Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1985, Síða 31
DV. MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER1985.
Dægradvöl húsbyggjandans:
Naglhreinsun,
sköfun og
snúningar
„Menn deyja jafnvel frá hálf-
byggðum húsum,” kvaðTómasum
húsbyggjendur, stétt manna úr
öllum stéttum sem taka sig til einn
veðurdag og ákveða að reisa sér þak
yfir höfuðið. Þeir verða sér úti um
lóð og leyfi, láta grafa holu í jöröina
og nefna grunn að borg drauma
sinna. Þá kalla þeir haga menn til
fylgilags við sig og einhvern tíma í
fjarlægri framtíð sitja hús-
byggjendur í makindum innan
dyra, undir þaki og slá sjálfa sig til
húseigenda.
Hjá venjulegu fólki liggur langur
og þyrnum stráður vegur milli þess
að hamar er reiddur við sökkla-
smíðina og þess að hann er reiddur
til að festa upp málverk í stofunni.
Fæstir eru það vel stæðir aö geta
greitt húsið út í hönd. Taka þarf lán
hjá lífeyrissjóði og Húsnæðismála-
stofnun og leggja á sig ómælda auka-
vinnu. Margir sjá sjálfir um allar út-
réttingar í sambandi við hús-
bygginguna, efniskaup og annað auk
þess sem sumir vinna hörðum
höndum viö smíði, naglhreinsun,
sköfun, mótafráslátt og annað sem
til fellur.
Ekki er óalgengt að öll f jölskyldan
leggi hönd á plóginn og láti ekki
deigan síga fyrr en framkvæmdir
eru í höfn. Þá rennur upp nýr tími
áhyggna og annríkis þegar glugga-
umslögin fara að skjótast inn um
bréfalúguna á nýja húsinu. Lánin
þarf að greiða svo og vexti af þeim
og þau líða mörg árin áður en menn
geta með rentu kallað sig einka-
eigendur að húsum sínum.
Eitthvað á þessa leið hljóðar sú
saga sem gengur af húsbyggjendum
og þrátt fyrir að hún sé ekki sérlega
fögur er fólk ætíð að byggja. Það
lætur sig hafa þaö enda flestum
mikilvægt að eiga öruggan sama-
stað. I dægradvölinni í dag er rætt
við tvo húsbyggjendur sem hafa
notað tómstundir sínar undanfarið til
húsbygginga.
-JKH.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
„Viljað brenna við að menn
taki bara fyrir nefið”
„Eg segi nú ekki að það fari öll
kvöld í þetta. Aðallega er maður í
snúningum og snatti,” sagði Gunnar
Guöjónsson þegar DV hitti hann á
• „Það er góð tilfinning að vera kominn undir þak," sagði Gunnar
Guðjónsson í húsi sínu fokheldu. DV-mynd PK.
væntanlegu heimili að Logafold 79.
Húsið var orðið fokhelt, og vel það;
verið var að tengja ofnana. Hann
sagðist ekki vera með neinar
áætlanir um það hvenær hann flytti
inn, „þær standast hvort sem er
aldrei”.
Þegar liann var spurður hvort það
væri jafn erfitt að byggja og af væri
látið sagðist hann oft hafa spurt
sjálfan sig að því sama. „Mér finnst
þetta ekki hafa verið eins djöfullegt
og flestir útmála þetta. Það veltur á
miklu að hægt sé að treysta
fullkomlega á þá menn sem maður
hefur.”
Ræður þú öörum frá því að fara út í
húsbyggingar?
„Eg veit þaö ekki. Það fer eftir
kringumstæðum. Aðalatriðið er að
athuga vel sinn gang og fara ekki út í
neitt sem maður ræður ekki við. Þaö
hefur viljað brenna við þetta gamla
að menn taki bara fyrir nefið,
stökkvi út í og voni svo að allt
bjargist,” sagði Gunnar Guðjónsson
-JKH,
„Fyrsta húsið og von-
andi það síðasta”
„Það er aðaláhugamál mitt í bili
að koma þessu skammlaust upp,”
sagði Páll Hrólfsson, hús-
byggjandi að Logafold 171 í
Grafarvoginum, þegar hann var
spurður hvort hann hefði tíma til að
sinna einhverju öðru en húsi sínu.
Það er stutt í að það verði fokhelt og
búið að vera í byggingu í hálft annað
ár.
„Þetta er fyrsta húsiö sem ég reisi
yfir sjálfan mig og vonandi það
síðasta,” sagöi Páll en hann er ekki
með öllu ókunnugur húsbyggingum.
Síðastliðin 20 ár hefur hann unnið við
járnabindingar og vafalaust vitað að
hverju hann gekk þegar hann ákvað
að reisa sér hús.
Þegar Páll var spurður hve mikil
aukavinna lægi í þessu sagði hann að
þetta væri svona á við hálft starf.
Hann lagði sjálfur járnin, reif utan
af, lagöi pípur og annaðist alla
nauðsynlega snúninga.
„Þetta er geysileg vinna.”
— Erhúnþessvirði?
„Já. Þaö er ódýrara aö vinna
sjálfur við þetta og öll fjölskyldan er
búin að vera í þessu. Maöur lærir
• Páll Hrólfsson fyrir framan afrakstur tómstundanna síðustu 18
mánuði. DV-mynd PK.
líka ýmislegt. Það eina sem mér
finnst að þessu eru lánamálin. Við
sem eigum íbúð fyrir, fáum þriðja
hluta húsnæðislánsins hálfuári eftir
að nýbyggingin er fokheld og hina
tvo hlutana með hálfs árs fresti eftir
það. Mér finnst að lánið mætti vera
eitthvað lægra ef maður gæti fengið
það um leið og húsið verður fokhelt.
Þá hefur maöur þörf fyrir þetta
fjármagn.”
-JKH
31
Andlitsböð, húðhreinsun, litun
fótsnyrting, vaxmeðferð,
k hand snyrting og /
^ kvöldsnyrting. ^
GYÐJAN, snyrtistofa og snyrtivörubúð
Skipholti 70, sími 35044.
Mörg hundruð þúsund
metrar af snjóbræöslu-
rörum úr
huls VESTOLEN P
bræöa ís og snjó af ís-
lenskum bílastæöum,
göngugötum, íþróttavöllum og gangstéttum og sjá þannig
um aö hemja Vetur konung.
Snjóbræðslurör úr VESTOLEN P hafa sýnt og sannaö aö
þau hafa meira frostþoi en nokkurt annað plastefni, sem
notaö er í sama skyni.
Framúrskarandi tækniþekking og áratuga reynsla standa
aö baki þróunar VESTOLEN P, sem er fjölliða óreglubund-
iö polyprópylen.
Aðrir eiginleikar þessa rörahráefnis eru auðveld og örugg
samsuöa, frábært kalþflæöiþol og mikill sveigjanleiki.
Samspil verös og gæöa talar sínu máli fyrir VESTOLEN P.
Viö munum meö ánægju senda yöur allar upplýsingar.
Hafiö samband viö fulltrúa huls á íslandi.
Pósthólf 1249, 121 Reykjavík.
h&ils
CHEMISCHE WERKE HULS AG
Referat 1122, D-4370 Marl