Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Qupperneq 30
30
DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn
AÐ BYRJA í SKÓLANUM
— sögðu krakkarnir í Árbæjarskóla
• Sigrún Jónasdóttir styflur sig við hné viðmœlanda síns og laetur
móðan mása.
Þaö var létt yfir krökkunum í
áttunda og níunda bekk Árbæjar-
skólans þegar DV kannaöi andann
hjá þeim í upphafi skólaársins. Þau
stóöu glaðbeitt í hóp á skólalóöinni og
biöu þess í ofvæni að krakkarnir úr
sjöunda bekk kæmu út úr skólabygg-
ingunm. Busavígsla var víst á dag-
skránni. Krakkamir í eldri bekkjun-
um höföu greinilega tekiö upp á þeim
ljóta siö menntaskælinga aö bjóöa þá
yngri velkomna í hópinn með ein-
hverjum svívirðilegum pyntingum.
Ein stúlknanna handfjatlaði túpu
með hárgljáafeiti. Loft var lævi
blandið.
„Bara alveg ágætlega"
Þegar krakkamir uröu þess
áskynja aö blaðamaður og ljósmynd-
ari frá DV voru mættir til leiks slitu
þau athygli sína frá útidyrahurðinni
og umkringdu aðkomumenn. öll
kepptust þau viö aö lýsa yfir
hógværum áhuga sínum á þvi aö
komast í blöðin og voru viljug til aö
svara þeim spumingum sem aö þeim
var beint. Fyrst varö fyrir svörum
lágvaxiö sprund er gegndi nafninu
Sigrún Jónasdóttir. Hún hafði gert
sig svo heimakomna aö styöjast viö
hné blaöamanns hvar hann sat á
steinvegg með hópinn í hálfhring í
kringum sig.
Fyrst var Sigrún innt eftir því
hvernig hún kynni við aö hefja skóla-
nám eftir áhyggjuleysi sumarsins.
Svar hennar var stutt og laggott:
„Bara alveg ágætlega.” Hún sagöist
hafa unniö við barnapössun á
Laugarvatni í sumar, fundist þaö
fínt og fínt aö fara aftur í skólann.
Matreiðslu kvað Sigrún sitt upp-
áhaldsfag og þegar hún var beöin að
greina frá því hvaö væri svona
skemmtilegt viö matreiðsluna
(blaöamaður minntist þess aö þegar
hann lagði stund á þessa námsgrein,
ungur maður í grunnskóla, þótti hon-
um hún skemmtileg vegna kjötbollu-
slags og hrekkja) þá sagði Sigrún
aðeins: „Hún er bara alveg frábær.”
„Kynnisferð um
Borgarspítalann"
Þegar orðræðunni við Sigrúnu var
lokið þrábáðu skólafélagar hennar
um aö næst yröi talað viö sig. Meðan
á þessu stóö laumuðust busarnir út
um dyrnar á skólanum og hurfu eins
• Jóhanna Halldórsdóttlr sagflist óska þess afl verða flugmaður þegar hún yxi úr grasi.
ALVEG BARA
og dögg í sólskini út um hvippinn og
hvappinn.
Ingvar haföi lent í slysi í vor og
eytt sumrinu „í kynnisferð um
Borgarspítalann”, eins og hann
orðaði þaö sjálfur. Það voru því góð
skipti, fannst honum, að hitta skóla-
félagana.
— Finnst þér mennt vera máttur?
spuröi blaöamaöur og Ingvar
svaraöi aöbragöi:
„Já, fræöilega séö er skólinn mjög
skemmtilegur.”
— Hvaö um félagslegu hliöina?
„Tja, ég á mína bestu vini í skólan-
um og svo eru kennararnir fínir.”
Krakkarnir tóku öll undir þetta og
nafngreindu ýmsa kennara sem
voru þekktir fyrir allt annað en aö
slá nemendurna meö landakortum
og vanrækja kennslu í mannasiðum.
„Maður verður að
verða eitthvað"
Að lokum sátu þær stöllur Ingunn
Einarsdóttir, Hulda Steingrímsdóttir
og Jóhanna Halldórsdóttir fyrir svör-
um. Þær viöurkenndu fúslega aö þær
hefðu fjárfest í nýtískulegum skóla-
fatnaöi fyrir þessa önn, enda væri
þaö nauðsynlegt til aö vera viður-
kenndur af hópnum. Þær nefndu
þennan hóp reyndar klíku og sögðust
vera í einni af fjórum klíkum
skólans. „Við erum í B-klíkunni,”
sögöu þær. „Hún heitir hoppandi
krílin.”
Um áætlanir sínar um framtíöina
sögöust þær Ingunn og Hulda ætla aö
læra snyrtifræði eöa fatahönnun en
Jóhanna lýsti yfir áhuga sínum á
flugi.
„Eg stefni á framhaldsnám,”
sagöi hún. „Auövitaö verður maður
aö verðaeitthvaö.”
Þegar blaðamaður og ljósmyndari
DV yfirgáfu Árbæjarskólann höföu
þeir venju fremur góöa samvisku.
Busarnir í sjöunda bekk komust
klakklaust heim til sín.
-JKH.
FRABÆRT
• Krakkarnir í Árbæjarskóla hafa hór umkringt blaflamann.
DV-myndir PK.