Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987.
21
Sjónvarpið laugardag kl. 22.40:
Grein 22
- byggð á metsölubók Joseph Hellers
Fjöldi valinkunnra leikara kemur
fram í myndinni Grein 22, meðal
þeirra er hinn umdeildi Orson
Welles.
Grein 22, eða Catch 22, bíómynd
sem byggð er á samnefndri met-
sölubók Joseph Hellers verður á
dagskrá sjónvarpsins á laugar-
dagskvöld. En sem kunnugt er
sýndi sjónvarpið í vikunni heimild-
arþátt um höfundinn sem hefur
skrifað margar bækurnar sem selst
hafa í milljónum eintaka.
Myndin Grein 22 gerist á Italíu
í seinni heimsstyrjöldinni og lýsir
lífi bandarískra flugliða í árásar-
ferðum og tómstundum. leikendur
í myndinni eru Alan Arkin, Martin
Balsam, Richard Benjamin, Art
Garfunkel, Jack Gilford, Anthony
Perkins og Orson Welles.
Atriði í myndinni eru ekki við
hæfi barna.
Stöð 2 laugardag H. 20.50:
Lífið er stundum
dans
á þymirósum
Dans á rósum er ný áströlsk sjón-
varpsmynd sem greinir frá þremur
kynslóðum Wilde fjölskyldunnar
sem hefur það að atvinnu að
skemmta almenningi. Fjölskyldan
nærist á skemmtiiðnaðinum og
reka þar á meðal fjölleikahús,
skemmtigarða og leikhús.
Fjölskyldan á glæsta framtíð fyr-
ir höndum en allt kemur fyrir ekki,
ýmsir óvenjulegir og dularfullir
atburðir fara að eiga sér stað, elds-
voði, ljón sleppur úr búri sínu og
hrellir nærstadda, svo eitthvað sé
nefnt.
Innbyrðis erjur innan fjölskyld-
unnar líta dagsins ljós, spurningin
um völd og rekstur fyrirtækjanna
. fer að setja svip sinn á líf íjöl-
skyldumeðlimanna.
Dans á rósum er ný áströlsk sjón-
varpsmynd sem greinir frá þremur
kynslóðum Wilde fjölskyldunnar
sem hefur það að atvinnu að
skemmta almenningi.
Afrika verður til umfjöllunar á næstu sunnudögum i Rikisútvarpinu.
Högni hrekkvísi sjarmerar að
vanda allar læður upp úr skónum
með uppátækjum sinum.
Stöð 2 sunnudag
kl. 9.00:
Pjórir
ævintýra-
krakkar
Nokkrar teiknimyndir og aðrar
ævintýramyndir eru að vanda á
sunnudagsmorgnum á stöð 2. Ein
leiknu ævintýramyndanna er um
fjóra hressa krakka sem lenda í
ýmsum ævintýrum og nefnist sá
þáttur Henderson-krakkarnir.
Einnig eru Högni hrekkvísi og
Santi snarráði alltaf að gera ein-
hver prakkarastrik sem börnum á
öllum aldri finnst gaman að. Fyrir
þá sem vakna hressir á sunnudags-
morgnum og gaman hafa af sjón-
varpsteiknimvndum ætti að vera
óhætt að kveikja á kassanum
klukkan níu árdegis.
Teiknimyndaflokkur um þrjú börn
og félaga þeirra i leit að gullborg
í Suður-Ameríku á tímum land-
vinninga Spánverja þar í álfu.
Sjónvarpið laug-
ardag kl. 18.30:
RUV, rás 1, sunnudag kl. 23.20:
Afríka
- móðir tveggja heima
Þáttaröð um Afríku hefur göngu
sína á sunnudagskvöid í Ríkisút-
varpinu þar sem fjallað er um
Afríku sem móður tveggja heima.
Um efnistök sín segir umsjónar-
maðurinn, Jón Gunnar Grétarsson,
í inngangi meðal annars: „Þó að
mikil sól skíni í Afríku hefur hún
þó lengst af verið sveipuð myrkri
og dulúð. Margir halda vafalaust
enn að saga Afríku geti ekki verið
veigamikil eða löng og vissulega
hefur hún verið álitin hin myrkra
heimsálfa sem einungis var lýst upp
með leiftrum erlendra boðflenna."
A öðrum stað segir hann: „Sam-
hengið í Afríkusögunni verður
athugað í nokkuð grófum dráttum.
svo og tengslin milli Afríku og
Evrópu annars vegar og Afríku og
Bandaríkjanna hins vegar." Og í
lok textans bendir hann á að í dag
berjist svertingjar fyrir frelsi sínu
og mannréttindum, bæði í Afríku
og Bandaríkjunum. Saga þeirrar
baráttur, sem nær aftur fyrir upp-
haf þrælaverslunar, er mikilvæg
og varpar skýrara ljósi á það við-
horf sem Vesturlandabúar hafa
gagnvart Afríku og afkomendum
hennar.
Leyndardómur
Gull-
borgariimar
Þriðji teiknimyndaflokkur um
þrjú börn og félaga þeirra í leit að
gullborg í Suður-Ameríku á tímum
landvinninga Spánverja þar í álfu.
Myndin fjallar um ungan dreng
(Esteban) sem kallaður er sólar-
drengur vegna þess yfirnáttúrulega
krafts sem hann býr yfir. hann get-
ur alltaf beðið sólina að stöðva
rigninguna hvenær sem hann vill.
Esteban vissi ekkert um uppruna
sinn því hann hafði verið tekinn í
fóstur sem kornabarn af munki.
Er munkurinn deyr vill Esteban
leita uppruna síns, hver var hann?
Hvaðan kom hann? I þessari leit
sinni lendir Esteban í ýmsun ævin-
týrum.
Bruce Boxleitner og Barbara Hershey leika elskendurna í myndinni.
Stöð 2 laugardag kl. 23.20:
Píslarblómið
- heitar ástríður
Myndin gerist i Singapore og
fjallar um ungan mann (Larry) sem
er að hefja feril sinn i viðskiptalíf-
inu. í partýi kynnist hann giftri
konu og verður strax ástfanginn
af henni. Upp úr því hefst ástar-
samband en vandamálið er að þetta
glæsikvendi (Julia) er gift. Larry
kemst að því að Julia er dóttir vel-
lauðugs Breta sem á mjög vafa-
sama fortíð og hefur hagnast á
smygli og öðrum vafasömum við-
skiptaháttum. Þau feðginin virðist
ekkert vera allt of sátt og Juliu
finnst faðir sinn vera viss hindrun
í lifi sínu. sameiginlega ákveða þau
að ráða hann af dögum. Plottið
virðist ætla að takast en þá kemur
bobb í bátinn. það var þegar búið
að drepa hann og Larry liggur und-
ir grun.
Sjónvarpið sunnudag kl. 20.50:
Uppakýnslóðin á uppleið
Þáttur um ungt fólk. sem er að
hasla sér völl í atvinnulífinu. verð-
ur á dagskrá sjónvarpsins á
sunnudag og nefnist hann Er ný
kvnslóð að taka við? Hér er um að
ræða umfjöllun um fólk á uppleið
og hafa þeir daglegu tali verið kall-
aðir „uppar" samanber „hippar"
frá blómatímanum en eru í raun
þveröfugar týpur. Eitt skondið
dæmi um Ameríkuuppana er á þá
leið að oft á tíðum sér maður þar
i landi. hlaupandi um strætin. ung-
ar myndalegar konur. vel klæddar
og þar fram eftir götunum. en ef
litið er á skófatnaðinn koma í ljós
strigaskór. Skýringin á þessum
andstæðum er samt einföld. Við
störf klæðast þær háhæluðum
skóm en þar sem allt þarf að gerast
á mettíma og erfitt er að hlaupa á
háum hælum bregða þær sér í
strigaskó til að vera frárri á fæti.
Umsjón með þættinum hefur As-
dís Loftsdóttir úr þáttunum I takt
við tímann.
RÚV, rás 2, sunnudag kl. 15.00:
Tónlistarkrossgátan
Annar hver sunnudagur er mörgum mönnum sem gaman hafa af kross-
gátuleikjum tilhlökkunardagur og þennan sunnudag mun krossgátu-Jón
Gröndal leggja sjötugustu og áttundu krossgátuna fyrir hlustendur.
Lausnir sendist til Ríkisútvarpsins Rás 2, Efstaleiti 1, 108 Revkjavík.
Merkt Tónlistarkrossgátan.