Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Síða 2
2
Dy. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
lírslitakeppni ðkuleikni BFÖ—PV:
Þrír ísf irðingar í sigur-
sætum ökuleikninnar
— Einn keppenda aðeins hársbreidd f rá því að vinna bflinn
Þaö voru taugatrekktir ökumenn
sem voru á ferðinni rétt fyrir kl. 9 sl.
laugardagsmorgun og stefndu í átt
að Mazda umboðinu, Bílaborg hf.
Ekki var að furða því þarna voru á
ferð keppendur í úrslitakeppni
ökuleikninnar. Það var ekki heldur
svo lítið í húfi fyrir þá því verðlaun í
keppninni voru glæsileg. Þarna
kepptu menn um Islandsmeistara-
titilinn í karla- og kvennariöli, bikar-
verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hvorum
riðli ásamt farandbikurum. Einnig
voru í boði utanlandsferðir fyrir
efstu keppendur. Og síðast, en ekki
síst, þá stóð splunkuný Mazda 626
GLX á hlaðinu og beið þess að einn
keppendanna hreppti hana. Já, það
er rétt. Heill bíll í verölaun. Það var
Mazda umboðið sem lét bílinn af
hendi og sá keppandi sem æki í
gegnum þrautaplanið, sem sett haföi
verið upp, villulaust, fengi bílinn að
gjöf frá umboðinu. Það var því ekki
að undra að keppendur væru með
svolítinn fiðring í maganum er þeir
renndu í hlað við Bílaborg hf.
Keppnin var tvíþætt. I fyrstu urðu
keppendur að spreyta sig á nokkrum
umferðarspurningum, miserfiöum.
Engum keppendanna tókst að svara
þeim öllum rétt, en þeir sem næstir'
voru því voru tvær stúlkur sem
aöeins höfðu eina spurningu ranga.
Fjölmennasta keppnin
Alls höfðu 95 keppendur átt rétt á
því að keppa í úrslitakeppninni og 62
þeirra mættu til keppni. Mun þetta
vera fjölmennasta úrslitakeppnin á
þeim 8 árum sem keppt hefur veriö
um Islandsmeistaratitilinn. Svo
fjölmenn var keppnin að keppa varð
á tveimur þrautaplönum og þrátt fyrir
þaö tók það keppendur 7 klukku-
stundir aö aka þa- tvær umferöir
sem þeim var uppálagt aö aka. Sjálf
akstiirskenpnin var haldin á piani
Osta- og smjörsölunnar á Artúns-
höfða. Var það auðsótt mál að fá
planiö lánaö enda höfðu forráða-
menn Osta- og smjörsölunnar góðan
skilning á tilgangi keppninnar, aö
efla umferðarmenningu landsmanna
sem vægast sani er okki vanþörf á.
Spenna í karlariðli
Keppnin var mjög jöfn og
spennandi, þó sérstaklega í karla-
riðli. Þar var hver sekúnda dýrmæt
og þaö sýndi sig að ein sekúnda
kostaöi að minnsta kosti einn
keppandann verðlaunasætiö.
Eins og fram hefur komið yrðu
keppendur að aka tvær umferðir og
var það heildarárangur sem gilti. Sá
er sigraði í karlariðli og er þar með
Islandsmeistari karla í ökuleikni ’85
er Guðmundur Salómonsson frá Húsa-
vík. Hann fékk 433 refsistig. Hann er
ekki alveg ókunnugur ökuleikninni
því tvívegis hefur hann unnið utan-
landsferð í úrslitakeppni og keppt
fyrir hönd Islendinga í norrænni
ökuleikni. I áru eru reglurnar þannig
að haf i keppandi unnið utanlandsferö
áður, þá er hann út úr myndinni í
keppninni um utanlandsferðina í ár.
Guðmundur verður því að láta sér
bikarverðlaunin og titilinn Islands-
• Verðlaunahafar i úrslitakeppninni ásamt forráðamönnum ökuleikninnar, talið frá vinstri: Einar Guð-
mundsson, framkvstj. BFÖ, Friða Halldórsdóttir í 3. sæti, Bryndis Óskarsdóttir i öðru sæti, Auður Yngva-
dóttir íslandsmeistari, Guðmundur Salómonsson íslandsmeistari, Benedikt Hjaltason í öðru sæti, Einar
Halldórsson, 3. sæti, og Brynjar Valdimarsson, forseti BFÖ.
• Þessi þraut var tvímælalaust erfiðasta þrautin i planinu. Hún var fólg-
in i því að láta framhjólið fara inn fyrir tappann án þess að snerta hann
eða stangirnar sitt hvorum megin við hann. Aðeins örfáum keppendum
tókst að leysa þessa þraut rétt.
meistari 1985 duga. Sá sem hlaut
ferðina var keppandi í öðru sæti,
Benedikt Hjaltason frá Akureyri.
Hann hlaut 467 refsistig og þar með
utanlandsferö með Arnarflugi. Sá
sem hafnaöi í 3. sæti var Einar
Halldórsson frá Isafirði. Hann fékk
477 refsistig. Einar hefur ætíö verið
framarlega í úrslitakeppni og
þrívegis hlotið Islandsmeistara-
titilinn, og síðast í fyrra. Hann var
mjög nálægt því að hreppa bílinn í
fyrri umferöinni er hann gerði aðeins
tvær villur í brautinni.
Auður ber af
I kvennariöli bar einn keppandinn
af hvað varðaöi aksturinn. Það var
Auður Yngvadóttir frá Isafirði. Hún
fékk 510 refsistig. Hún er því Islands-
meistari í ökuleikni þriðja árið í röð.
Hún hefur sýnt frábæra hæfni og er
meðal annars nýverandi Norður-
landameistari kvenna í ökuleikni.
Þann títil hlaut hún 1983 og síðan
hefur ekki enn verið keppt um hann.
Því heldur hún titlinum ennþá.
Auðui hefur áður hlotið utanlands-
I ‘ ð c g því hlaut hún hana ekki í ár.
Þaö v ir hins vegar Bryndís Oskars-
dóttir, sem einnig er frá Isafiröi, sem
hlaut ferðina. Hún lenti í ööru sæti
með 623 refsistig eöa rúmlega 100
refsistigum lakari árangur en
Auöur. Fríöa Halldórsdóttir úr
Reykjavík varð þriðja meö 687 refsi-
stig. Hún hefur áður keppt í úrslita-
keppnum og meðal annars verið Is-
landsmeistari tvisvar.
Kristín missti
af bílnum
Mazda bíllinn freistaöi allra
keppendanna og þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir gekk bíllinn ekki
út. Það var þó einn keppandinn sem
var kominn með aðra höndina á
bílinn, en þá geröi hann eina klaufa-
villu sem kostaði hann bílinn. Það
var því svekktur keppandi sem sté út
úr keppnisbílnum aö lokinni keppni í
það sinn. Hann heitir Kristján Ari
Einarsson, ljósmyndari DV. Hann
keppti í vor í pressukeppni
ökuleikninnar og komst í úrslit. Að
sögn dómara keppninnar hafði hann
neglt niður og stöövað bílinn í miðri
þraut, sem ekki var leyfilegt, þó svo
hann hefði getað leyst þrautina alveg
rétt að öðru leyti, og reyndar allar
aðrarþrautirlíka.
Að lokinni keppni bauð trygginga-
félagið Ábyrgð hf. öllum keppendum
og starfsmönnum til kaffisamsætis
og þar voru verðlaun afhent í
ökuleikni. Einnig voru afhentir
vinningar í reiðhjólahappdrættinu
sem efnt var til í tengslum við
reiöhjólakeppnina sem haldin var
samtímis ökuleikninni um allt land í
sumar.
Tvö þúsund hafa keppt
Þessu áttunda keppnisári
ökuleikninnar er lokiö og var
keppnin í sumar fjölmennasta
keppni sem haldin hefur verið.
Rúmlega 600 ökumenn háöu keppni í
ökuleikni og er það 50% aukning frá
því í fyrra. Alls hafa rúmlega 2000
keppendur verið með frá upphafi.
Keppnin í sumar var því tímamóta-
keppni. Það var Bindindisfélag
ökumanna sem sá um undirbúning
og framkvæmd keppninnar og var
hún haldin í samvinnu við DV, Bíla-
borg og Umferöarráð. Margir aðrir
aðilar lögðu hönd á plóginn og án
þeirra hefði keppnin ekki verið fram-
kvæmanleg. Því vilja forráðamenn
ökuleikninnar færa öllum þeim er
lögðu keppninni lið, þakkir fyrir
stuöninginn.
Ráðgert er að halda keppninni
áfram næsta sumar og vonast for-
ráöamenn hennar til að sjá enn fleiri
andlit í keppninni, enda hefur
ökuleiknin til skamms tíma verið
fjölmennasta akstursíþróttin sem
stunduö hefur veriö á Islandi.
EG
• Pótur Steinn Guðmundsson frá Fálkanum afhendir vinningshafa i reiðhjólahappdrættinu, Gunnari
• Kristján Ari Einarsson er hér að leggja af stað í ferðina örlagariku sem
Sigurðssyni, splunkunýtt DBS reiðhjól, gefið af Fálkanum hf.
næstum hafði fært honum Mazda 626 bilinn.