Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1985, Side 8
30
DV. FÖSTUDAGUR15. MARS1985.
Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd
Myndbönd hf. semja við Esselte í Svlþjóð:
Fá 170 titla frá MGM
NÝTT TÍMARIT A
MYNDBANDAMARKAÐINN
Nýtt tímarit kemur á myndbanda-
markaöinn hérlendis um næstu mán-
aöamót. Utgefandi ritsins er SlM,
Samband íslenskra myndbandaleiga.
en ritstjórar hafa veriö ráönir þeir
Friörik Indriöason og Hilmar
Karlsson.
Tímaritiö mun eingöngu fjalla um
myndbönd og málefni sem tengjast
myndbandamarkaðinum, auk þess
sem í því veröa greinar um leikara og
viðtöl, myndbandagagnrýni og fleira.
Áætlað er aö gefa tímaritiö út hálfs-
mánaðarlega og veröur þaö 24 bls. aö
stærö til aö byrja meö.
Myndbönd hf. hafa samið viö Esselte
Video í Svíþjóö um dreifingu á 170 titl-
um frá MGM hérlendis í ár. Esselte
Video er eitt stærsta dreifingarfyrir-
tæki á myndbandamarkaðinum í Sví-
þjóö og hefur fyrirtækiö umboð fyrir
aöila á borö við Colombia, CIC og
MGM í Svíþjóö og stendur nú í samn-
ingum við Wamer Bros. um slíkt.
,,Við komum til meö aö veröa
umboðsmenn fyrir Esselte hér á landi,
kaupum ekki af þeim titlana heldur
önnumst dreif ingu á þeim,” sagöi Guö-
geir Leifsson, forstjóri Myndbanda, í
samtali viö DV.
„Samningurinn sem viö geröum viö
þá nær út áriö í ár og eitthvaö fram á
1986. Fyrstu fimm myndimar koma á
markaðinnn hér nú fyrir páskana.”
Guögeir sagöi ennfremur aö hann
teldi myndirnar allar góðar en sumar
þeirra heföu aö vísu veriö áður gefnar
út hérlendis á vegum fyrirtækisins
Steinar/Stig.
Fyrstu fimm myndirnar úr þessum
samningi em stórmyndin Ben Hur meö
Charlton Heston í aöalhlutverki, Brass
Target meö þeim Sophiu Loren og John
Cassavetes, The Champ meö John
Voigt, Super Cops meö Ron Leibman
og Telefon meö gamla brýningu
Charles Bronson.
-FRI
KAUPSTEFNA
í KALIFORNlU
Nokkur fjöldi Islendinga úr mynd-
banda- og kvikmyndahúsabrans-
anum hefur aö undanförnu sótt kaup-
stefnu í Kalifomíu þar sem samið er
um rétt á myndum í kvikmyndahús
og á myndbönd.
Þessi kaupstefna er ein stærsta
sinnar tegundar þar vestra og mun
myndbandasíðan flytja fréttir af
henni á næstunni en Islendingamir
munu koma heim í kringum20. þessa
mánaðar.
1. Chiefs
2. Strumparnir
3. Falcon Crest
4. Hunter
5. Rauðklædda konan
6. Scarface
7. Dynasty
8. Tobeor nottobe
9. Lace
10. Terms of endearment
11. Psycho II
12. Sloane
13. Honey Boy
14. Escape from New York
15. The Nurse
16. Swordkill
17. Mystery of Paradise
18. Summargirl
19. Mr. Horn
20. The Strange within
>
Q
Vinsældalisti DV er byggflur ð upplýsingum frá 10 myndbandaleigum
vífls vegar um landifl.
*
*
*
3
X
'55
3
O)
0)
:0
_l
48HOURS
Aðalhlutverk: Nick Nolte og Eddie Murphy.
Leikstjóri: Walter Hill.
Það er óhætt aö segja aö 48 Hours er einhver
allra skemmtilegasta sakamálamynd er gerö
hefur verið á síöari árum. Fer þar bæöi saman
spennandi söguþráöur og skemmtilegur leikur
aöalleikaranna.
Nick Nolte leikur nokkuö subbulega löggu er
fæst viö morðmál. Hann verður vitni aö því þeg-
ar tveir starfsfélagar hans eru myrtir. Hann
ákveöur aö finna morðingjann. Til að svo geti
orðiö fær hann fanga til liðs viö sig, er honum
sleppt um stundarsakir. Þeim félögum er ekkert
sérstaklega vel til vina til aö byrja með, en eftir
því sem líður á myndina fara þeir aö bera meiri
viröingu hvor til annars og í endann eru þeir
mjög samstilltir í leit sinni að moröingjanum.
Þaö er margt skemmtilegt er skeöur í leit
þeirra aö moröingjanum og fer Eddie Murphy í
hlutverki fangans oft á kostum. Þessi nýjasta
stórstjarnan í kvikmyndaheiminum á einkar
auðvelt meö að snerta hláturtaugar áhorfand-
ans. Nick Nolte á einnig góða spretti og hefur
hann fariö vaxandi með hverju hlutverki að
undanfömu. 48 Hours er kvikmynd sem auðvelt
er aö mæla meö.
THE DAY THE EARTH MOVED.
Aðalhlutverk: Jackie Cooper, Stella Stevens og Cleavon
Little.
Leikstjóri: Robert Michael Lewis.
The Day The Earth Moved er sjónvarpsmynd
og gerö fyrir lítinn pening. Myndin er í stór-
slysamyndastíl. Þaö sem hún sýnir aöallega
fram á er aö þaö þarf mikla peninga til aö gera
trúverðuga slysamynd. Þaö er sama hvar kom-
iö er niður í tækniatriðunum Lmyndinni. Allt er
svo amatörslega gert að þaö liggur við að mynd-
in veki hlátur heldur en spennu eins og ætlast
var til í upphafi.
Söguþráöurinn er í stuttu máli aö tveir flug-
menn eru aö fljúga yfir eyöimörk í Nevada.
Taka þeir myndir fyrir væntanlega landkaup-
endur. Þegar myndirnar eru framkallaöar kem-
ur í ljós rauö lína á sumum þeirra. Þegar þeir
fara í sams konar ferö aftur sjást rauðu linurnar
á öðrum staö. Komast þeir aö því aö rauða linan
er fyrirboði jarðskjálfta. Alvara fer að færast í
leikinn þegar rauöa línan færist yfir smábæ. Aö
sjálfsögöufarahetjurnartilhjálpar. ..
Þaö er margt aö þessari mynd. Leitun er aö
sæmilega geröum atriöum. Ekki bæta leikar-
arnir á árangurinn. Jackie Cooper leikur aöal-
hlutverkiö. Leikhæfileikar hans eru litlir og
Stella Stevens má muna timana tvenna.
THE INCREDIBLE HULK.
Aðalhlutverk: Bill Bixby, Lou Ferrigno.
The Incredible Hulk eöa Jötuninn ógurlegi er
eitt af þessum sérbandarísku fyrirbrigöum.
Upphaflega var þessi persóna sköpuö fyrir has-
arblöð en síöan voru gerðir vinsælir sjónvarps-
myndaþættir um búntiö og er þessi mynd unnin
upp úr þeim þáttum með sömu leikurum og voru
íþeim.
The Incredible Hulk fjallar um vísindamann
sem vinnur að rannsóknum á því hvers vegna
venjulegt fólk fær stundum ofurkrafta ef þaö
lendir í lífsháska. Þessar rannsóknir leiða til
þess að hann dælir í sig miklu magni af gamma-
geislum sem síöar veröa þess valdandi aö hann
breytist í græna vöðvabúntið. Sem slikan fær
fátt stöðvaö hann en viö og viö kemur hann niöur
á jöröina og verður eölilegur en man þá lítið eft-
ir því sem gerst hefur.
Eg á ekki von á aö Islendingar hafi almennt
gaman af þessari bandarísku teiknimyndahetju
því að öfugt viö t.d. Superman er persóna þessi
ekki mjög þekkt utan heimalands síns. Auk þess
er ekki veriö að eyða miklum fjármunum í gerö
þessarar myndar og „brellur” af skornum
skammti.
STING II.
Leikstjóri: Jeremy Paul Kagan.
Aðalhlutverk: Jackie Gleason, Mac Davis.
Þetta er framhaldiö af hinni geysivinsælu
mynd, The Sting, og tekst þaö svo illa til aö nær
hefði verið aö láta framhaldið heita Stink.
Það sem einkum hjálpaöi til viö fyrri myndina
var skemmtilegur samleikur þeirra Robert
Redford og Paul Newman sem Hooker og Gand-
orf. Þeim Gleason og Davis gengur illa aö feta í
fótspor frumherjanna, einkum þeim síðar-
nefnda. Að láta hann leika Hooker er svipaö og
bjóða undirrituðum aö taka við hlutverki Conan
af Schwarzenegger.
I Sting II er Lonnegan, ágætlega leikin af Oli-
ver Reed, aö leita hefnda á þeim sem sviku hann
í fyrri hlutanum. Gandorf og Hooker frétta brátt
af því og ákveða aö snúa aftur á bófann og ann-
an til í leiðinni með því aö setja upp hnefaleika-
keppni þar sem vinningshlutföllunum er hag-
rætt aðeins.
Sting II er aöeins skugginn af fyrri myndinni
og varla þaö. Metnaöarlaus leiö til aö græða aö-
eins á vinsældum upphaflegu myndarinnar.
★ ★ ★ ★ Frábær
★ ★★ Góð
★ ★ Miðlungs
★ Léleg
0 Afleit -FRI