Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
27
Kjarvalsstaðir:
Norræn vefjarlist
í öllu húsinu
Farandsýningu norræna veflistar-
manna lýkur um þessa helgi. Henni
var hleypt af stokkunum í Moss í
Noregi þann 8. júní 1985 í 4. sinn og
lýkur í Svíþjóö á næsta ári eftir viö-
komu á öllum hinum Noröurlöndun-
um. Margir velþekktir listamenn eru
meðal þeirra sem sýna. Þar má sjá
margar nýjungar í meöferö efnis og
forms.
Þórdisi Sigurðardóttur frá Sáms-
stööum hefur verið boöiö aö sýna eitt
verk sem sérstakur gestur sýningar-
innar hér. Þaö kallar hún Appelsínu-
gulan morgunn. Þaö er umhverfis-
verk sem komiö hefur verið upp
sunnan viö húsiö.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
14.00—22.00 og lýkur á sunnudaginn.
• Listaverk eftir Guðrúnu
Marinósdóttur.
• Meyvant Þórólfsson með eitt verka sinna á sýningunni við hliðina á Eclen
í Hveragerði.
Einkasýning
í Hveragerði
Á morgun, laugardaginn 24. ágúst,
opnar Meyvant Þórólfsson myndlistar-
sýningu í félagsheimili Ölfusinga viö
hliðina á Eden í Hveragerði. Þetta er
fyrsta einkasýning Meyvants. Á henni
eru 50 pastelmyndir. Fyrirmyndir eru
flestar sóttar í íslenska náttúru.
Sýningin stendur til 1. september og er
opiö alla dagana frá klukkan 14 til 22.
• Það bregður fyrir hauslausum mönnum í myndum Sigurlaugs. Hann
segir sjálfur að það sé hin algera afhausun mannskepnunnar sem ógnin
stendur af.
Listasafn alþýðu:
Sigurlaugur
Elíasson sýnir
Sigurlaugur Elíasson sýnir mál-
verk og grafík í Listasafni alþýöu,
Grensásvegi 16. Sýningin er opin kl.
14—22 um helgar og 16—20 virka
daga.
Sigurlaugur er fæddur 1957 og lauk
námifrá málunardeild Myndlista- og
handíöaskóla Islands 1983. Sýning-
unni lýkur 1. september.
Gallerí íslensk list, Vesturgötu:
Sýning 17
listamanna
Nú stendur yfir í Gallerí íslensk
list við Vesturgötu í Reykjavík
sýning sautján íslenskra lista-
manna. Allir eru þeir ungir aö árum
og hafa flestir nýlega lokið námi við
hina ýmsu listaskóla. Á sýningunni
eru fjörutíu verk unnin í ýmis efni.
Þetta er sölusýning sem er opin dag-
lega frá kl. 9—17 en lokuð um helgar.
Hún mun standa yfir til 20. septem-
ber. Mikil gróska virðist vera í þessu
nýja galleríi sem var opnað í vor. Því
er aðallega ætlaö aö styðja viö bakiö
á ungum listamönnum sem eiga
kannski erfiðara með að fá inni í
hinum eldri listgalleríum.
Hvað er á seyði
um helgina?
Sunnudaginn 25/8 veröur opnuö mál-
verkasýning Omars Stefánssonar á
Café Gesti meö gerningnum „allt sem
börnum er bannaö”, kl. 21 e.h. Veröur
hann fluttur af höfundum, þeim Þorra
Jóhannssyni og Omari. Á sýningunni
veröa einnig kynntar tvær bækur, önn-
ur eftir Omar eingöngu en hin unnin í
samvinnu viö Björn Roth. Sýningin
verður opin í tvær vikur og eru allir
velkomnir.
Þaö er ekki tilviljun aö hunda-
dögum ljúki 23. ágúst, sama dag og
Þór Eldon sendir frá sér sína þriðju
bók, 23 hundar. (Þór er 23 áraM!) 1
bókinni eru 11 Ijóö og 5 myndir eftir
Margréti Örnólfsdóttur. (Hún er 17
ára!!!) Þetta mun allt veröa opinber-
aö í Djúpinu. undir Horninu föstudags-
kvöldið 23ja, því þá ætlar Þór Eldon
að lesa úr bók sinni og árita hana. 23
hundar er ánægjulegt framtak ungs
manns á ári hundsins. Þaö er
Medúsa, sem hefur um 6 ára skeið
gefiö út u.þ.b. 20 bækur (allar fallega
prentaöar á góöan pappír) viö góöar
undirtektir. Mikil ánægja aö kynna
þessa góöu bók. Meðfylgjandi mynd
geröi J. Triumph af skáldinu í Berlín
í vor.
Sýning í Þrastarlundi.
Sigríður Gyða sýnir 25 vatnslita-
myndir og olíuverk í Þrastarlundi.
Sýningin stendur fram í miöjan sept-
ember og er opin daglega á sama tima
og veitingabúðin.
Lattu
► í iekki
vantal
áföstudags-
Þórscafó
og laugardags-
kvöldum
★ Oplðfrá
kl. 22 «3.
IPf