Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Qupperneq 8
30
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
f'SLENSKUff 7EX7!
DRUKK-
INN VIÐ
STÝRIÐ
One f or the road
Leikstjóri: Jud Taylor.
AÖalhlutverk: James
Farentino,
Don Murray o.fl.
Timi: 120 mln.
Hann fór eftir vinnu og fékk sér í
nokkur glös meö félögunum. Steig
síðan inn í bílinn sinn og flýtti sér
heim til aö ná kvöldmatnum. En
hann komst ekki alla leið. Virðir ekki
stöðvunarskyldu á einum gatna-
mótum og keyrir á bíl ungrar stúlku.
Hún deyr skömmu síðar á sjúkra-
húsi.
Morð í gáleysi eða slys? Nú er það
dómarans að dæma. Faðir stúlk-
unnar og reyndar öll fjölskyldan er
niðurbrotin eftir þennan hræðilega
atburð. Móðirin leggst í rekkju eins
og Egill forðum en faðirinn vill
hefna. Hann stefnir ökumanninum
og málið fer fyrir dómstóla.
Þema þessarar myndar er býsna
athygiisvert. Margir hafa líklega
einhvem tímann sest undir stýri með
misjafnlega mikið alkóhólmagn í
★ ★ i
blóðinu. En við gerum okkur líklega
enga grein fyrir hversu alvarlegar
afleiðingar slíkur ölvunarakstur
getur haft í för með sér. I þessu til-
felli lét ung stúlka lífið og ökumann-
inum er stillt upp við vegg. Skiljan-
lega, en bilið milli góðs og ills er gert
of breitt. ökumaðurinn er vonlaus
fyllibytta sem lætur dauða stúlk-
unnar sig engu skipta. Hann fær svo
sinn dóm í lokin og áhorfandinn
klappar.
Máliö er bara ekki svona einfalt og
fyrir bragðið hittir myndin ekki beint
í mark. En hún ætti að vekja fólk al-
mennt til umhugsunar um hættur
ölvunaraksturs. Hugsaöu þér, á
tuttugu og þriggja mínútna fresti
deyr maður í Bandaríkjunum af
völdum áfengis í umferðinni.
-ÞJV.
Gullstúlkan
Gloria
★ ★
Tóníist
Halló
Richie
Lionel Richie.
All night long.
Tími: 35 mín.
Láonel Richie er mjög hátt skrif-
aður sem tónlistarmaður. Og hann
verðskuldar það vafalaust. I fyrra
gaf hann út plötuna Can’t slow down
sem selst hefur í milljónum eintaka.
Af þessari plötu hafa fjögur lög
komist inn á vinsældalista og þau er
einmitt að finna á þessu myndbandi.
Ég held að ég geti fullyrt að landinn
hafi séð öll þessi lög í Skonrokki
þannig að fólk ætti almennt ekki að
gera stóra uppgötvun. En tvö
þessara laga, Running with the night
og All night long, eru líka á mynd-
bandinu í hljómleikaútgáfum. Sá
flutningur er ólíkt frísklegri heldur
en heföbundin „danssjó” þó að
Richie þessi sé svo sem ekkert sér-
stakur á sviði.
Af þessum f jórum lögum líkar mér
einna best við lagið Hello. Rólegt og
fallegt lag og blinda stúlkan er algert
augnayndi. Hin hafa vafalaust líka
verðskuldað þær vinsældir sem þau
hlutu þó mér persónulega finnist þau
ekkert sérstök. En viljirðu ganga að
topplögum Lionel Richie vísum þá er
þetta rétta myndbandið. Nema þú
eigir þau öll úr gömlum Skonrokks-
þáttum? -ÞJV.
Lionel Richie
All Nighl Long
Little Gloria/2 spólur.
Leikstjóri: Warus Hussein.
Aðalhlutverk: Angela Lansbury,
Betty Davis, Christopher Plumm-
er, Lucy Gutteridge, Maureen
Stapleton.
Timi: 3 klst. 16 mín.
Ein „mini-serían” til byggö á
metsölubók. Þessi er eftir Barböru
Goldsmith en sker sig úr að því leyti
aö hún fjallar um atburði sem eiga
sér stoð í raunveruleikanum.
Myndin snýst í meginatriðum um
átök innan hinnar auðugu Vanderbilt
fjölskyldu vegna barns Reggie
Vanderbilt og Gloriu Morgan. Þegar
Reggie deyr er hann eignalaus
maður og þá eru góð ráö dýr fyrir
eiginkonuna. Samkvæmt erfðaskrá
ömmunnar, Alice C. V., er það dóttir
hennar, Gloria litla, sem er erfingi
mestallra auöæfanna. Gloria
★ i
Fræga
fólkið
gúmmí-
væðist
Spitting Image.
Tími: 60 mln.
Breskir grínþættir á þrem spólum.
Hópurinn kallar sig Spitting Image
og gerir grín að hverju sem er.
Konungsfjölskyldan, Reagan, John
McEnro, Flying Pickets, allir fá sinn
skerf af háði. Þessir þættir minna
dálitiö á Prúðu leikarana að því leyti
að dúkkur eru eingöngu notaðar.
Gúmmídúkkur sem líkjast fyrir-
myndum sínum mjög í suraum tilfell-
um.
Húmorinn er breskur í húð og hár.
Atburðir sem voru í sviðsljósinu í
fyrra eru skoðaðir frá ýmsum
sjónarhomum. En brandararnir eru
misjafnir að gæðum og spilar þar
kannski stóran þátt að maður þekkir
ekki til allra atburðanna sem teknir
eru fyrir. Og þó maður kannist við
sig í mörgu þá nær maður oft á tíðum
ekki að teygja á vörunum. Þetta er í
★ ★ ★
Morgan er of ung til að vera fjár-
haldsmaöur dóttur sinnar og verður
því að láta sér nægja mánaðarlegan
lífeyri. En þar sem hún er í blóma
lífsins er hún ekki ánægö með að
sitja auðum höndum og sinna móður-
hlutverkinu. Hún ver mestu af tíma
sínum í Evrópu og lætur barnfóstru
sjá um dóttur sína. Og það reynist
henni afdrifaríkt. Barnfóstran gerir
allt sem hún getur til að egna Gloriu
litlu upp á móti móöur sinni og það
tekst henni. Að lokum blandast systir
Reggie, Gertrude V., inn í málið og
hyggst reyna að fá yfirráðarétt yfir
Gloriu litlu sem hún og fær í lokin.
Þessi mynd um Gloriu litlu ætti að
vera hvalreki á fjörur þeirra sem
hafa gaman af framhaldsþáttum.
Dramatísk saga um stúlku sem fær
nóg af öllu nema ást og hlýju. Gold-
smith tekur afstöðu með móðurinni í
baráttunni um barnið og maður
getur eiginlega ekki annað en vor-
kennt konugreyinu þar sem hún
berst vonlausri baráttu við Vander-
biltveldið. Systirin, Gertrude, dregst
svo inn í málið á fölskum forsendum.
Skemmda eplið var í rauninni barn-
fóstran, sem var með Gloriu litlu öli-
um stundum og mótaði hugsanagang
hennar eftir sínu höfði.
Vart verður þverfótað fyrir fræg-
um leikurum í þessum tveim
myndum og greinilega hefur mikið
verið !agt í að útkoman yrði sem
best. Og eftir að hafa horft á mynd-
irnar er ekki hægt að segja annaö en
að hér sé á ferðinni úrvals afþreying
fyrir myndbandaáhugamenn.
Sannsöguleg saga, ágætlega leikin
og alveg hæfilega langdregin.
-ÞJV.
flestum tilfellum einum of vitlaust.
Það skemmir vafalaust líka fyrir
mörgum að íslenskur texti skuli ekki
fylgja.
Það er sjálfur Ronald Reagan sem
prýðir kápuna. Ferill forsetans í
kvikmyndum hefur orðið tilefni
margra brandara og hér er óspart
gert grín að þessum gamla harð-
jaxli. Það er líka pínulítið spaugilegt
að gamall kvikmyndaleikari skuli
vera æðsti maður Bandaríkjanna ef
litið er á hve lélegur leikari Reagan í
raun var. Mér er alltaf minnisstæð
setning sem flaug í einni stórslysa-
mynd. Konan er illa haldin af matar-
eitrun og stynur upp í veikindum
sínum: „Mér hefur ekki liöið svona
illa síðan ég sá myndina með Ronald
Reagan. Það er ekki tekiö út með
sældinni að vera frægur. -ÞJV.
V*l*N*S*Æ*L*D*A*L*l*S*T*A*Ft
DV-listinn
Myndir:
1. ( 2 ) The karate kid
2. ( 1 ) Nýtt Iff
3. (8) Flashpoint
4. (3) Play Misty for me
5. (5) Ordeal by
innocence
6. (-) The terminator
7. (7) Romancing the
stone
8. (-) Missing in action
9. (-) Eddie and the
crusers
10. (9) Splash
Þættir:
1. ( 2 ) Deceptions
2. (-) Glorialitla
3. ( 1 ) Powergame
4. (3) Lace2
5. (4) Luisiana
6. ( 8 ) Return to Eden
7. ( 5 ) Once upon a
time . . .
8. ( 6 ) Atlanta childmurd-
ers
9. (9) Widows
10. (7) Ellis Island
Bandaríkin
Bretland
1. (1) Thekaratekid
2. ( 2 ) Starman
3. ( 4 ) Falcon and the
snowman
4. (3) The flamingo kid
5. (14) A soldiers story
6. ( 8 ) A nightmare on elm
street
7. ( 5 ) The terminator
8. (13) Runaway
9. ( 6) 2010 the year we
make contact
10. (9) Placesintheheart
1. ( 7 ) The karate kid
2. ( 1 ) Police academy
3. ( 2 ) Tightrope
4. ( 3 ) Top secret
5. ( 4 ) Red Dawn
6. ( 5 ) Romancing the stone
7. ( 6 ) Trading Places
8. ( 8 ) Dune
9. (9) Party animal
10. (10) Bachelor party
URETLAND/
TÓNLISTARMYNDBOND
1. ( 2 í Private dancer tour
— Tina Turner
2. ( 1 ) Animalize, live unc-
ensored — Kiss
3. ( 5 ) „Under a blood red
sky" — U2
4. ( 6 ) Live in Rio — Queen
5. ( 8 ) The video — Wham!
6. ( 4 ) Let there be rock —
AC/DC
7. ( - ) The video EP —
Madonna
8. ( 3 ) Through the cam-
era eye — Rush
9. (10) Alchemy live —
Dire Straits
10. ( 7 ) Kerrang! Video
kompiiation