Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1984, Side 19
DV. LAUGARDAGUR 7. JANUAR1984.
19
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Um jólin reyna flest kvikmynda-
húsin aö skarta sínu fegursta meö
því aö bjóöa upp á nýjar og vinsælar
stórmyndir. Meðal jólamyndanna
hérlendis eöa erlendis má sjá Sean
Connery í hlutverk James Bond í
Never Say Never Again og sprellgos-
ana Eddie Murphy og Dan Ackroyd í
John Landis myndinni Trading
Places. En þaö er ein mynd sem
veröur frumsýnd um jólin í Evrópu
sem stingur dálítiö í stúf viö hinar
jólamyndirnar. Þaö er hin rándýra
mynd Jaws D-D sem hefur halaö inn
peninga vestanhafs. Eins og nafniö
gefur til kynna er hér um að ræða
þriöju myndina í óvættamynda-
flokknum og þaö sem gerir hana svo-
lítiö ööruvísi er aö hún er tekin í 3-D.
Svo viröist sem kvikmynda-
framleiðendur hafi enn einu sinni
dregiö fram í sviösljósiö 3-D tæknina
í þeirri von aö laða fleiri áhorfendur
inn í kvikmyndahúsin. Þessar
myndir hafa skotiö upp kollinum
meö reglulegu millibili en blóma-
skeiö 3-D myndanna var á árunum
1950—1955. Þá voru kvikmynda-
framleiöendur hræddir viö vinsældir
sjónvarpsins og notuöu 3-D tæknina
sem vopn gegn því. Nú er annað upp
á teningnum því ætlunin er aö 3-D
myndirnar keppi viö myndsegulbönd
og tölvuleiktæki. Því er von á þó
nokkrum nýjum 3-D myndum á
næstunni, ekki síst eftir aö Jaws 3-D
fékk svona góöar viðtökur.
3-D og sjónvarpið
En þaö eru ekki bara kvikmynda-
húsin sem sýna 3-D myndir. Haustiö
1982 sýndi lítil óháð sjónvarpsstöö í
Los Angeles 3-D myndina The Mad
Magican (1954). Yfir 3 milljónir
manna keyptu sér sérstök gleraugu
sem voru til sölu svo aö sjónvarps-
áhorfendur gætu skynjaö þrívíddar
eiginleika myndarinnar.
Síöar sama ár sýndi bresk
sjónvarpsstöö fyrstu 3-D myndina
sem sýnd var í sjónvarpi þar í landi.
Var þaö myndin The Real World.
Aformaö var aö framleiða um þaö bil
60 myndir í 3-D áriö 1983 — allt frá
safnmyndinni The 3-D Movie yfir í
hörku klámmynd sem átti að heita
Sexcalibur. Sum stóru kvikmynda-
verin eins og Columbia, Paramount
og Walt Disney voru talin vera að
framleiða 3-D myndir í laumi sem
áttu síðan að koma öllum á óvart.
Einnig var talað um að setja í
dreifingu nokkrar 3-D myndir sem
höfðu aldrei verið settar í almenna
dreifingu af ýmsum ástæöum. Má
þar nefna myndina Domo Arigato
sem Japaninn Arch Oboler geröi
1972. Sumt af þessu rættist og
auösýnilegt er aö 1983 markaði
nokkur tímamót í framleiðslu 3-D
mynda. Hvort framhald verður á
þessum vinsældum 3-D mynda eða
hvort einhver önnur ný tækni taki
við getur tíminn einn skoriö úr um.
Byrjunin
En hver er saga 3-D myndanna?
Breski kvikmyndafrumkvöðullinn
William-Friese-Greene er yfirleitt
talinn upphafsmaöur þrivíddar-
mynda, þótt eins og með marga hluti
sé erfitt að sanna þaö vegna skorts á
skríflegum heimildum. Friese-
Greene notfærði sér vísindi sem lágu
aö baki tækni sem nefndist „View-
master”. Tvær ljósmyndir voru
teknar af sama hlutnum. Þegar
síðari myndin var tekin var mynda-
vélin færö um tvo og hálfan þumlung
sem er fjarlægöin milli augnanna.
Þegar þessar myndir voru svo skoð-
aðar gegnum Viewmaster fengust
þrívíddaráhrif. Friese beitti þessu
lögmáli viö kvikmyndir. Notaöar
voru tvær kvikmyndatökuvélar
samtímis til myndatöku. Myndin
sem vinstra augaö átti aö sjá var
lituð rauð en þaö sem hægra augað
sá var litaö grænt. Viö filmuvinnslu
voru þessar filmur settar saman og
þegar horft var á filmuna meö
rauöum og grænum gleraugum feng-
ust þrívíddaráhrifin.
Þann 27. september 1922 leit dags-
ins ljós fyrsta stórmyndin í 3-D. Hún
bar heitið The Power Of Love og var
fimm spólu mynd meö Barböru Bed-
ford og Noah Berry í aðalhlutverk-
um. Frumsýningin fór fram meö
miklum glæsibrag í Ambassador
hótelinu í Los Angeles.
Hryllingsmyndin House of Wax er ein vinsælasta 3-D myndin sem gerð hefur verið.
AIAiTI
ÞRÍY'ÍDD
Margt bendir til þes§ ad 3-D myndir séu ad
kemast einu sinni enn i tísku medal bíégesta
Líkt og frá öðrum heimi
Tveimur dögum seinna mátti lesa í
blaðadómum eftirfarandi lýsingu.
„Ahorfendur báru gleraugu sem
gerði þá alveg eins spennandi á aö
horfa og myndina sjálfa. Svo áhrifa-
mikil eru þrívíddaráhrifin aö erfitt
var að fylgjast með efnisþræðinum
vegna þess aö hugurinn vildi dvelja
viö tæknina.”
Fjölmargar tæknilegar útfærslur á
3-D tækninni komu fram á sjónar-
sviöið þótt allar byggðu þær á sömu
grundvallarlögmálunum. Haustiö
1922 kom Wiiiam van Doren Kelley
fram meö Plasticon, útfærslu á 3-D
tækninni, og nokkrum árum siöar
voru framleiddar nokkrar stuttar 3-
D myndir meö þessari tækni sem
nefndust Plastigrams. Einn af stofn-
endum Essany fýrirtækisins vann
baki brotnu viö aö fullkomna
þrívíddartækni sem bar heitið
Natural Vision. Ein mynd var aö
minnsta kosti kvikmynduð meö
Natural Vision og var þaö Danger
Light (1930) meö Louis Wolfheim og
Jean Arthur í aöalhlutverkum. Næst
tók viö Teleview sem Laurens
Hammond og William F. Cassidy
voru upphafsmenn aö. I staö gler-
augna horföu áhorfendur nú gegnum
sérstakan glerskerm. Myndin Mars
(sem einnig gekk undir nafninu
Radio Mania) var tekin í Teleview en
hún fjallaöi um uppfyndingamann
sem reyndi að smíöa talstöð sem
gæti komið honum í samband viö
Marsbúa.
Abel Gance hugleiddi á þessum
tíma aö kvikmynda Napoleon (1927)
í 3-D en hætti viö. En aðrar myndir
frá þessum tíma voru m.a. Audio-
scopiks (1936) eftir Peta Smith og
svo Third Dimension Murder (1941)
sem var kvikmynduð meö nýrri
tækni sem nefndist Metroscopix 3-D.
Ný útfærsla
Nokkur tímamót uröu í framleiöslu
3-D mynda þegar Edwin H. Land
kom fram með Polaroid tæknina.
Með því aö beita henni tókst John A.
Hryllingsmyndir virðast mjög vinsælar meðal 3-D framleiðenda. Hér er atriði ur myndinni Creature from
the Black Lagoon.
Norland aö gera „polariseraða”
þrívíddarmynd. Ekki nóg meö þaö
heldur var hægt aö nota þessa tækni
á litmyndir. Til aö sýna þessar
myndir þurfti þó tvær sýningarvélar
sem var mikill ókostur. Þetta
kraföist mikils af sýningarmann-
inum sem varö að sjá til þess aö
báðar vélarnar væru samhæfðar.
Þegar myndin var sýnd voru settar
ljóssíur fyrir framan sýningar-
vélarnar. Onnur hleypti láréttum
ljósbylgjum í gegn en hin
lóöréttum. Sama gilti um gleraugun
sem kvikmyndahúsagestir uröu aö
setja upp.
Fyrsta myndin sem byggð var á
þessari tækni var 15 mínútna
kynningarmynd um Chrysler fyrir-
tækiö sem gerö var vegna heims-
sýningarinnar í New York áriö 1939.
Taliö var aö meira en 1,5 milljón
manna hafi séð þessa mynd. Begg-
ar’s Weekend (1936) var framleidd á
Italíu en frá Þýskalandi komu tvær
3-D myndir, eöa You Can Nearly
Touch H (1937) og Six Girls Drive
Into The Weekend (1939). Jafnvel
Rússarnir notfæröu sér Polaroid
tæknina sem virtist hafa tekiö
heiminn með trompi.
Gullaldarárin
Næstu tíu órin var hljótt um 3-D
myndir, eða þar til að þeir Milton
Gunzburg og Arch Oboler óttuöu sig
áriö 1952 á því hve mikUr möguleikar
gætu legið í 3-D myndum. Þeir
framleiddu sama ár Bwana Devil,
sem fjaliaöi um yfirmann verktaka-
fyrirtækis í Afríku sem ákvaö að
leita uppi tvö ljón sem höföu orðiö
fólki aö bana þar í landi. Þótt myndin
væri ómerkilegt rusl þá varö hún
gífurlega vinsæl og var m.a. skrifað
um hana í Time aö þarna væri ef til
vill komin merkilegasta kvikmyndin
sem Hollywood hefði framleitt síðan
The Jazz Singer var gerö.
ÖU stóru kvikmyndaverin í Holly-
wood hlupu upp til handa og fóta og
hófu undirbúning á framleiöslu fleiri
3-D mynda. Viöbrögðum HoUywood
var ef til vill best lýst af fram-
leiðandanum Bill Thomas sem var
spurður hvort hann héldi aö áhorf-
endur myndu vilja vera meö sérstök
gleraugu. Hann sagöi, „þeir myndu
bera um hálsin klósettsetu ef þeir
fengju þaö sem þeir eru aö leita
eftir.”
Hámarki náði þetta 3-D myndaæöi
áriö 1953 en þá voru framleiddar
meira en 60 myndir í 3-D. Merkileg-
asta og einnig vinsælust reyndist
vera House Of Wax sem framleidd
var af Warner Brothers og var hér
um aö ræða endurútgáfu á myndinni
My stery Of The Wax Museum (1933).
Það sem koma skal?
Fleiri myndir frá þessum tíma eru
It Came From Outer Space (1953),
Man In The Dark (1953) og Creature
From The Black Lagoon (1954), aUt
þekktar myndir. En eftir gullaldar-
árið 1953 þá voru ekki framleiddar
meira en 30 myndir áriö 1954. Þar á
meðal var Hitchock myndin Dial M
For Murder þótt fólk fengi ekki að
sjá þrívíddarútgáfuna fyrr en 1979 í
Los Angeles. Eftir 1954 voru örfáar 3-
D myndir framleiddar því aö ný
tækni haföi rutt sér til rúms en það
var Cinemascope. Þessi tækni gaf
ekki eins flata mynd og venjulega
tiökaöist og fólk þurfti ekki aö hafa
sérstök gleraugu til aö njóta hennar.
A árunum 1970—1975 tóku 3-D
myndir smá f jörkipp. Má þar nefna
myndirnar The Stewardess (1970) og
Andy Warhol myndina Frankenstein
sem sýnd var í Bíóbæ nýlega.
Universal kvikmyndaveriö notaði
tækifærið og setti aftur á markaðinn
nokkrar af gömlu 3-D myndunum
sínum eins og It Came From Outer
Space. Áriö 1982 kom svo Friday The
13th Part II í 3-D og halaöi hún inn
peninga hvarvetna og vakti einu
sinni enn áhuga kvikmyndaveranna
á tækninni. Nú er þar aö auki hægt aö
bjóöa upp á 3-D myndir á 10 rása
Dolby stereo kerfi og tækninni varð-
andi útfærslu 3-D hugmyndarinnar
fer stöðugt fram. Þaö er því fátt sem
bendir til annars en aö viö munum fá
aö sjá hér á Islandi þó nokkrar
þrívíddarmyndir á næstunni.
Baldur Hjaltason.