frá
Edinborg í Skotlandi.
Hann gekk í herinn 16 ára og þremur
árum síðar stóð hann á eigin fótum.
Eins og pabbi hans f ór hann að key ra
vöruflutningabíla. Þá fór hann í að
leggja tígulsteina og réð sig sem kór-
dreng í Lundúnauppfærslu South
Pacific.
„Eg var auðvitað aö leita að ein-
hverju sem ég hafði ekki fundið,” segir
hann.
Þá réð hann sig hjá litlu leikfélagi í
úthverfi London. Þar lærði hann „nóg
til að vita að hann kunni ekki nóg”.
Framleiðandinn Cubby Broccoli sá í
Connery þá líkamlegu eiginleika sem
Bond voru gefnir. „Stórhættulegur at-
vinnunjósnari sem hefur leyni-
þjónustunúmer með forskeytinu 00
sem gefur honum leyfi til að drepa.”
Connery var nógu hávaxinn og sterk-
ur. Hann hafði einnig útlit James Bond
fyrirutan ,,ör niður hægrikinn og öxl”,
eins og Ian Fleming lýsti því. Vöðvar
hans voru einnig stæltir af vinnu.
Broccoli segir: „Hann var dálítiö
svakalegur en þaö var ekkert vanda-
mál. Við færðum hann úr brúnu
skónum og settum hann í svarta og
hann varorðinn fínn.”
Eftir fimmtu Bond mynd Connerys,
You only live twice, hætti hann til að
„leita að sjálfum sér og stofna eigin
fyrirtæki.”
I næstu mynd notaöi BroccoU George
Lazenby, Ástralíumann, búsettan í
London, sem aöalleikara. Þeir hittust
upphaflega hjá rakara BroccoUs.
I dag er Lazenby fljótur aö viður-
kenna að nokkur vandamál hafi fylgt í
kjölfar þess að vera algerlega
óþekktur í að verða heimsfrægur.
„Frá því að fá ekki borö á veitingastað
í þaö að geta látið hreinsa húsið.”
Eftir gerð myndarinnar skUdi sam-
stundis með Lazenby og BroccoU.
Connery tók svo aftur við og lék í
síðustu Bond mynd sinni með miklu
hærri laun. En hann sagði eftir hana:
„Aldrei aftur”. DáUtið kaldhæðnisleg
yfirlýsing í ljósi síðari tíma.
Lék Hróa
Næst gerði hann mynd nefnda The
Offence um þreytulega löggu sem
lemur fórnarlamb sitt tU dauðs. Aðdá-
endur hans voru ekki ánægðir.
Hann gerði það aðeins betur með The
HiU sem Sidney Lumet leUístýrði og
aðrar, eins og Murder On the Orient
Express, The wind and the Uon og The
man who would be king, gengu betur.
En inn á mUU voru myndir sem hann
vildi gjarna gleyma eins og Zardoz
sem átti að gerast 2293 og Ransom sem
f jaUar um mannrán.
Hann lék jafnvel aldurhniginn Hróa
hött þar sem Audrey Hepbum lék
Maríon. Hann lék líka í A bridge too far
og fleiri myndum. Núna leikur hann i
Sword of the VaUant, hlutverk sem er
gjöróUkt því sem hann hefur áður
fengist við. Hann segir ástæðuna vera
afbragðsgott handrit. Hann segir:
Efniö er skemmtilegt og athygUsvert
og auk þess hefur myndin siögæðisboð-
skap.”
Sean hefur alltaf gert djarflegar
myndir sem ekki hafa fariö eftir
duttlungum áhorfenda. Þetta á ekki
síst viö eftir því sem hann hefur elst og
orðið ríkari. „Hvort sem þær hafa
verið réttar eöa rangar þá hef ég alltaf
tekiö mínar eigin ákvarðanir. En þar
sem mér stendur enn þann dag í dag til
boða að leika í fjölda mynda þá hlýt ég
að gera eitth vað rétt. ’ ’
Eg er einnig leikari sem hefur ekki
áhyggjur af aldri. Eg þarf ekki að eiga
í því hugarstríði hvort ég sé með aðal-
hlutverkiö.”
SUÐURLANDSBRAUT 20
SÍMI 82733
Láttu okkur framkallá jólamyndirnar
fyrir þig og þú færð þær 30% stærri,
á veröi venjulegra mynda.
Framköllum allar gerðir filma,
bæði svart - hvítt og lit
FILMUMÓTTÖKUR:
Regnboga-litir hf., Suðurl.br. 20, R.
Söluturninn Siggi & Valdi hf., Hringbr. 49, R.
Bíla- og bátasalan, Hafnarfirði. '
Tískuversl. Lips, Hafnarstr. 17, R.
Spesían, Garðabæ
Bókabúð Braga, Lækjargötu 2, R.
Söluturninn Örnólfur, Snorrabr. 48, R.
Bókav. A. Bogas. - E. Sigurðsson, Austurvegi 23, Seyðisf.
Versl. Ós, Knarrarbergi 2, Þorlákshöfn
Versl. Þór, Búðavegi 35, Fáskrúðsfirði
Gestur Fanndal, Suðurgötu 6, Siglufirði
Kf. Þór, Þrúðvangi 31 Hellu
Kf. V-Barð., Hafnarbr. 2, Bíldudal
Rafeind, Bárustíg 11, Vestmannaeyjum.
Ef þú sendir okkur filmu í pósti,
sendum við þér myndirnar um hæl,
ásamt nýjum filmupoka.
aftur aldrei aftur ald...