Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1984, Síða 14
14
AUGLÝSENDUR
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ
Vegna siaukinnar eftirspurnar eftir augiýsingarými i DV verðum viö að fara ákveðiö
fram á það við ykkur að panta og ski/a til okkar auglýsingum fyrr en nú er.
LOKASK/L
FYRIR
STÆRRIA UGL ÝS/NGAR:
_________Vegna mánudaga:
FYRIR KL. 17 FIMMTUDAGA
Vegna þriðjudaga:
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA
Vegna miðvikudaga:
FYRIR KL. 17 MANUDAGA
Vegna fimmtudaga:
FYRIR KL. 17 ÞRIÐJUDAGA
Vegna föstudaga:
FYRIR KL. 17 MIDVIKUDAGA
Vegna Helgarblaðs h
FYRIR KL. 17 FIMMTUDAGA
Vegna Helgarblaðs II:
(SEM ER EINA FJORLITABLAÐID)
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA NÆSTU VIKU A UNDAN
AUKALITIR ERU DAGBUNDNIR
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.30.
A uglýsingadeild
Siðumúla 33 simi27022.
VIDGETUM
LETT ÞER SPORIN
OG AUDVELDAÐ ÞÉR FYRIRHÖFN
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á móti skriflegum tilboðum
virka daga kl. 9—22
OPIÐ: laugardaga 9—14
sunnudaga kl. 18—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og
þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17.
SÍMINN ER 27022.
ATHUGIÐ
Ef smáauglýsing á að birtast í heigarblaði
þarf hún að hafa boristfyrir kl. 17föstudaga.
SMÁAUGLÝSINGADEILD,
ÞVERHOLT111, SÍMI 27022.
DV. FÍMMT UDÁG'UR '5.JÚLÍ 1984.
Líknarstarfsemi í
kaupfélagi
— selur lyf með 86% álagningu
1 þeirri skarlatssótt, sem gengiö
hefur yfir landiö, bæði i blööunum og
eins milli manna, eftir að almenning-
ur fór aö heimta þann trúnað, sem í
því er falinn að fá að velja kartöflur,
hafa ýmsir reynt að notfæra sér
vanda landbúnaðarins til árása á
samvinnuhreyfinguna og á Fram-
sóknarflokkinn, þótt einnig hafi verið
ritað töluvert af yfirveguðum og
vönduðum greinum um landbúnað-
inn og búvöruverslunina. Og því hef-
ur þaö ekki farið fram hjá neinum,
að við mikinn vanda er nú að etja í
landbúnaði, og ef til vill veröur að
leita allt til áranna eftir 1896 til þess
aö finna hliðstæðu en þá hættu Eng-
lendingar að kaupa hér lifandi fé.
Þá stóðu landsmenn þannig gegn
þessum nýja afuröasöluvanda, „að
’eir höföu varla neina frambærilega
verzlunarvöru, sökum ónógrar verk-.
kunnáttu og frumbýlingsskapar í
framleiðslu” eins og segir orðrétt í
afmælisriti Kaupfélags Eyfirðinga,
er gefið var út þegar félagið varð 80
ára.
Menn reyndu þá að skera fé sitt
sjálfir, og söltuðu opin beinbrot á
tunnur, er oft voru grafnar, af yfir-
völdum ef þær komust þá á erlendan
markaö.
Einnig verður manni hugsaö til ár-
anna fyrir 1854 til að finna samjöfn-
uð og til tilrauna séra Þorsteins Páls-
sonar á Hálsi, sem árið 1844 reyndi
fyrir sér með að koma á samtökum
meðal bænda til að semja um viö-
skipti heilla sveita, með það fyrir
augum að ná hagstæðari verslunar-
kjörum.
Það kom hins vegar síðar í hlut
kaupfélaganna að sinna þeim vanda,
„að útvega landsmönnum erlendar
vörur á sem hagkvæmustu verði og
byggja upp framleiöslu á góöri gjald-
vöru og selja í staðinn fyrir hæsta
fáanlegt verö” eins og orðrétt segir í
sama riti.
Með öðrum orðum. Það var sumsé
hið upphaflega markmið samvinnu-
starfsins að búa til gjaldvöru úr af-
urðum sveitanna og selja fyrir hæsta
mögulegt verð og eins að tryggja er-
lendar vörur á sem hagkvæmustu
verðL
Þótt látið hafi verið aö því liggja,
að samvinnufélögunum hafi til þessa
gengið öllu betur með gjaldvöruna
en það síðarnefnda, þá er því ekki að
leyna, aö kaupfélögin fóru ekki öll
sömu leiðir og KEA, er stundar fjöl-
þættan iðnaö, slátur, ullarvélar og|
fiskveiðar, auk verslunar. Onnur
stór félög einbeittu sér mest að versl-
un, ásamt þjónustuiðnaði, eins og
t.d. Kaupfélag Árnesinga, er lítið
stundar þá iðju að búa til gjaldvöru.
Þaðverslar.
Aðalfundur leitar að innan-
meinum
Samvinnuhreyfingin er fjölda-
hreyfing, sem er í sífelldri endur-
skoðun. Og má í því efni vitna til orða
formanns SlS, Vals Arnþórssonar, er
hann viðhaföi eftir aðalfund Sam-
bandsins í vor, er þýðingarmiklar
áætlanir í myndbandagerð og skipu-
rit höfðu verið felld af þorra full-
trúa, er í Bifröst sátu og leituöu inn-
anmeina í samvinnuhreyfingunni.
Höfðu þar einkum forystu þeir fram-
sóknarmenn, er upphefð sína hafa
hlotið fyrir að fara í framboð fyrir
aðra flokka.
Ekkert skal um það sagt hvort rétt
hafi verið að leggja tvær milljónir
króna í ísfilm með Reykjavíkurborg,
Árvakri og Almenna bókafélaginu,
en á hinn bóginn söknuðu ómegöar-
menn þess, að ekkert var rætt um
verðlag í búðum. Ekki heldur um
gjaldvöru, þótt nú um stundir stefni í
það, að eyða þurfi 5-600 milljónum
króna í útflutningsbætur.
Þótt vitaskuid verði erlend lán tekin
til þess að borga þá varðar fólk á
góðum aldri einnig um þá gjaldvöru,
þótt þaö komi í hlut óvitanna og óbor-
inna Islendinga aö borga, þegar þau
miklu lán f alla í g jalddaga.
Það er því vondur tími núna aö finna
að smásöluverslun kaupfélaganna,
en hjá því verður ekki komist því
fjöldi fólks, bæði þeir sem eru fastir í
kaupfélagi og aðrir, hefur til þessa
mátt treysta því, nokkurn veginn að
minnsta kosti, að óhætt sé að versla I
kaupfélagi.
Ekki endilega að þar sé verðið
lægst á hverri einingu, heldur var
það hitt, að menn halda að kaup-
félagið muni vera í lægri kantinum í
verðlagningu og álagningu, saman-
ber baráttu séra Þorsteins Pálssonar
og síðar þeirra, er sáu draumana
rætast, er búið var að stofna fyrstu-
kaupfélögin og SIS. Og því vill undir-
ritaður hér, hvað sem innanmeinum
í hinni prentuðu dagskrá aðalfundar
Sambandsins líður, vekja athygli á
lyf javerslun Kaupfélags Ámesinga á
Selfossi, en við lestur á reikningi
kaupfélagsins verður manni það
nefnilega til efs, að þetta mikla félag
haldi velli, nema lyfjabúö þess gangi
vel. Eða með öðrum orðum, að
heilsufarsástandið á félagssvæðinu
verði nægjanlega bágborið áfram,
svo félagið geti með okri á meðulum,
haldið öðrum rekstri gangandi, því
Kaupfélag Árnesinga selur sjúkum
lyf um þessar mundir með 86%
álagningu. Og græðir með þeim hætti
milljónir króna árlega á veikindum
félagsmanna sinna, þrátt fyrir stóra
spítala og heilsugæslustöö á Selfossi.
Peningana eða lífið
Eins og meöfylgjandi reikningur
ber með sér, seldi lyf jabúð KÁ á Sel-
fossi meðul fyrir tæpar 20 milljónir
króna í fyrra og tók til sín fyrir það
tæpar 9 milljónir króna. Og þegar
rekstrargjöld hafa verið dregin frá
varð hagnaður fýrir sameiginlegan
kostnaö og vexti um fimm milljónir
króna, sem er náttúrlega fýrir neðan
alltvelsæmi.
Nú er brátt liðin hálf öld síðan
samvinnumenn opnuðu sína fyrstu
lyfjabúð, en það var KEA. Sú búð
hefur „gengið prýðisvel og skilað 5-
10% arði, að örfáum árum undan-
skildum”, er segir í prentuöum
heimildum KEA.
Virðast því norðanmenn hafa
Kjallarinn
JÓNAS
GUÐMUNDSSON
RITHÖFUNDUR
nokkuð önnur viðhorf til áiagningar
á meðul en Kaupfélag Arnesinga.
Kaupfélagið er líka með sérleyfi til
lyfsölu á Selfossi og menn verða því
(flestir) að greiða það sem upp er
sett, eða...?
„Þeir sem kaupa vinnufötin hjá
okkur, koma aldrei aftur,” sagði í
frægri auglýsingu frá þekktri veiðar-
færaverslun í Reykjavík á kreppuár-
unum.
Ekki veit ég hvert þeir fara, sem
að staðaldri þurfa að kaupa lyf sem
seld eru með 86% álagningu, því það
er einnig kostnaðarsamt að fara á
önnur svæði til lyfjakaupa. Og mér
kemur heldur ekki til hugar að for-
dæma alla samvinnuhreyfinguna
þótt ákveðnir menn stundi lyfjaokur.
Þó hlýt ég að harma þaö sérstaklega,
að flokksbróðir minn, Þórarinn Sig-
urjónsson alþingismaður, skuli taka
þátt í þessu, því hann hefur um ára-
bil verið stjórnarformaður Kaupfél.
Árnesinga. Einnig á hann sæti í f jár-
veitinganefnd fyrir framsókn og
þekkir því peningaskort sjúkrastofn-
ana.
Þá er þess að geta, að heilbrigðis-
ráðherra fer núna um landið og aug-
lýsir meiöslatól sín og peningalegan
vanda sjúkrahúsa og lækninga.
Hann hefur boðað fund á Seífossi.
Vonandi notar hann þá tækifærið
og skoðar mortél kaupfélagsins og
tekur þá fyrir líknarstarfsemi þing-
mannsins og lyfjabúðarinnar í leið-
inni.
Jónas Guðmundsson rithöfundur.
^ Rekstursreikningur LyfjabúSar K. Á., Selfossi áriS 1983
1983 1982
REKSTRARTEKJUR:
Vörusala 24.399.929 12.182.558
Söluskattur ( 4.569.657) 19.830.272 ( 2.271.660) 9.910.898
KostnaðarverO seldra vara (10.644.844) (5.487.442)
I BRÚTTÓHAGNAÐUR 9.185.428 4.423.456
REKSTRARGJÖLD:
Vinnulaun 2.259.097 1.471.339
Launatengd gjöld 237.397 140.567
Starfsmannakostnaður 25.441 2.521.935 11.627 1.623.533
Rafmagn og hiti 211.794 86.348
Annar húsnæðiskostnaður 361.203 205.048
Viðhald, húsa, véla og áhalda 21.361 15.328
Póstur og simi 39.128 20.630
Ritföng, pappir, prentun 34.342 12.117
Vátryggingar 24.915 11.696
Umbúðakostnaður 26.725 15.587
Auglýsingar 15.399 10.098
Ferðakostnaður 26.161 23.108
Akstur og flutningsgjöld 115.266 63.996
Fagtímarit, félagsgjöld o.fl 39.257 17.967
Ýmis kostnaður 48.852 964.403 8.110 490.033
Aðstöðugjald, kirkjug.gj. 218.903 103.974
Afskriftir 436.892 166.570
Hagnaður fyrir sameiginlegan 4.142.133 2.384.110
kostnað og vexti 5.043.295 2.039.346
FJÁRMAGNSGJÖLD:
Vaxtagjöld (•348.401) (237.470)
Hagnaður fyrir sameiginlegan kostnað V 4694.894 1.801.876
^