Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1986, Qupperneq 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. FEBRÚAR1986
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
^riggja stjömu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaöarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og
42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg.
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%,
4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, og eftir 6
mánuði 37%. Frá 11.02. 1986 verða vextir eftir
12 mánuði 38% og eftir 18 mánuði 39%. Sé
ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð-
um reikningum gijdir hún um hávaxtareikn-
inginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8‘X» eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reiknihgum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða rcikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn veröbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með aflollum og ársávöxtun er al-
mennt 12-1870 umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaúpa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund.
Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aóeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan .í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396
stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er viö
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvisitala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699
stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.02. 1986
innlAnmeðsérkjórum sjAsérlista ll ll iililf HÍililiíl
innlAn úverðtryggð SPARtSJÚÐSBÆKUR óburxiin innslai&a 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3|á mán. uppsovi 25,0 28.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23,0 25.0 25.0
6 min uppsogn 31.0 33.4 30.0 28,0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0
12 mán. uppsoon 32.0 34.6 32.0 31.0 33.3
SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sp.r.135 mán 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0
29.0 26.0 28.0 29.0 28.0
INNLANSSKlRTEINI Til 6 mAiuða 28.0 30.0 28.0 28.0
TtKKAREIKNINGAR Avisanaraiknmgar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Hlauparaiknmgar 10.0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3|a mln uppsngn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
8 mán. uppsopn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.6 7.5 7.5 7.5 8.0
Starlmgspund 11.5 11.5 12.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.6 11.5
■ * á — r -á. vmur-pysK mori 5.0 4.5 4.0 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krtnur 10.0 3.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
utlAn ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR VlXLAR (fonraxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAVlXLAR (fonraxtir) 34.02) kg« 34.0 kge 32.5 kg. kfl* k* 34.0
ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32,0 32.0 32.0 32.0 32.0
VMJSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kg« 35.0 kga 33.5 kga kga 35.0
HLAUPAREIKNINGAR útlAn verðtryggð YUII0RATTUR 31.5 31.5 31.5 31.6 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
skuloabrEf AA 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Langri an21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
útlAntilframleiosui sjAnedanmAlsi)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%,
í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14^5%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafiiárfirði, Kópavogi, Keflavik, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjöre vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
órverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Vereiunarbankanum.
Flugleiðir geta náð meirihluta í stjórn Arnarflugs:
Arnarflug
treystir á póli-
tískan þrýsting
Meirihluti stjómar Amartlugs
treystir á að ráðherrar beiti þrýstingi
til að koma í veg fyrir að Flugleiðir
eignist á ný meirihluta í Amarflugi.
Forráðamenn Amarflugs hafa rætt
málið við ráðherra úr báðum stjórn-
arflokkunum.
Vegna hættu á að missa völdin í
félaginu til Flugleiða hefur stjómar-
meirihlutinn í Amarflugi ekki þorað
að leggja fram tillögu um hlutafjár-
aukningu fyrr en nú eftir viðræður
við ráðherra.
Flugleiðir hafa ekki enn svarað
fyrirspum Amarflugs frá 4. desember
um hvort félagið ætli að taka þátt í
hlutafjáraukningu Arnarflugs. Nú-
verandi stjómarmeirihluti Arnar-
flugs hefur því verið í óvissu í rúma
tvo mánuði meðan brýn þörf hefur
verið á auknu hlutafé.
Síðastliðinn föstudag samþykkti
stjóm Amarflugs að leggja til við
hluthafa félagsins að hlutafé verði
allt að því tvöfaldað með tæplega
eitt hundrað milljóna króna aukn-
ingu.
Flugleiðir eiga nú tæp 44 prósent
í Amarflugi. Vegna forkaupsréttar,
sem margir smærri hluthafar myndu
ekki nýta sér, er talið víst að Flug-
leiðir kæmust í meirihluta ef félagið
keypti upp það hlutafé sem byðist.
A hluthafafundi, sem boðaður hef-
ur verið eftir tvær vikur, verður lögð
fram tillaga um að hluthafar neyti
ekki forkaupsréttar. Til að tillagan
nái fram að ganga verða 75 prósent
hluthafa að samþykkja hana.
Fimm ár em síðan Alþingi setti
Flugleiðum það skilyrði fyrir ríkis-
ábyrgð vegna taps á Norður-Atlants-
hafsfluginu að félagið seldi Starfs-
mannafélagi Amarflugs hluta eignar
sinnar í Amarflugi. Hlutur Flugleiða
minnkaði þá úr 57,5 prósentum niður
í 40 prósent.
Ameríkuflugi Flugleiða er nú aftur
ógnað. Flugleiðir hafa neyðst til að
draga seglin vemlega saman á und-
anfömum vikum.
f þessari veiku stöðu telja Arnar-
flugsmenn að Flugleiðir eigi erfitt
með að standast þrýsting stjóm-
málamanna.
-KMU
Stjóm Arnarflugs á fundi í desemberby rjun. Tveir af fimm stjórnarmönnum eru fulltrúar Flugleiða,
Bankaeftirlitið
skoðar þá stóru
—stærstu viðskipti Landsbanka og
Búnaðarbanka undir smásjá
Athugun bankaeftirlits Seðlabank-
ans á viðskiptum nokkurra stærstu
viðskiptavina Landsbankans og
Búnaðarbankans mun ljúka í þessum
mánuði. Tilgangurinn er sá að kanna
hvort nægar tryggingar standa alls
staðar að baki. Úttektir þessar em
gerðar að beiðni viðskiptaráðherra
en sams konar úttekt var gerð á
viðskiptum aðalviðskiptavina Út-
vegsbankans á síðasta ári.
Eins og kunnugt er kom í ljós í
fyrra að Útvegsbankinn hafði ekki
nægar tryggingar fyrir lánum og
ábyrgðum Hafskips hf. Þórður Ólafs-
son, forstöðumaður bankaeftirlits-
ins, vildi engar upplýsingar gefa um
það hvort fleiri slík tilvik hafi komið
fram í athugunum. Hann kvað áhuga
fjölmiðla á eftirlitinu hafa verið lít-
inn síðustu 15 ár og best færi á að
svo yrði áfram.
Viðskiptaráðherra skýrði nýlega
frá því á Alþingi að stærstu við-
skiptavinir ríkisbankanna, einkum
Útvegsbanka og Landsbanka, nytu
gríðarmikillar fyrirgreiðslu miðað
við eiginfjárstöðu bankanna. Þann-
ig vom tveir viðskiptavinir Útvegs-
bankans með meiri lán en nam öllu
eigin fé bankans, hvor um sig. Og í
Landsbankanum var einn viðskipta-
vinur með yfir 80% af eigin fé bank-
ans.
Ekkert hefur fengist upp um það
hvaða viðskiptavini er um að ræða.
Upplýsingar viðskiptaráðherra náðu
til fimm stærstu viðskiptavina hvers
þriggja ríkisbankanna eða fimmtán
viðskiptavina alls, en engin nöfn
vom nefnd. Eins og vant er var vísað
til bankaleyndar.
Vitað er að í hópi stærstu, við-
skiptavina Útvegsbankans telst
Hafskip hf., eða þrotabúið, skulda
mest. Skeljungur hf. mun vera í
þessum hópi og líklega Amarflug hf.
I Landsbankanum munu SÍS, Olíufé-
lagið hf. og KEA vera meðal helstu
skuldaranna, hugsanlega einnig
Reykjavíkurborg.
Þessi fimmtán viðskiptavina listi
viðskiptaráðherra, sem greindi að-
eins frá hlutfallslegum skuldum án
nafna skuldara, var tekinn saman 30.
nóvember síðastliðinn. Þar em fjár-
hagslega tengdir aðilar teknir sem
einn aðili, svo sem borgin og hrein
borgarfyrirtæki saman.
HERB