Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1984, Blaðsíða 2
18
DV. FÖSTUDAGUR 20. JÚLl 1984.
Frá Hrafnseyri við Arnarfjörð þegar Hrafnseyrarhátiðin var haldin þar árið 1980.
Sjónvarp
Sjónvarp
Sjónvarp sunnudag kl. 20.45: Stiklur
Afskekkt byggð
í alfaraleið
Sautjándi þáttur Omars Ragnars-
sonar, Stiklur, er á dagskrá sjónvarps
á sunnudagskvöldið kl. 20.45. Nefnir
hann þáttinn Afskekkt byggð í alfara-
leið og er hér átt við byggðina viö inn-
anverðan Arnarf jörð.
Eins og venjulega í Stikluþáttum sín-
um ræðir Omar við íbúa þess svæðis
sem hann stiklar um og í þættinum í
kvöld spjallar hann meöal annars viö
einbúa á Hjallkárseyri. Sá bær er svo
sannarlega í alfaraleið því þjóðvegur-
inn liggur um hlað bæjarins þar sem
Hákon Sturluson býr. Hann býr þarna
einn og hefur gert lengi. Að sögn
Omars er hann hress maður en sér-
stakur og er fyrir löngu orðinn þjóö-
sagnapersóna. Hákon bjó áður á Þing-
eyri en kunni ekki við sig í fjölmenninu
og Quttist þá að Hjallkárseyri. Hann
hefur stundað sjómennsku en hefur
mjög gaman af búskap og nytjar næstu
jörð fyrir innan sína því hann er með
nokkuð myndarlegt bú. Síma hefur
hann ekki, telur það vera verra að haf a
slíkt tæki. Að sögn Omars má segja að
þetta minni á villta vestriö í raun því
þama hanga dauðir refir og allt er
mjög villt í kringum bæinn og búskap
Hákons.
í þættinum lítur Omar einnig við í
Mjólkárvirkjun og Hallgrímur á
Hrafnseyri mun ganga með Omari um
sögustaöinn. Eins og Omars er von og
vísa Qaug hann vestur og var flugferð-
in nýtt til myndatöku yfir Faxaflóa og
Breiðafirði.
Myndatökumenn í þessum Stiklum
voru þeir Baldur Hrafnkell Jónsson,
Omar Magnússon og örn Sveinsson,
um hljóöið sá Agnar Einarsson en
Elías Magnússon sá um myndbandið.
SJ
áhrif styrjaldar Irana og Iraka á
hag landsins og framtíðarhorfur.
Þýðandi og þulur Bogi Ágústsson.
21.35 Æskublóminn ljúfi. (Sweet
Bird of Youth). Bandarísk bíó-
mynd frá 1962 byggð á samnefndu
leikriti eftir Tennessee Williams.
Leikstjóri Richard Brooks. Aðal-
hlutverk: Paul Newman,
Geraldine Page, Shirley Knight og
Ed Begley. Metnaöargjam ungur
maður fer til Hollywood og lætur
einskis ófreistaö til aö verða fræg-
ur. Þegar hann kemur aftur heim í
fylgd fölnandi kvikmyndastjörnu
fer að hitna í kolunum. Þýðandi
Kristmann Eiösson.
23.30 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
28. júlí
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Ing-
ólfur Hannesson.
18.30 Um lúgu læðist bréf. Finnsk
sjónvarpsmynd um bréfaskriftir
og þær krókaleiðir sem pósturinn
fer frá sendanda til viötakanda.
Þýðandi Þorsteinn Helgason.
(Nordvision — Finnska sjónvarp-
ið).
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 í fullu fjöri. Annar þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum. Aðalhlutverk: Julia
Mackenzie og Anton Rodgers.
Hester Fields heldur ótrauð út á
atvinnumarkaðinn og lætur hvergi
deigan síga. Þýðandi Ragna
Ragnars.
21.00 Grái fiðringurinn. (Guide for
the Married Man). Bandarisk
gamanmynd frá 1967. Leikstjóri
GeneKelly. Aðalhlutverk: Walter
Matthau, Robert Morse, Inger
Stevens og Sue Anne Langdon. I
aukahlutverkum eru fjöimargar
frægar stjömur, t.d. Lucille Ball,
Jayne Mansfield og Terry
Thomas. Eftir fjórtán ára hjóna-
band er miðaldra mann hálfpart-
inn farið að langa til aö halda
framhjá. Hann leitar til besta vin-
ar síns sem gefur honum góð ráð
og ítarlegar leiðbeiningar. Þýö-
andi Björn Baldursson.
22.30 Brautarstöðin. Sovésk bíó-
mynd frá 1983. Leikstjóri Eldar
RyazanovAðalhlutverk: Ljudmila
Gurchenko Oleg Basilashvili og
Nikita Mikhalkov. Framreiðslu-
stúlkan Vera og píanóleikarinn
Platon Gromov kynnast á járn-
brautarstöð og fella hugi saman
þótt þau séu ólik að eðlisfari.
Þýöandi Hallveig Thorlacius.
24.00 Dagskráriok.
Bandarisk gamanmynd frá 1967
verður i sjónvarpinu á laugar-
daginn, 28. jútí, kl. 21.00 og nefnist
hún Grái fiðringurinn. Skartar sú
mynd stórum hóp af frægum
gamanmyndaleikurum eins og t.d.
Walter Matthau og Lucille Ball.
Sunnudagur
29. júlí
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Grímur Grímsson flytur.
18.10 Geimhetjan. Fimmti þáttur.
Danskur framhaldsmyndaflokkur
í þrettán þáttum fyrir börn og
unglinga. Þýðandi Guðni Kolbeins-
son. (Nordvision — Danska sjón-
varpið).
18.35 Mika. Nýr flokkur. Sænskur
framhaldsmyndaflokkur í tólf
þáttum fyrir börn og unglinga
byggður á sögu eftir Arne Stivell.
Aðalhlutverk: Per Ola Svonni.
Samadrengnum Mika er falið aö
fara með hreindýr heiman frá
Lapplandi í dýragarð í París og
hann lendir í ýmsum ævintýrum á
leiðinni. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. Þulur Helga
Edwald.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttirogveður.
20.25 Auglýslngar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Úsinn. Kanadísk kvikmynd um
auðugt lífríki í árós og óshólmum í
Bresku Kólumbíu og nauðsyn
verndunar þess. Þýðandi og þulur
Jón O. Edwald.
21.00 Hin bersynduga. (The Scarlett
Letter). Nýr flokkur. Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur í fjórum
þáttum byggður á samnefndri
skáldsögu eftir Nathaniel
Hawthome. Leikstjóri Rick Haus-
er. Aðalhlutverk: Meg Foster,
Kevin Conway og John Heard.
Sagan hefst árið 1642 í Boston.
Söguhetjan er ung kona, Hester
Prynne, sem neitar aö segja til
fóður bams síns og er dæmd til aö
sæta varðhaldi og opinberri smán.
Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.55 Ölympíuleikarnir í Los Angel-
es. Setningarhátíð 23. ólympíuleik-
anna sem hefjast í Los Angeles
laugardaginn 28. júlí eða aðfara-
nótt sunnudags að íslenskum tíma.
Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
(Evróvision — ABC via DR).
23.50 Dagskrárlok.
KVIKMYNDIR
UM HELGINA
UMSJON: HILMAR KARLSSON
Það er enginn vafi á því að í harðnandi samkeppni vídeoleiganna
í borginni verða nýrri og nýrri myndir á boðstólum fyrir sjónvarps-
sjúka áhorfendur og eftir því sem eigendur vídeóleiga segja þýðir
ekki lengur annað en að endurnýja nógu ört til að tapa ekki kúnn-
um yfir til næstu vídeoleigu. Þetta kemur að sjálfsögðu niður á
kvikmyndahúsunum og þrátt fyrir að þau hafi flest tekið tillit til
þessarar samkeppni og boðið upp á nýjar myndir, þá er í hverri
viku frumsýnd kvikmynd sem til er á einhverri vídeóleigunni.
Faðirinn (Martin Sheen) tekur á móti óskilgetnum syni sinum ásamt fjöl-
skylclu sinni í Maður, kona og barn.
Það kvikmyndahús sem einna best stendur sig í baráttunni gegn
vídeóleigunum er Bíóhöllin enda hafa þar verið sýndar undanfarið
þó nokkrar myndir sem ennþá eru ekki komnar á myndbönd.
Á morgun frumsýnir Bíóhöllin í kröppum leik (The Naked
Face), alveg nýja mynd gerða eftir einni af skáldsögum metsölu-
höfundarins Sidney Sheldon. Sögur Sidney Sheldon hafa verið vin-
sælt myndefni og yfirleitt hlotiö mikla aðsókn. Það er breski leik-
stjórinn Bryan Forbes sem stjórnar miklu liði leikara. Roger
Moore leikur aðalhlutverkið. Honum til aðstoðar eru Elliott Gould,
Rod Steiger, Anne Archer og Art Carney. Bíóhöllin sýnir einnig
hina miklu kvikmynd Sergio Leone Einu sinni var i Ameríku (Once
Upon A Time In America) og er hún sýnd í tveimur hlutum sökum
lengdar og er mönnum ráðlagt að reyna að koma því þannig fyrir
að þeir geti séð hlutana hvorn á eftir öðrum.
Stjörnubíó hefur einnig hafið sýningar á nýrri mynd sem gerð er
eftir sögu metsöluhöfundar Maður, kona og barn (Man,
Woman And Child). Höfundurinn er Eric Segal sem samdi á sínum
tíma Love Story, sem þekkt kvikmynd var einnig gerð eftir og ef
mig minnir rétt vöknaði mörgum um augu á sýningum á henni á
sínum tíma. Þetta er rómantísk kvikmynd um föður og eiginmann
sem fréttir að hann á óskilgetið barn í Frakklandi. Eftir lýsingum
að dæma ættu viðkvæmar sálir að taka með sér vasaklútinn.
Klifrað í ölpunum í kvikmyndinni i hcngiflugi sem er tif sýningar í Austur-
bæjarbíói.
Austurbæjarbíó frumsýndi einnig í vikunni rómantíska kvik-
mynd í hengiflugi (Five Days One Summer). Fjallar hún um mið-
aldra, giftan, skoskan lækni sem fer með ungri stúlku í leiðangur í
svissnesku Alpana. Aðalhlutverkið er í höndum Sean Connery en
leikstjóri er gamla kempan Fred Zinnemann sem á að baki nokkr-
arágætismyndir.
Það kveður við annan tón í Ráðherraraunir (Don’t Just Lie
There, Say Something), sem frumsýnd var í vikunni í Regnbogan-
um. Þetta er bresk gamanmynd með Leslie Phillips í aöalhlut-
verki. Gamanmynd um ráðherra sem er siðapostuli á yfirborðinu
en sleppir vandlætingunni í einkalífinu. Regnboginn hefur einnig
tekið til sýninga íslensku kvikmyndina Skilaboð til Söndru. Og þeir
sem misstu af henni ættu að nota tækifærið og sjá hana.
Háskólabíó heldur áfram sýningum á spennumyndinni 48 stundir
(48 Hours), sem fengið hefur mjög jákvæða dóma. Félagarnir Jack
Lemmon og Walter Matthau skemmta okkur í Nýja bíói í Óvenju-
legir félagar (Buddy Buddy), leikstýrði af gamanmyndaséníinu
Billy Wilder. Myndin er sæmileg afþreying, þótt þessi snjalla
þrenning valdi í heild nokkrum vonbrigðum. Ovenjuleg teikni-
mynd, Hey Good Looking, er sýnd í Laugarásbíói og Tónabíói held-
ur áfram sýningum á sakamálamyndinni Þjófurinn (Violent
Street).
Kvikmyndir
Kvikmyndir