Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Blaðsíða 44
44 DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið • Framleiðcndur Dallas- þáttanna eru farnir að hafa á> hyggjur af því hversu J.R. er orðinn óvinsæll. Þeir hafa þvi ákveðið að iáta kappann fá taugaáfall til að fá örlitla samáð sjónvarpsáhorfenda. ★ ★ ★ • Menn hafa nú áhyggjur af því að samband þeirra Mick Jagger og Jerry Hail sé eitthvað að kólna. Jagger birtist nefniiega um daginn í París með nýja dömunppáarminn. ★ ★ ★ • Tina Turner hefur tekið saman við nýjan mann. Sá heftir Ciaude Ravier og er forrikur viðskiptajöfur. ★ ★ ★ • Dudley Moore er kominn með nýja dömu. Hann var i Monte Carlo á dögunum og sást þar með Brogan Lane, sem er leikkona. Virtist fara mjög vel á með hjúunum. Víggirtur Stallone Það er stundum ekki tekiö út sem sældinni að vera frægur í henni Ameríku. Slíkt fá leikarar og aðrir þeir sem eru í sviðsljósinu oft að reyna. Vinur okkar í kvikmyndinni Rambo, öðru nafni Sylvester Stallone, krafta- karl og kvennasjarmör er þar engin undantekning. Hann er nú talinn á hátindi frægðar sinnar og einn vinsælasti leikari í Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað. Lögregluyfir- völd í Los Angeles vinna nú að því hörðum höndum að komast til botns í öldu símahótana er aðallega er beint ' * • Kvikmyndahetjan Stallone innan girðingar á eigin lóð i einu úthverfa Hollywood. Þangað skyldi enginn reyna að komast óboðinn. til filmstjarnanna er búa í nágrenni borgarinnar í Hollywood. „I dag kemur þú til með að deyja... þú færð banahöggið í dag,” heyrðist um daginn úr dimmrödduðum karl- mannsbarka er hringdi til Stallone og hótaði honum öllu illu. Yfirmenn í MGM kvikmyndaverinu í Culver City, þar sem Stallone vinnur þessa dagana við kvikmyndatökur á myndinni Rocky IV, hafa eðlilega miklar áhyggjur af síauknum hótunum í garð frægra starfsmanna sinna og hafa tvíeflt alla öryggisvörslu við kvik- myndaverið. Rambo sjálfur er reyndar ekki sagður hafa of miklar áhyggjur af öllum hótununum en segist þó fara að öllu með gát. Ekki þarf Stallone að hafa áhyggjur af því aö óbótamenn komist óboönir inn í rammgirta villu kappans í Hollywood. Þar eru öryggis- verðir, aðvörunarkerfi og blóðhundar á hverju strái. Karólína Mónakóprinsessa setur eiginmanni sínum afarkosti: Annað barn eða skilnað Karólína prinsessa í Mónakó hefur sett ektamanni sínum, Stefano, stólinn fyrir dyrnar: „Ég vil annað barn eöa skilnað,” hefur hún sagt við hann. Og ekki nóg með það, hún krefst þess að hann hætti að hlaupa á eftir hverju pilsi sem á vegi hans verður. Herma áreiðanlegar heimildir að Stefano muni láta í minni pokann. Hann sé nefnilega stórhrifinn af Karólínu, þrátt fyrir allt. Þess utan veit hann að Roberto Rossellini, vinur Karólinu, er meira en tilbúinn að hiaupa í skarðið fyrir hann. Karólínu iangar mjög til aö eignast annað barn. Þaö á að verða stúlka og þegar hefur verið ákveðið hvað það barn á aö heita, auðvitað Grace. Samkomulag þeirra Karólínu og Stefano hefur ekki verið upp á það allra besta upp á síökastiö. Fyrir tveimur mánuðum komst hún að því að Stefano hefur haldið fram hjá henni. Síðan þá hefur hann verið í heimaborg sinni, Mílanó á Italiu, en Karólína á heimili þeirra i Mónakó. En nú standa yfir samningaviðræður til aö bjarga hjónabandinu. Vill Karólína að Stefano komi heim og verði þar meira en verið hefur. Ekki síst til að hjálpa til viö uppeldið á syni þeirra og til að leggja drög að barni númer tvö. „Ef Stefano er ekki tilbúinn að breyta um stíl og vera sá eiginmaður sem ég kýs vil ég skilnað,” hefur hún sagt. „Ég er alveg tilbúin til að skilja við hann ef það er eina leiðin fyrir mig til að verða hamingjusöm.” Stefano varð bálreiður þegar • Karólína hofur sott Stefano afarkosti. Ef hann gengur ekki að þeím œtlar hún að skilja við hann. Karóiína setti honum þessa úrslita- kosti. „Hún vill hafa allt eftir sínu höfði,” segir hann. „Ef ég ekki fellst á það vill húnskilnað.” En Stefano veit að ef hann gengur ekki að þessum kostum mun Roberto Rossellini taka sæti hans í lífi Karólínu. Roberto hefur verið miklu meira með henni undanfarnar vikur en Stefano. Og segja heimildirnar að það eigi Stefano erfitt með að sætta sig við. • Joan Collins, stjarnan úr Dynasty, ku vera í megrun. Að minnsta kosti vakti það athygli þegar hún, ásamt vini sinum Peter Holm, sást á veitingahúsi fyrir skömmu og pantaði sér bara vatn á meðan Holm fékk séris. • Roberto Rossellini hefur mikið verið með Karólinu undanfarnar vikur og er hann tilbúinn að taka sœti Stefano.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.