Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 6
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
Leikhús
Stúdentaleikhúsið
leggur upp í leikför
— Ekkó eða Guðirnir úngu eftir Claes Andersson
Síöastliöinn mánuö hafa staðiö yfir
æfingar og undirbúningur á rokk-
söngleiknum Ekkó eöa Guðimir
úngu eftir Claes Andersson. Frum-
sýningin verður fimmtudaginn 27.
ágúst kl. 20.30 í Tónabæ í Reykjavík.
Fyrsta sýning úti á landi verður í
Bíóhöllinni á Akranesi 28. ágúst kl.
15.00.
Ólafur Haukur Símonarson rithöf-
undur annaöist þýðingu og semur
jafnframt söngtexta, Ragnhildur
Gísladóttir, fyrrverandi Grýla,
frumsemur tónlist viö verkiö. Þaö er
Andrés Sigurvinsson, leikari og leik-
stjóri, sem leikstýrir en hann er leik-
húsgestum aö góöu kunnur fyrir upp-
setningar sínar. Karl Aspelund hann-
ar leikmynd og búninga en Guðný B.
Richards gerir brúöur sem fara með
hlutverk hinna fullorðnu í sýning-
unni. Egill Áraason ljósahönnuöur
sér um sýninguna. Þrettán ungir
leikarar koma fram í sýningunni en
auk þeirra er heil hljómsveit á sviö-
inu og mun hún jafnframt taka þátt i
leiknum atriðum. Meölimir hennar
koma úr hljómsveitunum Meö
Nöktum og Oxsmá. Gamalreyndir
leikarar svo sem Karl Guðmunds-
son, Steindór Hjörleifsson, Rúrik
Haraldsson, Sigurveig Jónsdóttlr,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir og
fleiri ljá brúöunum raddir sínar.
Þetta er langstærsta verkefniö
sem Stúdentaleikhúsiö hefur ráðist í
til þessa, bæöi hvaö varöar umfang
og kostnaö. Farið veröur í leikför
með verkið, sýnt á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu að henni lokinni jafnframt
sem styttri leikfarir veröa farnar.
Leikritiö fjallar fyrst og fremst um
unglinginn og umhverfi hans. Þaö er
komið inn á margt, m.a. samskipti
hans við hitt kynið, samskipti viö for-
eldra, skólann, vini hvernig hann
kemur fyrir og finnur sig í hópi
(klíku), vímuefnaneyslu og þau
vandamál og þá erfiöleika sem af
henni hljótast.
Leikendur eru bæöi atvinnuleikai-
ar og ólæröir leikarar enda eru leik-
persónur margar unglingar á aldrin-
uml3—18ára.
Þaö er ætlunin aö koma með Ekkó
til sem flestra byggöarlaga og er
ástæðan ekki aöeins ár æskunnar
heldur einnig aö þessi aldurshópur
hefur oftar en ekki verið afskiptur og
lítið sinnt af hálfu leikhúsanna.
Byrjun leikferöarinnar veröur sem
hér segir: Þriöjudagur 27. ágúst kl.
20.30 veröur verkiö frumsýnt í Tóna-
bæ en síðan hefst leikförin daginn
eftir á Akranesi kl. 15.00.
Kvikmyndahús — Kvikmyndahús
Stjörnubíó:
Það er nýjasta kvikmynd Blake
Edwards, Micki og Maude sem er
aöalmynd i Stjörnubíói þessa dag-
ana. Þetta er gamanmynd um mann
(Dudley Moore) sem á þá ósk heit-
asta aö eignast barn. Eiginkonan
aftur á móti má ekki vera aö þvi að
standa í barneignum. Hann kynnist
ungrí stúlku og þaö líður ekki á löngu
áður en hún er ófrísk og um leið til-
kynnir eiginkonan honum aö hún sé
ófrísk...
Tónabfó:
Minnisleysi (Blackout) er
splunkuný kvikmynd sem sýnd er í
Tónabíói þessa dagana. Þetta er
sakamálamynd um leit lögreglunnar
að fólskulegum glæpamanni og
viröist vera endurtekning á atburði
er skeöi sjö áram áður. Aðalhlut-
verkin era í höndum Richard
Widmark, Keith Carradine, Michael
Beck og Kathleen Quinlan.
Austurbœjarbíó:
Endursýning á hinni vinsælu
tónlistarmynd Purple Rain er hafin
þótt stutt sé síðan hún var sýnd. Þaö
er poppgoðið Prince er leikur aöal-
hlutverkiö. 1 sal tvö er hryllings-
kvartettinn Twilight Zone, sem er
fjórar stuttar kvikmyndir samein-
aöar í eina. Meöal leikstjóra er
sjálfur Steven Spielberg. Upplögð
fyrir unnendur góöra hryllings-
mynda.
Nýja bfó:
Sporlaust horfinn (Without A
Trace) er dramatísk kvikmynd sem
fjallar um leit aö sex ára gömlum
snáöa sem leggur af staö í skólann
einn morgunn og hverfur. Hann
komst aldrei alla leið í skólann. Aöal-
hlutverkin leika Kate Nelligan og
Judd Hirsch. Sporlaust horfinn er
áhrifamikil og raunsæ kvikmynd.
Bíóhöllin:
Löggustriðið (Johnny Dangerous-
ly) er gamansöm sakamálamynd í
anda þeirrar þekktu kvikmyndar
Sting. Segir af ungum hæfileika-
dreng, Johnny Dangerously, sem.
kemst á toppinn í Mafíunni í New
York í kringum 1930. Gamanið fer að
kárna þegar bróöir hans.sem hann
hafði kostaö í laganám., veröur einn
helsti glæpamannaveiöari New York
borgar. Þetta er lífleg sakamála-
mynd þar sem húmorinn er í fyrir-
rúmi.
HÁSKÓLABÍÓ:
RAMBO
Rambo er framhald First Blood
sem naut mikilla vinsælda fyrir
tveimur áram. Sylvester Stallone er
aftur á ferðinni í hlutverki fyrrver-
andi hermanns sem fór létt meö aö
leggja eitt bæjarfélag í rúst. Rambo
er þegar oröin vinsælasta- myndin
sem frumsýnd hefur verið í ár vest-
anhafs og þrátt fyrir aö
gagnrýnendum þyki nóg um ofbeldið
hefur aimenningur flykkst til að sjá
Rambo sem nú er staddur í Víetnam
þar sem hann á að bjarga föngum
sem þar hafa verið í haldi síðan
stríðiö stóð yfir. Það sem hann veit
ekki er aö þaö er ekki ætlast til aö
hann komi til baka. Aö sjálfsögöu
veröur þaö til þess aö hann gengur
berserksgang og mega allir vara sig
á honum í þeim ham eins og menn
muna er sáu First Blood.
-HK
Kvikmyndahús
Regnboginn:
Það verða margir tii aö leggja leið
sína í Regnbogann því þar er sýnd
ný kvikmynd: Örvæntingarfull leit
að Susan (Desperately Seeking
Susan), þar sem eitt aöalhlutverkiö
er í höndum þeirrar vinsælu söng-
konu Madonnu. Af öörum myndum
má nefna Vitnið (Witness) sem nú
hefur veriö flutt úr Háskólabíói,
Fálkinn og snjómaðurinn (Falcon
And The Snowman). Tvær úrvals-
myndir sem auðvelt er að mæla með.
Laugarásbíó:
Laugarásbíó sýnir Morgunverðar-
klúbbinn (The Breakfast Club).
Mynd þessi er afar sérstæö á margan
hátt, þó segja megi aö hún sé í þeim
flokki mynda sem kallast unglinga-
myndir. Hún segir frá fimm
unglingum sem eru gjörólíkar per-
sónur. Þeir eru látnir sitja eftir heil-
an laugardag. En hvaö skeður þegar
skvísan, íþróttagarpurinn, vand-
ræðaseggurinn og einfarinn opna sig
gagnvart hvert öðru? Þaö getur
oröið mjög forvitnilegt.
Hvað er á seyði um helgina? — Hvað er á seyði um helgina? — Hvað er á seyði um helgina? — Hvað er á seyði um
Sýningar
Ólafur helgi í víking
Sunnudaginn 25. ágúst kl. 20.30 flytur
norski rithöfundurinn VERA
HENRIKSEN erindi um Olaf helga í
víking og norski ljósmyndarinn
JOHAN BRUUN sýnir litskyggnur
sem hann hefur unniö um efnið.
Vera Henriksen er þekktur rithöf-
undur í heimalandi sínu og hefur eink-
um skrifað sögulegar skáldsögur.
Þekktastar eru án efa þrjár skáldsög-
ur, „trílógía”, um Olaf konung
Haraldsson. Ariö 1983 byrjaði hún aö
rita skáldsagnaröö um íslenskt efni
með Bodvars saga, en þar era ætt-
menn Egils Skallagrímssonar sögu-
hetjurnar.
Johan Bruun starfar viö blaöiö Dag-
bladet í Osló, en vinnur auk þess að því
aö gera litskyggnur úr náttúru Noregs
og sýnir hann þær meö a.m.k. fjórum
sýningarvélum í einu og leikur tónlist
meö.
Þau Vera Henriksen og Johan Bruun
hafa unnið saman í mörg ár og eru
stödd á Islandi núna til þess aö undir-
búa nýja bók og í sambandi við kvik-
mynd sem f jallar um fund Vínlands.
Dagskráin á sunnudaginn hefst, sem
fyrr greinir, kl. 20.30. Aögangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Kynning á lituðum leir
1 nýrri verslun aö Reykjavíkurvegi
68, Hafnarfiröi, sem heitir Handvirkni,
veröur haldin sýning í notkun Fimó-
leirs, en hann er hertur í heimilis-
bakstursofni.
Sýningin er þáttur í þeirri starfsemi
nýju verslunarinnar aö halda nám-
skeið í hvers kyns fóndri Sýning þessi
verður haldin á morgun, laugardaginn
24. ágúst.frákl. 13—16.
Norskir myndlistarmenn
í Norræna húsinu
Sunnudaginn 25. ágúst kl. 15.00 opna
tveir norskir myndlistarmenn,
KAARE ESPOLIN JOHNSON málari
og KNUT SKINNARLAND mynd-
höggvari, sýningu á verkum sínum í
sýningarsölum Norræna hússins.
Kaare Espolin Johnson fæddist áriö
1907, stundaði nám viö Kúnstakademí-
una í Osló og tók þátt í haustsýningu
ríkisins frá því 1932. Árið 1973 var
honum boöið aö vera með verk sín á
eigin vegg þar. Hann hefur sýnt verk
sín víða, bæði heima og erlendis, og á
myndir á mörgum söfnum, m.a. í
Nasjonalgalleriet í Osló. Hann hefur
gert mikiö af myndum frá Norður-Nor-
egi, myndirnar eru oft dökkar og þung-
búnar, en fullar af stórkarlalegri
kímni.
Kaare Espolin Johnson er ættaður
frá Islandi, nánar tiltekiö frá Espihóli
eins og nafnið bendir til. Hann vinnur
myndir sínar oft í „naiv” stíl og ein af
þekktari myndum hans heitir „Bærinn
hans langa-langafa á Islandi”. Þar má
sjá burstabæ þar sem konur laga mat
í einu af bæjarhúsunum, gestir blóta
Bakkus í ööru, langafi faömar kærustu
sína í því þriðja og hestarnir bíta gras
á þekjunni.
Knut Skinnarland fæddist áriö 1909 og
stundaði nám viö Kúnstakademíurnar
í Osló og Kaupmannahöfn. Hann hefur
oft tekiö þátt í listasýningu ríkisins í
Noregi og sýnt bæði á einkasýningum
og samsýningum í Noregi og víðar um
lönd. Hann hefur m.a. unnið aö högg-
myndum og skreytingum viö Niöarós-
dómkirkju, í Álasundi og í Vinje, auk
þess sem hann á verk í Nasjonalgall-
eriet í Osló. Hann sýnir hér bæöi högg-
myndir, skissur og vatnslitamyndir.
Sýning þeirra félaga mun standa til
10. september og er opin daglega kl.
14-19.
Mokka kaffi
v/Skólavörðustíg
Jón Axel sýnir 20 grafíkmyndir sem
allar eru til sölu.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning, opin á þriöjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl.
14-16.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
Engin tilkynning borist um sýningu
þessa helgi.
Þjóðminjasafnið
„Meö silfurbjarta nál” nefnist sýning
er stendur yfir í Bogasal Þjóöminja-
safnsins. Þetta eru handverk íslenskra
hannyröakvenna og eru verkin frá
miðöldum fram til síöustu aldamóta.
Sýningin er ætluö bæöi Islendingum
sem útlendingum og er opin frá kl.
13.30—16. Sýningin mun standa fram í
október.