Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1984, Síða 37
DV. FIMMTUDAGUR 5. JULl 1984.
37
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Þessa dagana eru skipasmíöa-
stöðvar í Englandi og Italíu aö leggja
síðustu hönd á tvær skemmtisnekkjur
sem tveir víðkunnir auðjöfrar hafa
pantað. Þessir dándimenn eru Fahd
konungur í Saudi-Arabíu og vopna-
salinn góðkunni, Adnan Kashoggi.
Þessi skip eru engar venjulegar jullur,
heldur nánast fljótandi hallir sam-
kvæmt því sem heimildarmenn segja.
Snekkja Faþds er sögð um 470 fet á
lengd og er þar með orðin sú stærsta í
heimi, heilum 58 fetum lengri en
snekkja Bretadrottningar sem fram til
þessa var talin sú stærsta. Búiö er að
gefa herlegheitunum nafn og er það
Abdul Aziz. Á því skipi eru fjögur dekk
tekin undir vistarverur og geta 60
gestir dvalið þar í einu. Hvergi eru
olíupeningar sparaðir og sem dæmi má
nefnaaðeinkabaöherbergi konungs er
skreytt meö bláum eðalsteinum,
Kóngar
Adnan Kashoggi Fahd konungur
vopnaprangari. kátur á svip.
Ffjótandi höll, aöeins 470 fetá lengd. Á þessu fleyi mun Fahdsigla um höfin blá.
Likan af snekkju Kashoggis sem líkist meir hraðbáti en lystisnekkju. Setustofan í núverandi snekkju vopnaprangarans sem bráðum fer á
sölulista.
baðkerin eru úr marmara og allir
kranar eru úr 24 karata gulli.
Af föstum fylgihlutum má nefna
sundlaug, gufuböð, fullkomna
gjörgæsluaðstöðu og margt fleira.
Vopnasalinn hann Kashoggi er ekki
eins stórtækur því snekkjan hans er
aöeins 400 fet á lengd. Meðal innrétt-
inga má nefna bíósal, diskótek að
ógleymdum gullkrönunum sem báðir
virðast hrifnir af. Smekkur Kashoggis
er aðeins undarlegri því allir hurðar-
húnar eru úr gulli. Kashoggi hefur
tekiö upp á nýbreytni í skipahönnun,
en hún felst í því að innréttað hefur
verið svonefnt kvennabúrsdekk. Þessi
viðbót er þannig úr garði gerð að
svefnherbergi vopnasalans er staðsett
fyrir miðju dekki, risavaxið að sjálf-
sögðu. Frá því liggja margir litlir
gangar til nokkurra lítilla svefnher-
bergja ‘Sem hvert hýsir eina konu eða
hjákonu.
Mikil leynd hefur hvílt yfir þessum
framkvæmdum er þó er þvi hvíslað að
kaupverð Kashoggi snekkjunnar muni
vera um 560 milljónir króna. Fahd
virðist hafa fengið meira fyrir sinn
pening, en snekkja hans kostar
svipaða upphæö.
Siggi Helgi
á
melódískri
Ifnu
Sigurður Helgi Jóhannsson heitir
hann fuDu nafiii en sviðsnafnið á að
verða Siggi Helgi. Hann er nýbúinn
að taka upp plötu og verður trúlega
áberandi á landþeysu skemmtikraft-
anna í sumar.
„Upphaflega átti þetta ekki að
vera plata heldur ætlaöi ég að gefa
lögin sjálfur út á kassettu. Þegar ég
fór suður til að fjölfalda kassettuna
fékk ég rosalega góða umsögn, sér-
staklega fýrir eitt lagið sem heitir
Eiginkona. Eg var hvattur til að
setja þetta á plast og það varð úr að
Bimbó bauð mér samning og ætlar
aðgefaplötunaút.”
Siggi Helgi sagði að platan væri 12
laga og hann reyndi að hafa á henni
allt frá harmóníkumúsík upp í rokk.
Grípandi lög, lagöi hann áherslu á,
ballöður og melódiskt efni. Allt væri
frumsamið, um það bil helmingurinn
af textum og lögum eftir hann sjálf-
an og hitt eftir nokkra kunningja.
Þó litið hafi heyrst um þennan
músíkant þar til nú er hann ekki með
öllu nýr í faginu: „Eg var í þremur
hljómsveitum í Keflavík þegar ég
átti heima þar. Langlífust þeirra var
Casanova. Þar aöstoðuðu Magnús
Þór og Jóhann Helga mig meðal
"JLVtltj
annars við lagasamningu og út-
setningar.”
Siggi Helgi er fæddur Olafs-
firðingur en var þar aöeins í 6 ár. Þá
var hann önnur 6 á Akureyri og flutti
síðan til Keflavíkur þar sem hann b jó
í 7 ár áður en hann flutti aftur til
Akureyrar. Hann vinnur sem skipa-
afgreiðslumaður hjá kaupfélaginu.
Til liðs við sig fékk hann á plötuna
harðsnúið lið tónlistarfólks. Sigfús
Ottarsson í Baraflokknum ber
trommur, Kristján Guömundsson
leikur á hljómborð, Ingvar Grétars-
son gítar, Guðmann Jóhannsson
(bróðir Sigga) spilar á harmóníku og
Fanney Tryggvadóttir á flautu.
Stelpur frá Grenivik eiga bakradd-
irnar en sjálfur spilar Siggi Helgi á
kassagítara og bassa í öllum lögum
nema einu.
Eins og platan á aö bera meö sér er
Siggi Helgi hlynntur léttri línu í
músíkinni og segist hvergi hræddur
við það á öld öllu þyngra rokks. „Eg
hlusta yfirleitt á alla músík,” segir
hann þó, „allt frá klassík upp í pönk.
En þó held ég mig mikiö á melódísku
linunni. Eg vil vera með lög sem f ólk-
inu þykir gaman að hlusta á og getur
dansaðeftir.” -JBH/Akureyri.
Sigurður Helgi Jóhannsson alias Siggi Helgi bætist
fljótlega i hóp þeirra landsmanna sem geyma rödd
sina á plasti handa komandi kynslóðum.
DV-mynd JBH.