Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1987, Side 1
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1987.
23
Dagskrá
dagsins í dag
er á næst-
öftustu síðu
Laugardagur
21. mars
Sjónvaip
14.00 íþróttir. íslandsmótið í handknattleik.
Bein útsending frá íþróttahúsinu
Digraanesi í Kópavogi þar sem lið KA
og Stjörnunnar eigast við. 15.45 - is-
landsmótið i blaki./Úrslit: Þróttur -
Fram. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.00 Spænskukennsla: Flablamos Espan-
ol. Níundi þáttur. Spænskunámskeið i
þr^ttán þáttum ætlað byrjendum. Is-
lenskar skýringar: Guðrún Halla Tuli-
níus.
18.25 Litli græni karlinn. Sögumaður
Tinna Gunnlaugsdóttir.
18.35 Þytur i laufi. Sjöundi þáttur í bresk-
um brúðumyndaflokki. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
18.55 Háskaslóðir (Danger Bay) - 6.
Smyglvarningurinn. Kanadiskur
myndaflokkur fyrir börn og unglinga
um ævintýri við verndun dýra I sjó og
á landi. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Smellir: U-2 - Seinni hluti. Umsjón:
Snorri Már Skúlason og Skúli Helga-
son.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.35 Fyrirmyndarfaðir (The Cosby Show)
- 11. þáttur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur með Bill Cosby i titil-
hlutverki. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.05 Gettu betur - Spurningakeppni fram-
haldsskóla. Fjögurra skóla undanúrslit
- Fyrri þáttu.r Stjórnendur: Flermann
Gunnarsson og Elísabet Sveinsdóttir.
Dómarar: Steinar J. Lúðvíksson og
Sæmundur Guðvinsson.
21.45 Harvey s/h. Bandarisk gamanmynd
frá 1950 gerð eftir samnefndu leikriti
eftir Mary Chase. Leikstjóri Henry
Koster. Aðalhlutverk: James Stewart,
Josephine Hull og Victoria Horne. I
bæ einum býr ekkja ásamt dóttur sinni,
Elwood bróður sinum og boðflennu
sem enginn sér nema Elwood. Þetta
er mannhæðarhá kanína sem hann
kallar Harvey. Ofsjónir Elwoods verða
svo þrálátar að systir hans gerir ráðstaf-
anir til þess að senda hann á geð-
veikrahæli. En margt fer öðruvísi en
ætlað er. Leikritið var sýnt I Þjóðleik-
húsinu fyrir Um þrjátíu árum og lék þá
Lárus Pálsson aðalhlutverkið. Þýðandi
Örn Ólafsson.
23.25 Dire Straits á Wembley. Frá hljóm-
leikum sumarið 1985. Mark Knofler
og félagar hans i Dire Straits rokksveit-
inni leika gömul og ný lög.
00.35 Dagskrárlok.
Stöð 2
9.00 Lukkukrúttin. Teiknimynd.
9.20 Högni hrekkvisi. Teiknimynd.
9.40 Penelópa puntudós. Teiknimynd.
10.05 Herra T. Teiknimynd.
10.30 Garparnir. Teiknimynd.
11.00 Fréttahornið. Fréttatlmi barna og
unglinga. Umsjónarmaður er Sverrir
Guðjónsson.
11.10 Stikilsberja-Finnur. Mynd í fjórum
þáttum, gerð eftir sögu Mark Twain.
Fjórði og siðasti þáttur.
12.00 Hlé.
16.00 Ættarveldið (Dynasty). Carrington-
fjölskyldan kemur fram á sjónvarsviðið
aftur. Tekið er til við réttarhöldin yfir
Steve Carrington, en Alexis, fyrrver-
andi kona hans, vitnar gegn honum.
16.45 Heimsmeistarinn að tafll. Fimmti
þáttur af sex. Hinn ungi snillingur,
Nigel Short og heimsmeistarinn Gary
Kasparov heyja sex skáka einvígi fyrir
sjónvarp á skemmtistaðnum Hippo-
drome í London. Friðrik Olafsson skýrir
skákirnar.
17.10 Koppafeiti II (Grease 2). Bandarisk
dans- og söngvamynd með Michelle
Pfeiffer og Maxwell Caulfield í aðal-
hlutverkum.
18.50 Myndrokk.
19.00 Spæjarinn. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
19.55 Undirheimar Miami (Miami Vice).
Lögregludeildin fær það verkefni að
gæta frægs skálds.
20.45 Kir Royale. Geysivinsæl ný þýsk
þáttaröð. Fylgst er með slúðurdálka-
höfundi og samskiptum hans við
yfirstéttina og þotuliðið i Múnchen.
21.45 Besta vörnin (Best Defence).
Bandarisk gamanmynd með Dudley
Moore og Eddie Murphy í aðalhlut-
verkum. Dudley Moore leikur mann
sem hannar nýtt stjórntæki I skriðdreka
en Eddie Murphy leikur hermann sem
þarf að stýra skriðdrekanum. Þessi
samsetning er dæmd til að mistakast.
23.15 Aftaka Raymond Graham (Execution
Of Raymond Graham). Bandarisk
sjónvarpsmynd með Jeffrey Fahey og
Kate Reid í aðalhlutverkum. Myndin
sýnir siöustu stundir i lifi fanga, sem
dæmdur hefur veriö til dauða. Hún er
óhugnanlega raunsæ og snýst um rétt-
mæti eða óréttmæti þess að beita
dauðarefsingu.
00.50 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
Utvarp zás I
06.45 Veðurfregnir. Bæn.
07.00 Fréttir.
07.03 „Góöan dag, góöir hlustendur".
Pétur Pétursson sér um þáttinn. Fréttir
eru sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá
og veðurfregnir sagðar kl. 8.15. Að
þeim loknum er lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna og síðan heldur
Pétur Pétursson áfram að kynna morg-
unlögin.
09.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
09.30 í morgunmund. Þáttur fyrir börn í
tali og tónum. Umsjón: Heiðdis Norð-
fjörð. (Frá Akureyri).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Óskalög sjúklinga. Helga t>. Step-
hensen kynnir.
Tilkynningar.
11.00 Vísindaþátturinn. Umsjón: Stefán
Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá. Stiklað á stóru í
dagskrá útvarps um helgina og næstu
viku. Umsjón: Trausti Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú. Fréttir og fréttaþáttur í
vikulokin í umsjá fréttamanna útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá. Tónleikar.
14.00 Sinna. Þáttur um listir og menning-
armál. Umsjón: Þorgeir Ölafsson.
15.00 Tónspegill. Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líðandi stund. Umsjón:
Magnús Einarsson og Ölafur Þórðar-
son.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Leikrit barna- og unglinga: „Stroku-
drengurinn" eflir Edith Throndsen.
Siðari hluti. Þýðandi: Sigurður Gunn-
arsson. Leikstjóri: Klemens Jónsson.
Leikendur: Borgar Garðarsson, Jó-
hanna Norðfjörð, Valdimar Lárusson,
Arnar Jónsson, Helga Valtýsdóttir,
Björn Jónasson, Gísli Alfreðsson og
Sigurður Þorsteinsson. (Aður útvarp-
að 1965).
17.00 Að hlusta á tónlist. 24. þáttur: Hvað
er inventsjón? Umsjón: Atli Heimir
Sveinsson.
18.00 islenskt mál. Ásgeir Blöndal Magn-
ússon flytur þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Á tvist og bast. Jón Hjartarson rabb-
ar við hlustendur.
20.00 Harmonikuþáttur. Umsjón: Einar
Guðmundsson og Jóhann Sigurðs-
son. (Frá Akureyri).
20.30 Ókunn afrek - Krypplingurinn frá
Ouro Petro. Ævar R. Kvaran segirfrá.
21.00 islensk einsöngslög. Stefán Islandi
syngur lög eftir Sigfús Einarsson, Sig-
urð Þórðarson, Sigvalda Kaldalóns,
Ingunni Bjarnadóttur o.fl. Fritz Weiss-
happel leikur með á píanó.
21.20 Á réttri hillu. Umsjón: Örn Ingi. (Frá
Akureyri).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma. Andrés Björns-
son les 29. sálm.
22.30 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón
Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á RÁS 2 til kl. 03.00.
Útvazp rás II
01.00 Næturútvarp.
06.00 I bítið - Erla B, Skúladóttir.
09.00 Tiu dropar. Gestir Helga Más Barða-
sonar drekka morgunkaffið hlustend-
um til samlætis.
11.00 Lukkupotturinn. Bjarni Dagur Jóns-
son sér um þáttinn.
12.45 Listapopp í umsjá Gunnars Salvars-
sonar.
14.00 Poppgátan. Jónatan Garðarsson
stýrir spurningaþætti um dægurtónlist.
15.00 Við rásmarkið. Þáttur um tónlist,
íþróttir og" sitthvað fleira i umsjá Sig-
urðar Sverrissonar og iþróttafrétta-
mannanna Ingólfs Hannessonar og
Samúels Arnar Erlingssonar.
17.00 Savanna, Rió og hin tríóin. Svavar
Gests rekur sögu íslenskra söngflokka
í tali og tónum.
18.00 Tilbrigði. Þáttur i umsjá Hönnu G.
Sigurðardóttur.
19.00 Kvöldtréttir.
19.30 Ungæði. Hreinn Valdimarsson og
Sigurður Gröndal senda hlustendum
tóninn og láta flest flakka.
20.00 Rokkbomsan. - Þorsteinn G. Gunn-
arsson.
21.00 Á mörkunum. Jóhann Ölafur Ingva-
son kynnir létt lög.
22.00 Fréttir.
22.05 Snúningur. Vignir Sveinsson kynnir
gömul og ný danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp.
Fréttir eru sagðar klukkan 9.00, 10.00,
11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00.
Bylgjan FM 98,9
08.00 Valdis Gunnarsdóttir. Valdis leikur
tónlist úr ýmsum áttum, lítur á það sem
framundan er hér og þar um helgina
og tekur á móti gestum. Fréttir kl.
08.00 og 10.00.
12.00 í fréttum var þetta ekki helst. Rand-
ver Þorláksson, Júíus Brjánsson o.fl.
bregða á leik.
12.30 Asgeir Tómasson á léttum laugar-
degi. Öll gömlu uppáhaldslögin á
sínum stað. Fréttir kl. 12.00 og 14.00.
15.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi
Rúnar Óskarsson leikur 40 vinsælustu
lög vikunnar. Fréttir kl. 16.00.
17.00 Laugardagspopp á Bylgjunni með
Þorsteini Ásgeirssyni. Fréttir kl. 18.00.
19.00 Rósa Guðbjartsdóttir lítur á atburði
síðustu daga, leikur tónlist og spjallar
við gesti.
21.00 Anna Þorláksdóttir i laugardags-
skapi. Anna trekkir upp fyrir kvöldið
með tónlist sem engan ætti að svíkja.
23.00 Þorsteinn Ásgeirsson, nátthrafn
Bylgjunnar, heldur uppi stanslausu
fjöri.
04.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Haraldur
Gislason leikur tónlist fyrir þá sem fara
seint í háttinn og hina sem fara
snemma á fætur.
Alfa FM 102,9
10.30 Barnagaman. Þáttur fyrir börn með
ýmsu efni. Stjórnendur: Eygló Haralds-
dóttir og Helena Leifsdóttir.
11.30 Hlé.
13.00 Skref í rétta átt. Stjórnendur: Magn-
ús Jónsson, Þorvaldur Danielsson og
Ragnar Schram.
14.30 Á óskalistanum. Óskalagaþáttur í
umsjón Hákonar Múller.
16.00 Hlé.
22.00 Vegurinn til lifsins. Stjórnandi: Sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
24.00 Tónlist.
04.00 Dagskrárlok.
Sjónvazp Ækuzeyzi
09.00 Lukkukrúttin. Teiknimynd.
09.25 Penelópa puntudós. Teiknimynd.
09.50 Herra T. Teiknimynd.
10.20 Garparnir. Teiknimynd.
10,45 Stikilsberja-Finnur. Mynd í fjórum
þáttum, gerð eftir sögu Mark Twain.
Þriðji þáttur.
11.40 Benny Hill. Breskur gamanþáttur.
12.40 Hlé.
18.00 Leifturdans (Flashdance). Jennifer
Beals skaust upp á stjörnuhimininn
eftir leik sinn i þessari mynd. Hún leik-
ur unga stúlku, sem dreymir um aö
veróa dansari og vinnur hörðum hönd-
um til þess að láta drauma sína rætast.
19.35 Ferðir Gúllivers. Teiknimynd.
20.00 Undirheimar Miami (Miami Vice).
Crockett og Tubbs fá það verkefni að
athuga hvort allt sé með felldu með
dómara nokkurn sem virðist sýkna
menn alloft fyrir rétti.
20.55 Heimsmeistarinn aö tafli. Fjórði
þáttur af sex. Hinn ungi snillingur Nig-
el Short og heimsmeistarinn Gary
Kasparov heyja sex skáka einvígi fyrir
sjónvarp á skemmtistaðnum Hippo-
drome í London. Friðrik Ólafsson skýrir
skákirnar.
21.25 Koppafeiti (Grease) Bandarisk kvik-
mynd með John Travolta og Olivia
Newton-John í aðalhlutverkum.
Dans- og söngvamyndin sem sló öll
aðsóknarmet þegar hún var sýnd og
kom af stað hinu svokallaða „giis-
æði" meðal unga fólksins.
23.15 Buffalo Bill. Deilur Bill og dóttur
hans eru útkljáðar i beinni útsendingu.
23.45 Kir Royale. Nýr þýskur framhalds-
þáttur. Skyggnst er inn i líf yfirstéttar-
innar og „þotuliðsins" í Múnchen.
00.50 Vetur óánægjunnar. (The Winter ot
our Discontent). Fræg bandarisk kvik-
mynd byggð á sögu John Steinbeck.
Aðalhlutverk eru i höndum Donald
Sutherland, Teri Garr og Tuesday
Weld. Miðaldra manni finnst aldurinn
vera að færast yfir sig og tækifærin aö
renna honum úr greipum. I örvænt-
ingu sinni gripur hann til örþrifaráða.
02.30 Dagskrárlok.
Svæðisútvazp
Akureyzi___________________
18.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og ná-
grenni. - FM 96,5. Um að gera. Þáttur
fyrir unglinga og skólafók um hvað-
eina sem ungt fólk hefur gaman af.
Simnudagur
22. mazs
Sjónvazp
14.30 íslandsmeistaramótiö i fimleikum.
Bein útsending frá úrslitakeppni I
Laugardalshöll.
17.00 Sunnudagshugvekja.
17.10 Tónlist og tiðarandi I. Hirðskáld i
hallarsölum. 2. Tónlist við hirö Lúðvíks
fjórtánda. Breskur heimildarmynda-
flokkur um tónlist og tónskáld á
ýmsum öldum. Einnig er lýst þvi um-
hverfi, menningu og aðstæðum sem
tónskáldin bjuggu við og mótuðu verk
þeirra. I þessum þætti er lýst blómlegu
tónlistarlífi við hirð sólkonungsins og
ber þar hæst tónskáldin Lully, de La-
lande og Couperin. Þýðandi Margrét
Heinreksdóttir.
18.00 Stundin okkar. Barnatimi Sjónvarps-
ins. Umsjón: Agnes Johansen og
Helga Möller.
18.35 Þrífætlingarnir. (TheTripods) - Att-
undi þáttur. Breskur myndaflokkur I
þrettán þáttum fyrir börn og unglinga,
gerður eftir kunnri vísindaskáldsögu
sem gerist árið 2089. Þýðandi Þór-
hallur Eyþórsson.
19.00 Á framabraut. (Fame) - Sextándi
þáttur. Bandariskur myndaflokkur um
nemendur og kennara í listaskóla I
New York. Þýðandi Gauti Kristmanns-
son.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Dagskrá næstu viku. Kynningar-
þáttur um útvarps- og sjónvarpsefni.
20.50 Geisli. Þáttur um listir og mennirtg-
armál. Umsjón: Matthías Viðar
Sæmundsson og Guðný Ragnars-
dóttir. Stjórn: Sigurður Snæberg
Jónsson.
21.35 Colette. Nýr flokkur - Fyrsti þáttur.
Franskur framhaldsmyndaflokkur í
fjórum þáttum um viðburðaríka ævi
skáldkonunnar. Colette (1873-1954)
ólst upp í sveit en fluttist ung aö árum
til Parisar, þá nýgift sér miklu eldri
manni. ^ar hóf hún ritstörf en fyrstu
verk hennar voru gefin út undir nöfnum
þeirra hjóna beggja. Brátt skildust
leiðir en Colette hóf sjálfstæðan feril.
Hún hélt áfram að skrifa en auk þess
starfaði hún um skeið sem dansmær
i reviuleikhúsi, tónlistargagnrýnandi
og snyrtivöruframleiðandi. Eftir hana
liggur fjöldi skáldverka, sjálfsævisögu-
legra frásagna og greina. Aðalhlutverk
Clémentine Amouroux, Macha Méril
og Jean-Pier're Bisson. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
22.20 Ólymposþjóðgarðurinn. Þýsk heim-
ildarmynd af fögrum og sögufrægum
slóðum i Grikklandi. Þýðandi og þulur
Þórhallur Eyþórsson.
23.15 Dagskrárlok.
Stöö 2
09.00 Alli og íkornarnir. Teiknimynd.
09.20 Stubbarnir. Teiknimynd.
09.40 Drekar og dýflissur. Teiknimynd.
10.05 Rómarfjör. Teiknimynd.
10.30 Prinsessa fyrirliðanna (Quart-
erback Princess). Bandarisk sjón-
varpskvikmynd um stelpu sem gerist
fyrirliði i fótboltaliði skólans.
12.00 Hlé.
15.30 íþróttir. Blandaður þáttur með efni
úr ýmsum áttum. Umsjónarmaður er
Heimir Karlsson.
16.45 Um viða veröld. Fréttaskýringa-
þáttur i umsjón Þóris Guðmundssonar
og Helgu Guðrúnar Johnsen.
17.05 Matreiðslumeistarinn. Ari Garðar
Georgsson kennir áhorfendum Stöðv-
ar 2 matargerðarlist. 1. þáttur endur-
sýndur.
17.00 Sigurboginn (Arch Of Triumph).
Bandarisk biómynd. Leikstjóri Waris
Hussein. Með aðalhlutverk fara Ant-
. hony Hopkins, Lesley-Ann Down og
Donald Pleasance. Mynd þessi er gerð
eftir sögu Erich Maria Remarque og á
hún sérstað i seinni heimsstyrjöldinni.
19.05 Ferðir Gúllivers. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Cagney og Lacey. Bandariskur
myndaflokkur með Sharon Gless og
Tyne Daly i aðalhlutverkum.
20.50 Námakonan (Kentucky Woman).
Bandarisk sjónvarpsmynd með Cheryl
Ladd og Luke Telford í aðalhlutverk-
um. Myndin gerist i námahéraði i
Bandarikjunum. Ung kona brýtur sér
leið gegnum þykkan skóg fordóma og
fer að vinna jafnfætis karlmönnum í
námu. Við þá reynslu verður hún
margs visari um sjálfa sig og það fólk
sem í kringum hana er.
22.25 Lagakrókar (L.A.Law). Þáttur
þessi fékk Golden Globe verðlaunin i
ár sem besti framhaldsþáttur i sjón-
varpi. Fylgst ei með nokkrum lögfræð-
ingum í erilsömu starfi og utan þess.
23.10 Elvis Presley. Priscilla Presleysýn-
ir okkur heimkynni rokkkóngsins i
Graceland, Memphis, bilaflotann og
salarkynni i einangruðum heimi
stjörnulífsins.
00.15 Dagskrárlok.
Utvazp zás I
08.00 Morgunandakt. Séra Lárus Þ. Guð-
mundsson prófastur flytur ritningarorð
og bæn.
08.10 Fréttir.
08.15 Veðurfregnir. Lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna. Dagskrá.
08.30 Létt morgunlög.
09.00 Fréttir.
09.05 Morguntónleikar. a. Ghena Dimi-
trova syngur tvær óperuaríur eftir
Verdi. Sinfóníuhljómsveit útvarpsins i
Múnchen leikur; Lamberto Gardelli
stjórnar. b. Sinfónía nr. 4 í B-dúr op
60 eftir Ludwig van Beethoven. Fíl-
harmoniusveit Vínarborgar leikur;
Leonard Bernstein stjórnar. b. Rita
Streich syngur lög eftir Saint-Saens
og Weber. Sinfóníuhljómsveitir út-
varpsins i Berlln leika. Kurt Gaebel og
Eugen Jochum stjórna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Þjóðtrú og þjóðlif. Þáttur um þjóðtrú