Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Page 8
30
DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985.
Murphy enn
á myndband
Þaö er ekki ofsögum sagt af vin-
sældum hetjunnar Axel Foley í
myndinni Beverly Hills Cup. Og þó
voru tvær fyrri myndir Murphys, 48
Hours og Trading Places ekkert slor.
Paramount Home Video hefur ný-
lega tilkynnt að fyrirtækiö ætli aö
gefa þessa vinsælu gamanmynd út á
myndbandi. Er útgáfa þessi liður í
söluherferð Paramount fyrir jólin og
sem gengur undir nafninu 25 fyrir 25.
Beverly Hilis Cup á aö kosta 29 doll-
ara og 95 sent á almennum markaöi
og ætla þeir hjá Paramount að byrja
að taka á móti pöntunum 14. október
eöa á mánudaginn kemur. Þaö má
heita öruggt aö slegist veröur um
eintökin enda full ástæöa til. Myndin
veröur nefnilega tekin af markaði 31.
janúar um óákveöinn tíma.
1 Bandaríkjunum er því spáð aö
Beverly Hills Cup muni bera höfuð og
heröar yfir aörar myndir á mynd-
bandamarkaönum í ár hvaö sölu
snertir. Eina myndin, sem hugsan-
lega gæti veitt henni einhverja sam-
keppni, væri mynd þeirra Columbíu-
manna, Ghostbusters. Sú kostar hins
vegar 79 dollara og 25 sent á almenn-
um markaði eöa rúmlega helmingi
meiraerB.H.C.
Þess má og geta aö Paramount
ætlar í umræddri 25 fyrir 25 söluher-
ferð aö gefa út mynd þeirra Bing
Crosbys og Danny Kays, „White
Christmas”. Þessi mynd, sem gerð
var 1953, hefur ekki verið sýnd opin-
berlega síöan 1979.
Þaö má víst meö sanni segja aö
sölumennskan sé þeim Könum í blóð
borin. Heims um ból, Foley um jól.
-ÞJV
Frisll Axel Foley, lögreglumaðurinn i Beverly Hills, verður að öllum líkindum gestur á hverju heimili í
Bandaríkjunum um jólin.
í fótspor föðursíns
IpJ i ''
\ v |/ |
; i y, I
/*#&&&£ ‘i •••
Madonna — hefðarfrú i dœgurlagaheiminum i dag.
Living Proof.
Leikstjóri: Dick Lowry.
Aðalhlutverk: Richard Thomas.
Tími: 102 mín.
Kántrítónlist hefur aldrei veriö í
uppáhaldi hjá mér. Þess vegna geri
ég ekki meira en rétt kannast viö
nafnið Hank Willams.
Og ekki vissi ég að þeir heföu verið
tveir. Þessi mynd, Living Proof,
fjallar um Hank Willams jr. eöa son
Willams hins fyrsta. Sá lést víst
aðeins þrítugur aö aldri eftir of-
neyslu áfengis og lyfja. Eftirlifandi
konu hans var pnjög í mun aö halda
minningu manns síns á lofti og dubb-
aöi því soninn upp í kúrekaföt og lét
hann syngja gömlu topplögin.
Myndin hefst þegar Hank yngri er
kominn yfir tvítugt. Hann er oröinn
leiður á aö raula topplögin fööur síns
og vill reyna að gera eitthvað á eigin
spýtur. En á það vill mamma hans
ekki heyra minnst. Loks rís Hank
upp gegn ofurvaldi hennar og
ákveöur aö hefja eigin tónlistarferil.
Það gengur brösuglega. I staöinn fyrir
aö apa eftir lögin hans pabba, snýr
piltur sér aö því aö apa upp lifnaðar-
hætti hans. Áfengi og pillur í hvert
mál og hann stefnir hraðbyri í átt til
glötunar.
Hér er tekið á því vandamáli sem
börn frægra foreldra eiga viö að etja.
Hinn stööugi samanburður viö verk
pabba eöa mömmu og viðleitni til aö
skapa sér sitt eigið lífsform.
I þessari mynd er farið hratt yfir
sögu og ekki staldrað viö einstök
smáatriöi. Sjálfsvitund Hanks yngri
hafði næstum komið honum til helvít-
is en hann sá að sér að lokum.
Kántritónlist er mikiö notuð til að
skapa réttan bakgrunn. Persónulega
er ég þeirrar skoðunar að þetta sé
hræðilegasta tónlistarform sem til
er. „Eg fór á krána og fékk mér í
glas” fílingur. Þetta eyðilagði dálítiö
fyrir mér ánægjuna því sem afþrey-
ing er Living Proof í góöu lagi. Þaö er
forvitnilegt að sjá hvað börn fræga
fólksins þurfa aö ganga í gegnum, þó
að í þessu tilfelli sé farið töluvert
hratt yfir sögu. -ÞJV
Lady Madonna vö,d_ ástríður, sársauki
Madonna. Tími: ca 18 min.
Um þessar mundir ber hún þaö
nafn með rentu. Madonna er sann-
kölluð heföarfrú í dægurlagaheimin-
um í dag og hvert lagið á fætur ööru
sest í toppsæti vinsældalista. Hún af-
rekaði það meðal annars á dögunum
aö koma tveim lögum í tvö efstu sæti
breska vinsældalistans og komst þar
með í hóp ekki ófrægari manna en
Bítlanna og Frankie goes to Holly-
wood. Lifi jafnréttið!
Bomban sprakk þegar Madonna
gaf út plötuna Like a Virgin og um
svipað leyti lék hún í myndinni
Desperately Seeking Susan.
Þetta tónlistarmyndband er stutt,
aðeins rúmar átján mínútur. Þaö
inniheldur fjögur lög og þar af er
aðeins eitt lag af jómfrúrplötunni,
titillagiö Like a Virgin. Hin þrjú eru
eldri, hlutu mismiklar vinsældir á
sínum tíma og helst sá árangur í
hendur viö gæöin. Best þykir mér
Borderline sem er ágætlega flutt og
meö grípandi laglínu.
Þetta myndband má heita tilvaliö
fyrir aödáendur Madonnu sem þó
gætu saknaö annarra topplaga
hennar eins og Angel og Into the
Groove. Spólan er víöast hvar leigö á
50—60 krónur sem teljast má sann-
gjarnt sé hinn stutti sýningartími
hafður til hliösjónar.
En hvort Madonna veröur eins og
hver önnur loftbóla í heimi dægur-
laganna sker timinn einn úr um.
Byrjunin er allavega glæst, hvaö
sem síöar verður.
-ÞJV
Lousiana.
Leikstjóri: Philippe De Broca.
Aðalhlutverk: Margot Kidder,
lan Charleson, Victor Lann-
oux.
3 spólur.
Nú, þegar framhaldsþættirnir eru
hvaö vinsælastir, hefur ný þáttaröö
bæst í flokk annarra slíkra á mynd-
bandaleigur borgarinnar. Þessir
þættir nefnast Louisiana.
Efni þáttanna er ekki nýtt af nál-
inni, þaö hefur ótal sinnum veriö tek-
iö fyrir af hinum ýmsu leikstjórum. I
þessari þáttaröö er efnið meðhöndl-
aö af leikstjóranum Philippe De
Broca og ferst honum þaö ágætlega
úr hendi.
Virginia Tregan (Margot Kinder)
snýr heim til ættstööva sinna, Louisi-
ana í suöurhluta Bandarikjanna, eft-
ir langa fjarveru. Viö heimkomuna
kemst hún aö því aö látinn faöir
hennar hefur misst allt sem hann
átti. Ákveðin í að verða efnuð aftur
giftist Virginia guðföður sínum,
Adrien (Victor Lannoux), sem er all-
ríkur baömullarbóndi. Sagan spann-
ar síðan næstu 30 árin í lífi Virginiu
með samspili gleði, ástríöna og sárs-
auka.
Efni þáttanna lýsir vel því ástandi
sem var í Bandaríkjunum á þessum
tíma. Ber þar hæst þrælahaldið sem
var mjög algengt í Suöurríkjunum.
Þrælar gengu kaupum og sölum eins
og hver annar búfénaöur og þóttu
einungis fjárfesting sem ekki átti
rétt á neinu frelsi. Þessi blettur á
sögu mannkynsins hefur alltaf áhrif
á skoðanir manns um frelsi einstakl-
ingsins en skilur nú ekki eftir jafn-
djúp spor og ætla mætti. Ástæðan er
fyrst og fremst sú hversu oft þessir
atburðir hafa verið teknir til umfjöll-
unar.
Aöalleikarar sem aukaleikarar
skila hlutverkum sinum vel enda
sumir ekki óvanir framhaldsþáttum
sem þessu. Fólk ætti almennt aö
kannast viö þá Victor Lannoux úr
Dynasty og Ian Charleson úr Master
of the Game. Þættirnir sem slíkir eru
ágætlega unnir og vel þess viröi aö
horfa á, nú þegar dimm og köld vetr-
arkvöld eru á næsta leiti.
-LH.
DV-listinn
Myndir
1. ( 1 ) Falcon and the
snowman.
2. ( 3 ) Gulag
3. (10) Places in the Heart
4. ( 2 ) Dalalíf
5. (4) The Karate Kid
6. (9) Hvers vegna ég?
7. ( 5 ) Blood Simple
8. ( 6 ) The Flamingo Kid
9. ( 7 ) Nýtt líf
10. ( 8 ) The T erminator
Bandaríkin
Tónlistarmyndbönd/Music
Þættir: Week
1.(1) The Video EP - Ma-
1.(1) Deceptions donna
2. ( 2 ) Mallense 2. ( 3 ) Private Dancer Tour
3. ( - ) 1915 — TinaTurner
4. ( 3 ) Gloria litla 3. ( 5 ) Live in Rio — Queen
5.(5) Return to Eden 4. ( 4 ) „Under a Blood Red
6. ( 4 ) Power game Sky - U2
7. ( 7 ) Onceupon 5. ( 7 ) The Greatest Flix —
a time . . . Queen
8. ( 6 ) Lace 2 6. ( 8 ) Animalize, Live Unc-
9. ( 8 ) Chiefs ensored — Kiss
10. ( 9 ) Luisiana 7. ( 2 ) '68 Comeback
Special — Elvis
Presley
Bandaríkin (Billboard):
1. (2) The Killing Fields
2. ( 1 ) Desperatly Seeking
Susan
3. ( 3 ) The Karate Kid
4. ( 4 ) A Soldiers Story
5. ( 5 ) Falcon and the
Snowman
6. (17) TheSureThing
7. ( 6 ) Starman
8. ( 8 ) A Nightmare on Elm
Street
9. (12) Mrs. Soffel
10. ( 7 ) Stick
Myndin Ths Killing Fiolds hefur
skotist á toppinn í Bandarikjun-
um þessa vikuna.